Nú gefst einstakt tækifæri til að kaupa gjafabréf á alla þá viðburði sem verða í Tjarnarbíó 2011. Hægt er að kaupa gjafabréf fyrir 3 upphæðir, 1000 kr – 2000 kr – 3000 kr og verður hægt að nota þau á alla viðburði sem fram fara í Tjarnarbíó. Ekki þarf að ákveða fyrirfram notkun gjafabréfsins  heldur getur viðkomandi ráðið hvaða viðburð hann kýs að sjá.

 

Það er margt framundan í Tjarnarbíó á nýju ári. 14.janúar verður frumsýnt nýtt íslenskt leikverk, Súldasker eftir Sölku Guðmundsdóttur auk þess sem leikverk Jóns Atla Jónassonar, Mojito verður tekið upp aftur og sýnt út janúar. Jafnframt verður annað leikrit Jóns Atla, Djúpið, sýnt í febrúar-mars. Sveinn Skotti verður sýndur í janúar og Lab loki frumsýnir nýtt íslenskt verk, Þjófurinn í febrúar. Fjölskyldudagarnir halda áfram eftir áramót og mun m.a. Sirkus Íslands vera með sýningar.

Auk leiksýninga verða á dagskrá tónleikar og danssýningar. Hljómsveitin Ferlegheit mun halda tónleika í janúar og Thin Jim með söngkonunni Margréti Eir í fararbroddi mun halda útgáfutónleika í febrúar. Þá verða Darí darí Dance Company, Ólöf Ingólfsdóttir og Spiral danshópurinn með sýningar í mars og apríl.

Nánari upplýsingar um viðburði í Tjarnarbíó má sjá á www.tjarnarbio.is

Gjafabréfin eru til sölu á tjarnarbio.is, midi.is og í miðasölu Tjarnarbíó.

{mos_fb_discuss:3}