{"id":882,"date":"2006-08-25T09:39:52","date_gmt":"2006-08-25T09:39:52","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=882"},"modified":"2006-08-25T09:39:52","modified_gmt":"2006-08-25T09:39:52","slug":"la-kynnir-na-leik","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/la-kynnir-na-leik\/","title":{"rendered":"LA kynnir n\u00e6sta leik\u00e1r"},"content":{"rendered":"<p><strong><\/strong> Leikf&eacute;lag Akureyrar hefur n\u00fa birt&nbsp; dagskr\u00e1 leik\u00e1rsins 2006-2007. \u00c1fram er unni&eth; eftir s&ouml;mu stefnu og veri&eth; hefur  og s&eacute;rst&ouml;k \u00e1hersla l&ouml;g&eth; \u00e1 a&eth; n\u00e1 ekki s\u00ed&eth;ur til yngri leikh\u00fasgesta en &thorn;eirra sem eldri eru. Li&eth;i&eth; leik\u00e1r sl\u00f3 &ouml;ll met er var&eth;a a&eth;s\u00f3kn og lj\u00f3st a&eth; LA er \u00ed mikilli s\u00f3kn. <br \/> <!--more--> Leikf&eacute;lag Akureyrar hefur n\u00fa birt&nbsp; dagskr\u00e1 leik\u00e1rsins 2006-2007. \u00c1fram er unni&eth; eftir s&ouml;mu stefnu og veri&eth; hefur og s&eacute;rst&ouml;k \u00e1hersla l&ouml;g&eth; \u00e1 a&eth; n\u00e1 ekki s\u00ed&eth;ur til yngri leikh\u00fasgesta en &thorn;eirra sem eldri eru. Li&eth;i&eth; leik\u00e1r sl\u00f3 &ouml;ll met er var&eth;a a&eth;s\u00f3kn og lj\u00f3st a&eth; LA er \u00ed mikilli s\u00f3kn. Sem fyrr einbeitir leikh\u00fasi&eth; s&eacute;r a&eth; uppsetningu n\u00fat\u00edmaverka og ver&eth;a frums\u00fdnd tv&ouml; n\u00fd erlend verk, Herra Kolbert og Svartur k&ouml;ttur, en &thorn;au eiga &thorn;a&eth; sameiginlegt a&eth; hafa vaki&eth; athygli og hloti&eth; lof gagnr\u00fdnenda &thorn;ar sem &thorn;au hafa veri&eth; s\u00fdnd. St&aelig;rsta frums\u00fdning vetrarins er \u00e1 n\u00fdju \u00edslensku leikriti sem &THORN;orvaldur &THORN;orsteinsson hefur skrifa&eth; fyrir leikh\u00fasi&eth; og nefnist L\u00edfi&eth; &ndash; notkunarreglur. Leiks\u00fdningin er samstarfsverkefni vi&eth; Nemendaleikh\u00fas leiklistardeildar Listah\u00e1sk\u00f3lans og mun Kjartan Ragnarsson leikst\u00fdra.&nbsp; Fyrir yngstu kynsl\u00f3&eth;ina ver&eth;ur bo&eth;i&eth; upp \u00e1 n\u00fdja og ferska uppsetningu \u00e1 Kar\u00edusi og Baktusi. \u00cd jan\u00faar ver&eth;ur haldi&eth; upp \u00e1 100 \u00e1ra afm&aelig;li Samkomh\u00fassins og ver&eth;ur m.a. efnt til leiklesturs \u00e1 &AElig;vint\u00fdri \u00e1 g&ouml;nguf&ouml;r af &thorn;v\u00ed tilefni. Vins&aelig;lar s\u00fdningar fr\u00e1 s\u00ed&eth;ustu leik\u00e1rum sn\u00faa aftur, teki&eth; ver&eth;ur \u00e1 m\u00f3ti gestas\u00fdningum, fari&eth; ver&eth;ur \u00ed leikh\u00fasfer&eth; til London og leikh\u00fasmenntun unga f\u00f3lksins ver&eth;ur sinnt \u00ed vetur hj\u00e1 LA.<br \/> &nbsp;<strong><br \/> Herra Kolbert &ndash; &ldquo;drepum hann og f&ouml;rum svo \u00ed g&ouml;ngut\u00far&rdquo;<\/strong><br \/> Herra Kolbert eftir David Gieselmann er spennuverk me&eth; h\u00famor sem kemur \u00e1 \u00f3vart. Verki&eth; hefur fari&eth; v\u00ed&eth;a s\u00ed&eth;an &thorn;a&eth; var frums\u00fdnt \u00ed Royal Court leikh\u00fasinu \u00ed London \u00e1ri&eth; 2000. M&ouml;rg frams&aelig;knustu leikh\u00fas Evr\u00f3pu hafa s\u00fdnt verki&eth; og hloti&eth; lof fyrir. Herra Kolbert hefur einni veri&eth; s\u00fdnt v\u00ed&eth;a \u00ed Bandar\u00edkjunum og \u00c1stral\u00edu. Leikriti&eth; sameinar spennu og \u00e1t&ouml;k Hitchcocks, undarlegheit Pinters, f\u00e1r\u00e1nleika Ionescos og \u00f3m\u00f3tst&aelig;&eth;ilegan h\u00famor.<br \/> Hver er Herra Kolbert? Hver er me&eth; n\u00famer 26, sleppa chill\u00edinu? Er Herra Kolbert \u00ed kistlinum \u00e1 g\u00f3lfinu? Steindau&eth;ur? Hver var me&eth; hv\u00edtlauksbolognese me&eth; eggi? Ef Herra Kolbert er dau&eth;ur, hver drap hann &thorn;\u00e1? Og hvernig kemur pizzusendillinn inn \u00ed &thorn;etta allt saman? Venjulegt matarbo&eth; hj\u00e1 venjulegu f\u00f3lki tekur \u00f3v&aelig;nta stefnu og &thorn;egar kv&ouml;ldi&eth; er li&eth;i&eth; er allt breytt&#8230;<br \/> &THORN;\u00fd&eth;ing: Bjarni J\u00f3nsson. Leikstj\u00f3rn: J\u00f3n P\u00e1ll Eyj\u00f3lfsson, leikmynd og b\u00faningar: \u00cdris Eggertsd\u00f3ttir, l\u00fdsing: Bj&ouml;rn Bergsteinn Gu&eth;mundsson, t\u00f3nlist: Hallur Ing\u00f3lfsson. Leikarar: Edda Bj&ouml;rg Eyj\u00f3lfsd\u00f3ttir, Gu&eth;j\u00f3n Dav\u00ed&eth; Karlsson, G\u00edsli P&eacute;tur Hinriksson, \u00d3lafur Steinn Ingunnarson og Unnur &Ouml;sp Stef\u00e1nsd\u00f3ttir. Frums\u00fdnt 27. okt\u00f3ber<br \/> &nbsp;<br \/> <strong>Kar\u00edus og Baktus&nbsp; &#8211; S\u00edgilt leikrit sem stenst t\u00edmans t&ouml;nn. Grallaraleg t\u00f3nlist \u00ed flutningi 200.000 naglb\u00edta<\/strong><br \/> \u00d3fr\u00fdnilegu grallararnir Kar\u00edus og Baktus gera allt vitlaust \u00e1 Akureyri. H&ouml;ggva, berja, &ouml;skra og heimta \u00ed munninum \u00e1 Jens, sem gefur &thorn;eim n\u00f3g af s&aelig;tindum! &THORN;eir eru svakalegir og skemmtilegir, h&aelig;ttulegir og hl&aelig;gilegir \u00ed senn, svo s&aelig;luhrollur hr\u00edslast ni&eth;ur baki&eth; \u00e1 \u00e1horfendum, ungum sem &ouml;ldnum.&nbsp; S\u00fdningin er stutt, tekur um h\u00e1lfa klukkustund \u00ed flutningi og tilvalin fyrir &thorn;\u00e1 sem eru a&eth; kynnast t&ouml;frum leikh\u00fassins \u00ed fyrsta skipti.<br \/> H&ouml;fundur: Thorbj&ouml;rn Egner, &thorn;\u00fd&eth;ing: Hulda Valt\u00fdsd\u00f3ttir. Leikstj\u00f3rn: \u00c1str\u00f3s Gunnarsd\u00f3ttir, leikmynd og b\u00faningar: \u00cdris Eggertsd\u00f3ttir, t\u00f3nlistarflutningur: 200.000 naglb\u00edtar. Leikarar: Gu&eth;j\u00f3n Dav\u00ed&eth; Karlsson og \u00d3lafur Steinn Ingunnarson. Frums\u00fdnt 23. september.<br \/> &nbsp;<br \/> <strong>Svartur K&ouml;ttur &ndash;&nbsp; brj\u00e1l&aelig;&eth;islegt leikrit, fyndi&eth; og djarft<\/strong><br \/> &THORN;etta h\u00f3fst allt me&eth; &thorn;v\u00ed a&eth; dau&eth;ur k&ouml;ttur fannst \u00e1 veginum &ndash; besti vinur Patreks \u00ed &ouml;llum heiminum. Hann leitar hefnda, Mar\u00eda leitar a&eth; \u00e1stinni, allir leita a&eth; Patreki nema Dav\u00ed&eth; sem leitar a&eth; lei&eth; \u00fat \u00far klandrinu. Sagan er reifarakennd og fyndin, pers\u00f3nurnar heimskar en brj\u00f3stumkennanlegar,&nbsp; umfj&ouml;llnarefni&eth; \u00e1leiti&eth; og h\u00famorinn flugbeittur. Svartur k&ouml;ttur var frums\u00fdnt \u00ed Bretlandi fyrir fj\u00f3rum \u00e1rum &thorn;ar sem &thorn;a&eth; var vali&eth; gamanleikrit \u00e1rsins af &thorn;arlendum gagnr\u00fdnendum og n\u00fa \u00ed vor var &thorn;a&eth; frums\u00fdnt \u00e1 Broadway &thorn;ar sem leikh\u00fasunnendur halda ekki vatni. Me&eth;al &thorn;ess sem gagnr\u00fdnendur &thorn;ar hafa sagt er: &bdquo;\u00cdmyndi&eth; ykkur Monty Python&nbsp; \u00ed einni s&aelig;ng me&eth; Quentin Tarantino&ldquo;.<br \/> Martin McDonagh er \u00ed fremsta flokki ungra leiksk\u00e1lda heims um &thorn;essar mundir. Verk hans hafa veri&eth; sett upp um allan heim en \u00edslenskir \u00e1horfendur hafa bari&eth; &thorn;rj\u00fa verka hans augum, Fegur&eth;ardrottninguna fr\u00e1 L\u00ednakri (Borgarleikh\u00fas), Halta Billa (&THORN;j\u00f3&eth;leikh\u00fasi&eth;) og Koddamanninn (&THORN;j\u00f3&eth;leikh\u00fasi&eth;).&nbsp; Svartur K&ouml;ttur (The Liutenant of Inishmore) ber sterk h&ouml;fundareinkenni McDonagh &thorn;\u00f3 h\u00famorinn s&eacute; fyrirfer&eth;armeiri en \u00e1&eth;ur. Verk sem enginn leikh\u00fasunnandi &aelig;tti a&eth; l\u00e1ta framhj\u00e1 s&eacute;r fara.<br \/> H&ouml;fundur: Martin McDonagh. &THORN;\u00fd&eth;ing: H\u00e1var Sigurj\u00f3nsson, leikstj\u00f3rn: Magn\u00fas Geir &THORN;\u00f3r&eth;arson, leikmynd og b\u00faningar: Filipp\u00eda El\u00edasd\u00f3ttir, l\u00fdsing: &THORN;\u00f3r&eth;ur Orri P&eacute;tursson. Me&eth;al leikara: \u00cdvar &Ouml;rn Sverrisson, Gu&eth;j\u00f3n Dav\u00ed&eth; Karlsson, \u00cdsger&eth;ur Elfa Gunnarsd\u00f3ttir, \u00d3lafur Steinn Ingunnarson, G\u00edsli P&eacute;tur Hinriksson og &THORN;r\u00e1inn Karlsson. Frums\u00fdnt 20. jan\u00faar 2007 en &thorn;\u00e1 ver&eth;a 100 \u00e1r fr\u00e1 fyrstu s\u00fdningu \u00ed Samkomuh\u00fasinu \u00e1 Akureyri.<br \/> &nbsp;<br \/> <strong>L\u00edfi&eth; &ndash; notkunarreglur. &AElig;vint\u00fdri&eth; um okkur &ouml;ll &ndash; fullt af hl\u00fdju, t\u00f3nlist og leiftrandi h\u00famor.<\/strong><br \/> N\u00fdtt leikrit eftir &THORN;orvald &THORN;orsteinsson.<br \/> Hva&eth; var &thorn;a&eth; n\u00fa aftur sem vi&eth; \u00e1ttum a&eth; gera vi&eth; &thorn;etta blessa&eth;a l\u00edf? Erum vi&eth; kannski a&eth; misskilja &thorn;etta allt saman? E&eth;a er \u00e1stin ef til vill svari&eth; sem allt sn\u00fdst um? Litr\u00edkur h\u00f3pur f\u00f3lks stendur frammi fyrir \u00e1leitnum spurningum um framt\u00ed&eth;ina og eigin hlutverk \u00ed l\u00edfinu. Spurningunum sem enginn vir&eth;ist geta svara&eth; svo vel s&eacute;, enda fylgir sjaldnast b&aelig;klingur me&eth; b&ouml;rnunum sem f&aelig;&eth;ast \u00ed &thorn;ennan heim. H&eacute;r er fjalla&eth; um sundurleitan samt\u00edma og \u00f3vissa framt\u00ed&eth; \u00e1 svo manneskjulegum og hr\u00edfandi n\u00f3tum a&eth; allir ver&eth;a r\u00edkari \u00e1 eftir.<br \/> S\u00fdningin er unnin \u00ed samvinnu vi&eth; \u00fatskriftar\u00e1rgang leiklistardeildar Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og er lokaverkefni &thorn;eirra vi&eth; sk\u00f3lann. Tveir &ouml;flugustu leikh\u00fasmenn &thorn;j\u00f3&eth;arinnar, &THORN;orvaldur &THORN;orsteinsson leiksk\u00e1ld og Kjartan Ragnarsson leikstj\u00f3ri, voru fengnir til a&eth; lei&eth;a vinnuna me&eth; hinum ungu leikurum. Me&eth;al r\u00f3ma&eth;ra verka &THORN;orvaldar eru And Bj&ouml;rk of course, Bl\u00ed&eth;finnur og Skilabo&eth;askj\u00f3&eth;an. Kjartan er einn reyndasti leikstj\u00f3ri landsins og me&eth;al eftirminnilegra s\u00fdninga hans eru Sj\u00e1lfst&aelig;tt f\u00f3lk, &THORN;r\u00fagur rei&eth;innar og Land m\u00edns f&ouml;&eth;ur. &THORN;etta er fyrsta s\u00fdning beggja fyrir LA. <br \/> Leikstj\u00f3rn: Kjartan Ragnarsson.&nbsp; Leikarar: \u00datskriftar\u00e1rgangur Leiklistardeildar og leikh\u00f3pur LA.<br \/> Sett upp \u00ed samstarfi vi&eth; Leiklistardeild Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Frums\u00fdnt 16. mars 2007.<br \/> &nbsp;<br \/> <strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-881\" width=\"200\" vspace=\"12\" hspace=\"12\" height=\"246\" border=\"0\" align=\"left\" title=\"la0607.png\" alt=\"la0607.png\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2006\/08\/Leikhus_Leikhopar_LA_06_07_la0607.png\" \/>S\u00fdningar fr\u00e1 fyrri \u00e1rum og gestas\u00fdningar<\/strong><br \/> Auk fj&ouml;gurra n\u00fdrra frums\u00fdninga ver&eth;ur bo&eth;i&eth; upp \u00e1 fj\u00f3rar a&eth;rar leiks\u00fdningar auk fj&ouml;lbreytilegrar annarrar starfsemi.<br \/> &nbsp;<br \/> Leik\u00e1ri&eth; hefst me&eth; aukas\u00fdningum \u00e1 Litlu hryllingsb\u00fa&eth;inni sem s\u00fdnd var vi&eth; miklar vins&aelig;ldir \u00ed vor og hlaut einr\u00f3ma lof. &THORN;\u00e1 komust f&aelig;rri a&eth; en vildu og til a&eth; m&aelig;ta fj&ouml;lda \u00e1skorana hefur tekist a&eth; b&aelig;ta vi&eth; aukas\u00fdningum fyrstu &thorn;rj\u00e1r helgarnar \u00ed september. Mi&eth;arnir rj\u00faka \u00fat og &thorn;v\u00ed hver a&eth; ver&eth;a s\u00ed&eth;astur a&eth; tryggja s&eacute;r mi&eth;a \u00e1 &thorn;essa vins&aelig;lu s\u00fdningu.<br \/> &nbsp;<br \/> Akureyringurinn Kristj\u00e1n Ingimarsson hefur \u00e1 undanf&ouml;rnum \u00e1rum fer&eth;ast um allan heim a&eth; s\u00fdna gamanleik sinn Mike Attack. Verki&eth; ver&eth;ur s\u00fdnt \u00e1 vegum LA \u00e1 Akureyri \u00ed okt\u00f3ber. Getur hlj\u00f3&eth;nemi fengi&eth; fulln&aelig;gingu? J\u00e1 au&eth;vita&eth; &thorn;a&eth; &thorn;arf bara a&eth; strj\u00faka honum fram og til baka \u00ed stat\u00edfinu og &thorn;\u00e1 \u00edskrar hann af \u00e1n&aelig;gju. Verki&eth; ver&eth;ur s\u00fdnt \u00ed R\u00fdminu \u00ed okt\u00f3ber.<br \/> &nbsp;<br \/> \u00cd n\u00f3vember 2004 var leikriti&eth; Ausa Steinberg eftir Lee Hall frums\u00fdnt \u00e1 Akureyri. Gagnr\u00fdnendur lofu&eth;u verki&eth; og ekki s\u00edst frammist&ouml;&eth;u Ilmar Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur og var h\u00fan m.a. tilnefnd til Gr\u00edmunnar fyrir leik sinn. S\u00fdningin er var sett upp \u00ed samstarfi vi&eth; Borgarleikh\u00fasi&eth; og var einnig s\u00fdnd &thorn;ar. Ausa sn\u00fdr n\u00fa aftur til Akureyrar og n\u00fa \u00ed n\u00fdjum b\u00faningi. H\u00fan ver&eth;ur n\u00fa s\u00fdnd \u00ed Akureyrarkirkju \u00ed Dymbilviku \u00e1&eth;ur en h\u00fan heldur \u00ed leikfer&eth; um landi&eth;. \u00cd Ausu birtist einl&aelig;g, falleg en oft drepfyndin s\u00fdn n\u00edu \u00e1ra barns \u00e1 l\u00edfi&eth; sem h\u00fan f&aelig;r ekki a&eth; lifa. Ausa s&eacute;r tilveruna \u00ed &ouml;&eth;ru lj\u00f3si en vi&eth; flest og snertir n\u00fdja strengi hj\u00e1 \u00e1horfendum. Leikstj\u00f3ri er Mar\u00eda Reyndal.<br \/> &nbsp;<br \/> \u00cd ma\u00ed mun LA taka \u00e1 m\u00f3ti gestas\u00fdningu. S\u00fa n\u00fdbreytni er n\u00fa vi&eth;h&ouml;f&eth; a&eth; \u00ed sta&eth; &thorn;ess a&eth; \u00e1kve&eth;a fyrirfram hva&eth;a s\u00fdning ver&eth;ur \u00e1 bo&eth;st\u00f3lum ver&eth;ur \u00e1kv&ouml;r&eth;un ekki tekin fyrr en s\u00ed&eth;ar \u00ed vetur &thorn;egar flestar frums\u00fdningar vetrarins hafa veri&eth; frums\u00fdndar. &THORN;annig stefnir LA a&eth; &thorn;v\u00ed a&eth; bj\u00f3&eth;a upp \u00e1 &thorn;a&eth; n\u00fdjasta og ferskasta og &thorn;a&eth; sem vi&eth; teljum mest spennandi fyrir leikh\u00fasgesti nor&eth;an hei&eth;a. Stefnt er a&eth; &thorn;v\u00ed a&eth; &thorn;etta ver&eth;i fastur li&eth;ur \u00ed starfseminni og kallast \u00f3vissufer&eth; \u00ed leikh\u00fasi&eth;.<br \/> &nbsp;<br \/> &nbsp;<br \/> &nbsp;<br \/> <strong>Unga f\u00f3lki&eth; &ndash; mikil fj&ouml;lgun \u00ed h\u00f3pi yngri leikh\u00fasgesta<\/strong><br \/> \u00c1 s\u00ed&eth;ustu tveimur \u00e1rum hefur mikil \u00e1hersla veri&eth; l&ouml;g&eth; \u00e1 a&eth; la&eth;a n\u00fdja og yngri leikh\u00fasgesti a&eth; leikh\u00fasinu. Hefur verkefnaval og val \u00e1 listam&ouml;nnum teki&eth; mi&eth; af &thorn;v\u00ed. A&eth; auki t\u00f3k LA og Landsbankinn upp samstarf fyrir tveimur \u00e1rum til a&eth; vinna sameiginlega a&eth; &thorn;essu marki. Landsbankinn grei&eth;ir n\u00fa eins og s\u00ed&eth;ustu tv&ouml; \u00e1r, ni&eth;ur \u00e1skriftarkort fyrir n\u00e1msmenn og alla sem eru yngri en 25 \u00e1ra. Me&eth; &thorn;essu \u00e1 a&eth; vera tryggt a&eth; allir geti &ldquo;veri&eth; flottir \u00e1 &thorn;v\u00ed&rdquo; og veri&eth; fastagestir \u00ed leikh\u00fasinu. Er skemmst fr\u00e1 &thorn;v\u00ed a&eth; segja a&eth; fj&ouml;ldi yngri leikh\u00fasgesta hefur margfaldast \u00e1 t\u00edmabilinu og n\u00fa er me&eth;alaldur kortagesta og almennra leikh\u00fasgesta hj\u00e1 LA undir 35 \u00e1rum, sem er mj&ouml;g \u00f3venjulegt \u00ed leikh\u00fasum \u00ed Evr\u00f3pu og h&eacute;r \u00e1 landi. Ver&eth; \u00e1 \u00e1skriftarkorti sem gildir \u00e1 fj\u00f3rar s\u00fdningar n\u00fa er a&eth;eins 3.950 kr.<br \/> &nbsp;<br \/> LA stendur fyrir \u00fdmissi annarri starfsemi sem beint er a&eth; unga f\u00f3lkinu. Reglulega er bo&eth;i&eth; upp \u00e1 opin leiklistarn\u00e1mskei&eth;, vi&eth; t&ouml;kum \u00e1 m\u00f3ti sk\u00f3lum, leiksk\u00f3lum og h\u00f3pum \u00ed heims\u00f3knir \u00ed leikh\u00fasi&eth; og s\u00ed&eth;ast en ekki s\u00edst stendur LA fyrir valgreinakennslu \u00ed leiklist \u00ed samstarfi vi&eth; Grunnsk\u00f3la Akureyrar. Valgreinakennslan h\u00f3fst sem tilraunaverkefni fyrir tveimur \u00e1rum en hefur n\u00fa fest sig \u00ed sessi. Nemendur geta &thorn;\u00e1 vali&eth; leiklist sem valgrein og koma \u00ed leikh\u00fasi&eth; einu sinni \u00ed viku \u00ed heilt misseri. &THORN;ar eru &thorn;au fr&aelig;dd um l\u00edfi&eth; \u00ed leikh\u00fasinu og ferli&eth; fr\u00e1 leikriti \u00e1 bla&eth;i a&eth; s\u00fdningu \u00e1 svi&eth;i.<br \/> &nbsp;<br \/> <strong>100 \u00e1ra afm&aelig;li Samkomuh\u00fassins<\/strong><br \/> Leikh\u00fasi&eth; \u00e1 Akureyri, Samkomuh\u00fasi&eth; var v\u00edgt 23. desember 1906 og fyrsta s\u00fdningin \u00ed h\u00fasinu var 20. jan\u00faar 1907. S&eacute;rst&ouml;k h\u00e1t\u00ed&eth;arfrums\u00fdning ver&eth;ur \u00e1 leikritinu Sv&ouml;rtum ketti af &thorn;essu tilefni akk\u00farat 100 \u00e1rum eftir fyrstu frums\u00fdningu \u00ed h\u00fasinu. Fleira ver&eth;ur gert til h\u00e1t\u00ed&eth;arbrig&eth;a en me&eth;al annars ver&eth;ur efnt til leiklesturs \u00e1 &AElig;vint\u00fdri \u00e1 g&ouml;nguf&ouml;r sem var fyrsta s\u00fdningin \u00ed h\u00fasinu. Mi&eth;aver&eth; ver&eth;ur &thorn;a&eth; sama og fyrir 100 \u00e1rum, 75 aurar \u00ed sal og 25 aurar \u00e1 sv&ouml;lum.<br \/> &nbsp;<br \/> <strong>Leikh\u00fasfer&eth; til London &ndash; beint fr\u00e1 Akureyri<\/strong><br \/> \u00cd byrjun okt\u00f3ber ver&eth;ur fari&eth; \u00ed s&eacute;rstaka leikh\u00fasfer&eth; til London, mekku leiklistar \u00ed Evr\u00f3pu. Flogi&eth; ver&eth;ur beint fr\u00e1 Akureyrarflugvelli \u00e1 fimmtudegi 5. okt og komi&eth; til baka \u00e1 sunnudegi. Gist ver&eth;ur \u00e1 Radison SAS h\u00f3telinu \u00ed hjarta borgarinnar. Fari&eth; ver&eth;ur \u00e1 tv&aelig;r leiks\u00fdningar \u00ed London og einnig b\u00fd&eth;st &thorn;\u00e1tttakendum a&eth; fara \u00ed lei&eth;s&ouml;gufer&eth; um London. Fari&eth; ver&eth;ur \u00e1 hinn r\u00f3ma&eth;a s&ouml;ngleik, Billy Elliot og a&eth;ra s\u00fdningu sem s\u00ed&eth;ar ver&eth;ur \u00e1kve&eth;i&eth; hver er. H\u00f3purinn fer saman \u00fat a&eth; bor&eth;a eitt kv&ouml;ldi&eth; og a&eth; auki f\u00e1 allir n&aelig;gan t\u00edma til a&eth; kynna s&eacute;r London \u00e1 eigin sp\u00fdtur. Fer&eth;in er skipul&ouml;g&eth; af Expressfer&eth;um \u00ed samstarfi vi&eth; LA en lei&eth;s&ouml;guma&eth;ur \u00ed leikh\u00fasfer&eth;inni ver&eth;ur Magn\u00fas Geir &THORN;\u00f3r&eth;arson, leikh\u00fasstj\u00f3ri LA. Mi&eth;aver&eth; er 54.900 en korthafar LA f\u00e1 5.000 kr afsl\u00e1tt af fer&eth;inni.<br \/> &nbsp;<br \/> <strong>\u00c1skriftarkort<\/strong><br \/> A&eth; venju b\u00fd&eth;ur LA upp \u00e1 \u00e1skriftarkort. &THORN;rj\u00e1r s\u00fdningar eru fastar \u00ed kortinu, Herra Kolbert, Svartur k&ouml;ttur og L\u00edfi&eth; &ndash; notkunarreglur. Sem fj\u00f3r&eth;u s\u00fdningu \u00ed kortum geta korthafar vali&eth; milli hinna fimm s\u00fdninga vetrarins, Kar\u00edus og Baktus, Mike Attack, Ausa Steinberg og \u00d3vissufer&eth;. Ver&eth; \u00e1skriftarkortsins er 7.900 kr en Landsbankinn ni&eth;urgrei&eth;ir \u00e1skriftarkort fyrir n\u00e1msmenn og alla yngri en 25 \u00e1ra. &THORN;eim b\u00fd&eth;st korti&eth; &thorn;v\u00ed \u00e1 h\u00e1lfvir&eth;i og grei&eth;a a&eth;eins 3.950 kr fyrir fj\u00f3rar s\u00fdningar.<br \/> &nbsp;<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leikf&eacute;lag Akureyrar hefur n\u00fa birt&nbsp; dagskr\u00e1 leik\u00e1rsins 2006-2007. \u00c1fram er unni&eth; eftir s&ouml;mu stefnu og veri&eth; hefur og s&eacute;rst&ouml;k \u00e1hersla l&ouml;g&eth; \u00e1 a&eth; n\u00e1 ekki s\u00ed&eth;ur til yngri leikh\u00fasgesta en &thorn;eirra sem eldri eru. Li&eth;i&eth; leik\u00e1r sl\u00f3 &ouml;ll met er var&eth;a a&eth;s\u00f3kn og lj\u00f3st a&eth; LA er \u00ed mikilli s\u00f3kn.<\/p>","protected":false},"author":3,"featured_media":880,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187],"tags":[],"class_list":["post-882","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/882","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=882"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/882\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=882"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=882"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=882"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}