Nú líður að jólafrumsýningu Þjóðleikhússins á Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins eftirsótta leikstjóra Benedicts Andrews, og bíða margir með eftirvæntingu eftir að fá að sjá sýninguna. Eitt magnaðasta leikrit heimsbókmenntanna, Macbeth, er jólasýning Þjóðleikhússins. Rétt eins og undangengin 62 ár er jólafrumsýningin á annan dag jóla og markar einn af hápunktum menningarlífsins. Sýningin á Macbeth verður engin undantekning og er um sannkallaða hátíðarsýningu er að ræða. Frumsýningin verður 26. desember.

Því er spáð fyrir herforingjanum Macbeth að hann eigi eftir að verða konungur Skotlands. Hvattur áfram af eiginkonu sinni myrðir hann konunginn og sest sjálfur í hásætið. En ódæðið kallar á fleiri morð. Ótti, hatur og ofsóknaræði skjóta rótum og líkin hrannast upp í kringum Macbeth. Konungshjónin feta sig sífellt lengra inn í heim vitfirringar og dauða.

Benedict Andrews hefur sett á svið fjölda verðlaunasýninga í Ástralíu og Evrópu á undanförnum árum, nú síðast stórsýninguna Stóran og smáan sem frumsýnd var í Ástralíu og hefur verið sýnd í helstu leikhúsum Evrópu. Fyrir tveimur árum leikstýrði hann hér í Þjóðleikhúsinu verki Shakespeares Lé konungi og þótti sýningin mikill viðburður í íslensku leikhúslífi. Hún var óskoraður sigurvegari á Grímuverðlaunahátíðinni 2011, hlaut sex Grímuverðlaun, meðal annars fyrir sýningu ársins og leikstjórn ársins.
Í þessari uppsetningu á Macbeth halda Benedict Andrews og leikarar Þjóðleikhússins áfram að vinna á ferskan og persónulegan hátt úr þeim stórkostlega og sígilda efnivið sem leikrit Shakespeares eru. Þórarinn Eldjárn þýðir verkið, en hann þýddi einnig Lé konung og var þýðingin tilnefnd til Íslensku þýðingarverðlaunanna.

Leikarar eru Björn Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir, Arnar Jónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Baldur Trausti Hreinsson, Friðrik Friðriksson, Hilmir Jensson,  Hilmir Snær Guðnason, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Snorri Engilbertsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Ævar Þór Benediktsson og fleiri.

Listrænir aðstandendur:
Leikstjórn: Benedict Andrews
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Lýsing: Halldór Örn Óskarsson
Tónlist: Oren Ambarchi
Aðstoðarleikstjóri: Stefán Hallur Stefánsson
Þýðing:Þórarinn Eldjárn