Meðlimir leikhópsins Kriðpleirs hafa haft í bígerð nýja heimildarmynd um Jón Hreggviðsson sem var dæmdur fyrir böðulsmorð fyrir 330 árum. Þeir eiga ýmisskonar efni í handraðanum og geta ekki beðið eftir að kynna það fyrir áhorfendum. Þess vegna er orðinn til gamanleikurinn SÍÐBÚIN RANNSÓKN, bíó, leiksýning og einskonar endurupptaka á máli Jóns Hreggviðssonar.

Verkið hefur verið sýnt í Bíó Paradís en á nýju ári færist þessi málarekstur Kriðpleirs yfir í Tjarnarbíó.

Sýningar verða:

Fimmtudaginn 15. janúar kl. 20:00

Fimmtudaginn 22. janúar kl. 20:00

Sunnudaginn 25. janúar kl. 20:00

„Síðbúin rannsókn“ er þriðja leiksýningin sem leikhópurinn Kriðpleir setur upp. Fyrri sý́ningar hópsins eru „Tiny Guy“ sem sýnd var í Háskóla Íslands, Mengi og á stóra sviði Borgarleikhússins og „Blokkin“ sem sett var upp í 48 fm. íbúð Friðgeirs Einarssonar við Háaleitisbraut.

Kriðpleir leikhópur: SÍÐBÚIN RANNSÓKN (2014)

Texti: Bjarni Jónsson

Á sviði: Ragnar Ísleifur Bragason, Friðgeir Einarsson og Árni Vilhjálmsson

Umgjörð: Tinna Ottesen

Myndvinnsla: Janus Bragi Jakobsson

Tónlist: Árni Vilhjálmsson (+ sígilt stöff)

Leikstjórn: Friðgeir Einarsson og Bjarni Jónsson

Framleiðandi: Kriðpleir

Lengd 85 mínútur

Miðaverð: 2500 kr.