Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni The full monty. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem myndin sem fylgir fréttinni  sýnir. Sérstaklega bera þeir hag félaga síns fyrir brjósti þar sem hann er atvinnulaus og á það á hættu að missa samband við son sinn borgi hann ekki meðlagið. Meðal annara fléttast inn í þetta Eden og Tívolíið sáluga, Kjörís, Heilsustofnun, Hótel Örk svo eitthvað sé nefnt, einnig kjararáð og búvörusamningar og fleira. Leikarar eru 18 talsins og þar á meðal  all nokkrir sem ekki hafa leikið með Leikfélagi Hveragerðis áður.

Geta má þess að Leikfélag Hveragerðis er 70 ára á þessu ári og hafa verið settar upp sýningar öll árin, ein eða fleiri. 

Frumsýning föstudagurinn 27. janúar – Uppselt
2. sýning laugardaginn 28. janúar
3. sýning sunnudaginn 29. janúar
Allar sýningar byrja kl. 20:00
Miðaverð er kr. 3,000  – Fyrir hópa 10 eða fleiri kr. 2,500.

Fylgjast má með á facbókarsíðu Leikfélagsins

Miðapöntunarsími 863-8522
Sýnt er í Leikhúsinu  Austurmörk 23, Hveragerði