{"id":6842,"date":"2015-11-20T14:57:40","date_gmt":"2015-11-20T14:57:40","guid":{"rendered":"http:\/\/leiklist.is\/?p=6842"},"modified":"2015-11-20T14:57:40","modified_gmt":"2015-11-20T14:57:40","slug":"bradskemmtileg-fjolskyldusyning-i-eyjum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/bradskemmtileg-fjolskyldusyning-i-eyjum\/","title":{"rendered":"Br\u00e1\u00f0skemmtileg fj\u00f6lskyldus\u00fdning \u00ed Eyjum"},"content":{"rendered":"<p><strong>\u00c6vint\u00fdrab\u00f3kin eftir P\u00e9tur Eggerz<br \/>\nLeikf\u00e9lag Vestmannaeyja<\/strong><br \/>\n<strong>Leikstj\u00f3ri Ingrid J\u00f3nsd\u00f3ttir<\/strong><br \/>\n<strong>Helena P\u00e1lsd\u00f3ttir r\u00fdnir s\u00fdningu<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 segja anna\u00f0 en Leikf\u00e9lag Vestmannaeyja s\u00e9 r\u00edkt af h\u00e6fileikaf\u00f3lki, f\u00f3lki sem l\u00e6tur gesti s\u00edna finna \u00fea\u00f0 alveg \u00fat \u00ed sal hversu gaman \u00fea\u00f0 hefur af \u00fev\u00ed a\u00f0 skemmta s\u00e9r og okkur hinum. \u00c9g skellti m\u00e9r \u00e1 frums\u00fdningu \u00ed leikh\u00fasinu okkar \u00e1 laugardaginn s.l. \u00e1samt leik(h\u00fas)f\u00e9laga m\u00ednum og m\u00f3\u00f0ur Kolbr\u00fanu H\u00f6rpu, en Leikf\u00e9lag Vestmannaeyja setur \u00feessa dagana \u00e1 fjalirnar sitt 173. verk n\u00fa \u00feegar \u00feeir s\u00fdna barnaleikriti\u00f0 \u00c6vint\u00fdrab\u00f3kina. \u00c9g hef \u00e1\u00f0ur vi\u00f0urkennt \u00ed leikh\u00fasgagnr\u00fdni a\u00f0 \u00e9g set \u00fea\u00f0 ekki endilega \u00ed fyrsta s\u00e6ti yfir skemmtun a\u00f0 fara barnlaus \u00e1 barnaleikrit, en \u00e9g var n\u00fa samt d\u00e1l\u00edti\u00f0 forvitin a\u00f0 sj\u00e1 \u00feetta verk \u00fev\u00ed \u00e9g hef pers\u00f3nulega l\u00edti\u00f0 heyrt \u00feess geti\u00f0. Vissi \u00fea\u00f0 eitt a\u00f0 \u00fea\u00f0 fjalla\u00f0i um \u00f6ll g\u00f6mlu \u00e6vint\u00fdrin sem vi\u00f0 \u00feekkjum flest s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 vorum b\u00f6rn s.s. Rau\u00f0hettu og \u00falfinn, Mjallhv\u00edti og dvergana sj\u00f6, \u00d6skubusku og hva\u00f0 \u00feau n\u00fa \u00f6ll heita. \u00dea\u00f0 kom okkur leik(h\u00fas)f\u00e9l\u00f6gunum \u00fev\u00ed skemmtilega \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 l\u00edta \u00feann \u00e1hugaver\u00f0a vinkil sem h\u00f6fundurinn, P\u00e9tur Eggerz, hefur komi\u00f0 me\u00f0 \u00e1 \u00feessi annars hef\u00f0bundnu, g\u00f6mlu \u00e6vint\u00fdri. Strax \u00ed upphafi f\u00e1um vi\u00f0 a\u00f0 kynnast D\u00f3ru litlu (Brigitta Krist\u00edn Bjarnad\u00f3ttir) sem er a\u00f0 lesa enn og aftur \u00e6vint\u00fdri\u00f0 um Rau\u00f0hettu og \u00falfinn \u00feegar \u00falfurinn ( Sk\u00e6ringur \u00d3li \u00de\u00f3rarinsson) allt \u00ed einu \u00e1kve\u00f0ur a\u00f0 hann langi barasta ekkert a\u00f0 vera lengur staddur \u00ed \u00feessu \u00e6vint\u00fdri, segist or\u00f0inn hundlei\u00f0ur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9ta \u00f6mmu g\u00f6mlu og Rau\u00f0hettu, vera ristur \u00e1 kvi\u00f0 af vei\u00f0imanninum og \u00e1kve\u00f0ur \u00ed framhaldinu a\u00f0 stelast inn \u00ed hin \u00e6vint\u00fdrin \u00ed b\u00f3kinni. Og \u00fear me\u00f0 hefst br\u00e1\u00f0skemmtilegur eltingaleikur D\u00f3ru og vei\u00f0mannsins \u00far Rau\u00f0hettu-s\u00f6gunni (J\u00f6kull El\u00ed \u00deorvaldsson), a\u00f0 \u00falfinum til a\u00f0 reyna a\u00f0 koma honum aftur inn \u00ed s\u00edna eigin \u00e6vint\u00fdras\u00f6gu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru \u00e1 \u00feri\u00f0ja tug leikara sem fara me\u00f0 hlutverk \u00ed \u00c6vint\u00fdrab\u00f3kinni. M\u00f6rg \u00feeirra andlita sem birtust okkur \u00e1 svi\u00f0inu a\u00f0 \u00feessu sinni voru n\u00fd en \u00e1huginn \u00e1 starfinu leyndi s\u00e9r ekki. Hlutverkin eru misst\u00f3r og mis\u00e1berandi og enn og aftur sannast \u00fea\u00f0 a\u00f0 hlutverkin \u00feurfa ekki endilega a\u00f0 vera a\u00f0al til a\u00f0 vera eftirminnileg. \u00deannig voru dvergarnir, \u00ed s\u00f6gunni um Mjallhv\u00edti og dvergana sj\u00f6, allir mj\u00f6g skemmtilegir og hressir&#8230;ja kannski fyrir utan hann F\u00fala sem var ekki alveg eins hress, \u00fear sem \u00feeir d\u00f6nsu\u00f0u, sungu og r\u00f6ppu\u00f0u alveg br\u00e1\u00f0skemmtilegt lag dverganna. Textinn f\u00f3r reyndar svona fyrir ofan gar\u00f0 og ne\u00f0an til okkar sem s\u00e1tum \u00ed salnum en dvergarnir b\u00e6ttu \u00fea\u00f0 upp me\u00f0 stu\u00f0i og skemmtilegri framkomu. Me\u00f0 hlutverk dverganna fara Dan\u00edel Hreggvi\u00f0sson, Hr\u00f3\u00f0mar T\u00f3rshamar, Haf\u00fe\u00f3r Hafsteinsson, Snorri Geir Haf\u00fe\u00f3rsson, Anton M\u00e1ni Sigf\u00fasson, Andri Hinriksson og Gu\u00f0bj\u00f6rg S\u00f3l Sindrad\u00f3ttir.<\/p>\n<p>Stutt atri\u00f0i en alveg d\u00e1samlegt var l\u00edka senan milli Prinsessunnar \u00e1 bauninni (Er\u00edka \u00ddr \u00d3marsd\u00f3ttir) og Prinsins (J\u00f3hann Helgi G\u00edslason). \u00deau voru svo skemmtilega \u00fdkt \u00ed \u00e1starj\u00e1tningum s\u00ednum, og Prinsinn \u00ed ,,mj\u00faku\u201d hreyfingunum, a\u00f0 ma\u00f0ur komst ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 skella upp\u00far&#8230;\u00edtreka\u00f0. D\u00e1samlegt og fallegt var l\u00edka dansatri\u00f0i\u00f0 \u00e1 milli \u00d6skubusku (Hulda D\u00eds Snorrad\u00f3ttir) og Prins \u00d6skubusku (\u00d3lafur Ingi Sigur\u00f0sson). \u00dea\u00f0 var b\u00e6\u00f0i huglj\u00faft og r\u00f3mant\u00edskt \u00fear sem t\u00f3nlistin og augnsambandi\u00f0 milli hinna ungu leikenda settu punktinn yfir i-i\u00f0. \u00c9g minnist \u00feess ekki a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 Huldu D\u00eds \u00e1\u00f0ur \u00e1 svi\u00f0i en h\u00fan f\u00f3r vel me\u00f0 sitt hlutverk, var sk\u00fdrm\u00e6lt, d\u00e1l\u00edti\u00f0 feimin en skila\u00f0i s\u00ednu vel. \u00d3lafur Ingi smellpassar \u00ed sitt hlutverk (prins charming) enda myndarlegur og \u00f3feiminn piltur sem tekur sig s\u00e9rstaklega vel \u00fat \u00ed prinsab\u00faningnum. Honum hefur fari\u00f0 fram fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e9g s\u00e1 hann s\u00ed\u00f0ast \u00e1 svi\u00f0i, er mj\u00f6g \u00f6ruggur \u00e1 l\u00ednunum s\u00ednum og \u00fea\u00f0 s\u00e9st langar lei\u00f0ir hversu gaman hann hefur a\u00f0 \u00fev\u00ed sem hann er a\u00f0 gera. Hef tr\u00fa \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi peyji eigi bara eftir vaxa enn meira sem leikari. Krist\u00ednu Eddu Valsd\u00f3ttur hef \u00e9g heldur ekki s\u00e9\u00f0 \u00e1\u00f0ur \u00e1 svi\u00f0i en h\u00fan leikur Mjallhv\u00edti. Vi\u00f0 veittum \u00fev\u00ed strax athygli hversu fallega s\u00f6ngr\u00f6dd h\u00fan hefur. Melod\u00edskur, h\u00e1r og t\u00e6r hlj\u00f3murinn var virkilega flottur og me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri \u00e6fingu \u00e1 Krist\u00edn \u00f6rugglega eftir a\u00f0 ver\u00f0a mj\u00f6g g\u00f3\u00f0 s\u00f6ngkona.<\/p>\n<p>Brigitta Krist\u00edn Bjarnad\u00f3ttir leikur D\u00f3ru eins og \u00e1\u00f0ur sag\u00f0i. \u00dea\u00f0 m\u00e6\u00f0ir talsvert \u00e1 \u00feessari ungu leikkonu \u00fev\u00ed h\u00fan, vei\u00f0ima\u00f0urinn og \u00falfurinn tengja verki\u00f0 saman. Ingrid J\u00f3nsd\u00f3ttirleikstj\u00f3ri ger\u00f0i vel me\u00f0 a\u00f0 velja hana \u00ed hlutverk D\u00f3ru. Brigitta virkar mj\u00f6g \u00f6rugg \u00e1 svi\u00f0inu, me\u00f0 l\u00ednurnar s\u00ednar upp\u00e1 t\u00edu og dugleg a\u00f0 tala h\u00e1tt og sk\u00fdrt. Ver\u00f0ur gaman a\u00f0 fylgjast me\u00f0 henni \u00ed framt\u00ed\u00f0inni haldi h\u00fan \u00e1fram \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i. Samleikur hennar og J\u00f6kuls El\u00ed \u00deorvaldssonar var mj\u00f6g f\u00ednn. Vei\u00f0ima\u00f0urinn \u00ed h\u00f6ndum J\u00f6kuls var br\u00e1\u00f0skemmtilegur og engu l\u00edkara en \u00fear fari str\u00e1kur sem ekkert hafi fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 leika \u00fev\u00ed frammista\u00f0a hans var \u00f3a\u00f0finnanleg. Agnes L\u00edf Sveinsd\u00f3ttir leikur Rau\u00f0hettu. Agnes komst mj\u00f6g vel fr\u00e1 s\u00ednu hlutverki, yndislega saklaus&#8230; j\u00e1 og d\u00e1samlega f\u00fal yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00falfurinn nennti ekki lengur a\u00f0 \u00e9ta hana. A\u00f0rir voru f\u00ednir \u00ed s\u00ednum hlutverkum, m\u00e1 \u00fear \u00e1 me\u00f0al nefna \u00c1rna \u00deorleifsson sem var skemmtilega undirgefinn \u00ed hluverki hins k\u00faga\u00f0a eiginmanns sk\u00f3garh\u00f6ggskonunnar (Gu\u00f0r\u00fan \u00c1sa Fr\u00edmannsd\u00f3ttir) \u00ed \u00e6vint\u00fdrinu um \u00d3skirnar \u00ferj\u00e1r. Samleikur \u00feeirra var l\u00edka \u00e1 t\u00ed\u00f0um br\u00e1\u00f0skemmtilegur. Kristinn Vi\u00f0ar \u00deorbergsson sem St\u00edgv\u00e9la\u00f0i k\u00f6tturinn var l\u00edka mj\u00f6g g\u00f3\u00f0ur ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 segja og \u00d3li Bjarki Austfj\u00f6r\u00f0 var d\u00e1samlegur sem Amma Rau\u00f0hettu. \u00de\u00e1 komust stj\u00fapsystur \u00d6skubusku (Brynd\u00eds Gu\u00f0j\u00f3nsd\u00f3ttir\/Gu\u00f0bj\u00f6rg S\u00f3l Sindrad\u00f3ttir), Vonda drottningin (Thelma Lind \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttir), stj\u00fapa \u00d6skubusku (Erla J\u00f3natansd\u00f3ttir) og mamma D\u00f3ru (Hafd\u00eds V\u00edglundsd\u00f3ttir) alveg \u00e1g\u00e6tlega fr\u00e1 s\u00ednum hlutverkum sem er \u00ed raun alveg fr\u00e1b\u00e6rt \u00fear sem h\u00e9r eru margir a\u00f0 st\u00edga s\u00edn fyrstu spor \u00e1 svi\u00f0i eins og \u00e1\u00f0ur sag\u00f0i.<\/p>\n<p>Tvennt st\u00f3\u00f0 \u00fe\u00f3 upp\u00far a\u00f0 m\u00ednu mati og leik(h\u00fas)f\u00e9laga m\u00edns. \u00cd fyrsta lagi var \u00fea\u00f0 \u00f3v\u00e6nt innkomaAlexanders P\u00e1ls Salberg. \u00c9g hef nokkrum sinnum \u00e1\u00f0ur geti\u00f0 \u00feess \u00ed leikh\u00fasgagnr\u00fdni hversu skemmtilegur leikari m\u00e9r finnst Alexander vera. En ef \u00e9g segi ykkur a\u00f0 l\u00edtil st\u00falka, m\u00e9r algerlega \u00f3kunnug og \u00e1 n\u00e6sta bekk fyrir framan mig, hafi kvarta\u00f0 undan \u00fev\u00ed vi\u00f0 mig \u00ed hl\u00e9inu a\u00f0 h\u00fan hafi fengi\u00f0 hellu fyrir anna\u00f0 eyra\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e9g hafi \u00f6skra\u00f0 af hl\u00e1tri \u00ed eyra\u00f0 \u00e1 henni \u00feennan (alltof)stutta t\u00edma sem Alexander var \u00e1 svi\u00f0i&#8230;.ja \u00fea\u00f0 \u00e6tti kannski a\u00f0 segja sitthva\u00f0 um hversu hrikalega fyndinn og fr\u00e1b\u00e6r hann var \u00ed s\u00ednu hlutverki. \u00cd alv\u00f6ru tala\u00f0&#8230;ekki bara vi\u00f0 leik(h\u00fas)f\u00e9lagi minn gr\u00e9tum \u00far hl\u00e1tri heldur, leyfi \u00e9g m\u00e9r a\u00f0 segja, allir hinir l\u00edka! Atri\u00f0i\u00f0 hans var l\u00edka svo ,,\u00fat \u00far k\u00fa\u201d og, \u00feannig s\u00e9\u00f0, \u00f3tengt s\u00f6gunni a\u00f0 ma\u00f0ur skellihl\u00f3 alveg fr\u00e1 upphafi \u00feess fram a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fearna \u00ed restina er hann kvarta\u00f0i undan a\u00f0 hafa ekki fengi\u00f0 a\u00f0 kl\u00e1ra lagi\u00f0. N\u00fa b\u00ed\u00f0um vi\u00f0 leik(h\u00fas)f\u00e9lagi minn bara eftir a\u00f0 sj\u00e1 hann \u00ed alv\u00f6ru farsa&#8230;\u00fea\u00f0 ver\u00f0ur eitthva\u00f0. BRAVO&#8230;. Alexander P\u00e1ll!<br \/>\nAlgj\u00f6ran leiksigur vinnur hinsvegar Sk\u00e6ringur \u00d3li \u00de\u00f3rarinsson \u00ed bur\u00f0armiklu hlutverki \u00dalfsins. \u00dea\u00f0 var ekki a\u00f0 finna einn galla \u00e1 frammist\u00f6\u00f0u hans a\u00f0 okkar mati. Hann var h\u00e1v\u00e6r, \u00fdktur, skemmtilegur, d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00f3gnvekjandi og br\u00e1\u00f0fyndinn. Dr\u00f3 a\u00f0 s\u00e9r athyglina, hvort heldur kastlj\u00f3si\u00f0 beindist a\u00f0 honum e\u00f0a ekki, me\u00f0 skemmtilegum svipbrig\u00f0um og\/e\u00f0a l\u00edkamstj\u00e1ningu. Sk\u00e6ringur er me\u00f0 flotta r\u00f6dd, sem \u00f3umdeilanlega minnir um margt \u00e1 f\u00f6\u00f0ur hans, T\u00f3ta (\u00de\u00f3rarinn \u00d3lason) sem ma\u00f0ur s\u00e1 nokkrum sinnum \u00e1 leiksvi\u00f0inu ,,h\u00e9r \u00ed denn\u201d. \u00de\u00e1 var l\u00edka gaman a\u00f0 ver\u00f0a vitni a\u00f0 \u00fev\u00ed hversu vi\u00f0m\u00f3t og heg\u00f0un yngstu \u00e1horfendanna \u00ed salnum breyttist um lei\u00f0 og \u00falfurinn birtist \u00e1 svi\u00f0inu, fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00f3r\u00f3leg og p\u00edskrandi yfir \u00ed algj\u00f6ra \u00fe\u00f6gn og uppglennt augu. Sk\u00e6ringur \u00d3li \u00e1tti hreinlega salinn fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann st\u00e9 fyrst \u00e1 svi\u00f0i\u00f0 og \u00fear til yfir lauk. BRAVO&#8230;. Sk\u00e6ringur \u00d3li!<\/p>\n<p>Eins og \u00e9g nefndi \u00e1\u00f0ur kom \u00fea\u00f0 skemmtilega \u00e1 \u00f3vart hva\u00f0a lei\u00f0 h\u00f6fundurinn fer \u00ed a\u00f0 tengja \u00feessi g\u00f6mlu \u00e6vint\u00fdr saman. En \u00fea\u00f0 sem kom enn meira \u00e1 \u00f3vart var hversu mikill h\u00famor er \u00ed verkinu allan t\u00edmann og \u00fea\u00f0 h\u00famor sem h\u00f6f\u00f0ar ekki s\u00edst til fullor\u00f0inna. \u00deannig var \u00fea\u00f0 \u00f3sjaldan sem miklu h\u00e6rra heyr\u00f0ist \u00ed hl\u00e1trask\u00f6llum fullor\u00f0na f\u00f3lksins heldur en \u00feeirra yngri. F\u00f3lk \u00fearf \u00fev\u00ed s\u00edst a\u00f0 \u00f3ttast \u00fea\u00f0 a\u00f0 fara barnlaust \u00e1 \u00feetta br\u00e1\u00f0skemmtilega (barna)leikrit. Leikstj\u00f3ranum Ingrid J\u00f3nsd\u00f3ttur hefur tekist a\u00f0 n\u00e1 fram \u00fev\u00ed besta \u00ed \u00feessum annars unga leikh\u00f3p, enda \u00feekkir h\u00fan verki\u00f0 vel \u00fear sem h\u00fan hefur b\u00e6\u00f0i \u00e1\u00f0ur sj\u00e1lf leiki\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed og s\u00ed\u00f0ar sett \u00fea\u00f0 upp \u00e1samt Leikf\u00e9lagi Mosfellsb\u00e6jar. Fagmennska finnst m\u00e9r l\u00fdsa vinnu hennar vel hva\u00f0 \u00feessa s\u00fdningu hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi Vestmannaeyja var\u00f0ar. Fagmennska sem ekki s\u00edst allir hinir sem komu a\u00f0 uppsetningunni eiga l\u00edka allir hlut \u00ed. \u00deannig er b\u00e6\u00f0i f\u00f6r\u00f0un og b\u00faningah\u00f6nnun virkilega flott \u00ed \u00feessari s\u00fdningu, \u00e1berandi litr\u00edkir b\u00faningar sem tilheyra \u00f6llum \u00e6vint\u00fdrum h\u00f6f\u00f0a vel til yngri \u00e1horfendanna og gera s\u00fdninguna enn fallegri. Leikmyndah\u00f6nnunin er l\u00edka smekklega einf\u00f6ld og fr\u00e1b\u00e6r hugmyndin a\u00f0 varpa myndum \u00far \u00e6vint\u00fdrunum \u00e1 tjaldi\u00f0 aftast \u00e1 svi\u00f0inu. Lj\u00f3s-hlj\u00f3\u00f0- og myndah\u00f6nnunin er l\u00edka mj\u00f6g g\u00f3\u00f0, og \u00e1berandi \u00ed \u00feessu verki hversu mikilv\u00e6g og vel h\u00fan n\u00e6r a\u00f0 skapa vi\u00f0eigandi stemningu \u00feegar leikmyndin sj\u00e1lf er \u00ed minimaliskum st\u00edl. \u00de\u00e1 ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 nefna bardaga- og skylmingaatri\u00f0in sem \u00d3li Bjarki Austfj\u00f6r\u00f0 s\u00e1 um a\u00f0 hanna. \u00deau voru alveg fr\u00e1b\u00e6r og svo ,,raunveruleg\u201d a\u00f0 \u00e1 stundum h\u00e9lt ma\u00f0ur ni\u00f0ri \u00ed s\u00e9r andanum af \u00f3tta vi\u00f0 a\u00f0 einhver myndi \u00ed alv\u00f6runni slasast. A\u00f0 lokum vil \u00e9g nefna a\u00f0 t\u00f3nlistin \u00ed \u00feessu verki er \u00f6ll hin skemmtilegasta og \u00fatf\u00e6rslurnar mj\u00f6g flottar. \u00dea\u00f0 skyldi enginn sannur leikh\u00fas\u00e1a\u00f0d\u00e1andi l\u00e1ta \u00feetta n\u00fdjasta verk Leikf\u00e9lags Vestmannaeyja framhj\u00e1 s\u00e9r fara. \u00c6vint\u00fdrab\u00f3kin er br\u00e1\u00f0skemmtileg leikrit fyrir alla aldursh\u00f3pa vil \u00e9g meina og a\u00f0standendum \u00feess til mikils s\u00f3ma. Hjartanlega til hamingju Leikf\u00e9lag Vestmannaeyja me\u00f0 \u00feetta fr\u00e1b\u00e6ra verk.<\/p>\n<p>Br\u00e1\u00f0skemmtilegt leikrit fyrir b\u00f6rn og fullor\u00f0na.<\/p>\n<p>Takk k\u00e6rlega fyrir mig og okkur,<br \/>\nBRAVO&#8230;. Ingrid og \u00fei\u00f0 \u00f6ll \u00ed Leikf\u00e9lagi Vestmannaeyja!<\/p>\n<p>Helena P\u00e1lsd\u00f3ttir<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c6vint\u00fdrab\u00f3kin eftir P\u00e9tur Eggerz Leikf\u00e9lag Vestmannaeyja Leikstj\u00f3ri Ingrid J\u00f3nsd\u00f3ttir Helena P\u00e1lsd\u00f3ttir r\u00fdnir s\u00fdningu \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 segja anna\u00f0 en Leikf\u00e9lag Vestmannaeyja s\u00e9 r\u00edkt af h\u00e6fileikaf\u00f3lki, f\u00f3lki sem l\u00e6tur gesti s\u00edna finna \u00fea\u00f0 alveg \u00fat \u00ed sal hversu gaman \u00fea\u00f0 hefur af \u00fev\u00ed a\u00f0 skemmta s\u00e9r og okkur hinum. \u00c9g skellti m\u00e9r \u00e1 frums\u00fdningu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":6843,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187,186,213],"tags":[],"class_list":["post-6842","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","category-gagnrdinn","category-vikupostur","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6842","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6842"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6842\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6842"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6842"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6842"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}