{"id":9994,"date":"2017-11-06T15:15:24","date_gmt":"2017-11-06T15:15:24","guid":{"rendered":"https:\/\/leiklist.is\/?p=9994"},"modified":"2020-03-02T10:03:30","modified_gmt":"2020-03-02T10:03:30","slug":"skemmtilegar-sorglegar-og-fyndnar-kvennasogur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/skemmtilegar-sorglegar-og-fyndnar-kvennasogur\/","title":{"rendered":"Skemmtilegar, sorglegar og fyndnar kvennas\u00f6gur"},"content":{"rendered":"<h6>Vertu svona kona (\u00far hugarsmi\u00f0ju Margaret Atwood, Gu\u00f0finnu Gunnarsd\u00f3ttur og leikh\u00f3psins)<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: Gu\u00f0finna Gunnarsd\u00f3ttir<br \/>\nEl\u00edn Gunnlaugsd\u00f3ttir skrifar<\/h6>\n<p>Allir hafa s\u00edna s\u00f6gu a\u00f0 segja, s\u00e9rhver kona hefur s\u00edna s\u00f6gu a\u00f0 segja.\u00a0\u00deetta er \u00fatgangspunktur leikverksins Vertu svona kona sem Leikf\u00e9lag Selfoss frums\u00fdndi s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn f\u00f6studag. Leikverki\u00f0 er byggt \u00e1 textum eftir Margaret Atwood, Gu\u00f0finnu Gunnarsd\u00f3ttur og leikh\u00f3psins. \u00cd verkinu er ra\u00f0a\u00f0 saman textum um konuna, s\u00f6gu hennar, s\u00f6gu margra kvenna. Einnig er velt upp hugt\u00f6kum eins og \u00e1st og s\u00fdndar mismunandi myndir hennar sem stundum hverfast upp \u00ed andst\u00e6\u00f0u s\u00edna.<\/p>\n<p>Eins og fyrr segir er verki\u00f0 byggt \u00ed kringum texta kanad\u00edska rith\u00f6fundarins Margret Atwood (1939). Textarnir eru s\u00f3ttir \u00ed sm\u00e1sagna- e\u00f0a pr\u00f3sasafn hennar Good Bones (1992). \u00cd safni \u00feessu sko\u00f0ar Atwood go\u00f0s\u00f6gur og \u00e6vint\u00fdri me\u00f0 femin\u00edskum augum. H\u00fan sko\u00f0ar hlutverk vondu stj\u00fapunnar, heimsku konunnar og litlu gulu h\u00e6nunnar og hvernig \u00feessar s\u00f6gur og go\u00f0sagnir hafa m\u00f3ta\u00f0 hugmyndir okkar um konuna. Textar \u00feessir eru br\u00e1\u00f0snjallir og l\u00fdsa \u00e1 kaldh\u00e6\u00f0inn og fyndinn h\u00e1tt hlutverki konunnar \u00ed gegnum aldirnar. \u00dea\u00f0 er einmitt \u00ed \u00feessum textum sem verki\u00f0 Vertu svona kona r\u00eds hva\u00f0 h\u00e6st.<\/p>\n<p>Allur leikh\u00f3purinn hefur st\u00f3ru hlutverki a\u00f0 gegna \u00ed s\u00fdningunni og eru margar h\u00f3psenur sem settar eru upp me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri tilfinningu fyrir svi\u00f0inu, svi\u00f0shreyfingum og m\u00f6guleikum textans sem stundum var settur fram \u00e1 kak\u00f3f\u00f3n\u00edskan h\u00e1tt (leikendur tala ofan\u00ed hvorn annan). Senur \u00feessar eru svo brotnar upp me\u00f0 samt\u00f6lum og m\u00f3n\u00f3l\u00f3gum (einr\u00e6\u00f0um).<\/p>\n<p>Leikh\u00f3purinn \u00ed \u00feessari s\u00fdningu samanstendur a\u00f0 mestu af ungum leikurum \u00fe\u00f3 einnig s\u00e9u \u00fear reyndir leikarar. Ekki er geti\u00f0 \u00ed leikskr\u00e1 um hlutverk einstakra leikara enda stendur og fellur verki\u00f0 me\u00f0 \u00f6llum leikh\u00f3pnum og ver\u00f0ur ekki anna\u00f0 sagt en a\u00f0 hann standi sig vel. \u00deeir leikarar sem fluttu einr\u00e6\u00f0ur voru einnig mj\u00f6g sannf\u00e6randi og hva\u00f0 eftirminnilegastar af \u00feeim voru einr\u00e6\u00f0ur litlu gulu h\u00e6nunnar og heimsku konunnar.<\/p>\n<p>\u00d6ll umgj\u00f6r\u00f0 verkins er \u00fathugsu\u00f0, lunga\u00f0 \u00far s\u00fdningunni stendur rau\u00f0ur s\u00f3fi \u00e1 svi\u00f0inu og a\u00f0 baki honum uppl\u00fdstur bakgrunnur sem skiptir um lit eftir \u00fev\u00ed sem vi\u00f0 \u00e1. Leikmunir eru \u00e1 hillum s\u00edn hvoru megin vi\u00f0 svi\u00f0i\u00f0 og b\u00e6kur standa \u00ed st\u00f6flum bakatil \u00e1 svi\u00f0inu. B\u00e6kurnar koma svo alltaf meira og meira vi\u00f0 s\u00f6gu eftir \u00fev\u00ed sem l\u00ed\u00f0ur \u00e1 s\u00fdninguna. En eins og allir vita geyma b\u00e6kurnar okkar s\u00f6gu.<\/p>\n<p>B\u00faningarnir \u00ed s\u00fdningunni undirstrika a\u00f0 \u00ed verkinu er ekki veri\u00f0 a\u00f0 draga upp mynd af konum og k\u00f6rlum sem einstaklingum heldur sem h\u00f3pi. Konurnar eru \u00ed hv\u00edtum kj\u00f3lum, me\u00f0 rau\u00f0a svuntu og karlarnir eru \u00ed sv\u00f6rtu. \u00deegar endalokin n\u00e1lgast taka \u00fe\u00e6r af s\u00e9r svunturnar og ver\u00f0a \u00fe\u00e1 berskjalda\u00f0ri. \u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00ed raun segja a\u00f0 rautt s\u00e9 litur s\u00fdningarinnar \u00fev\u00ed oft eru lj\u00f3sin l\u00edka rau\u00f0. \u00c9g l\u00e6t a\u00f0ra um a\u00f0 t\u00falka \u00fea\u00f0 litaval.<\/p>\n<p>T\u00f3nlistin skipar st\u00f3ran sess \u00ed s\u00fdningunni og er h\u00fan valin e\u00f0a samin af Kristj\u00f6nu Stef\u00e1nsd\u00f3ttur. \u00cd fyrstu er t\u00f3nlistin einf\u00f6ld, en \u00feegar l\u00ed\u00f0ur \u00e1 ver\u00f0ur h\u00fan fl\u00f3knari og margr\u00e6\u00f0ari og sty\u00f0ur \u00feannig vel vi\u00f0 dramat\u00edska uppbyggingu verksins. Einkar \u00e1hrifamikil var t\u00f3nlistin \u00ed kaflanum um Dau\u00f0ann en \u00fear leikur Kristjana s\u00e9r me\u00f0 \u00feekkta ar\u00edu \u00far \u00f3perunni Dido og Aeneas eftir H. Purcell. Megin texti \u00feessarar ar\u00edu er ,,Remember me\u2026\u201d og \u00e1ttu \u00feau or\u00f0 einkar vel vi\u00f0 \u00e1 \u00feessum sta\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 ver\u00f0ur \u00fev\u00ed ekki anna\u00f0 sagt en a\u00f0 h\u00e9r hafi veri\u00f0 vanda\u00f0 til allra verka og Vertu svona kona er metna\u00f0arfull s\u00fdning um sta\u00f0almyndir og st\u00f6\u00f0u konunnar. S\u00fdningin h\u00f6f\u00f0ar til allra skilningarvita og f\u00e6r mann um fram allt til a\u00f0 hugsa.<\/p>\n<p>El\u00edn Gunnlaugsd\u00f3ttir<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Vertu svona kona (\u00far hugarsmi\u00f0ju Margaret Atwood, Gu\u00f0finnu Gunnarsd\u00f3ttur og leikh\u00f3psins) Leikstj\u00f3ri: Gu\u00f0finna Gunnarsd\u00f3ttir El\u00edn Gunnlaugsd\u00f3ttir skrifar Allir hafa s\u00edna s\u00f6gu a\u00f0 segja, s\u00e9rhver kona hefur s\u00edna s\u00f6gu a\u00f0 segja.\u00a0\u00deetta er \u00fatgangspunktur leikverksins Vertu svona kona sem Leikf\u00e9lag Selfoss frums\u00fdndi s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn f\u00f6studag. Leikverki\u00f0 er byggt \u00e1 textum eftir Margaret Atwood, Gu\u00f0finnu Gunnarsd\u00f3ttur og leikh\u00f3psins. \u00cd [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":9987,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187,186,213],"tags":[],"class_list":["post-9994","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","category-gagnrdinn","category-vikupostur","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/9994","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=9994"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/9994\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=9994"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=9994"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=9994"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}