Fimmtudagskvöldið 4. maí verður ný barnasýning, Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður!, frumsýnd á Litla sviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemendaleikhúss LHÍ. Verkið er unnið í samvinnu Völu Þórsdóttur, leikstjórans Ágústu Skúladóttur og leikhóps. nuskildieg2.jpgFimmtudagskvöld verður ný barnasýning, Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður!, frumsýnd á Litla sviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemendaleikhúss LHÍ.

Verkið er byggt á fjölmörgum þekktum og minna þekktum íslenskum þjóðsögum þar sem mætast tröll, draugar, huldufólk og þorparar. Sumar þeirra eru bráðfyndnar, aðrar draumkenndar og sumar hverjar eilítið skelfilegar. Áhorfendur geta hlegið og grátið með mörgum af frægustu persónum þjóðsagnanna ásamt ýmsum verum íslenskrar sagnaarfleifðar. Leikstíllinn vísar í teiknimyndasögur, bíómyndir og goðsögur svo eitthvað sé nefnt. Verkið er unnið í samvinnu Völu Þórsdóttur, leikstjórans Ágústu Skúladóttur og leikhóps.

Meðal sagna verksins eru Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður, Bakkabræður, Gilitrutt, Búkolla, Neyttu á meðan á nefinu stendur, Púkinn og fjósamaðurinn, Sagan af Helgu og systrum hennar og Bláskelin. Í verkinu koma einnig fyrir þulur, meðal annars eftir Theodóru Thoroddsen.

Leikendur eru Birgitta Birgisdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Halldóra Malín Pétursdóttir, Jörundur Ragnarsson, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Víðir Guðmundsson.

nuskyldieg1.jpg Ragnhildur Gísladóttir er höfundur tónlistar en hún er nemi í tónsmíðum í tónlistardeild LHÍ, lýsing er í höndum Páls Ragnarssonar, búninga hannar Þórunn Elísabet Sveinsdóttir,  Frosti Friðriksson gerir leikmynd og leikstjóri er sem fyrr segir Ágústa Skúladóttir.

Sýningin er ætluð börnum á aldrinum 4-94 ára. Sýningafjöldi er takmarkaður og því um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst en salurinn tekur um 100 manns.