Hugleikur tvíleikur

Sunnudagskvöldið 30. maí frumflytur leikfélagið Hugleikur einþáttungadagskrána Tvíleik. Þar verða sýnd tvö stuttverk fyrir tvo leikara sem urðu til á höfundasmiðju í umsjón Árna Kristjánssonar í lok vetrar. Dagskránni verður streymt á Facebook og viðburðinn má finna hér. Sýningin hefst kl. 20. Vegna sóttvarnarreglna komast einungis örfáir áhorfendur í salinn og áhugasömum er því bent […]

Þar sem hjartað ræður för

Það var mikil tilhlökkun hjá barnabörnunum að fara með afa í Þjóðleikhúsið og sjá  hátíðarsýningu Leikfélags Sólheima Árar, álfar og tröll í tilefni 90 ára afmælis félagsins. Spurt var á leiðinni hvort að það væri sungið í sýningunni og hvort að leikararnir þyrftu að vera með grímu. Þegar tjaldið var síðan dregið frá stórskemmtilegri sýningu […]

Nei, ráðherra í Hveragerði

Ungur ráðherra nýtekinn við embætti í ríkistjórn Katrínar Jak er heldur búinn að koma sér í vandræði á Hótel Borg. Oft hefur aðstoðarmaður ráðherra þurft að losa yfirmasnn sinn úr hinum undarlegustu aðstæðum og sópað ýmsu miður geðslegu undir teppið en aldrei sem nú. Leikfélag Hveragerðis frumsýnir föstudaginn 14. maí gamanfarsann Nei, ráðherra eftir Ray […]

Afmælissýning Leikfélags Sólheima í Þjóðleikhúsinu

Hátíðarsýning verður á Árum, álfum og tröllum, leiksýningu Leikfélags Sólheima í Þjóðleikhúsinu 24. maí næstkomandi. Leikfélag Sólheima var stofnað árið 1931 og á því 90 ára afmæli í ár. Leikritið Árar, álfar og tröll var frumsýnt í Sólheimaleikhúsinu á sumardaginn fyrsta, þann 22. apríl sl. Sýningin sló rækilega í gegn og uppselt varð á allar […]

Aðalfundur Leikfélags Selfoss miðvikudaginn 12. maí

Aðalfundur Leikfélags Selfoss 2021 verður haldinn miðvikudaginn 12. maí kl. 20:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Viðhöfð verða venjuleg aðalfundarstörf, m.a. stjórnarkjör og inntaka nýrra félaga.  Aðalfundir L.S. eru heimilislegir og í flesta staði léttir og skemmtilegir. Allir eru velkomnir. Sérstaklega er vakin athygli á því að nýir félagar geta gengið formlega í félagið á […]

Á frívaktinni á Króknum á áttræðisafmælinu

Leikfélag Sauðárkróks  fagnar á þessu ári 80. ára afmæli en 9 janúar á þessu ári eru 80 ár síðan félagið var endurstofnað.  Af því tilefni er planið að heimsfrumsýna nýtt verk 7. maí næstkomandi sem heitir Á frívaktinni. Höfundur þess og leikstjóri er Pétur Guðjónsson. Sögusviðið er sjávarþorp, einhvers staðar á Íslandi á tímum síldaráranna […]

Frumsýning 1. apríl fór úrskeiðis hjá Bakkabræðrum

Kómedíuleikhúsið kemur nú tvíelft til baka eftir síðasta samkomubann og  ætlar sér að frumsýna Bakkabræður með pompi og prakt þann 22. maí í  Kómedíuleikhúsinu í Haukadal, Dýrafirði. Þetta er önnur tilraun  leikhússins til að frumsýna verkið enda hvern hefði órað fyrir að eitthvað gæti farið úrskeiðis við að frumsýna verk um klaufabárðana Bakkabræður þann 1. apríl […]

Aðalfundur BÍL í Reykjanesbæ

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga var haldinn á Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ um helgina. Í ljósi aðstæðna var fundurinn stuttur og fámennur en engu að síður skilvirkur og skemmtilegur. Á dagskrá voru venjulega aðalfundarstörf en auk þess var samþykkt lagabreyting sem opnar fyrir möguleika á ræfrænni þátttöku á aðalfundum. Þá var einnig samþykkt tillaga stjórnar […]

Tillaga að lagabreytingu frá stjórn BÍL

Aðalfundur BÍL 2021 Fyrirliggjandi er tillaga að lagabreytingu frá stjórn BÍL er varðar framkvæmd aðalfunda og hljóðar hún svo:  ——  Tillaga til breytingar á 6. grein a-lið: Eftir setninguna „Allir fundarmenn hafa málfrelsi og tillögurétt.“ detti núverandi texti í a-lið út en í staðinn komi eftirfarandi: „Ef knýjandi aðstæður eru fyrir hendi er stjórn BÍL […]

Lagfæringar á vefnum

Nú standa yfir lagfæringar og uppfærslur á Leiklistarvefnum. Því virkar ekki allt sem skyldi en vonandi næst að koma öllu í stand síðar í dag eða kvöld. Ef þið getið ekki nýtt ykkur vefinn er hægt að hafa samband við info@leiklist.is. Erindum svarað fljótt og vel.

Höfundar í heimsókn

Ákveðið hefur verið að bjóða allt að 5 pláss fyrir höfunda í heimsókn í Leiklistarskóla BÍL í sumar. Skýrt skal þó tekið fram að ekki verður hægt að bjóða upp á sér rými fyrir það. Höfundar í heimsókn þurfa að nota þau rými sem eru laus og námskeiðshópar munu hafa forgang í rými þegar nauðsyn […]

Kvikan streymir hjá Hugleik

Leikfélagið Hugleikur sýnir einþáttungadagskrá Kvikan streymir laugardagskvöldið 24. apríl kl. 20:00. Sýnt er í æfingahúsnæði félagsins að Langholtsvegi og vegna sóttvarnarráðstafana komast ekki nema örfáir áhorfendur að. Því verður bryddað upp á nýjung hjá félaginu og sýningunni streymt beint gegnum Facebook. Dagskráin, sem fengið hefur nafnið Kvikan streymir, er fyrsta verkefnið sem Hugleikur setur upp […]

Þjónustumiðstöð lokuð næstu viku

Þjónustumiðstöð BÍL verður lokuð gestum og gangandi frá og með mán. 19. apríl til fös. 23. apríl vegna Covid sóttkvíar. Áfram verða þó öllum erindum sem hægt er að afgreiða rafrænt svarað í netfanginu info@leiklist.is. T.d. er hægt að panta rafræn handrit. Einnig er hægt að panta í vefverslun en pantanir ekki afgreiddar fyrr en […]

Árar, álfar og tröll á Sólheimum

Leikfélag Sólheima hefur sýningar á verkinu Árar,álfar og tröll: Sólheimaævintýri. Frumsýnt verður í Sólheimaleikhúsinu á sumardaginn fyrsta, þann 22.apríl og verða 5 talsins. Verkið er skrifað af Hannesi Blandon og Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni en Lárus Sigurðsson gerði tónlistina. Guðmundur leikstýrir einnig verkinu en hann er leikfélaginu að góðu kunnur þar sem þetta er í fimmta […]

Leikfélag Ölfuss í eigið húsnæði

Eftir langa bið hefur stórt skref verið tekið í uppbyggingu menningarlífs í Ölfusi en Leikfélag Ölfuss fær nú loksins sitt eigið leikhús. Allt frá stofnun félagsins árið 2005 hefur félagið sýnt í Versölum, menningarhúsi sveitarfélagsins en það hús hefur verið samnýtt með ýmiss konar annarri starfsemi með tilheyrandi árekstrum. Til að mynda hefur þurft að […]

Rúi og Stúi mæta aftur

Sýningar á barnaleikritinu Rúa og Stúa hjá Leikfélagi Kópavogs hefjast aftur nú um helgina eftir stopp vegna samkomutakmarkana. Rúi og Stúi hafa smíðað vél sem getur allt. Hún getur búið til hluti, gert við hluti, gert afrit af hlutum og jafnvel gert nákvæma styttu af bæjarstjóranum. Eða hvað? Vélin bilar, bæjarstjórinn hverfur og dularfull kráka […]

Leikarinn sem höfundur – vinnustofa á vefnum

Alþjóðaáhugaleikhúshreyfingin hefur undanfarið staðið fyrir vinnustofum á vefnum til að bregðast við ástandinu í leikhúsheiminum. Næsta vinnustofa verður 26. apríl og er efni hennar leikarinn sem höfundur. 18 ára og eldri geta sótt um hér. Aðgangur er ókeypis. Nánar má fræðast um vinnustofurnar hér.

Lokun Þjónustumiðstöðvar um páska

Þjónustumiðstöð BÍL verður lokuð um páskana frá og með þriðjudegi 30. mars til og með mánudegi 5. apríl. Erindum sem hægt er að afgreiða í tölvupósti verður svarað og einnig er vefverslunin opin allan sólarhringinn. Afgreiðsla pantana gæti þó dregist vegna almennra frídaga framundan.

Alþjóðaleikhúsdagurinn 27. mars

Alþjóðaleikhúsdagurinn er í dag 27. mars. Fyrir hönd NEATA, Norður-Evrópska áhugaleikhúshreyfingarinnar hefur Zacharias Östman hjá Sveriges Arbetarteaterförbund skrifað ávarp sem birt er á nýopnuðum vef samtakanna, neata.eu.

Höfundarréttur sviðsverka

Umboðsskrifstofan Nordiska ApS í samráði við Dansk Teaterforlag hefur unnið bækling um höfundarrétt sviðsverka. Bæklingurinn sem þýddur er af Hávari Sigurjónssyni gefur góða sýn yfir höfundarrétt og sýningarétt sviðsverka. Aðildarfélög BÍL sem og aðrir sem fást við sviðslistir eru hvattir til að ná í bæklinginn hér og kynna sér efni hans.

Bakkabræður hjá Kómedíuleikhúsinu

Bakkabræður er bráðfjörug sýning um hina einu sönnu bræður frá Bakka þá Gísla, Eirík og Helga sem líklega eru með þekktustu klaufabárðum Íslandssögunnar. Í sýningunni eru kostuleg ævintýri Bakkabræðra sett í spaugilegan búning með töfrum brúðuleikhússins. Lögin í sýningunni eru sungin af Diddú við tónlist sem Björn Thoroddsen, gítarleikari, samdi og flytur. Marsibil G. Kristjánsdóttir […]

Rúi og Stúi hjá Leikfélagi Kópavogs

Rúi og Stúi hafa smíðað vél sem getur allt. Hún getur búið til hluti, gert við hluti, gert afrit af hlutum og jafnvel gert nákvæma styttu af bæjarstjóranum. Eða hvað? Vélin bilar, bæjarstjórinn hverfur og dularfull kráka og enn dularfyllri stórþjófur koma öllu í uppnám. Hvað er til ráða annað en að baka sjálfur jólaköku? Fær […]

Opið fyrir umsóknir í Leiklistarskóla BÍL

Opnað verður fyrir umsóknir í Leiklistarskóla BÍL 2021, sunnudaginn 14. mars kl. 16.00. Boðið er upp á 4 námskeið að þessu sinni. Námsskrána má sjá hér. Þeir nemendur sem fengu ekki að fullu endurgreitt staðfestingargjald þegar skólahald var fellt niður í fyrra eiga tryggt pláss en þurfa engu að síður að senda inn nýja umsókn. […]

Leikfélagið Borg sýnir 39 þrep

Leikfélagið Borg frumsýndi 39 þrep eftir Patrick Barlow síðastliðinn laugardag. Sýningar verða alla föstudaga og laugardaga í mars kl 20:00. Herra Hannay er ósköp venjulegur, einmana piparsveinn í London. Dagar hans eru allir eins og fremur lítið að gerast í lífi hans. Óvænt flækist hann inn í sakamál þegar framið er morð í litlu íbúðinni […]

Leiklistarskóli BÍL 2021

Námsskrá Leiklistarskóla BÍL sumarið 2021 liggur nú fyrir. Í boði verða 4 námskeið, þau sömu og ætlunin var að halda síðasta sumar þegar Covid-19 setti strik í reikninginn og skólahald var fellt niður. Breyting hefur þó orðið á kennurum á tveimur námskeiðum. Nánari upplýsingar um skólahaldið er að finna hér. Opnað verður fyrir umsóknir hér […]

Leiklistarskólinn 2021

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text admin_label=“Text“ _builder_version=“4.9.10″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″] Starfstími skólans er að þessu sinni 19. – 27. júní 2021 að Reykjaskóla í Hrútafirði.  Kveðja frá skólanefnd Kæru leiklistarvinir!Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn […]

Höfundasmiðja hjá Hugleik

Árni Kristjánsson stýrir Höfundasmiðju hjá leikfélaginu Hugleik í febrúar og mars. Kennt verður yfir þrjár helgar í alls 18 tíma. Höfundar fá þjálfun í undirstöðuatriðum leikritunar með heilum haug af stuttum verklegum verkefnum. Verkefnin eru til þess ætluð að hjálpa höfundum við lokaverkefni smiðjunnar sem er heildstæður einþáttungur fyrir tvær persónur. Leikritunarsmiðjan kynnir einfaldar og […]

Beint í æð hjá Leikfélagi Keflavíkur

Hvað gerir taugaskurðlæknir þegar gömul hjásvæfa hans mætir, óumbeðin, rétt áður en hann á að flytja mikilvægasta fyrirlestur ferilsins og tilkynnir honum það að hann eigi fullvaxta son? Af hverju er löggan komin í málið? Af hverju grettir Grettir Sig sig? Hvað ætli Súsanna, konan hans, segi? Hvað er Páll Óskar að gera þarna? Hver […]

Leiklistarnámskeið fyrir fullorðna í Mosfellsbæ

Leikfélag Mosfellssveitar býður upp á leiklistarnámskeið fyrir eldri unglinga og fullorðna í febrúar og mars. Námskeiðin standa yfir í fimm vikur. Annars vegar er boðið upp á námskeið fyrir 16-18 ára, einu sinni í viku frá 24. feb. – 24. mars og hins vegar 19 ára og eldri, tvisvar í viku 24. feb. – 24. mars. Kennari […]