Jólafrumsýning Þjóðleikhússins er Þingkonurnar eftir Aristófanes í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Þingkonurnar er eitt frægasta verk forngríska gamanleikjaskáldsins Aristófanesar og var frum­sýnt um 392 f.Kr. á miklum kreppu­tímum í stjórnmálum Aþenuborgar. Þessi ærslafulli gamanleikur Aristófanesar minnir okkur á að leikhúsinu er ekki einungis ætlað að vera musteri tungunnar heldur einnig vígvöllur hugmyndanna. Frumsýning verður þann 26. desember.

Hin málsnjalla Praxagóra fer fyrir flokki kvenna sem er búinn að fá nóg af óstjórn karlmanna í Aþenu. Konurnar dulbúa sig sem karlmenn, fjölmenna á þing Aþeninga og fá það samþykkt að konum skuli falin öll völd. Og hverju vilja þær svo breyta? Þótt það sé búið að finna upp lýðræðið hrannast upp vandamál sem þetta samfélag þarf að leysa. Spilltir stjórnmálamenn, ójöfnuður, fákeppni, stríðsæsingar, okurlán og skuldug heimili. Rányrkja á auðlindum, skuldugur ríkissjóður og fullveldinu er ógnað af banda­lögum og sambandssinnum.
Og hvað gera konurnar?

Leikarar eru Atli Rafn Sigurðarson, Baldur Trausti Hreinsson, Edda Arnljótsdóttir, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Harpa Arnardóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Oddur Júlíusson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, Þorleifur Einarsson og Þorsteinn Bachmann

Síðasta uppsetning Benedikts Erlings­sonar í Þjóðleikhúsinu var rómuð sýning á Íslandsklukkunni, en hann á að baki fjölda leiksýninga og hefur unnið til fjölmargra verðlauna og viðurkenninga.