{"id":562,"date":"2006-03-15T08:52:41","date_gmt":"2006-03-15T08:52:41","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=562"},"modified":"2006-03-15T08:52:41","modified_gmt":"2006-03-15T08:52:41","slug":"leiklistarskbandalagsins-2006","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/leiklistarskbandalagsins-2006\/","title":{"rendered":"Leiklistarsk\u00f3li Bandalagsins 2006"},"content":{"rendered":"<p>Bo\u00f0i\u00f0 er upp \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikstj\u00f3ra og leikara a\u00f0 H\u00fasabakka \u00ed Svarfa\u00f0ardal dagana 10.-18. j\u00fan\u00ed og fyrir f\u00f6r\u00f0unarf\u00f3lk a\u00f0 Laugavegi 96 helgarnar 13.-15. og 27.-29. okt\u00f3ber. Kennarar ver\u00f0a Sigr\u00fan Valbergsd\u00f3ttir, \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir, Steinunn Kn\u00fatsd\u00f3ttir og Gr\u00e9ta Bo\u00f0a. Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann hefst \u00feann 15. mars.\u00a0 Ums\u00f3knum er h\u00e6gt a\u00f0 skila \u00e1 netfangi\u00f0 info@leiklist.is og leggja sta\u00f0festingargjaldi\u00f0 inn \u00e1 1150-26-5463, kt. 440169-0239.\u00a0 Taki\u00f0 eftirfarandi atri\u00f0i fram vi\u00f0 skr\u00e1ningu:<\/p>\n<p>Nafn N\u00famer n\u00e1mskei\u00f0s Kennitala Heimilisfang\u00a0Heima- vinnu- og GSM s\u00edman\u00famer\u00a0Netfang<\/p>\n<p> <strong>Skr\u00e1ningu \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0in a\u00f0 H\u00fasabakka l\u00fdkur 10. ma\u00ed.<\/strong><\/p>\n<p>  <!--more-->  <br \/><strong>ATH! H\u00e6gt a\u00f0 er a\u00f0 hla\u00f0a b\u00e6klingnum ni\u00f0ur sem PDF-skr\u00e1<\/strong> <strong><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2006\/03\/BIL_Skolinn_2006_skoli_bil_06.pdf\">h\u00e9r<\/a><\/strong> <br \/><span style=\"font-weight: bold;\"><br \/><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-558\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2006\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2006_sigrun.jpg\" width=\"140\" height=\"167\" alt=\"sigrun\" style=\"float: right;\" \/>N\u00e1mskei\u00f0 nr. 1 Framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed leikstj\u00f3rn &#8211; Leikstj\u00f3rn II<\/span><br \/><strong>Kennari Sigr\u00fan Valbergsd\u00f3ttir<\/strong><br \/> \u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 45.000<br \/> T\u00edmi: 10. til 18. j\u00fan\u00ed 2006<br \/> Sta\u00f0ur: H\u00fasabakkask\u00f3li<br \/> Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 10. ma\u00ed<\/p>\n<p> \u00c6tla\u00f0 \u00feeim sem hafa s\u00f3tt byrjendan\u00e1mskei\u00f0 \u00ed leikstj\u00f3rn e\u00f0a hafa reynslu af leikstj\u00f3rn.<\/p>\n<p> \u00c1 \u00feessu n\u00e1mskei\u00f0i ver\u00f0a leikrit sko\u00f0u\u00f0 \u00ed heild. Hver nemandi einbeitir s\u00e9r a\u00f0 einu verki til a\u00f0 vinna \u00fat fr\u00e1. Verkefni\u00f0 kynnir hann s\u00e9r \u00ed a.m.k. m\u00e1nu\u00f0 \u00e1\u00f0ur en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hefst. <br \/> \u00cd sameiginlegum umr\u00e6\u00f0um gerir hann grein fyrir \u00fdmsum \u00fe\u00e1ttum sem a\u00f0 uppsetningunni sn\u00faa. R\u00e6tt ver\u00f0ur um h\u00f6fund og \u00feann t\u00edma sem verki\u00f0 gerist \u00e1. Einnig ver\u00f0ur fari\u00f0 \u00ed gegnum \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e6tti sem taka \u00fearf \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um \u00e1\u00f0ur en \u00e6fingar hefjast. Fundin megins\u00f6gn verksins og pers\u00f3nur \u00feess r\u00e6ddar. Leikstj\u00f3ri \u00e1kve\u00f0ur st\u00edl og leggur fram hugmyndir a\u00f0 \u00fatf\u00e6rslu \u00ed leikmynd og b\u00faningum. Leikstj\u00f3ri vinnur s\u00ed\u00f0an a.m.k. eina senu \u00far leikritinu me\u00f0 leikurum.<br \/> Fari\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed gegnum \u00fdmsa gagnlega \u00fe\u00e6tti \u00ed hugmynda\u00f6flun og grunnvinnu \u00e1\u00f0ur en komi\u00f0 er a\u00f0 \u00fatf\u00e6rslu. Hvar \u00e1 a\u00f0 leita hugmynda og hvernig n\u00fdtast \u00fe\u00e6r? Hven\u00e6r \u00e1 a\u00f0 velja og hafna?<br \/> Jafnframt er \u00e6skilegt a\u00f0 \u00fe\u00e1tttakendur kynni s\u00e9r \u00feau verk sem samnemendurnir \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu eiga a\u00f0 vinna til a\u00f0 umr\u00e6\u00f0ur ver\u00f0i markvissar.<\/p>\n<p><strong> Sigr\u00fan Valbergsd\u00f3ttir<\/strong> \u00fatskrifa\u00f0ist \u00far Leiklistarsk\u00f3la \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins 1970, nam leikh\u00fasfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann \u00ed K\u00f6ln 1975-1978 og hefur unni\u00f0 vi\u00f0 leiklist \u00ed aldarfj\u00f3r\u00f0ung, a\u00f0allega sem leikstj\u00f3ri. H\u00fan hefur leikst\u00fdrt yfir 40 s\u00fdningum, j\u00f6fnum h\u00f6ndum \u00ed atvinnuleikh\u00fasum, \u00fatvarpsleikh\u00fasinu og me\u00f0 \u00e1hugaleikf\u00e9l\u00f6gum v\u00ed\u00f0a um land. H\u00fan hefur einnig haldi\u00f0 fj\u00f6lm\u00f6rg n\u00e1mskei\u00f0, h\u00e9r heima og erlendis. Sigr\u00fan var framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga 1983-1988. H\u00fan var framkv\u00e6mdastj\u00f3ri erlendra verkefna hj\u00e1 Reykjav\u00edk, menningarborg Evr\u00f3pu \u00e1ri\u00f0 2000 og starfar n\u00fana sem leikstj\u00f3ri. \u00deetta er \u00ed \u00e1ttunda sinn sem Sigr\u00fan kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p> <strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-559\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2006\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2006_agusta.jpg\" width=\"140\" height=\"186\" alt=\"agusta\" style=\"float: right;\" \/>N\u00e1mskei\u00f0 nr. 2 &#8211; Fullb\u00f3ka\u00f0<br \/> S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara<br \/> Kennari \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir<\/strong><br \/> \u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 45.000<br \/> T\u00edmi: 10. til 18. j\u00fan\u00ed 2006<br \/> Sta\u00f0ur: H\u00fasabakkask\u00f3li<br \/> Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 21. apr\u00edl<\/p>\n<p> N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem hafa einhverja reynslu af leiklist \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa endilega s\u00f3tt undirb\u00faningsn\u00e1mskei\u00f0. \u00deeir sem ekki hafa s\u00f3tt samb\u00e6rilegt n\u00e1mskei\u00f0 hj\u00e1 \u00c1g\u00fastu \u00ed Leiklistarsk\u00f3la B\u00cdL ganga fyrir.<\/p>\n<p> Hvernig segir\u00f0u s\u00f6gu?<br \/> \u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu ver\u00f0ur unni\u00f0 markvisst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 svi\u00f0setja sm\u00e1s\u00f6gu. <br \/> Byggt er \u00e1 a\u00f0fer\u00f0inni \u201edevised theatre\u201c, \u00fe.e. \u00feegar h\u00f3purinn vinnur saman \u00e1 \u00e6fingaferlinu a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 svi\u00f0setja og finna leiklausnir fyrir verki\u00f0. \u00deegar unni\u00f0 er \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt er h\u00f3purinn a\u00f0alatri\u00f0i\u00f0, a\u00f0alpers\u00f3nan, og oftar en ekki \u00feurfa allir a\u00f0 vera meira e\u00f0a minna virkir allan t\u00edmann. Samtenging leikara og hlustun \u00feeirra \u00e1 milli \u00fearf a\u00f0 vera mj\u00f6g \u00f6gu\u00f0 og fari\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed undirst\u00f6\u00f0ua\u00f0fer\u00f0ir til a\u00f0 efla sl\u00edka hlustun. <br \/> \u00cd upphafi ver\u00f0ur einnig liti\u00f0 \u00e1 \u00f3likar leika\u00f0fer\u00f0ir til a\u00f0 segja s\u00f6mu s\u00f6guna, t.d. Bouffon, tr\u00fa\u00f0leik e\u00f0a melodrama.<\/p>\n<p><strong> \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir<\/strong> l\u00e6r\u00f0i leiklist hj\u00e1 Monicu Pagneux \u00ed Paris og Philippe Gauliere \u00ed London. Einnig t\u00f3k h\u00fan Mastersn\u00e1mskei\u00f0 hj\u00e1 Theatre de Complicite, John Wright, David Glass, Bruce Meyers og Trestle Theatre Company. H\u00fan starfa\u00f0i \u00ed nokkur \u00e1r \u00ed London sem leikkona og uppistandari og er einn af stofnendum leikh\u00f3psins Icelandic Take Away Theatre og hefur unni\u00f0 a\u00f0 10 s\u00fdningum f\u00e9lagsins sem leikari, h\u00f6fundur e\u00f0a leikstj\u00f3ri. \u00c1g\u00fasta er um \u00feessar mundir fastr\u00e1\u00f0in leikstj\u00f3ri hj\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu og leikst\u00fdr\u00f0i \u00fear m.a. Klaufum og k\u00f3ngsd\u00e6trum sem f\u00e9kk Gr\u00edmuna sem besta barnas\u00fdningin 2005. \u00deetta er \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn sem \u00c1g\u00fasta kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p> <strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-560\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2006\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2006_steinunnkn.jpg\" width=\"140\" height=\"193\" alt=\"steinunnkn\" style=\"float: right;\" \/>N\u00e1mskei\u00f0 nr. 3<br \/> S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara<br \/> Kennari Steinunn Kn\u00fatsd\u00f3ttir<\/strong> <br \/> \u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald kr. 45.000<br \/> T\u00edmi: 10. til 18. j\u00fan\u00ed 2006<br \/> Sta\u00f0ur: H\u00fasabakkask\u00f3li<br \/> Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 10. ma\u00ed<\/p>\n<p> N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er \u00e6tla \u00feeim sem:<br \/> 1. Hafa s\u00f3tt grunnn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed Leiklistarsk\u00f3la B\u00cdL og hafa einhverja reynslu af leiklist.<br \/> 2. Hafa umtalsver\u00f0a reynslu af leiklist.<\/p>\n<p> Markmi\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0sins er a\u00f0 gefa nemendum grundvallarskilning \u00e1 vinnu leikarans me\u00f0 leikverki\u00f0. Leitast ver\u00f0ur vi\u00f0 a\u00f0 skerpa \u00e1 skilningi nemenda \u00e1 samvinnu og samspili leikara og unni\u00f0 a\u00f0 greiningu, byggingu og samsetningu sena. Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 undirb\u00faning fyrir senuvinnu og nemendum gefinn kostur \u00e1 a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 opnar senur samhli\u00f0a \u00e6fingum sem l\u00fata a\u00f0 hlustun og samvinnu.<br \/> Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 tv\u00f6 \u00f3l\u00edk leikverk, eitt klass\u00edskt og anna\u00f0 n\u00fdtt verk. \u00cd gegnum vinnu me\u00f0 verk fr\u00e1 \u00f3l\u00edkum t\u00edma og samanbur\u00f0 \u00e1 \u00feeim, skerpum vi\u00f0 skilning \u00e1 \u00feeirri grundvallar t\u00e6kni sem \u00fearf til a\u00f0 greina og vinna me\u00f0 senur og karakter en um lei\u00f0 \u00feeirri s\u00e9rst\u00f6ku t\u00e6kni\/leikst\u00edl sem \u00f3l\u00edk verk kalla \u00e1. \u00c6tlast er til a\u00f0 nemendur lesi verkin tv\u00f6 og tileinki s\u00e9r tv\u00e6r senur sem undirb\u00faning fyrir n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p><strong> Steinunn Kn\u00fatsd\u00f3ttir<\/strong> lauk BA n\u00e1mi \u00ed Gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, stunda\u00f0i leiklistarn\u00e1m \u00ed \u00c1r\u00f3sum \u00ed Danm\u00f6rkum og lauk s\u00ed\u00f0ar meistaran\u00e1mi \u00ed leiklistarfr\u00e6\u00f0um og leikstj\u00f3rn fr\u00e1 De Montfort h\u00e1sk\u00f3lanum \u00ed Leicester, Englandi. H\u00fan er me\u00f0 diploma \u00ed leikstj\u00f3rn fr\u00e1 SCUT (scandinavisk centrum f\u00f6r utvikling af teater) en \u00fear nam h\u00fan undir stj\u00f3rn Jurij Alschits \u00ed Moskvu, Berl\u00edn og Bari, \u00cdtal\u00edu. Steinunn hefur unni\u00f0 me\u00f0 \u00fdmsum leikh\u00f3pum og svi\u00f0slistah\u00f3pum \u00ed Danm\u00f6rku og Englandi, b\u00e6\u00f0i sem leikari og leikstj\u00f3ri. Steinunn hefur a\u00f0allega numi\u00f0 land \u00ed frams\u00e6knum leikh\u00fasum, oft n\u00e1tengt dansi og myndlist og teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed m\u00f6rgum ranns\u00f3knarverkefnum \u00e1 svi\u00f0i svi\u00f0slista. Steinunn hefur leikst\u00fdrt og stunda\u00f0 leiklistarkennslu h\u00e9rlendis og erlendis. H\u00fan var annar af tveimur listr\u00e6num stj\u00f3rnendum Lab Loka, sem hefur sta\u00f0i\u00f0 fyrir ranns\u00f3knum og tilraunum \u00e1 svi\u00f0i svi\u00f0slista \u00ed fj\u00f6lda \u00e1ra. H\u00fan vinnur n\u00fa sem dramat\u00farg \u00ed Borgarleikh\u00fasinu og leikt\u00falkunarkennari vi\u00f0 leiklistadeild LH\u00cd. \u00deetta er \u00ed fyrsta sinn sem Steinunn kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p> <strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-561\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2006\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2006_gretab.jpg\" width=\"140\" height=\"203\" alt=\"gretab\" style=\"float: right;\" \/>N\u00e1mskei\u00f0 nr. 4<br \/> Byrjendan\u00e1mskei\u00f0 \u00ed leikh\u00fasf\u00f6r\u00f0un<br \/> Kennari Gr\u00e9ta Bo\u00f0a<\/strong><br \/> \u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 12.000<br \/> T\u00edmi: 13. til 15. okt\u00f3ber 2006<br \/> Sta\u00f0ur: Laugavegur 96, II h\u00e6\u00f0<br \/> Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. september<\/p>\n<p> Grunnf\u00f6r\u00f0un \u00ed leikh\u00fasi, val \u00e1 litum og efnisnotkun, hreinsun og umgengni er efni \u00feessa n\u00e1mskei\u00f0s. Kennslan er fr\u00e6\u00f0ileg og verkleg, nemendur yfirvinna feimnina vi\u00f0 liti og efni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 far\u00f0a hverjir a\u00f0ra undir lei\u00f0s\u00f6gn kennarans.<br \/> Nota\u00f0ar ver\u00f0a f\u00f6r\u00f0unarv\u00f6rur fr\u00e1 Grimas og Kryolan.<\/p>\n<p><strong><\/p>\n<p> N\u00e1mskei\u00f0 nr. 5<br \/> Framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed leikh\u00fasf\u00f6r\u00f0un<br \/> Kennari Gr\u00e9ta Bo\u00f0a<\/strong><br \/> \u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 14.000<br \/> T\u00edmi: 27. til 29. okt\u00f3ber 2006<br \/> Sta\u00f0ur: Laugavegur 96, II h\u00e6\u00f0<br \/> Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. september<\/p>\n<p> N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er sj\u00e1lfst\u00e6tt framhald af fyrra f\u00f6r\u00f0unarn\u00e1mskei\u00f0inu, \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem einhverja reynslu hafa af f\u00f6r\u00f0un fyrir leikh\u00fas og\/e\u00f0a hafa s\u00f3tt byrjendan\u00e1mskei\u00f0.<\/p>\n<p> Kennd ver\u00f0ur \u201ekarakterf\u00f6r\u00f0un\u201c, unni\u00f0 me\u00f0 latex, skalla, kreph\u00e1r og fleiri efni sem notu\u00f0 eru til a\u00f0 breyta og b\u00e6ta \u00e1s\u00fdnd leikarana \u00e1 svi\u00f0inu.<br \/> Kennt ver\u00f0ur a\u00f0 b\u00faa til skallahettur, setja \u00fe\u00e6r \u00e1 og far\u00f0a. Einnig a\u00f0 b\u00faa til skegg, augabr\u00fanir og barta \u00far kr\u00e9ph\u00e1ri og l\u00edma \u00fea\u00f0 \u00e1. Latex, Tuplast og fleira nota\u00f0 til a\u00f0 gera f\u00f3lk eldra, \u00e1samt f\u00f6r\u00f0uninni sj\u00e1lfri. <br \/> Nota\u00f0ar ver\u00f0a f\u00f6r\u00f0unarv\u00f6rur fr\u00e1 Grimas og Kryolan.<\/p>\n<p><strong> Gr\u00e9ta Bo\u00f0a<\/strong> er h\u00e1rkollu- og f\u00f6r\u00f0unarmeistari. H\u00fan l\u00e6r\u00f0i fagi\u00f0 \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu og London. H\u00fan hefur 35 \u00e1ra reynslu af vinnu \u00ed leikh\u00fasi og sj\u00f3nvarpi, vi\u00f0 b\u00ed\u00f3myndir og augl\u00fdsinga- og lj\u00f3smyndaf\u00f6r\u00f0un.\u00a0 Gr\u00e9ta hefur \u00e1\u00f0ur kennt f\u00f6r\u00f0un og h\u00e1rkolluger\u00f0 vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p><strong> Fr\u00e1 sk\u00f3lanefnd<\/strong><\/p>\n<p><em> K\u00e6ru f\u00e9lagar, n\u00fa eru t\u00edmam\u00f3t! <\/p>\n<p> Leiklistarsk\u00f3li Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga t\u00f3k til starfa a\u00f0 H\u00fasabakka \u00ed Svarfa\u00f0ardal \u00feann 31. ma\u00ed 1997. \u00de\u00e1 var bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 \u00ferj\u00fa n\u00e1mskei\u00f0, leiklist 1, leikstj\u00f3rn 1 og textasmi\u00f0ju. Svo vel t\u00f3kst til \u00feetta fyrsta \u00e1r a\u00f0 \u00fea\u00f0 lag\u00f0i grunninn a\u00f0 starfsemi sk\u00f3lans n\u00e6stu \u00e1rin.<br \/> Sk\u00f3linn tekur til starfa \u00ed t\u00edunda sinn \u00feann 10. j\u00fan\u00ed n\u00e6st komandi. \u00c1 sl\u00edkum t\u00edmam\u00f3tum er \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt a\u00f0 l\u00edta til baka og hugsa til allra \u00feeirra sem s\u00f3tt hafa n\u00e1mskei\u00f0 sk\u00f3lans og \u00feannig teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed m\u00f3tun hans. \u00dev\u00ed langar okkur til a\u00f0 hitta allt \u00feetta yndislega f\u00f3lk og bj\u00f3\u00f0a \u00fev\u00ed a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed lokah\u00f3fi sk\u00f3lans, sem a\u00f0 \u00feessu sinni ver\u00f0ur haldi\u00f0 \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0ardaginn okkar \u00feann 17. j\u00fan\u00ed. Vi\u00f0 erum fullar eftirv\u00e6ntingar og vonumst til a\u00f0 sj\u00e1 alla \u00fe\u00e1 nemendur, kennara og sk\u00f3lanefndarmenn sem hafa dvali\u00f0 \u00ed Svarfa\u00f0ardalnum fr\u00e1 upphafi e\u00f0a teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed uppbyggingu hans og \u00fer\u00f3un. <br \/> N\u00fa sem \u00e1\u00f0ur hefur sk\u00f3lanefnd Leiklistarsk\u00f3lans \u00fea\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si a\u00f0 f\u00e1 f\u00e6rustu kennara sem v\u00f6l er \u00e1 til a\u00f0 kenna vi\u00f0 sk\u00f3lann og \u00fea\u00f0 er okkur s\u00e9rst\u00f6k \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 kynna fyrir ykkur n\u00e1mskei\u00f0 Leiklistarsk\u00f3la Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga \u00e1ri\u00f0 2006. \u00a0<\/p>\n<p> Hl\u00f6kkum miki\u00f0 til a\u00f0 sj\u00e1 ykkur \u00ed Svarfa\u00f0ardalnum \u00ed sumar!<br \/> Me\u00f0 bestu kve\u00f0ju, Gunnhildur, Sirr\u00fd, D\u00fdrleif, Herd\u00eds, Hrefna og Huld<\/em> <\/p>\n<p><strong> Allt sem \u00fe\u00fa \u00fearft a\u00f0 vita!<\/strong><\/p>\n<p> Leiklistarsk\u00f3li Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga var stofna\u00f0ur \u00e1ri\u00f0 1997. <br \/> Markmi\u00f0 hans er teki\u00f0 beint \u00far Menningarstefnu B\u00cdL og er \u00e1 \u00feessa lei\u00f0:\u00a0 <em>\u2013 a\u00f0 gera \u00e1hugaf\u00f3lki kleift a\u00f0 afla s\u00e9r menntunar \u00ed listinni og skapa \u00fev\u00ed a\u00f0st\u00f6\u00f0u til a\u00f0 \u00feroskast \u00ed menningarlegu og faglegu tilliti<\/em>. N\u00e1mskei\u00f0 sk\u00f3lans eru opin \u00f6llu \u00e1hugaf\u00f3lki um leiklist, innan leikf\u00e9laganna sem utan. Reynslu og menntunar er ekki krafist umfram \u00fea\u00f0 sem kemur fram \u00ed l\u00fdsingu einstakra n\u00e1mskei\u00f0a. N\u00e1ist ekki \u00e1s\u00e6ttanlegur fj\u00f6ldi \u00e1 eitthvert n\u00e1mskei\u00f0anna fellur \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur. Aldurstakmark \u00ed sk\u00f3lann er 18 \u00e1r.<\/p>\n<p> Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 10. til 18. j\u00fan\u00ed \u00ed H\u00fasabakkask\u00f3la \u00ed Svarfa\u00f0ardal og helgarnar 13. til 15. og 27. til 29. okt\u00f3ber \u00ed Reykjav\u00edk.<br \/><strong><br \/> Sk\u00f3lasetning \u00e1 H\u00fasabakka<\/strong> er laugardaginn 10. j\u00fan\u00ed kl. 9.00 og hefjast n\u00e1mskei\u00f0in strax \u00fear \u00e1 eftir. Sk\u00f3laslit eru kl. 12.00 sunnudaginn 18. j\u00fan\u00ed. Vi\u00f0urkenningarskj\u00f6l og merki sk\u00f3lans ver\u00f0a afhent vi\u00f0 sk\u00f3laslit. Nemendur eru velkomnir a\u00f0 H\u00fasabakka kv\u00f6ldi\u00f0 fyrir sk\u00f3lasetningu, fr\u00e1 kl. 20.00. <br \/> A\u00f0sta\u00f0a \u00ed Svarfa\u00f0ardal: Gist, bor\u00f0a\u00f0 og kennt \u00ed h\u00fasn\u00e6\u00f0i H\u00fasabakkask\u00f3la. Herbergin eru venjuleg heimavistarsk\u00f3laherbergi me\u00f0 kojum og skrifbor\u00f0i. M\u00f6guleiki er \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 eitthva\u00f0 ver\u00f0i um gistingu \u00e1 d\u00fdnum \u00e1 g\u00f3lfum. Nemendur hafi me\u00f0 s\u00e9r handkl\u00e6\u00f0i, s\u00e6ng og kodda \u00e1samt r\u00famf\u00f6tum, e\u00f0a svefnpoka. Sundlaug er \u00e1 sta\u00f0num. Haldi\u00f0 ver\u00f0ur lokah\u00f3f s\u00ed\u00f0asta kv\u00f6ldi\u00f0 \u00fear sem f\u00f3lk kl\u00e6\u00f0ir sig upp\u00e1 og skemmtir hvort \u00f6\u00f0ru me\u00f0 dansi og s\u00f6ng. <br \/> A\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0i loknu skila kennarar hverjum nemanda ums\u00f6gn um frammist\u00f6\u00f0u hans.<br \/><strong> \u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald er 45.000. \u00dea\u00f0 skal vera a\u00f0 fullu greitt 10 d\u00f6gum fyrir sk\u00f3lasetningu. Innifali\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1ttt\u00f6kugjaldi \u00e1 H\u00fasabakka er gisting, matur og kennslug\u00f6gn. <br \/> Sta\u00f0festingargjald er kr. 15.000. \u00dea\u00f0 grei\u00f0ist vi\u00f0 skr\u00e1ningu og er \u00f3endurkr\u00e6ft nema gegn framv\u00edsun l\u00e6knisvottor\u00f0s.<\/strong> <br \/> H\u00e6gt er a\u00f0 grei\u00f0a me\u00f0 grei\u00f0slukorti. \u00c1hugas\u00f6mum er bent \u00e1 a\u00f0 leita eftir styrkjum fr\u00e1 \u00f6llum \u00feeim sem hugsast getur, leikf\u00e9l\u00f6gunum s\u00ednum, b\u00e6jarf\u00e9l\u00f6gum, st\u00e9ttarf\u00e9l\u00f6gum og stofnunum, svo eitthva\u00f0 s\u00e9 nefnt. Me\u00f0limum a\u00f0ildarf\u00e9laga B\u00cdL er bent \u00e1 a\u00f0 f\u00e9l\u00f6gin geta s\u00f3tt um styrk til Bandalagsins ef \u00feau senda nemendur \u00ed sk\u00f3lann. <br \/> Sk\u00f3linn hefur sett s\u00e9r reglur, m.a. um umgengni, reykingar og \u00e1fengisneyslu, sem nemendur sam\u00feykkja a\u00f0 fara eftir \u00e1 starfst\u00edma sk\u00f3lans.<\/p>\n<p><strong> Sk\u00f3lasetningar \u00ed Reykjav\u00edk<\/strong> eru f\u00f6studaginn 13. okt. og f\u00f6studaginn 25. okt. kl. 18.00 a\u00f0 Laugavegi 96. \u00deau kv\u00f6ld er kennt til kl. 22. \u00c1 laugard\u00f6gunum hefst kennsla kl. 10.00 og kennt er til kl. 18.00 me\u00f0 matarhl\u00e9i. \u00c1 sunnud\u00f6gunum er kennt fr\u00e1 kl. 10.00 til 16.00 me\u00f0 matarhl\u00e9i. <strong><br \/> Skr\u00e1ning \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0in stendur til 15. september og skal \u00fe\u00e1ttt\u00f6kugjald grei\u00f0ast vi\u00f0 skr\u00e1ningu.<\/strong><\/p>\n<p><strong> Kennarar sk\u00f3lans og starfsf\u00f3lk:<\/strong><br \/><em> Sk\u00f3lameistari \u00ad\u00ad\u2014 Gunnhildur Sigur\u00f0ard\u00f3ttir, gss@hi.is<br \/> A\u00f0sto\u00f0arsk\u00f3lameistari \u2014 Sigr\u00ed\u00f0ur Karlsd\u00f3ttir, sirryk@simnet.is<br \/> Leikstj\u00f3rn \u2014 kennari Sigr\u00fan Valbergsd\u00f3ttir, sigrunvalb@mmedia.is<br \/> Leiklist \u2013 kennari \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir, icelandictakeawaytheatre@hotmail.com<br \/> Leiklist \u2013 kennari Steinunn Kn\u00fatsd\u00f3ttir, steinunn@borgarleikhus.is<br \/> F\u00f6r\u00f0un \u2013 Gr\u00e9ta Bo\u00f0a, gboda@simnet.is<\/em><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Bo\u00f0i\u00f0 er upp \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikstj\u00f3ra og leikara a\u00f0 H\u00fasabakka \u00ed Svarfa\u00f0ardal dagana 10.-18. j\u00fan\u00ed og fyrir f\u00f6r\u00f0unarf\u00f3lk a\u00f0 Laugavegi 96 helgarnar 13.-15. og 27.-29. okt\u00f3ber. Kennarar ver\u00f0a Sigr\u00fan Valbergsd\u00f3ttir, \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir, Steinunn Kn\u00fatsd\u00f3ttir og Gr\u00e9ta Bo\u00f0a. Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann hefst \u00feann 15. mars.\u00a0 Ums\u00f3knum er h\u00e6gt a\u00f0 skila \u00e1 netfangi\u00f0 info@leiklist.is og leggja [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":556,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[190],"tags":[],"class_list":["post-562","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-skn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/562","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=562"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/562\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=562"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=562"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=562"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}