Aukasýningar á Bót og betrun
Fimmhurðafarsinn Bót og betrun hjá Leikfélags Kópavogs hefur verið í fríi um skeið en snýr aftur nú í maí. Þrjár aukasýnignar verða miðvikudag, fimmtudag og sunnudag í þessari viku. Bót og betrun er hefðbundinn farsi með misskilningi og flækjum af öllu tagi og pínlegum aðstæðum eins og efnið ber með sér. Er því óhætt að lofa gestum góðri skemmtun. Þá spillir það ekki fyrir að verkið er nú frumflutt á Íslandi en óvenjulegt er að áhugafélög ríði þannig á vaðið. Hörður Sigurðarson þýddi verkið úr ensku og er hann jafnframt leikstjóri. Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric...
Read More


