Föstudagskvöldið 11. mars sl. frumsýndi leikdeild Umf. Skallagríms leikritið Ferðin á heimsenda eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar en þetta fjórða verkið sem hann leikstýrir hjá leikdeildinni. Leikritið er fallegt og hugljúft ævintýri með söngvum, tónlist og glensien höfðar til allra aldurshópa.

Við fylgjumst með ferð þriggja ferðalanga á heimsenda með gripinn Geislaglóð til að bjarga framtíð álfanna í Ljósalandi. Galdramaðurinn Hrappur og hjálparhella hans sækjast eftir Geislaglóð og ferðalangarnir þrír verða að hafa sig alla við að koma í veg fyrir það, en þremenningarnir rekast einnig á ýmsar kynjaverur, s.s. tröll, vetrarálfa, köngulær og fleira á ferð sinni.

Æfingar hófust af fullum krafti í janúar. Með helstu hlutverk í Ferðinni á heimsenda fara: Eiríkur Jónsson, Rebekka Atladóttir, Margrét Hildur Pétursdóttir, Lára Margrét Karlsdóttir og Rúnar Gíslason. Á meðfylgjandi mynd sem Olgeir Helgi Ragnarsson tók má sjá leikarana Margréti Hildi Pétursdóttur, Láru Margréti Karlsdóttur og Rúnar Gíslason.

{mos_fb_discuss:2}