{"id":6744,"date":"2015-11-02T09:22:16","date_gmt":"2015-11-02T09:22:16","guid":{"rendered":"http:\/\/leiklist.is\/?p=6744"},"modified":"2015-11-02T09:22:16","modified_gmt":"2015-11-02T09:22:16","slug":"bangsimon-a-selfossi-2","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/bangsimon-a-selfossi-2\/","title":{"rendered":"Bangs\u00edmon \u00e1 Selfossi"},"content":{"rendered":"<p><strong>Bangs\u00edmon eftir Petre Snickars<\/strong><br \/>\n<strong>Leikf\u00e9lag Selfoss<\/strong><br \/>\n<strong>Leikstj\u00f3ri: Gu\u00f0finna Gunnarsd\u00f3ttir<\/strong><br \/>\n<strong>\u00c1rni Hjartarson r\u00fdnir leiks\u00fdningu<\/strong><\/p>\n<p>\u00deann 31. okt. s.l. frums\u00fdndi Leikf\u00e9lag Selfoss leikriti\u00f0 Bangs\u00edmon eftir finnska leiksk\u00e1ldi\u00f0 og leikarann Petre Snickars sem byggt er \u00e1 hinum fr\u00e6gu s\u00f6gum Alans Alexanders Milne um Bangs\u00edmon og vini hans fr\u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ratug 20. aldar. Undirrita\u00f0ur f\u00f3r \u00e1 vettvang me\u00f0 konu og barnabarn og s\u00e1 a\u00f0ra s\u00fdningu verksins, sunnudaginn 1. n\u00f3v. kl. 16.00. \u00de\u00e1 var ys og \u00feys \u00ed litla leikh\u00fasinu vi\u00f0 Sigt\u00fan \u00e1 Selfossi. Afar og \u00f6mmur, foreldrar og b\u00f6rn og a\u00f0rir leikh\u00fasgestir voru a\u00f0 koma s\u00e9r fyrir. B\u00f6rnin g\u00e1tu anna\u00f0 hvort seti\u00f0 \u00e1 pullum n\u00e6st svi\u00f0inu e\u00f0a \u00ed upph\u00e6kku\u00f0um s\u00e6tum \u00ed salnum. \u00dea\u00f0 er nefnilega fyrir \u00f6llu s\u00e9\u00f0 \u00ed \u00feessari s\u00fdningu. Svo h\u00f3fst leikurinn, \u00fea\u00f0 r\u00edkti \u00fe\u00f6gn og eftirv\u00e6nting og b\u00f6rnin og sumir \u00feeirra fullor\u00f0nu, allavega \u00e9g, f\u00f3ru strax a\u00f0 lifa sig inn \u00ed fr\u00e1s\u00f6gnina enda \u00feekktum vi\u00f0 flest a\u00f0st\u00e6\u00f0ur af eigin raun. Jakob litli er farinn \u00ed h\u00e1ttinn me\u00f0 tuskud\u00fdrin s\u00edn en pabbinn situr \u00ed sj\u00f3nvarpsst\u00f3lnum l\u00edmdur vi\u00f0 skj\u00e1inn og skipar barninu me\u00f0 reglulegu millibili a\u00f0 fara a\u00f0 sofa. En Jakob getur ekki sofna\u00f0 og loks r\u00edfur pabbinn sig fr\u00e1 sj\u00f3nvarpinu og fer a\u00f0 segja drengnum s\u00ednum s\u00f6gur. \u00dear me\u00f0 eru Bangs\u00edmon og vinir hans, hin snjalla Kaninka, Asninn \u00feunglyndi, hinn ofvirki T\u00edgri og Grislingur litli, sem hr\u00e6ddur er vi\u00f0 allt, komnir \u00e1 kreik. \u00de\u00e1 f\u00f3r a\u00f0 lifna yfir b\u00f6rnunum og m\u00e9r og salnum \u00f6llum.<br \/>\n<a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2015\/11\/Bangsimon1.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-medium wp-image-6758\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2015\/11\/Bangsimon1-300x225.jpg\" alt=\"Bangsimon1\" width=\"300\" height=\"225\" \/><\/a><\/p>\n<p>Allt f\u00f3r \u00fe\u00f3 r\u00f3lega og t\u00ed\u00f0indal\u00edti\u00f0 af sta\u00f0, en \u00e1\u00f0ur en var\u00f0i datt Bangs\u00edmon \u00e1 rassinn. \u00de\u00e1 hl\u00f3gu b\u00e6\u00f0i b\u00f6rn og fullor\u00f0nir hjartanlega og atbur\u00f0ar\u00e1sin var komin \u00e1 skri\u00f0. \u00dea\u00f0 var hlegi\u00f0 og flissa\u00f0 og kalla\u00f0 fram \u00ed, en stundum leist okkur samt ekki \u00e1 blikuna, t.d. \u00feegar T\u00edgri l\u00e9t sem verst e\u00f0a \u00feegar tala\u00f0 var um hinn dularfulla Skolladynk sem \u00fe\u00f3 aldrei s\u00e9st \u00e1 svi\u00f0inu en leynist einhvers sta\u00f0ar \u00ed r\u00f6kkrinu. Vi\u00f0 t\u00f3kum l\u00edka andk\u00f6f \u00feegar Bangs\u00edmon og Gr\u00edslingur duttu ni\u00f0ur \u00ed holu og komust ekki upp. \u00c9g \u00e6tla ekki a\u00f0 segja ykkur fr\u00e1 hvernig \u00fev\u00ed lauk. Hitt get \u00e9g sagt a\u00f0 s\u00fdningin sj\u00e1lf enda\u00f0i \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00f6rnunum bau\u00f0st a\u00f0 hitta leikpers\u00f3nurnar og l\u00e1ta taka myndir af s\u00e9r me\u00f0 sj\u00e1lfum Bangs\u00edmon, fr\u00e6gasta bangsa \u00ed heimi, og vinum hans \u00f6llum.<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2015\/11\/12063607_1071699389507609_8467711189148880514_n.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-6749 alignleft\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2015\/11\/12063607_1071699389507609_8467711189148880514_n-300x200.jpg\" alt=\"Bangs\u00edmon\" width=\"300\" height=\"200\" \/><\/a><\/p>\n<p>\u00deetta var skemmtileg s\u00fdning og fj\u00f6rug, sagan er a\u00f0 v\u00edsu hvorki fl\u00f3kin n\u00e9 st\u00f3rbrotin, en \u00fea\u00f0 var vel me\u00f0 hana fari\u00f0. Leikstj\u00f3rn Gu\u00f0finnu Gunnarsd\u00f3ttur er hn\u00f6kralaus og fagmannleg. \u00dea\u00f0 er jafnr\u00e6\u00f0i \u00ed leikh\u00f3pnum, enginn stelur senunni og engin t\u00fdnist \u00ed skugga hinna. M\u00e9r s\u00fdndist samt sem T\u00edgri hef\u00f0i mest\u00a0\u00e1hrif \u00e1 b\u00f6rnin. Svi\u00f0smyndin var einf\u00f6ld og l\u00edti\u00f0 um svi\u00f0smuni fyrir utan hinar \u00f3missandi hunangskrukkur sem a\u00f0alpers\u00f3nan er svo hrifin af. Meira var lagt \u00ed b\u00faningana sem voru b\u00e6\u00f0i fallegir og einkennandi fyrir pers\u00f3nurnar. F\u00f6r\u00f0unin var l\u00edka smekklega unnin. T\u00f3nlistin var g\u00f3\u00f0 \u00ed grunninn en \u00e9g hef\u00f0i vilja\u00f0 meiri kraft \u00ed hana. L\u00fdsingin var l\u00fdtalaus.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru til m\u00f6rg leikrit og leikger\u00f0ir sem bygg\u00f0ar eru \u00e1 s\u00f6gum um Bangs\u00edmon og a\u00f0 minnsta kosti tv\u00e6r hafa veri\u00f0 \u00fe\u00fdddar \u00e1 \u00edslensku. \u00deetta eru hin fr\u00e6ga \u00fe\u00fd\u00f0ing Huldu Valt\u00fdsd\u00f3ttur \u00e1 leikger\u00f0 Erics Olsons sem s\u00fdnd var \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og s\u00ed\u00f0an s\u00fa sem h\u00e9r er fjalla\u00f0 um. \u00dea\u00f0 er vel til fundi\u00f0 hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi Selfoss a\u00f0 setja upp Bangs\u00edmon n\u00fa \u00feegar 20 \u00e1r eru s\u00ed\u00f0an Sigr\u00ed\u00f0ur Karlsd\u00f3ttir \u00fe\u00fdddi leikger\u00f0ina s\u00e9rstaklega fyrir f\u00e9lagi\u00f0. Einnig er gaman a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er d\u00f3ttir hennar sem leikst\u00fdrir verkinu fyrir utan \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera allt \u00ed \u00f6llu \u00ed \u00feessu leikf\u00e9lagi sem og \u00ed Bandalagi \u00edslenskra leikf\u00e9laga. \u00dea\u00f0 er drift og samfella \u00ed leiklistinni \u00e1 Selfossi.<br \/>\nH\u00farra fyrir \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>\u00c1rni Hjartarson.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Bangs\u00edmon eftir Petre Snickars Leikf\u00e9lag Selfoss Leikstj\u00f3ri: Gu\u00f0finna Gunnarsd\u00f3ttir \u00c1rni Hjartarson r\u00fdnir leiks\u00fdningu \u00deann 31. okt. s.l. frums\u00fdndi Leikf\u00e9lag Selfoss leikriti\u00f0 Bangs\u00edmon eftir finnska leiksk\u00e1ldi\u00f0 og leikarann Petre Snickars sem byggt er \u00e1 hinum fr\u00e6gu s\u00f6gum Alans Alexanders Milne um Bangs\u00edmon og vini hans fr\u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ratug 20. aldar. Undirrita\u00f0ur f\u00f3r \u00e1 vettvang me\u00f0 konu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":6757,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187,186,213],"tags":[],"class_list":["post-6744","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","category-gagnrdinn","category-vikupostur","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6744","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6744"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6744\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6744"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6744"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6744"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}