Year: 2011

Steinunn Knútsdóttir nýr deildarforseti leiklistar- og dansdeildar

Steinunn Knútsdóttir hefur verið ráðin í stöðu deildarforseta leiklistar- og dansdeildar. Hún tekur við af Ragnheiði Skúladóttur, sem hefur stýrt deildinni allt frá stofnun hennar haustið 2000. Steinunn hefur að baki fjölþættan feril, bæði í námi og starfi. Hún lauk bakkalárnámi í guðfræði við Háskóla Íslands, stundaði  leiklistarnám í Árósum, og lauk síðar meistaranámi í leiklistarfræðum og leikstjórn frá De Montfort háskólanum í Leicester, Englandi. Hún er einnig með diploma í leikstjórn frá Scandinavisk Centrum för Utvikling af Teater.   Steinunn hefur unnið með ýmsum leikhúsum og sviðslistahópum í Danmörku, Englandi og á Íslandi, bæði sem leikari, höfundur og...

Read More

Halaleikhópurinn með Kaffileikhús

Kaffileikhús eða skemmtikvöld verður seinnihlutann í maí hjá Halaleikhópnum. Sýnt verður í Halanum. Það verða nokkur tónlistaratriði og 2 til 3 stuttverk þar á meðal Snyrting sem var á Einþáttungahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga í Mosfellsbæ 29. apríl. Vorhittingur verður í Halanum laugardaginn 7. maí kl. 14:00. Allir velkomnir og kjörið tækifæri að fá að spreyta sig á hinum ýmsu hliðum leikhússins.  ...

Read More

Umsóknarfrestur í Bandalagsskólann er til 4. maí

Nú fer hver að vera síðastur til að sækja um pláss í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður að Húnavöllum í A-Húnavatnssýslu dagana 11.-19. júní nk. Í boði eru þrjú námskeið, framhaldsnámskeið fyrir leikstjóra sem Sigrún Valbergsdóttir kennir, framhaldsnámskeið fyrir leikara sem Ágústa Skúladóttir kennir og námskeið fyrir reynslumeiri leikara sem Rúnar Guðbrandsson kennir í forföllum Steinunnar Knútsdóttur. Umsóknarfrestur er til 4. maí og nánari lýsingu á námskeiðunum má finna hér.  ...

Read More

Góðgerðasýning á Drama lama

Aðeins er ein sýning eftir á hinum bráðfyndna söngleik Drama lama, sem er  í lit og með íslensku tali um 17 ára Akureyring og er hún í kvöld, þriðjudaginn 3. maí klukkan 20:00. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri hefur nú sýnt 8 sýningar fyrir fullu húsi af söngleiknum og nú er komið að síðustu sýningunni og verður það styrktarsýning þar sem allur aðgangseyrir rennur óskiptur til handa Barnadeild FSA. Höfundur og leikstjóri er Garún. Bráðfyndinn söngleikur í lit og með íslensku tali um 17 ára Akureyring sem er einn af 1245 sem ber nafnið Daníel sem fyrsta eða eina nafn á...

Read More

Góði dátinn Svejk í Þjóðleikhúsið

Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í átjánda sinn. Alls sóttu þrettán leikfélög/hópar um með samtals sextán sýningar, og að vanda var það skemmtilegt verkefni að skoða sýningarnar sem sóttu um. Dómnefndina skipuðu að þessu sinni Stefán Hallur Stefánsson, leikari og leikstjóri, auk þjóðleikhússtjóra. Fyrir valinu í ár varð sýning Freyvangsleikhússins í Eyjafirði, Góði dátinn Svejk. Eftirtalin leikfélög sóttu um með þessar sýningar: Leikfélag Mosfellssveitar sýndi LÍSU Í UNDRALANDI eftir sögu Lewis Carrol í leikstjórn Agnesar Þorkelsdóttur Wild og Sigrúnar Harðardóttur. Leikrit fyrir börn með börn í hlutverkum. Sýningin var galsakennd og skemmtileg og unnin...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert