Tjarnarbíó frumsýnir leikritið Útundan eftir Alison Farina McGlynn í uppsetningu Háaloftsins fimmtudaginn 10. apríl nk.
Áhrifamikið og nærgöngult leikrit um sársaukann, örvæntinguna og vonina þegar það eðlilegasta og náttúrlegasta af öllu í lífinu er orðið heitasta óskin, fjarlægur draumur, takmark sem kannski mun aldrei nást.

Í leikritinu Útundan er tekið á aðstæðum sem hrjá eitt af hverjum sex pörum hér á landi, sem og í hinum vestræna heimi, í dag. Skyggnst er inn í líf þriggja para á fertugsaldri sem þrá að eignast barn en tekst það ekki. Þau leita ýmissa leiða til að láta drauminn rætast og standa frammi fyrir margskonar erfiðum spurningum. Barnleysi getur valdið gífurlegu álagi á líf fólks og haft afdrifaríkar afleiðingar á sambönd þess og líðan. En jafnvel í slíkum aðstæðum hættir tilveran ekkert að vera fáránleg, grátbrosleg og jafnvel fyndin.

Leikritið vakti sterk viðbrögð og hlaut mjög góða dóma þegar það var frumsýnt í Bretlandi.

**** „Beautifully crafted provocative new writing. This is a highly valuable piece of work as it braves to talk about something so common, yet never fully challenged on stage“.
**** „A moving play which fully engages the audience. It never becomes mawkish and it also contains a lot of humour“.

Leikarar: Arnmundur Ernst Backman, Benedikt Karl Gröndal, Björn Stefánsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Magnús Guðmundsson, María Heba Þorkelsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir
 Leikstóri: Tinna Hrafnsdóttir
 Leikmynd: Jóní Jónsdóttir
 Búningar: Ólöf Benedikstdóttir
 Tónlist: Sveinn Geirsson 
Ljós: Arnar Ingvarsson
 Leikgervi: Kristín Júlla Kristjánsdóttir

Verkið er sýnt eftirfarandi daga:
10. apríl, kl. 20:00 – Frumsýning, 
13. apríl, kl. 20:00
, 14. apríl, kl. 20:00, 
15. apríl, kl. 20:00 – Lokasýning

Miðasala í fullum gangi á Tjarnarbíó.is og Miði.is. Enn eru nokkrir lausið miðar á frumsýningu.