Year: 2011

Leiklistarskóli Bandalagsins 2011

Skólinn starfar að Húnavöllum í A-Húnavatnssýslu dagana 11. til 19. júní. Haldin verða þrjú námskeið og boðið verður uppá aðstöðu fyrir höfunda. Í fyrra var lögð áhersla á byrjendanámskeið og fylgt er þeirri hefð að bjóða upp á framhaldsnámskeið í kjölfarið. Ágústa Skúladóttir mun því mæta aftur og kenna Leiklist II sem byggir ofan á þann góða grunn sem hún lagði í fyrra. Sigrún Valbergsdóttur mætir einnig aftur til leiks. Hún kennir nú Leikstjórn II þar sem nemendum gefst kostur á að dýpka enn skilning sinn og reynslu af leikstjórn. Reyndari leikurum stendur til boða námskeið Steinunnar Knútsdóttur þar...

Read More

Svefnlausi brúðguminn mætir aftur á Krókinn

Leikfélag Sauðárkróks mun sýna gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann í Sæluviku 2011 sem hefst 1. maí. Leikritið er eftir Arnold og Bach í þýðingu Sverris Haraldssonar og ku vera dæmigerður farsi þar sem allir eru að rekast á alla á röngum tíma og röngum stað, en allt fer vel að lokum. Æfingar hefjast um miðjan mars og mun Jakob S. Jónsson leikstýra. Leikfélag Sauðárkróks hefur áður sýnt þrjú gamanleikrit eftir Arnold og Bach, Húrra krakka árið 1985 og Spanskfluguna árið 1986 og Karlinn í kassanum árið 1994, en Verkakvennafélagið Aldan setti Svefnlausa brúðgumann upp á Sauðárkróki árið 1970....

Read More

Mottur á fullorðna og vatnslitir fyrir börnin

Í tilefni af „Mottu-mars“ bendum við á að í verslun Bandalags íslenskra leikfélaga að Suðurlandsbraut 16 fæst mikið úrval af ódýrum gerfi-yfirvaraskeggjum fyrir þá sem af líffræðilegum orsökum eiga erfitt með að safna mottum eða þá sem vilja stytta sér leið í mottusöfnun fyrir sérstök tilefni. Einnig eru til vatnslitir til að mála börnin fyrir öskudaginn (yfir 50 litir) og eru þetta húðvænustu vatnslitir sem fást hér á landi. Einnig fæst ýmislegt annað sem tilvalið er að nota fyrir öskudaginn, t.d. litað hársprey, skallar, trúðanef, litað tannlakk o.m.fl. Endilega kíkið til okkar á Suðurlandsbraut 16 og skoðið úrvalið....

Read More

Söngleikja-Stund með Margréti Eir

Tjarnarbíó og Majónes – leikhúsbar ætla að standa fyrir margvíslegum tónlistarskemmtunum í framtíðinni þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagská og hlaðborð í sal Tjarnarbíós undir nafninu Stundin. Stórsöngkonan Margréti Eir ríður á vaðið með Söngleikja-Stund föstudaginn 18 mars. Fyrir sýninguna munu þær Áslaug Snorra og Anna Bogga galdra fram óvænt, suðrænt og flúrað hlaðborð. Gestir munu sitja við borð í salnum þar sem skapað verður notarlegt andrúmsloft. Húsið opnar kl. 18.30 fyrir geti í mat en sýningin hefst kl. 20.   Margrét Eir hefur löngum verið viðloðin söngleikjaskemmtanir á íslandi, eða frá því hún birtist í Hárinu...

Read More

Með fullri reisn í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla frumsýndi verkið Með fullri reisn fimmtudagskvöldið 3. mars á Melum í Hörgárdal. Leikritið er eftir Terrence McNally og þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson og hefur hann, ásamt leikhópnum staðfært verkið heim í sveitina. Verkið fjallar um bændur og bændaiðnaðinn og hvernig þrengingar þar og í ferðaiðnaðinum reki þá til aðgerða. Ákveða þeir því að halda konukvöld þar sem fötum mun fækka, en hversu langt verður gengið? Átján leikarar stíga á svið, samblanda af þrautreyndum áhugaleikurum og nýliðum. Uppselt er á níu af fyrstu tólf sýningunum og því er um að gera að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert