Nú gefst einstakt tækifæri til að kynna sér hvernig leiklist er notuð í kennslu. FLÍSS, félag um leiklist í skólastarfi hefur fengið hinn þekkta dramasérfræðing Jonothan Neelands prófessor við University of Warwick í Englandi til þess að halda tvö námskeið hér á landi. Námskeiðin verða haldin í einum af sölum Þjóðleikhússins, laugardaginn 2. september og sunnudaginn 3. september frá kl. 9. til 16.00. neelands.jpgNú gefst einstakt tækifæri til að kynna sér hvernig leiklist er notuð í kennslu. FLÍSS, félag um leiklist í skólastarfi hefur fengið hinn þekkta dramasérfræðing Jonothan Neelands prófessor við University of Warwick í Englandi til þess að halda tvö námskeið hér á landi. Námskeiðin verða haldin í einum af sölum Þjóðleikhússins, laugardaginn 2. september og sunnudaginn 3. september frá kl. 9. til 16.00.

Námskeiðin verða ólík, svo hægt er að bóka sig á bæði. Fyrri daginn mun Neelands einbeita sér að kennslu yngri barna en þann síðari að miðstigs- og unglingakennslu. Jonothan Neelands hefur haldið námskeið og fyrirlestra um leiklist sem kennsluaðferð um allan heim. Hann hefur samið fjölda bóka um efnið þar á meðal: Structuring Drama Work, Learning through Imagined Experience, Making sense of Drama, Beginning Drama 11-14 og Improve your primary school through drama, en þá síðastnefndu, sem kom út s.l. vor skrifaði hann með konu sinni Rachel Dickinson. Bókin Leiklist í kennslu eftir Önnu Jeppesen og Ásu Ragnarsdóttur sem kom út 2004 byggir á sömu hugmyndafræði og Neelands gengur út frá.
 
Verð á dagsnámskeiði er 12.000.- krónur.  Takmarkaður fjöldi þátttakenda er á námskeiðunum, þannig að fyrstir koma fyrstir fá!
Hægt er að skrá sig hjá FLÍSS  á netfangið: ogud@btnet.is eða asaragg@simnet.is