Föstudaginn 20. mars kl 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu verkið Er ekki nóg að elska? eftir Birgi Sigurðsson. Birgir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir fyrri verk sín. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir og fremst í flokki leikara er Kristbjörg Kjeld.

Er ekki nóg að elska? er raunsæisleg og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem ekki mega koma upp á yfirborðið því þau sverta þar með minningu mektarmanns. Jarðarför hans stendur fyrir dyrum og ekkjan berst hetjulega fyrir sóma hússins og minningu mikils stjórnmálamanns og hreinskiptins eiginmanns sem hefur gert afar óvenjulega kröfu í erfðaskránni.

Birgir Sigurðsson er eitt fremsta núlifandi leikskáld okkar. Fyrsta leikrit hans, Pétur og Rúna, var sett á svið árið 1973. Leikritið vann til fyrstu verðlauna, ásamt Kertalogi Jökuls Jakobssonar, í leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur í tilefni af 75 ára afmæli félagsins árið 1972.

Dagur vonar var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1987 og 2007 og naut gífurlegra vinsælda í bæði skiptin. Leikritið var einnig tekið upp fyrir sjónvarp og tilnefnt til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1989.

Aðstandendur Höfundur: Birgir Sigurðsson | leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason |Tónlist: Björn Jörundur Friðbjörnsson | Leikmynd: Vytautas Narbutas  |  búningar: Stefanía Adolfsdóttir | Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson | Leikarar: Kristbjörg Kjeld, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson.