Author: lensherra

RVK Fringe Festival hefst 29. júní

Hin árlega jaðarlistahátíð RVK Fringe Festival fer fram í annað sinn dagana 29. júní til 6. júlí. Hátíðin hefur tvöfaldast að stærð frá því á liðnu ári og verða yfir 250 sýningartímar á um 100 mismunandi viðburðum á hátíðinni. Um er að ræða fjöllistahátíð sem er rekin af sjálfboðaliðum, og hafa áhorfendur val um að sjá alls kyns listasýningar, s.s. myndlist, tónlist, leiklist, dans, uppistand, kabarett, drag og stafræna list, ásamt því að geta sótt námskeið. Þó eitthvað sé um viðburði á íslensku, þá fara flestir viðburðir fram á ensku eða án talaðs máls. Viðburðirnir eru jafn margir og...

Read More

Huldufugl sópar að sér verðlaunum

Íslenski/breski listhópurinn Huldufugl hefur nýlokið mánaðar ferðalagi um Bretland og Bandaríkin með leiksýninguna Kassann. Sýningin fer fram í sýndarveruleika, og er aðeins fyrir einn áhorfanda í einu. Sýningin var frumsýnd á Reykjavík Fringe Festival fyrir ári síðan, en hefur tekið þó nokkrum breytingum á undanförnu ári og mætti segja að hún verði frumsýnd að nýju á Íslandi í þarnæstu viku. Á síðastliðnu ári hefur sýningin farið til Stokkhólms, Berlínar, Brighton, London, Los Angeles og San Diego og hefur hvarvetna selst upp á örskotsstundu og sýningin hlotið lof gagnrýnenda. Einnig hefur sýningin unnið til verðlauna á þeim hátíðum sem hún hefur...

Read More

Sumarnámskeið á Selfossi

Leikfélag Selfoss verður að venju með sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í leiklist. Unnið verður með framkomu, tjáningu, sjálfsöryggi á sviði, samvinnu og almenna jákvæðni í garð leiklistar. Farið verður í ýmsar leiklistaræfingar og spuna ásamt því að efla sjálfstraust, hugarflug, gleði og jákvæðni. Sumarið 2019 verða fimm fjörug leikhúsnámskeið í boði fyrir börn á aldrinum 7–13 ára (fædd 2006–2012), og eitt í ágúst fyrir 12-16 ára (2003-2007) Námskeiðin verða eftirfarandi vikur: 18. – 21. júní kl. 11:00 – 16:00 24. – 28. júní kl. 12:00 – 16:00 1. – 5. júlí kl. 12:00 – 16:00 8. – 12....

Read More

Leiklist, tónlist og jóga

Í sumar munu þrjár afar ólíkar og skapandi konur halda námskeið fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára sem inniheldur skemmtilega blöndu af jóga, tónlist og leiklist. Þær heita Guðrún Bjarnadóttir leikkona, Arndís Hreiðarsdóttir (Dísa) tónskáld/ tónlistarkona og Eydís Eir Brynju- Björnsdóttir kvikmyndagerðakona og jógakennari. Námskeiðið fer fram í sumar og fyrsta námskeiðið er frá 18-21. júní og enn nokkur laus pláss. Næstu námskeið fara fram í júlí og ágúst en um er að ræða 4-5 daga námskeið, þrjá tíma í senn. Nánari upplýsingar er að finna á: yogadis.is/skapandi-krakkar/ facebook.com/skapandikrakkar Sendið póst á skapandikrakkar@gmail.com fyrir frekari upplýsingar eða hringið í...

Read More

Leikróf í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Leikróf í Leikhúsinu, Funalind 2, laugardaginn 1. júní kl. 17.00. Miðasala er á á vef félagsins.  Á dagskránni eru eftirfarandi verk: Át takið Höfundur: Ólafur Þórðarson Leikstjórn: Arnfinnur Daníelsson/Hörður Sigurðarson Leikarar: Birgitta Hreiðarsdóttir, Halldóra Harðardóttir, Ólöf P. Úlfarsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir Boðorðin 10 Höfundur: Steinunn Þorsteinsdóttir Leikstjórn: Sigrún Tryggvadóttir Leikarar: Sigríður Sól Indriðadóttir, Ellen Dögg Sigurjónsdóttir Engin vettlingatök Höfundur: Þórunn Guðmundsdóttir Leikstjórn: Örn Alexandersson Leikari: Valgerður Rannveig Ásgeirsdóttir Hinir óvelkomnu Höfundur: Walter Wykes Þýðing: Hörður Sigurðarson Leikstjórn: Hörður Sigurðarson Leikarar: Halldóra Harðardóttir, Halldór Sveinsson og Maria Araceli Miðaverð er 1.500 kr. og miðasala á vef...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert