{"id":616,"date":"2006-04-10T13:45:09","date_gmt":"2006-04-10T13:45:09","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=616"},"modified":"2006-04-10T13:45:09","modified_gmt":"2006-04-10T13:45:09","slug":"ekkert-atast-ann","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/ekkert-atast-ann\/","title":{"rendered":"Ekkert a\u00f0 \u00f3ttast &#8211; An\u00edman\u00edna"},"content":{"rendered":"<p>St\u00fadentaleikh\u00fasi&eth; frums\u00fdndi \u00ed s\u00ed&eth;ustu viku frumsami&eth; verk sem &thorn;au kalla An\u00edman\u00ednu. Leikstj\u00f3ri verksins er V\u00edkingur Kristj\u00e1nsson og&nbsp; s\u00fdnt er \u00ed Loftkastalanum. \u00c1rmann Gu&eth;mundsson br\u00e1 s&eacute;r \u00e1 frums\u00fdningu.<br \/> <!--more--> <img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-615\" width=\"200\" vspace=\"12\" hspace=\"12\" height=\"260\" border=\"0\" align=\"right\" title=\"animanina2.jpg\" alt=\"animanina2.jpg\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2006\/04\/Adildarfelog_Sudvestur_Studentaleikhusid_2005_2006_animanina2.jpg\" \/><strong>St\u00fadentaleikh\u00fasi&eth;<br \/> An\u00edman\u00edna eftir leikh\u00f3p og leikstj\u00f3ra<br \/> Leikstj\u00f3ri V\u00edkingur Kristj\u00e1nsson<br \/> S\u00fdnt \u00ed Loftkastalanum<\/strong><\/p>\n<p> &THORN;a&eth; er alltaf spennandi a&eth; labba inn \u00ed leikh\u00fas og hafa ekki hugmynd um \u00e1 hverju ma&eth;ur \u00e1 von. &THORN;\u00e1 tilfinningu haf&eth;i &eacute;g &thorn;egar &eacute;g steig inn \u00ed Loftkastalann \u00e1 lei&eth; \u00e1 frums\u00fdningu \u00e1 An\u00edman\u00ednu, n\u00fdjasta verki St\u00fadentleikh\u00fassins. J\u00fa, reyndar haf&eth;i &eacute;g s&eacute;&eth; lj\u00f3smynd og kynningarefni sem benti til &thorn;ess a&eth; &thorn;arna v&aelig;ri um einhverskonar deviced-s\u00fdningu a&eth; r&aelig;&eth;a og &thorn;egar &eacute;g var kominn me&eth; leikskr\u00e1 \u00ed hendurnar uppl\u00fdstist &thorn;a&eth; a&eth; verki&eth; fjallar um \u00f3tta. &THORN;a&eth; sem vi&eth; \u00f3ttumst. <\/p>\n<p> Hvort sem &thorn;a&eth; er me&eth;vita&eth; e&eth;a ekki er s\u00fdningin sem sl\u00edk eitthva&eth; sem margir leikh\u00fasgestir \u00f3ttast. &THORN;a&eth; eru margir sem vita ekkert verra en a&eth; fara \u00ed leikh\u00fas og vera sviptur &ouml;ryggi fj\u00f3r&eth;a veggjarins, a&eth; geta \u00e1tt von \u00e1 a&eth; leikari hlammi s&eacute;r ni&eth;ur vi&eth; hli&eth;ina \u00e1 &thorn;eim og geri &thorn;\u00e1 &thorn;annig &thorn;\u00e1tttakendur \u00ed s\u00fdningunni. Og svo er n\u00e1tt\u00farulega til f\u00f3lk sem almennt &thorn;olir ekki a&eth; f\u00e1 blautan svamp \u00ed andliti&eth;. M&eacute;r finnst hins vegar leikh\u00fas me&eth; n\u00e1nu sambandi leikara og leikh\u00fasgests skemmtilegasta form leikh\u00fassins og haf&eth;i &thorn;v\u00ed gaman af upp\u00e1t&aelig;kjum leikh\u00f3psins.<\/p>\n<p> &THORN;a&eth; er reyndar erfitt a&eth; fjalla um s\u00fdninguna \u00e1n &thorn;ess a&eth; ey&eth;ileggja upplifunina fyrir v&aelig;ntanlegum \u00e1horfendum &thorn;ar sem st\u00f3r hluti hennar er eftirv&aelig;ntingin &bdquo;hva&eth; gerist n&aelig;st&ldquo;. &THORN;a&eth; kom l\u00edka flj\u00f3tlega \u00ed lj\u00f3s a&eth; h&eacute;r var ekki um eiginlegt leikrit a&eth; r&aelig;&eth;a. S\u00fdningin hefur engan l\u00ednulegan s&ouml;gu&thorn;r\u00e1&eth; og engar eiginlegar pers\u00f3nur, heldur er brug&eth;i&eth; upp misl&ouml;ngum senum og a&eth;st&aelig;&eth;um &thorn;ar sem vi&eth; sj\u00e1um \u00f3ttann birtast \u00ed myndum sem oftast eru spaugilegar \u00e1 skemmtilega harmr&aelig;nan h\u00e1tt. Nokkur atri&eth;i hef&eth;u &thorn;\u00f3 m\u00e1tt missa s\u00edn e&eth;a \u00ed &thorn;a&eth; minnsta hef&eth;i &thorn;urft a&eth; vinna &thorn;au betur og dettur m&eacute;r \u00ed hug sem d&aelig;mi stutt atri&eth;i &thorn;ar sem fj&ouml;lskylda er \u00e1 fer&eth;alagi \u00ed b\u00edl. N\u00e1&eth;i &thorn;v\u00ed ekki.<\/p>\n<p> &THORN;a&eth; er st\u00f3r h\u00f3pur leikara \u00ed verkinu, vel \u00e1 &thorn;ri&eth;ja tuginn, og \u00ed sj\u00e1lfu s&eacute;r ekki \u00e1st&aelig;&eth;a til a&eth; vera nefna einn frekar en annan og reyndar illgerlegt &thorn;ar sem gervi eru n\u00e1nast eins \u00e1 &ouml;llum leikurum. Heilt yfir st\u00f3&eth;u allir sig me&eth; pr\u00fd&eth;i og svo sem engin n\u00fd t\u00ed&eth;indi a&eth; St\u00fadentaleikh\u00fasi&eth; b\u00fai yfir &ouml;flugum leikarah\u00f3p. &THORN;essi fj&ouml;ldi leikara er samt sennilega helsti akkilesarh&aelig;ll s\u00fdningarinnar &thorn;v\u00ed &thorn;r\u00e1tt fyrir a&eth; stundum s&eacute; hann nota&eth;ur \u00e1 skemmtilegan h\u00e1tt &thorn;\u00e1 ver&eth;ur hann l\u00edka til &thorn;ess a&eth; s\u00fdningin missir \u00e1 k&ouml;flum&nbsp; f\u00f3kus, ver&eth;ur ka\u00f3t\u00edsk og ruglingsleg. Enda nj\u00f3ta s\u00edn almennt best senurnar &thorn;ar sem f\u00e1ir leikarar eru \u00e1 svi&eth;inu og f\u00f3kus er sk\u00fdr.<\/p>\n<p> Ma&eth;ur f&aelig;r \u00e1 tilfinninguna a&eth; leikstj\u00f3rinn V\u00edkingur Kristj\u00e1nsson hafi gefi&eth; leikurunum afar&nbsp; lausan taum og kannski \u00f3&thorn;arflega \u00e1 k&ouml;flum en &thorn;a&eth; er \u00ed sj\u00e1lfu s&eacute;r e&eth;lilegt &thorn;egar verk eru unnin svona fr\u00e1 grunni af leikh\u00f3pnum. Engu a&eth; s\u00ed&eth;ur eru sumar senurnar afar sterkar og m\u00e1 &thorn;ar nefna senuna um ellina sem var meinfyndin og en jafnframt s\u00fa sena sem snart mann mest. \u00c9g hef&eth;i gjarnan vilja&eth; a&eth; lifandi t\u00f3nlist hef&eth;i veri&eth; meira notu&eth;, atri&eth;in &thorn;ar sem &thorn;a&eth; var gert voru tv\u00edm&aelig;lalaust me&eth; skemmtilegri atri&eth;um s\u00fdningarinnar og einhvern veginn efast &eacute;g ekki um a&eth; innan &thorn;essa st\u00f3ra h\u00f3ps s&eacute; fullt af h&aelig;fileikar\u00edku t\u00f3nlistarf\u00f3lki sem n\u00fdta hef&eth;i m\u00e1tt \u00ed verkinu. <\/p>\n<p> &THORN;egar \u00e1 heildina er liti&eth; er An\u00edman\u00edna f\u00ednasta skemmtun, lifandi og h&aelig;filega aggress\u00edf s\u00fdning en verki&eth; hef&eth;i gjarnan m\u00e1tt &thorn;&eacute;tta og gera hnitmi&eth;a&eth;ra \u00e1 k&ouml;flum. \u00c9g leyfi m&eacute;r &thorn;v\u00ed \u00f3hika&eth; a&eth; m&aelig;la me&eth; &thorn;v\u00ed a&eth; f\u00f3lk breg&eth;i s&eacute;r \u00ed Loftkastalann a&eth; sj\u00e1 An\u00edman\u00ednu. &THORN;.e. ef f\u00f3lk \u00f3ttast ekki leikh\u00fas.<\/p>\n<p> \u00c1rmann Gu&eth;mundsson<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>St\u00fadentaleikh\u00fasi&eth; frums\u00fdndi \u00ed s\u00ed&eth;ustu viku frumsami&eth; verk sem &thorn;au kalla An\u00edman\u00ednu. Leikstj\u00f3ri verksins er V\u00edkingur Kristj\u00e1nsson og&nbsp; s\u00fdnt er \u00ed Loftkastalanum. \u00c1rmann Gu&eth;mundsson br\u00e1 s&eacute;r \u00e1 frums\u00fdningu.<\/p>","protected":false},"author":3,"featured_media":614,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-616","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/616","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=616"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/616\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=616"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=616"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=616"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}