Nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki! verður frumsýnt föstudaginn 16. september hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er gamandrama sem fjallar um samband hjóna og vinkonu þeirra eða, eins og vinsælt hefur verið í íslenskum bíómyndum, vandamál miðaldra karlmanns.
Snertu mig – ekki! er eftir Örn Alexandersson, en leikstjóri er Sigrún Tryggvadóttir. Örn og Sigrún hafa lengi starfað með Leikfélagi Kópavogs en félagið á 60 ára afmæli á þessu nýhafna leikári. Verkið tekur um klukkustund í flutningi og taka þrír leikarar þátt í sýningunni, þau Anna Margrét Pálsdóttir, Arnfinnur Daníelsson og Guðný Hrönn Sigmundsdóttir.
Lýsing er í höndum Skúla Rúnars Hilmarssonar, Hörður Sigurðarson sér um hljóðvinnslu, Þorleifur Eggertsson um leikmynd og Sigrún Tryggvadóttir sá um búninga. Sérlegur altmuligmaður sýningarinnar  er Ásgeir Kristinsson.

Sex sýningar eru fyrirhugaðar á verkinu.  Í tilefni af afmæli félagsins hefur nýr og endurbættur vefur verið tekinn í notkun og er þar m.a. hægt að panta miða milliliðalaust.