Laugardaginn 3. febrúar frumsýndi Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna í Aratungu gamanleikritið Sálir Jónanna ganga aftur eftir þær Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Hjalti Gunnarsson og Íris Blandon fara með aðalhlutverkin en leikarar eru 10 talsins. Leikstjórn er í höndum Gunnars Björns Guðmundssonar og er þetta í 9 skiptið sem hann leikstýrir hjá Leikdeildinni. Æfingar hafa gengið mjög vel og mikil stemmning verið á æfingum. Mikið hlegið og er nokkuð víst að um fjörugan gamanleik er að ræða.

Leikritið er harmþrungin, siðferðisleg þjóðfélagádeila. Grallaraleg leikgerð á þjóðsögunni alkunnu um kerlinguna og sálina hans Jóns hennar. Í þessari útgáfu eru fjórir Jónar, hver með sínu laginu, og makarnir sömuleiðis. Kölski og aðstoðarmaður hans reyna hvað þeir geta til að veiða sálirnar fjórar, enda svo fátt orðið í helvíti að útlit fyrir að það verði fyrr en seinna sameinað hinum staðnum. Þeir beita ýmsum brögðum og tekst að klófesta sálirnar og fylgdarfólkið, en hinum glötuðu berst aðstoð úr óvæntri átt.

Aðstandendur 

Höfundar: Ingibjörg Hjartardóttir, Sigrún Óskarsdóttir og Unnur Guttormsdóttir | leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson |Tónlist: Ármann Guðmundsson og Þorgeir Tryggvason | Textar: Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason og Sævar Sigurgeirsson | Leikmynd: Gunnar Björn Guðmundsson og leikhópurinn | Búningar: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir | Lýsing: Benedikt Axelsson | Tæknikona: Bryndís Kristjánsdóttir| Hvíslari: Aðalheiður Helgadóttir | Leikarar: Hjalti Gunnarsson, Íris Blandon, Ragnhildur Ýr Gunnarsdóttir, Benedikt Axelsson, Hildur María Hilmarsdóttir, Kristinn Bjarnason, Eyrún Ósk Egilsdóttir, Þórarinn Valgeirsson, Halldór Bjarnason, Runólfur Einarsson, Unnur Malín Sigurðardóttir.

Frumsýning var laugardaginn 3. febrúar kl. 20.00

  1. sýning miðvikudaginn 7. febrúar kl. 20.00
  2. sýning föstudaginn 9. febrúar kl. 20.00
  3. sýning laugardaginn 10. febrúar kl. 20.00
  4. sýning miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20.00
  5. sýning fimmtudaginn 15. febrúar kl. 20.00
  6. sýning laugardaginn 17. febrúar kl. 20.00

Miðaverð – kr. 2500 –  Eldriborgarar kr. 2000 – Börn kr.1500

Miðapantanir í síma 896-7003