{"id":902,"date":"2006-09-07T08:22:04","date_gmt":"2006-09-07T08:22:04","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=902"},"modified":"2006-09-07T08:22:04","modified_gmt":"2006-09-07T08:22:04","slug":"nohra-tvd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/nohra-tvd\/","title":{"rendered":"No(h)ra tv\u00f6f\u00f6ld"},"content":{"rendered":"<p>\u00datsendari Leiklistarvefjarins br\u00e1 s&eacute;r a&eth; japanska s\u00fdningu \u00ed &THORN;j\u00f3&eth;leikh\u00fasinu:<\/p>\n<p> &THORN;a&eth; var forvitni um undarlegar stefnur og hef&eth;ir \u00ed leikh\u00fasi sem rak mig til a&eth; fara a&eth; sj\u00e1 gestas\u00fdningu fr\u00e1 Natori-leikh\u00fasinu \u00ed Japan \u00ed &THORN;j\u00f3&eth;leikh\u00fasinu s\u00ed&eth;asta laugardagskv&ouml;ld. M&eacute;r &thorn;\u00f3tti spennandi a&eth; sj\u00e1 Noh-formi&eth;, og a&eth; efnivi&eth;urinn v&aelig;ri Br\u00fa&eth;uheimili eftir Ibsen &thorn;\u00f3tti m&eacute;r h\u00e1lfgert aukaatri&eth;i. Enda finnst m&eacute;r &thorn;a&eth; alveg forkastanlega lei&eth;inlegt leikrit. En &thorn;essi s\u00fdning ger&eth;i heilmiki&eth; fyrir mig.<\/p>\n<p> <!--more--> Noh-leikh\u00fasi&eth; byrja&eth;i a&eth; &thorn;r\u00f3ast \u00ed Japan \u00e1 fj\u00f3rt\u00e1ndu &ouml;ld. &THORN;essi leikh\u00fashef&eth; byggir miki&eth; \u00e1 n\u00e1kv&aelig;mum og h&aelig;gum hreyfingum, fastm\u00f3tu&eth;um pers\u00f3nuger&eth;um og \u00e1kve&eth;num sta&eth;setningum hlj\u00f3&eth;f&aelig;raleikara og k\u00f3rs \u00e1 svi&eth;inu. R&aelig;tur &thorn;ess m\u00e1 rekja til almenningsskemmtana sem k&ouml;llu&eth;ust Sarugaku og tengdust i&eth;kun \u00e1 tegund b\u00faddisma sem kallast Shintu, Dengaku, sem er hreyfilist sem seinna &thorn;r\u00f3a&eth;ist yfir \u00ed s&ouml;ng- og danslist, og dansa sem &aelig;tta&eth;ir eru fr\u00e1 K\u00edna. Um mi&eth;ja fj\u00f3rt\u00e1ndu &ouml;ld var &thorn;etta listform s\u00ed&eth;an or&eth;i&eth; nokku&eth; fastm\u00f3ta&eth; \u00ed &thorn;v\u00ed formi sem n\u00fa &thorn;ekkist sem noh-leikh\u00fas.<\/p>\n<p> Reglur &thorn;essarar hef&eth;ar hafa &thorn;v\u00ed m\u00f3tast nokku&eth; hratt. Og &thorn;&aelig;r eru n\u00e1kv&aelig;mar. Til d&aelig;mis eru reglur um hvernig hlj\u00f3&eth;f&aelig;raleikarar og s&ouml;ngvarar sitja aftast \u00e1 svi&eth;inu. Og hverjir &thorn;eirra sitja \u00e1 kollum og hverjir \u00e1 g\u00f3lfinu. K\u00f3r situr alltaf til svi&eth;s-h&aelig;gri og a&eth;alpers\u00f3nan, sem kallast shite, er alltaf me&eth; gr\u00edmu, nema h\u00fan s&eacute; fullor&eth;inn karlma&eth;ur. Waki, e&eth;a aukapers\u00f3nan sem fyrst kemur \u00e1 svi&eth; og leggur upp verki&eth;, er &thorn;a&eth; hins vegar aldrei. Pers\u00f3nur \u00ed Noh-verkum eru fyrirfram fastm\u00f3ta&eth;ar og hlutverk &thorn;eirra, b\u00faningar, hreyfingar og sta&eth;setningar \u00e1 svi&eth;inu er hluti af forminu. St&aelig;r&eth; og l&ouml;gun svi&eth;sins er einnig \u00e1kve&eth;in \u00ed sm\u00e1atri&eth;um.<\/p>\n<p> Noh er \u00ed e&eth;li s\u00ednu dansleikh\u00fas sem byggir \u00e1 st\u00edfum reglum, &ouml;gu&eth;um og mj&ouml;g h&aelig;gum reglum og undarlegri t\u00f3nlist og b\u00faningum. &THORN;ess vegna kannski ekki h&aelig;gt a&eth; b\u00faast vi&eth; mikilli dramat\u00edskri innlifun, allavega ekki af h\u00e1lfu noh-leikaranna. En &thorn;essi s\u00fdning Natori-leikh\u00fassins \u00e1 br\u00fa&eth;uheimili bygg&eth;i \u00e1 &thorn;v\u00ed a&eth; blanda saman noh- og n\u00fat\u00edmaleikh\u00fasi.<\/p>\n<p> \u00c9g ger&eth;i &thorn;a&eth; viljandi a&eth; taka ekki me&eth; m&eacute;r handrit inn \u00ed sal, &thorn;\u00f3 sl\u00edkt v&aelig;ri \u00ed bo&eth;i. \u00c9g \u00e1kva&eth; a&eth; l\u00e1ta n&aelig;gja a&eth; &thorn;ekkja s&ouml;gu&thorn;r\u00e1&eth;inn nokkurn veginn, en vildi frekar geta fylgst me&eth; &thorn;v\u00ed sem b&aelig;ri fyrir augu og eyru, \u00e1n &thorn;ess a&eth; hugsa svo miki&eth; um merkinguna, ef h\u00fan skila&eth;i s&eacute;r ekki. Sem m&eacute;r finnst reyndar merkilega oft um s\u00fdningar \u00e1 tungum\u00e1lum sem &eacute;g skil ekki, en &thorn;arna var n\u00e1tt\u00farulega um mj&ouml;g framandi hef&eth; a&eth; r&aelig;&eth;a svo lj\u00f3st var a&eth; &thorn;etta yr&eth;i nokku&eth; trikk\u00ed.<\/p>\n<p> S\u00fdningin byrja&eth;i h&aelig;gt. B\u00fai&eth; var a&eth; afmarka svi&eth;i&eth; me&eth; l\u00ednum \u00e1 g\u00f3lfinu. T\u00f3nlistarmenn komu inn og r&ouml;&eth;u&eth;u s&eacute;r upp aftantil, \u00ed mestu r\u00f3legheitum. Tveir noh-s&ouml;ngvarar sem myndu&eth;u k\u00f3r ger&eth;u sl\u00edkt hi&eth; sama. M&eacute;r fannst &thorn;etta skemmtilegt. S&eacute;rstaklega \u00ed lj\u00f3si &thorn;eirrar tilhneygingar leikh\u00fass Vesturlanda a&eth; vilja helst gera skiptingar og inng&ouml;ngur og \u00fatg&ouml;ngur manna \u00e1 svi&eth;inu sem \u00f3s\u00fdnilegastar, hafi &thorn;&aelig;r ekki dramat\u00edskan tilgang. &THORN;essir menn g\u00e1tu hins vegar eiginlega gert sig \u00f3s\u00fdnilega \u00e1 svi&eth;inu, &thorn;\u00f3 &thorn;eir v&aelig;ru &thorn;ar allan t\u00edmann og \u00ed fullum lj\u00f3sum, bara me&eth; &thorn;v\u00ed a&eth; sitja kyrrir me&eth; augun \u00e1 g\u00f3lfinu, &thorn;egar &thorn;eir voru ekki a&eth; performera.<\/p>\n<p> Svo h\u00f3fst s\u00fdningin. T\u00f3nlistin hlj\u00f3ma&eth;i undarlega, k\u00f3rinn s&ouml;ng \u00e1 milli atri&eth;a \u00ed einhverju undarlegu afbrig&eth;i af tv\u00ed- til fimmund og noh-leikararnir hreyf&eth;u sig h&aelig;gt og aga&eth; um svi&eth;i&eth; og fluttu textann \u00ed undarlegum s&ouml;ng. Til a&eth; byrja me&eth; haf&eth;i &eacute;g sm\u00e1 \u00e1hyggjur af a&eth; &thorn;essi s\u00fdning yr&eth;i mj&ouml;g alvarlega sv&aelig;fandi og lengi a&eth; l\u00ed&eth;a. En &thorn;&aelig;r \u00e1hyggjur v&ouml;r&eth;u n\u00fa bara ekki lengi.<\/p>\n<p> M&eacute;r t\u00f3kst einhvern veginn a&eth; detta inn \u00ed &thorn;ennan takt og var&eth; mj&ouml;g hrifin af t\u00f3nlistinni. S&eacute;rstaklega stefinu sem trommuleikarar og s&ouml;ngvarar \u00ed bakgrunni endurt\u00f3ku \u00e1 milli atri&eth;a. \u00c9g er meira a&eth; segja enn a&eth; standa mig a&eth; &thorn;v\u00ed a&eth; hafa &thorn;au undarlegu hlj\u00f3&eth; \u00e1 heilanum. N\u00fat\u00edmalegu atri&eth;in &thorn;\u00f3ttu m&eacute;r koma sem \u00e1g&aelig;tis uppbrot \u00e1 Noh-inu. Og ur&eth;u enn&thorn;\u00e1 fj&ouml;rlegri \u00ed samanbur&eth;i. M&eacute;r &thorn;\u00f3ttu &thorn;eir leikarar komast vel fr\u00e1 s\u00ednu, &thorn;\u00f3 &thorn;au atri&eth;i hafi vissulega virst l&eacute;ttari og \u00e1takalausari en gengur og gerist me&eth; Ibsen, mi&eth;a&eth; vi&eth; hi&eth; &thorn;unga og seigflj\u00f3tandi noh inn \u00e1 milli.<\/p>\n<p> M&eacute;r fannst s\u00fdningin n\u00fdbyrju&eth; &thorn;egar h\u00fan var allt \u00ed einu b\u00fain. Allt \u00ed allt fannst m&eacute;r h\u00fan miki&eth; augnakonfekt og &thorn;essi n\u00e1kv&aelig;mni og reglufesta \u00ed hreyfingum og undarlegum \u00f3hlj\u00f3&eth;\u00edskum s&ouml;ng n\u00e1&eth;i m&eacute;r alveg. Au&eth;vita&eth; er betra a&eth; hafa einhverja hugmynd um hva&eth; ma&eth;ur er a&eth; fara a&eth; sj\u00e1, &aelig;tli menn a&eth; sko&eth;a noh-s\u00fdningar e&eth;a &ouml;nnur framandi og gamaldags leikh\u00fas, en m&eacute;r t\u00f3kst allavega alveg a&eth; nj\u00f3ta &thorn;ess fullt. Ekki er heldur miki&eth; um dramat\u00edska tj\u00e1ningu sem snertir hjartans h&ouml;rpustrengi, en &eacute;g held a&eth; &thorn;essi fr\u00e1sagnarm\u00e1ti s&eacute; \u00ed rauninni ekki hugsa&eth;ur til &thorn;ess.<\/p>\n<p> \u00cd &thorn;a&eth; heila var &eacute;g \u00e1n&aelig;g&eth; me&eth; s\u00fdninguna og mun tv\u00edm&aelig;lalaust s&aelig;kja fleiri noh-s\u00fdningar \u00ed framt\u00ed&eth;inni ef &eacute;g m&ouml;gulega \u00e1 &thorn;ess kost. En &eacute;g er ekki \u00ed vafa um a&eth; einhverju af &thorn;essari innlifun hef&eth;i &eacute;g t\u00fdnt, ef &eacute;g hef&eth;i veri&eth; me&eth; nefi&eth; ofan \u00ed handritinu allan t\u00edmann, eins og &eacute;g s\u00e1 suma sessunauta m\u00edna gera. &THORN;a&eth; er kannski erfitt fyrir n\u00fat\u00edmaf\u00f3lk a&eth; setja sig inn \u00ed &thorn;a&eth; hugar\u00e1stand, en \u00ed &thorn;essari s\u00fdningu og &thorn;essu formi held &eacute;g einfaldlega a&eth; efnist&ouml;kin s&eacute;u ekki endilega a&eth;alatri&eth;i. <\/p>\n<p> <em>Sigr\u00ed&eth;ur L\u00e1ra Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir<\/em><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00datsendari Leiklistarvefjarins br\u00e1 s&eacute;r a&eth; japanska s\u00fdningu \u00ed &THORN;j\u00f3&eth;leikh\u00fasinu: &THORN;a&eth; var forvitni um undarlegar stefnur og hef&eth;ir \u00ed leikh\u00fasi sem rak mig til a&eth; fara a&eth; sj\u00e1 gestas\u00fdningu fr\u00e1 Natori-leikh\u00fasinu \u00ed Japan \u00ed &THORN;j\u00f3&eth;leikh\u00fasinu s\u00ed&eth;asta laugardagskv&ouml;ld. M&eacute;r &thorn;\u00f3tti spennandi a&eth; sj\u00e1 Noh-formi&eth;, og a&eth; efnivi&eth;urinn v&aelig;ri Br\u00fa&eth;uheimili eftir Ibsen &thorn;\u00f3tti m&eacute;r h\u00e1lfgert aukaatri&eth;i. Enda finnst [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":901,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-902","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/902","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=902"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/902\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=902"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=902"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=902"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}