Author: lensherra

Requiem – einleikur/gjörningur

„Guðrún vaknar í eigin jarðarför en kann ekki við að trufla með því að láta vita að hún sé á lífi.“ Leikhópur sem þær skipa Eyrún Ósk Jónsdóttir og Hildur Kristín Thorstensen sýnir einleikinn Requiem. Leikari og höfundur er Eyrún Ósk Jónsdóttir og leikstjóri er Hildur Kristín Thorstensen. Tónlist og leikhljóð samdi Ólafur Torfason. Sýningar verða laugardaginn 31. ágúst kl. 17:00 og 20:00 og sunnudaginn 1. sept kl. 18:00. Sýnt er í Lífsgæðasetrinu St. Jósepsspítala í Hafnarfirði, gengið inn frá Hringbraut. Miðaverð er 3000 kr og miðapantanir eru á jofridarstadir@gmail.com Eyrún Ósk Jónsdóttir er útskrifaður leikari frá Rose Bruford...

Read More

Trúðasýning um pyntingar

Companía Patricia Pardo heimsækir Tjarnarbíó í annað sinn, nú með einlægu trúða-, sirkús- og leiksýninguna Kýrin sem hlær. Verkið fjallar um getu mannsins til að pynta og græða sár og teflir fram andstæðum heimum um misnotkun, dauða, breyskleika mannsins og sköpunargáfu. Sameinuðu þjóðirnar skilgreina pyntingar sem sérhvern verknað þar sem fólk er gagngert beitt sársaukafullu andlegu eða líkamlegu ofbeldi í þeim tilgangi að fá frá viðkomandi eða þriðja aðila upplýsingar eða játningu til að refsa, hræða eða þvinga. Opinber embættismaður eða annar opinber aðili veldur eða veitir samþykki sitt fyrir því að sársaukanum eða þjáningunni sé valdið. Leikhópurinn Compania...

Read More

Leiklistarnámskeið í Kópavogi

Í september hefst leiklistarnámskeið á vegum Leikfélags Kópavogs sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun.Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í 6 skipti og aldurstakmark er 21 árs. Námskeiðsgjald er 10.000 kr. en skráðir félagsmenn greiða 5.000 kr. Athugið að skráning í félagið er öllum opin gegn 3.000 kr. félagsgjaldi. Sjá nánar hér. Námskeiðið hefst mánudaginn 9. september og eru námskeiðstímar sem hér segir: Mán....

Read More

Óríon frumsýnir Ó, fagra veröld

Leikfélagið Óríon frumsýnir leikritið Ó, fagra veröld eftir Anthony Neilson fimmtudaginn 22. ágúst. Sýnt er í leikhúsi Leikfélags Kópavogs að Funalind 2 í Kópavogi. Leikstjórn er í höndum Önnu Írisar Pétursdóttur. Með uppsetningunni rætist langþráður draumur leikfélagsins, enda hefur sýningin verið á radar félagsins síðan árið 2013. Ó, fögru veröld mætti lýsa sem einskonar fullorðins útgáfu af Lísu í Undralandi. Við fylgjum Lísu Jónsdóttur í heimsókn hennar til ævintýralandsins Sundralands þar sem allt getur gerst. Hún er stödd í þessari undraveröld í leit að klukkustund sem hún hefur glatað. Í leitinni rekst Lísa á fjölda skrautlegra persóna í ennþá...

Read More

Áheyrnarprufur – Gauragangur í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla setur upp Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar í vetur. Leitin að Ormi, Lindu, Höllu, Ranúr og félögum er hafin og haldnar verða áheyrnarprufur sunnudaginn 1. september fyrir þá sem vilja taka þátt. Leitað er að hæfileikaríku fólki á aldrinum sextán ára og uppúr til að taka þátt í þessu rífandi skemmtilega stykki. Leifélagið hefur leika með söngprufum sunnudaginn 1. september, í félagsheimilinu á Melum í Hörgárdal. Áhugasamir um sönghlutverk skrái sig í prufur með tölvupósti í netfang veronikarut@gmail.com með stuttri samantekt þar sem fram kemur nafn, aldur, fyrri reynsla af leikhúsi og/eða...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert