petur_ulfurinn_aefingLeikfélag Fljótsdalshéraðs er um þessar mundir að hefja æfingar á Pétri og úlfinum. Stefnt er á að frumsýna verkið í Selskógi 19. júlí. Sýningin er sett upp í samstarfi við Samfélagssjóð Alcoa og Vinnuskóla Fljóstdalshéraðs en leikarar eru allir á grunnskóla aldri. Leiksstjóri verksins er Pétur Ármannsson og mun hann í samstarfi við leikhópinn semja leikgerð við þetta magnaða tónverk.

Myndin er tekin af æfingu í Selskóginu. Á henni er hluti leikhópsins ásamt Pétri Ármannssyni leiksstjóra og Brogan Jayne Davison sem aðstoðar við dans og hreyfingar.