Leikdeild Höfrungs á Þingeyri frumsýndi Kardemommubæinn á liðinni helgi fyrir smekkfullu húsi. Tvær sýningar voru á fyrstu sýningarhelgi og er óhætt að segja að sýningin hafi fengið húrrandi gott start svo notað sé orðalag Kardemommubæjar. Á páskum verða þrjár sýningar á Kardemommubænum eftir Thorbjörn Egner í leikhúsinu á Þingeyri. Tvær sýningar verða á föstudaginn langa sú fyrri er kl. 13.00 og hin seinni er kl. 17.00. Einnig verður Kardemommubærinn sýndur á laugardeginum kl. 14.00. Miðasala á allar sýningar er hafin og langt komin því þegar þessi orð eru rituð eru aðeins örfá sæti laus á fyrri sýninguna á föstudag. Svo nú er bara að panta. Miðasölusíminn er 864 2974.

Leikdeild Höfrungs hefur verið sérlega dugleg síðustu ár og sett upp vandaðar og vinsælar leiksýningar fyrir alla fjölskylduna. Fyrst var það Lína langsokkur, svo kom Galdrakarlinn í Oz og verkefni ársins er hvorki meira né minna en Kardemommubærinn. Það er óhætt að segja að þetta sígilda leikrit Thorbjörns Egner um fólkið í Kardemommubæ hafi verið meðal vinsælustu barnaleikrita allra tíma hér á landi. Nú hafa íbúar þessa vinsæla bæjar flutt lögheimili sitt í Dýrafjörð nánar tiltekið í Félagsheimilið á Þingeyri. Þar spranga nú um torg persónur á borð við Bastían bæjarfógeta sem gætir þess að allt sé í röð og reglu í bænum. Þar hittir þú líka fyrir Sörensen rakara, Tomma og Kamillu litlu og ekki má gleyma Soffíu frænku. Rétt við bæjarmörkin búa þrír ræningjar sem heita Kasper, Jesper og Jónatan.

Kardemommubærinn á Þingeyri er sérlega viðamikil uppfærsla og sú stærsta í sögu Leikdeildar Höfrungs. 20 leikarar stíga á senu og annar eins fjöldi kemur við sögu á bakvið tjöldin við að farða leikarana, lýsa leiksviðið, selja miða, smíða leikmynd og svo ótal margt annað. Það má sannarlega segja að allt þorpið taki þátt í ævintýrinu.