Leikhópurinn Artik frumsýnir leikverkið Hinn fullkomni jafningi eftir Felix Bergsson í Norðurpólnum sunnudaginn 28. október. Verkið, sem er einleikur, var sýnt árið 1998 og lék þá höfundurinn sjálfur í verkinu sem fjallar um fimm menn sem taka mismunandi á samkynhneigð sinni. Með hlutverkin fimm í sýningunni fer Unnar Geir Unnarsson og leikstjóri er Jenný Lára Arnórsdóttir. Um hljóðmynd sér Baldvin Albertsson, sem var samtíða þeim Unnari og Jennýju í ASAD og tónlistin er í höndum Gríms Gunnarssonar. Stefnt er að sýningum á Hinum fullkomna jafningi er alla fimmtdaga og sunnudaga út nóvember í Litla sal Norðurpólsins.

Persónur verksins tengjast allir innbyrðis á einn eða annan hátt en samskipti þeirra endurspegla ekki aðeins þá reynslu samkynhneigðra af ástinni, heldur fela í sér sammannlega reynslu. Ástin er góð, ástin er vond, ástin er mjúk, ástin er hörð, ástin er heit, ástin er köld, ástin er ljúf, ástin er grimm. Ástin er peningur með tvær hliðar – hvort sem er hjá samkynhneigðum eða gagnkynhneigðum. Og spurningin er hvernig hægt er að finna hamingjuna þrátt fyrir hin mörgu og að því er virðist ósamrýmanlegar ásjónur ástarinnar.

Leikhópurinn Artik var stofnaður fyrr í haust af tveimur nýútskrifuðum leikurum/leikstjórum, þeim Jennýju Láru Arnórsdóttur og Unnari Geir Unnarssyni. Bæði luku þau nýlega nám námi í leiklist og leikstjórn við ASAD-leiklistarskólann í London. Meðan á námi stóð áttu þau það sameiginlegt að sjá Ísland alltaf fyrir sér sem framtíðarvettanginn fyrir listsköpun sína — og þegar heim var komið, voru ermar brettar upp og byrjað að vinna. Hinn fullkomni jafningi er fyrsta verk þeirra.