Föstudaginn 31. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Óskasteina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Ragnar Bragason er mættur aftur til leiks eftir velgengni Gullregns og er hér höfundur og leikstjóri á verki sem fjallar á kómískan hátt um misheppnaða íslenska krimma. Hér er á ferðinni sami hópur listrænna stjórnenda og færði okkur Gullregn á síðasta leikári.

Sagan Illa skipulagt rán í smábæ misheppnast hrapallega. Dæmigert íslenskt klúður. Á flóttanum leita ræningjarnir skjóls í mannlausum leikskóla og bíða fjórða félagans sem er horfinn á bílnum. Hópurinn hefur tekið gísl á flóttanum, eldri konu sem varð vitni að ráninu. Fram eftir nóttu stytta þau sér stundir innan um barnaleikföng en þegar birta fer af degi fer örvæntingin og ósættið innan hópsins að ágerast og ókunna konan afhjúpar sín eigin leyndarmál.

Ragnar Bragason þreytti frumraun sína í leikhúsi í fyrra þegar hann skrifaði og leikstýrði Gullregni í Borgarleikhúsinu. Sýningin sló rækilega í gegn. Gullregn hlaut átta tilnefningar til Grímunnar 2013 og Ragnar hlaut Grímuna sem leikstjóri ársins. Sami hópur listrænna stjórnenda færir okkur Óskasteina. Harmræn hlýja og húmor einkenna verk Ragnars eins og fyrri verk hans bera glöggt merki, t.a.m. Börn, Foreldrar, Næturvaktin, Dagvaktin, Fangavaktin, Bjarnfreðarson og nú síðast Málmhaus.

Leikmynd er í höndum Hálfdán Pedersen, búninga sér Helga Rós V.Hannam um, Þórður Orri Pétursson lýsir verkið og Mugison sér um tónlist. Leikarar eru Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Hanna María Karlsdóttir.