{"id":83,"date":"2001-10-19T16:36:26","date_gmt":"2001-10-19T16:36:26","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=83"},"modified":"2001-10-19T16:36:26","modified_gmt":"2001-10-19T16:36:26","slug":"teftirminnileg-kv","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/teftirminnileg-kv\/","title":{"rendered":"T\u00edu eftirminnileg kv\u00f6ld"},"content":{"rendered":"<p>&#8222;G\u00f3\u00f0 leiks\u00fdning gleymist ekki svo glatt&#8230;.&#8220; \u00deorgeir Tryggvason rifjar upp s\u00edn eftirminnilegustu kv\u00f6ld \u00ed leikh\u00fasinu og setur upp topp t\u00edu lista.<a href=\"https:\/\/leiklist.is\/en\/page\/tiu\/\"> <\/a> <\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/en\/page\/tiu\/\"> <\/a><\/p>\n<p>  <!--more-->  G\u00f3\u00f0 leiks\u00fdning gleymist ekki svo glatt. Reyndar geymast verulega vondar s\u00fdningar jafn lengi \u00ed minninu, illu heilli. En allavega, \u00ed tilefni af \u00feessum gagnr\u00fdnendavef \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 l\u00edta um \u00f6xl og rifja upp t\u00edu s\u00fdningar sem lifa \u00ed minninu af fyrrnefndu \u00e1st\u00e6\u00f0unni. T\u00edu eftirminnilegustu kv\u00f6ld m\u00edn\u00a0 \u00ed \u00edslensku \u00e1hugaleikh\u00fasi (\u00ed stafr\u00f3fsr\u00f6\u00f0 s\u00fdninga): <\/p>\n<p><strong>BL\u00d3\u00d0 HINNAR SVELTANDI ST\u00c9TTAR<br \/><\/strong>H\u00f6fundur: Sam Shepard<br \/>Leikstj\u00f3ri: Vi\u00f0ar Eggertsson<br \/>Leikf\u00e9lag Hafnarfjar\u00f0ar 1991-92<br \/>M\u00d6GNU\u00d0 uppf\u00e6rsla \u00e1 krefjandi verki. Firnasterkur leikh\u00f3pur og drj\u00fagur hluti hans a\u00f0 st\u00edga s\u00edn fyrstu skref \u00e1 leiksvi\u00f0i, sem erfitt var a\u00f0 tr\u00faa a\u00f0 g\u00e6ti veri\u00f0. S\u00fdning sem sta\u00f0festi \u00feann grun minn a\u00f0 oss amat\u00f6rum er ekkert \u00f3m\u00f6gulegt.<\/p>\n<p><strong>D\u00ddRIN \u00cd H\u00c1LSASK\u00d3GI<\/strong><br \/>H\u00f6fundur: Torbj\u00f6rn Egner<br \/>Leikstj\u00f3ri: Stef\u00e1n J\u00f3nsson<br \/>Leikf\u00e9lag Flensborgarsk\u00f3la 1999-?2000<br \/>\u00d3TR\u00daLEGA snj\u00f6ll endurt\u00falkun \u00e1 verki sem allir kunna utana\u00f0 og er \u00fev\u00ed kj\u00f6rinn vettvangur fyrir tilraunir. Leiki\u00f0 \u00ed t\u00f6ffaralegum \u201cPulp Fiction\u201d st\u00edl og sk\u00f3gurinn or\u00f0inn borgarfrumsk\u00f3gur n\u00fat\u00edmans. Mikki refur hefur aldrei \u00feessu vant alla sam\u00fa\u00f0 \u00e1horfenda, l\u00faserinn sem semur sig ekki a\u00f0 h\u00e1ttum fj\u00f6ldans og hl\u00fdtur \u00fev\u00ed a\u00f0 farast. Snilldarlegur umsn\u00faningur \u00e1n \u00feess a\u00f0 nokkru v\u00e6ri breytt af texta.<\/p>\n<p><strong>GR\u00c6NJAXLAR<\/strong><br \/>H\u00f6fundur: P\u00e9tur Gunnarsson<br \/>Leikstj\u00f3ri: Arnhei\u00f0ur Ingimundard\u00f3ttir<br \/>Leikkl\u00fabburinn Saga 1987?88<br \/>AF \u00feeim \u00f3f\u00e1u leiks\u00fdningum sem \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 um \u00e6fina hefur \u00feessi komist n\u00e6st \u00fev\u00ed a\u00f0 springa af leikgle\u00f0i. \u00c6vint\u00fdraleg \u00feroskasaga fj\u00f6gurra krakka \u00far pollagalla \u00ed fullor\u00f0insf\u00f6t me\u00f0 vi\u00f0komu \u00ed fermingarb\u00faningum. Brj\u00e1la\u00f0ur hra\u00f0i og fr\u00e1b\u00e6r leikur \u00e1 \u00f6llum p\u00f3stum a\u00f0 vi\u00f0b\u00e6ttum pott\u00fe\u00e9ttum t\u00f3nlistarflutningi. \u201cVi\u00f0 sk\u00fdin felum ekki s\u00f3lina &#8230;.\u201d<\/p>\n<p><strong>ME\u00d0 KVE\u00d0JU FR\u00c1 YALTA<\/strong> (Um ska\u00f0semi T\u00f3baksins, B\u00f3nor\u00f0i\u00f0 og Bj\u00f6rninn)<br \/>H\u00f6fundur: Anton Tsj\u00e9kof<br \/>Leikstj\u00f3ri: Leikh\u00f3purinn<br \/>Leikf\u00e9lag K\u00f3pavogs 1997-98<br \/>\u00deR\u00cdR ein\u00fe\u00e1ttungar um hj\u00f3nab\u00f6nd, hvernig til \u00feeirra er stofna\u00f0 og hve afdrif f\u00f3rnarlamba \u00feeirra ver\u00f0a (stundum). H\u00e9r er dr. Tsj\u00e9kov eins og hann gerist fyndnastur og \u00farvalsli\u00f0 K\u00f3pavogsmanna f\u00f3r \u00e1 \u00fev\u00edl\u00edkum kostum. Ekki dregur \u00far hrifningunni a\u00f0 h\u00f3purinn naut ekki annarra leikstj\u00f3raaugna en sinna eigin. Listfengasta \u00e1hugaleikf\u00e9lag landsins \u00ed toppformi.<\/p>\n<p><strong>MYSINGSAMLOKA ME\u00d0 SVEPPUM<\/strong><br \/>H\u00f6fundur og leikstj\u00f3ri: J\u00f3n St. Kristj\u00e1nsson<br \/>Leikf\u00e9lag Hafnarfjar\u00f0ar 1992-93<br \/>S\u00ddNING unglinganna \u00far Fir\u00f0inum \u00e1 \u00feingi Bandalags \u00cdslenskra leikf\u00e9laga \u00ed Vestmannaeyjum 1993 var tv\u00edm\u00e6lalaust h\u00e1punkturinn \u00e1 \u00feeirri samkomu.<br \/>\u00d3tr\u00falega innlifu\u00f0 s\u00fdning, enda unnin upp \u00far spunavinnu h\u00f3psins og steypt \u00ed \u00f6ruggt form af h\u00f6fundi, nokku\u00f0 sem vantar oft upp \u00e1 unglingas\u00fdningar sem unnar eru \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt. Afraksturinn var fr\u00e1b\u00e6r rauns\u00e6 mynd af venjulegu f\u00f3lki, leikin af sjaldg\u00e6fu \u00f6rl\u00e6ti og hei\u00f0arleika.<\/p>\n<p><strong>SALKA VALKA<\/strong><br \/>H\u00f6fundur: Halld\u00f3r Laxness, leikger\u00f0 Stef\u00e1ns Baldurssonar og \u00deorsteins Gunnarssonar<br \/>Leikstj\u00f3ri: Mar\u00eda Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/>Leikf\u00e9lag H\u00fasav\u00edkur 1983-84<br \/>EF \u00e9g lenti \u00ed \u00feeirri hr\u00e6\u00f0ilegu a\u00f0st\u00f6\u00f0u a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 stytta \u00feennan lista um n\u00edu s\u00fdningar er \u00e9g ekki fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi st\u00e6\u00f0i eftir. M\u00e9r finnst \u00e9g muna hana n\u00e1nast fr\u00e1 augnabliki til augnabliks og \u00ed minningunni hefur h\u00fan yfirbrag\u00f0 fullkomnunar. Allt r\u00e9tt, allt sterkt, allt gott. As good as it gets, eins og kellingin sag\u00f0i.<\/p>\n<p><strong>SM\u00c1BORGARABR\u00da\u00d0KAUP<\/strong><br \/>H\u00f6fundur: Bertolt Brecht<br \/>Leikstj\u00f3ri: Vi\u00f0ar Eggertsson<br \/>Leikf\u00e9lag Selfoss 1996-97<br \/>MAGNA\u00d0 ma\u00f0ur, magna\u00f0. H\u00e9r t\u00f3kst Vi\u00f0ari og snillingum pr\u00fdddur leikh\u00f3pur Selfyssinga a\u00f0 b\u00faa til s\u00fdningu \u00ed (n\u00e6stum) fullri lengd \u00far ein\u00fe\u00e1ttungi Brechts. L\u00f6ng \u00fe\u00f6gul atri\u00f0i og ekki m\u00edn\u00fatu of langt. A\u00f0 auki var bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 groddalegan forleik, leikh\u00fasfer\u00f0ina, sem var br\u00e1\u00f0skemmtilegur l\u00edka, \u00fe\u00f3 h\u00e1punkturinn v\u00e6ri au\u00f0vita\u00f0 listr\u00e6nir meistarataktar Brechts, Vidda og sm\u00e1borgaranna.<\/p>\n<p><strong>S\u00d6LUMA\u00d0UR DEYR<br \/><\/strong>H\u00f6fundur: Arthur Miller<br \/>Leikstj\u00f3ri: Gu\u00f0r\u00fan Alfre\u00f0sd\u00f3ttir<br \/>Leikf\u00e9lag H\u00fasav\u00edkur 1996-97<br \/>Helsta verk Millers og m\u00f6gulega besta leikrit aldarinnar (allavega \u00f6ruggt inn \u00e1 topp fimm \u00ed svolei\u00f0is vali). Krefst stj\u00f6rnuleiks af \u00f6llum a\u00f0alleikurum og h\u00e9r vanta\u00f0i ekkert upp \u00e1 \u00fea\u00f0. Hin dau\u00f0ad\u00e6mda Loman-fj\u00f6lskylda lifna\u00f0i \u00ed allri sinni mikilfenglegu me\u00f0almennsku og deildi hlutdeild sinni \u00ed amer\u00edsku martr\u00f6\u00f0inni me\u00f0 (alltof f\u00e1um) \u00e1horfendum \u00e1 H\u00fasav\u00edk. \u00d3gleymanleg s\u00fdning.<\/p>\n<p><strong>SUMARGESTIR<\/strong><br \/>H\u00f6fundur: Maxim Gorki<br \/>Leikstj\u00f3ri: Vi\u00f0ar Eggertsson<br \/>Masterclassn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed Svarfa\u00f0ardal 1999<br \/>FYRSTU ver\u00f0laun sem \u00f3v\u00e6ntasta topp-t\u00edu-s\u00fdningin. \u00deegar Masterclass-nemarnir bu\u00f0u okkur hinum \u00e1 kynningu \u00e1 \u00fev\u00ed sem \u00feau h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 a\u00f0 gera s\u00ed\u00f0ustu sj\u00f6 dagana e\u00f0a svo \u00e1ttu l\u00edklega f\u00e6stir von \u00e1 a\u00f0 sj\u00e1 jafn t\u00f6frandi, kraftmikla og umfram allt FULLBUR\u00d0A s\u00fdningu. Notkun \u00e1 leikr\u00fdmi utan hins eiginlega svi\u00f0s var hreinlega innbl\u00e1sin. Vi\u00f0 vitum svosem \u00f6ll sem reynt h\u00f6fum a\u00f0 \u00fea\u00f0 er eitthva\u00f0 \u00ed loftinu \u00ed dalnum g\u00f3\u00f0a sem eflir sk\u00f6punar\u00fer\u00f3ttinn, en andskotinn&#8230;<\/p>\n<p><strong>UPPSPUNI FR\u00c1 R\u00d3TUM<br \/><\/strong>H\u00f6fundar: \u00c1rmann Gu\u00f0mundsson, S\u00e6var Sigurgeirsson og \u00deorgeir Tryggvason<br \/>Leikstj\u00f3ri: Oddur Bjarni \u00deorkelsson<br \/>Leikf\u00e9lag H\u00fasav\u00edkur 1990-2000<br \/>\u00d3KEI, au\u00f0vita\u00f0 er \u00e9g hlutdr\u00e6gur, en m\u00e9r er bara sk\u00edtsama. Frums\u00fdningin \u00e1 Uppspunanum er fyrsta frums\u00fdningin \u00e1 eigin verki \u00fear sem \u00e9g hef seti\u00f0 \u00fat \u00ed sal fullkomlega s\u00e1ttur. Ekki skemmir a\u00f0 \u00e9g var hreint ekki viss um \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feetta fl\u00f3kna og s\u00e9rviskulega bygg\u00f0a leikrit virka\u00f0i yfir h\u00f6fu\u00f0, en ekki voru li\u00f0nar margar m\u00edn\u00fatur af frums\u00fdningunni \u00feegar \u00e9g gat slappa\u00f0 af og teki\u00f0 til vi\u00f0 a\u00f0 skemmta m\u00e9r. \u00dea\u00f0 virka\u00f0i.<br \/>\u00deetta eru sums\u00e9 t\u00edu eftirminnilegustu s\u00fdningarnar m\u00ednar. N\u00fa hvet \u00e9g lesendur Leiklistar.is til a\u00f0 sko\u00f0a eigin hug, leita uppi s\u00ednar t\u00edu og senda vefnum l\u00ednu(r).<\/p>\n<div align=\"right\"><strong>\u00deorgeir T.<\/strong><\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>&#8222;G\u00f3\u00f0 leiks\u00fdning gleymist ekki svo glatt&#8230;.&#8220; \u00deorgeir Tryggvason rifjar upp s\u00edn eftirminnilegustu kv\u00f6ld \u00ed leikh\u00fasinu og setur upp topp t\u00edu lista.<\/p>","protected":false},"author":3,"featured_media":82,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-83","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/83","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=83"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/83\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=83"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=83"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=83"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}