Aðildarfélög Bandalags ísl. leikfélaga geta sótt um að fara með sýningu á hátíðina. Þau sækja um til Bandalags ísl. leikfélaga fyrir 15. febrúar 2012 á eyðublöðum sem finna má hér. Upptökur af sýningum þurfa að fylgja umsóknum. Ef fleiri en ein sýning sækir um skipar stjórn Bandalagsins valnefnd sem velur sýningu.

Hátíðin verður sú sjöunda í röð NEATA-leiklistarhátíða, að þessu sinni haldin í Sønderborg á Suður-Jótlandi dagana 31. júlí til 5. ágúst 2012. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi.

 

Hvert land má senda eina leiksýningu sem er að hámarki 90 mín. löng. Leikið verður á leiksviðum í hefðbundnum leikhúsum. Hátíðin er ætluð fullorðnum, þ.e.a.s. þátttakendur í sýningunum skulu ekki vera yngri en 18 ára nema í undanltekningartilfellum. Hátíðin greiðir uppihald og þátttöku í hátíðinni fyrir 10 manna hópa frá hverju landi, ef hóparnir eru stærri bera þeir sjálfir umframkostnað vegna uppihalds. Leikhóparnir gista í fjögurra manna herbergjum á svokölluðum hostelum. Ferðakostnaðinn geiða þátttakendur sjálfir.

Ísland þarf að tilkynna Dönum hvaða leiksýning fer á hátíðina fyrir 20. febrúar 2012.

NEATA, norður evrópska áhugaleikhúsráðið, var stofnað 1998 og heldur samskonar hátíðir á tveggja ára fresti, en þau lönd sem hafa skipulagt fyrri hátíðir eru Litháen, Svíþjóð, Eistland, Færeyjar, Lettland og svo Ísland á Akureyri 2010.

Aðildarlönd NEATA eru Danmörk, Eistland, Finnland, Færeyjar, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur og Svíþjóð.