Year: 2011

Lokasýning á Rocky Horror

Föstudaginn 4. mars klukkan 20:00 er lokasýning á söngleiknum Rocky Horror sem Leikfélag Akureyrar hefur sýnt fyrir fullu húsi í Hofi frá því í september. Sýningin er nú þegar orðin aðsóknarmesta sýning leikfélagsins frá upphafi og hefur hlotið mikið lof gesta. Nú er því allra síðasta tækifærið til þess að koma og sjá þessa einstöku sýningu. Richard O’Brien skrifaði The Rocky Horror Show árið 1973 og verkið var frumsýnt 19. júní sama ár í London. Sýningin gekk í langan tíma og hefur verið sett upp víða um heim allar götur síðan og alltaf notið mikillar hylli. Árið 1975 var...

Read More

Dulúð og dularfullir atburðir hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss frumsýnir spunaverkið og gamanleikinn Hið dularfulla hvarf hollvinafélagsins, föstudaginn 4. mars í litla Leikhúsinu við Sigtún. Verkið fjallar um Hollvinafélag sunnlenskra þjóðsagna sem heldur af stað í ferðalag á slóðir sunnlenskra þjóðsagna. Undarlegir atburðir fara að gerast og einn af öðrum byrja meðlimir félagsins að hverfa með dularfullum hætti. Andi Móra, álfa og trölla svífa yfir í þessum gamanleik sem samin er af leikhópi ásamt leikstjóranum Gunnari Birni Guðmundssyni. Gunnar Björn hefur komið víða við á leikstjórnarferli sínum og leikstýrt meðal annars síðustu tveimur áramótaskaupum, kvikmyndunum Astrópíu og Gauragangi sem og fjölmörgum áhugaleiksýningum. Önnur sýning verður sunnudaginn...

Read More

Allir synir mínir eftir Arthur Miller frumsýnt

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 4. mars leikritið Allir synir mínir eftir Arthur Miller á Stóra sviðinu í leikstjórn Stefáns Baldurssonar.  Arthur Miller er án efa eitt mesta leikskáld tuttugustu aldarinnar og Allir synir mínir er verkið sem gerði hann frægan, sannkölluð nútímaklassík um fjölskyldu þjakaða af leyndarmálum fortíðarinnar og ýmsa þá þætti í sálarlífi mannanna og samfélaginu sem okkur eru sérlega hugleiknir nú á tímum.  Höfundur spyr stórra spurninga um siðferði og samfélagslega ábyrgð, en jafnframt er Allir synir mínir magnað, sálfræðilegt verk, þrungið spennu. Fjölskyldufaðirinn Joe Keller er verksmiðjueigandi í Bandaríkjunum, sem var á sínum tíma sýknaður af ákæru...

Read More

Sýningar á Sindra silfurfiski hefjast að nýju 6. mars

Sunnudaginn 6. mars hefjast aftur sýningar á barnaleikritinu Sindri silfurfiskur, sem vakti mikla hrifningu leikhúsgesta á öllum aldri á síðasta leikári. Í sýningunni er beitt sérstakri ljósatækni til þess að skapa undraveröld hafsins og skrautlegir fiskar, stórir og smáir, synda fyrir augum áhorfandans. Þetta er undurfallegt ævintýri um að það sé allt í lagi að vera öðruvísi en aðrir, og vera sáttur við sjálfan sig eins og maður er. Sýningar verða i Kúlunni, barnaleikhúsi Þjóðleikhússins á sunnudögum kl. 13.30 og 15.00 í mars og apríl. Sýningin hlaut tilnefningu til Grímunnar sl. ár og var boðið að sýna á sænsku...

Read More

Blessað barnalán frumsýnt í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri er Sigurður Blöndal sem enn á ný leggur Leikfélaginu til krafta sína. Fyrsta leikritið sem hann leikstýrði fyrir 10 árum síðan var Týnda teskeiðin, líka eftir Kjartan. Hann leikstýrði einnig  Emil í Kattholti, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum hjá Leikfélaginu sem öll hafa náð metaðsókn. Leikritið er sprenghlægilegur farsi sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Frumsýning verður 12. mars kl. 21.00. Leikarar eru 11  og með helstu hlutverk fara Hafdís Guðmundsdóttir, Aðalheiður Ásgeirsdóttir, Guðmundur Erlingsson og Viktoría Kristinsdóttir. Til gamans má geta þess...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert