{"id":5127,"date":"2015-03-26T14:41:05","date_gmt":"2015-03-26T14:41:05","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=5127"},"modified":"2020-03-02T09:53:25","modified_gmt":"2020-03-02T09:53:25","slug":"avoerp-a-altjoelegum-degi-leiklistarinnar-27-mars-2015","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/avoerp-a-altjoelegum-degi-leiklistarinnar-27-mars-2015\/","title":{"rendered":"\u00c1v\u00f6rp \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum degi leiklistarinnar 27. mars 2015"},"content":{"rendered":"<p class=\"p1\">Al\u00fej\u00f3\u00f0legi leiklistardagurinn er \u00feann 27. mars, en hann hefur veri\u00f0 haldinn h\u00e1t\u00ed\u00f0legur s\u00ed\u00f0an 1961. \u00dea\u00f0 er Al\u00fej\u00f3\u00f0a Leiklistarstofunin ITI sem stendur fyrir verkefninu og vi\u00f0bur\u00f0um \u00fev\u00ed tengdu. \u00c1 hverju \u00e1ri hafa mikilsvirtir svi\u00f0slistamenn e\u00f0a \u00e1hrifaf\u00f3lk \u00far \u00f6\u00f0rum geirum veri\u00f0 fengnir til a\u00f0 flytja hi\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0lega \u00e1varp. \u00cd \u00e1r er \u00fea\u00f0 p\u00f3lski leikstj\u00f3rinn Krzysztof Warlikowski sem semur al\u00fej\u00f3\u00f0a\u00e1varpi\u00f0. Leiklistasamband \u00cdslands hefur haft \u00fe\u00e1 venju a\u00f0 f\u00e1 \u00edslenskt svi\u00f0slistaf\u00f3lk til a\u00f0 semja \u00edslenskt \u00e1varp fyrir Al\u00fej\u00f3\u00f0aleikh\u00fassdaginn og \u00ed \u00e1r er \u00fea\u00f0 Halld\u00f3ra Geirhar\u00f0sd\u00f3ttir leikkona sem semur \u00edslenska \u00e1varpi\u00f0.<\/p>\n<p class=\"p2\">Og \u00ed fyrsta sinn eigum vi\u00f0 \u00e1hugaleikh\u00fasf\u00f3lk okkar eigi\u00f0 \u00e1varp en \u00fea\u00f0 samdi forma\u00f0ur Bandalagsins \u00deorgeir Tryggvason fyrir nor\u00f0urevr\u00f3pska \u00e1hugaleikh\u00fasr\u00e1\u00f0i\u00f0, NEATA.<\/p>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<p><strong>\u00c1varp NEATA<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\"><strong>Kjarni m\u00e1lsins er \u2026<\/strong><\/p>\n<p class=\"p2\">\u00cd hjarta allrar listar ver\u00f0ur a\u00f0 b\u00faa \u00e1hugamennska.<\/p>\n<p class=\"p2\">E\u00f0a r\u00e9ttara sagt:<\/p>\n<p> \u00cd hjarta allrar listar <strong>hl\u00fdtur<\/strong> a\u00f0 b\u00faa \u00e1hugamennska. Annars eru h\u00fan bara varningur. Framlei\u00f0sla. Neysluvara.<\/p>\n<p class=\"p2\">\u00deetta er svo auglj\u00f3st a\u00f0 \u00fea\u00f0 er au\u00f0velt a\u00f0 sj\u00e1st yfir \u00fea\u00f0. Ekki s\u00edst \u00e1 okkar p\u00f3stm\u00f3dernu t\u00edmum \u00feegar allt er varningur. N\u00e6stum allt.<\/p>\n<p class=\"p2\">Listin er \u00f6\u00f0ruv\u00edsi. Listin <strong>ver\u00f0ur<\/strong> a\u00f0 vera \u00f6\u00f0ruv\u00edsi.<\/p>\n<p class=\"p2\">List ver\u00f0ur a\u00f0 spretta af \u00e1str\u00ed\u00f0u. \u00de\u00f6rf fyrir a\u00f0 rannsaka, mi\u00f0la og vekja. Og gle\u00f0inni sem vel heppnu\u00f0 ranns\u00f3kn, mi\u00f0lun og vakning kveikir me\u00f0 skapara hennar og samverkaf\u00f3lki hans, \u00e1horfendum. \u00deegar hagna\u00f0arsj\u00f3narmi\u00f0i\u00f0 er fjarl\u00e6gt \u00far j\u00f6fnunni ver\u00f0ur \u00feetta auglj\u00f3st. \u00deegar \u201eatvinnu-\u201cforskeytinu er sleppt. \u00deegar brau\u00f0strits\u00fe\u00f6rfin er ekki til sta\u00f0ar.<\/p>\n<p class=\"p2\">Hvergi er \u00feetta jafn auglj\u00f3st og \u00ed \u00e1hugalist, og \u00fe\u00e1 \u00ed \u00e1hugaleikh\u00fasinu. \u00dear sem allt sem gert er er, e\u00f0li m\u00e1lsins samkv\u00e6mt, einungis gert af \u00fe\u00f6rf til a\u00f0 a\u00f0 <strong>gera einmitt \u00fea\u00f0<\/strong>. Ekki til a\u00f0 vinna fyrir s\u00e9r, ekki til a\u00f0 \u00f6\u00f0last fr\u00e6g\u00f0. Ekki af skyldu e\u00f0a vana, ekki af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var j\u00fa \u00feetta sem \u00fe\u00fa l\u00e6r\u00f0ir. Heldur a\u00f0eins af \u00e1st \u00e1 listinni. A\u00f0 kanna tilfinningar og kringumst\u00e6\u00f0ur og mi\u00f0la \u00feeim sannindum sem k\u00f6nnunin lei\u00f0ir \u00ed lj\u00f3s. Koma m\u00f3ttakandanum, lesandanum, \u00e1horfandanum til a\u00f0 hl\u00e6ja, gr\u00e1ta, hugsa.<\/p>\n<p class=\"p2\">A\u00f0 \u00feroskast og vera \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki \u00feroskavaki.<\/p>\n<p class=\"p2\">Og svo au\u00f0vita\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er einfaldlega svo skemmtilegt. Eins og l\u00edfi\u00f0 er. E\u00f0a \u00e1 a\u00f0 vera.<\/p>\n<p class=\"p2\">\u00deetta er kjarninn, hjarta\u00f0. Hvort sem \u00fe\u00fa f\u00e6r\u00f0 borga\u00f0 e\u00f0a ekki, hvort sem \u00fe\u00fa b\u00fdr\u00f0 a\u00f0 formlegri menntun e\u00f0a ekki, jafnvel \u00fe\u00f3 \u00fe\u00fa s\u00e9rt al\u00fej\u00f3\u00f0leg stjarna. Og l\u00edka ef \u00fe\u00fa ert hj\u00fakka, str\u00e6t\u00f3stj\u00f3ri, nemandi, tannl\u00e6knir e\u00f0a smi\u00f0ur sem k\u00fds a\u00f0 n\u00fdta fr\u00edt\u00edmann \u00ed \u00fej\u00f3nustu raddarinnar \u00ed hjartanu. \u00de\u00e1 er \u00fea\u00f0 auglj\u00f3st.<\/p>\n<p class=\"p2\">Svo auglj\u00f3st reyndar a\u00f0 \u00fea\u00f0 er au\u00f0velt a\u00f0 sj\u00e1st yfir \u00fea\u00f0. \u00cd n\u00fat\u00edmanum, sem einbl\u00ednir \u00e1 gr\u00f3\u00f0a og fr\u00e6g\u00f0, er ekkert au\u00f0veldara en a\u00f0 gleyma hva\u00f0 b\u00fdr \u00ed hjartanu. \u00deeir sem st\u00fdra fj\u00e1rveitingum og menningarp\u00f3lit\u00edk vir\u00f0ast oft gleyma \u00feessu.<\/p>\n<p class=\"p2\">En vi\u00f0 vitum \u00f6ll betur, innst inni.<\/p>\n<p class=\"p2\">\u00c1g\u00fast\u00ednus kirkjufa\u00f0ir sag\u00f0i, eins og fr\u00e6gt er: \u201eElska\u00f0u Gu\u00f0 og ger\u00f0u \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa vilt\u201c.<\/p>\n<p class=\"p2\">Vi\u00f0 leikh\u00fasamat\u00f6rar \u2013 atvinnumenn og vi\u00f0 hin \u2013\u00a0elskum hina duttlungafullu Tal\u00edu. Og munum svo sannarlega aldrei h\u00e6tta a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 viljum, me\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1st sem okkar helsta vegv\u00edsi.<\/p>\n<p class=\"p2\"><em>\u00deorgeir Tryggvason<\/em><\/p>\n<p class=\"p2\"><em>forma\u00f0ur Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga<\/em><\/p>\n<hr \/>\n<p class=\"p2\"><strong>\u00c1varp LS\u00cd<\/strong><\/p>\n<p class=\"p2\"><strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-5125\" style=\"margin: 12px; float: right;\" alt=\"halldorag\" height=\"150\" width=\"200\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2015\/03\/Folk_Ymsir_halldorag.jpg\" \/><\/strong><\/p>\n<p>Leiks\u00fdning er fer\u00f0alag ykkar k\u00e6ru \u00e1horfendur.<\/p>\n<p>VI\u00f0br\u00f6g\u00f0 ykkar eru l\u00edf ykkar, ef \u00fei\u00f0 eru\u00f0 snortin \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 komist \u00ed samband vi\u00f0 ykkar eigin l\u00edf.<\/p>\n<p>Hlutverk okkar sem st\u00f6ndum \u00e1 svi\u00f0inu er a\u00f0 fara eins n\u00e1l\u00e6gt sj\u00e1lfum okkur og kostur er, svo \u00fei\u00f0 eigi\u00f0 m\u00f6guleika a\u00f0 komast n\u00e6r ykkur. Spegilfrumur e\u00f0a-hermifrumur \u00e1horfandanna geta komist jafn langt og d\u00fdpt s\u00fdningarinnar.<\/p>\n<p>Leikh\u00faslistaf\u00f3lk rannsakar \u00e1 l\u00f6ngu \u00e6fingar og sk\u00f6punarferli manneskjur, samf\u00e9lag og s\u00f6gur og \u00e1horfendur f\u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 upplifa ranns\u00f3knina og fer\u00f0alagi\u00f0 \u00e1 einni kv\u00f6ldstund.<\/p>\n<p>R\u00fassneskur leikstj\u00f3ri kenndi m\u00e9r a\u00f0 enginn kemur \u00ed leikh\u00fas til a\u00f0 horfa \u00e1 hversdagslegu mig, \u00e9g hef ekki leyfi til a\u00f0 standa \u00e1 svi\u00f0i sem hvundagslega \u00e9g. \u00c1 svi\u00f0inu er \u00e9g farvegur fyrir \u00c6\u00d0RI mig. Og \u00c6\u00d0RI \u00e9g erum VI\u00d0, samvitund. \u00c1 svi\u00f0inu komum vi\u00f0 sameiginlegri vitneskju um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna \u00ed farveg, dr\u00f6gum hana upp\u00e1 yfirbor\u00f0i\u00f0, framk\u00f6llum \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 vitum, en vissum oft ekki a\u00f0 vi\u00f0 vissum. Hvernig sagan hlj\u00f3mar skiptir ekki \u00f6llu, \u00fea\u00f0 sem skiptir m\u00e1li er hva\u00f0 vaknar? Og vi\u00f0 \u00feurfum \u00f6ll a\u00f0 spyrja okkur vil \u00e9g vakna?<\/p>\n<p>K\u00e6ru \u00e1horfendur, s\u00f6gurnar ykkar eru \u00f3l\u00edkar.<\/p>\n<p>Megi leikh\u00fasi\u00f0 fara svo n\u00e1l\u00e6gt s\u00e9r \u00ed kv\u00f6ld a\u00f0 \u00fei\u00f0 komist n\u00e1l\u00e6gt sj\u00e1lfum ykkur og ykkar innri t\u00f6frum.<\/p>\n<p>K\u00e6r \u2013 leikur, k\u00e6rleikur<\/p>\n<p><em>Halld\u00f3ra Geirhar\u00f0sd\u00f3ttir<\/em>\u00a0<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong>\u00c1varp ITI<\/strong><\/p>\n<p class=\"p4\"><strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-5126\" style=\"margin: 12px; float: right;\" alt=\"warlikowski\" height=\"150\" width=\"200\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2015\/03\/Folk_Ymsir_warlikowski.jpg\" \/><\/strong><\/p>\n<p class=\"p5\"><strong>Bo\u00f0skapur \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0lega leiklistardeginum, 27. mars 2015<\/strong><\/p>\n<p class=\"p6\"><em>Eftir Krzysztof Warlikowski<\/em><\/p>\n<p class=\"p7\">Sanna leikh\u00fassnillinga er helst a\u00f0 finna v\u00ed\u00f0s fjarri leiksvi\u00f0inu. Vanalega hafa \u00feeir ekki \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 br\u00faka leikh\u00fasi\u00f0 sem eins konar mask\u00ednu til a\u00f0 endurtaka hef\u00f0bundnar a\u00f0fer\u00f0ir og klisjur. \u00deeir leita uppi ferskar uppsprettur, lifandi strauma sem hafa tilhneigingu til a\u00f0 snei\u00f0a hj\u00e1 leiksvi\u00f0um og \u00f6llu \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem leggur sig fram um a\u00f0 st\u00e6la veruleikann. Vi\u00f0 l\u00edkjum eftir, endurgerum \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 skapa eigin heim, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 \u00edhuga, rei\u00f0a okkur \u00e1 hugmyndir og \u00e1reiti sem spretta \u00far samtali vi\u00f0 \u00e1horfendur, &#8211; \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 rannsaka dulinn \u00e1hrifam\u00e1tt sem leynist undir yfirbor\u00f0inu. Einmitt leikh\u00fasi\u00f0 kann best a\u00f0 afhj\u00fapa leyndar tilfinningar.<\/p>\n<p class=\"p7\">\u00c9g sn\u00fd m\u00e9r oftast a\u00f0 sk\u00e1ldss\u00f6gum \u00ed leit a\u00f0 lei\u00f0s\u00f6gn, sk\u00e1ldskap sem alltaf fylgir m\u00e9r. \u00dea\u00f0 eru sk\u00e1ld sem l\u00fdstu, fyrir n\u00e6stum hundra\u00f0 \u00e1rum, &#8211; sp\u00e1mannlega en einnig af h\u00f3gv\u00e6r\u00f0, hnignun evr\u00f3pskra gu\u00f0a, hnignun sem varpa\u00f0i menningu okkar \u00ed myrkur sem ekkert hefur enn \u00ed dag geta\u00f0 l\u00fdst upp. \u00c9g nefni Franz Kafka, Thomas Mann og Marcel Proust. \u00cd dag myndi \u00e9g einnig setja John Maxwell Coetzee \u00ed \u00feennan flokk.<\/p>\n<p class=\"p7\">\u00deeim er sameiginleg tilfinning \u00f3umfl\u00fdjanlegs heimsendis, ekki pl\u00e1netu okkar, jar\u00f0arinnar, heldur endaloka forms mannlegra samskipta, hef\u00f0bundins regluverks og gildismats, efasemda um \u00e1rangur uppreisna. \u00deetta er tilfinning sem leggst \u00e6 \u00feyngra \u00e1 okkur n\u00fa \u00e1 t\u00edmum. Okkur, sem eigum \u00feennan heimsendi a\u00f0 baki.<\/p>\n<p class=\"p7\">Vi\u00f0 erum vanm\u00e1ttug, hj\u00e1lparvana og skelfingu lostin andsp\u00e6nis mor\u00f0um og \u00e1t\u00f6kum sem blossa upp \u00e6 v\u00ed\u00f0ar og \u00e6 hra\u00f0ar og svo \u00f3tt og t\u00edtt a\u00f0 fj\u00f6lmi\u00f0lar sem alltaf eru alls sta\u00f0ar n\u00e1l\u00e6gir n\u00e1 ekki a\u00f0 fjalla um \u00feau. Og t\u00e6past er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 minnast \u00e1 \u00feessi b\u00e1l \u00feegar \u00feau ver\u00f0a langdregin og hverfa sporlaust \u00far fr\u00e9ttum dagsins. Engin vernd er lengur \u00ed v\u00edggir\u00f0ingum, hvorki turnum n\u00e9 m\u00farum sem vi\u00f0 h\u00f6fum veri\u00f0 svo \u00ferautseig og eljus\u00f6m a\u00f0 reisa. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti. \u00dea\u00f0 erum vi\u00f0 sem verndum m\u00farana og vi\u00f0h\u00f6ldum \u00feeim af fremsta megni og kostar mestan hluta l\u00edfsorku okkar, \u00feannig a\u00f0 okkur skortir \u00ferek til a\u00f0 skynja l\u00edfi\u00f0 innan varnarm\u00fara okkar. Og einmitt \u00fea\u00f0 er hlutverk leikh\u00fassins, \u00fear liggur styrkur \u00feess, a\u00f0 sko\u00f0a \u00fea\u00f0 sem er banna\u00f0 a\u00f0 rannsaka. A\u00f0 g\u00e6gjast inn \u00fear sem banna\u00f0 er a\u00f0 horfa. &#8222;Go\u00f0s\u00f6gurnar reyna a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra hi\u00f0 \u00f3\u00fatsk\u00fdranlega. Vegna \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r byggja \u00e1 sannleikanum er \u00feeim nau\u00f0synlegt a\u00f0 ver\u00f0a \u00f3\u00fatsk\u00fdranlegar aftur, &#8220; segir Kafka um umskipti go\u00f0s\u00f6gunnar um Pr\u00f3m\u00f3\u00feeif. \u00dea\u00f0 er m\u00edn fasta fullvissa a\u00f0 \u00feannig \u00e6tti l\u00fdsingin \u00e1 leikh\u00fasi a\u00f0 hlj\u00f3ma.<\/p>\n<p class=\"p7\">N\u00e1kv\u00e6mlega \u00feannig leikh\u00fass, sem gengur \u00fat fr\u00e1 sannleikanum og ver\u00f0ur \u00f3\u00fatsk\u00fdranlegt, \u00f3ska \u00e9g af d\u00fdpstu hjartar\u00f3tum \u00f6llum \u00feeim sem skapa \u00fea\u00f0, &#8211; hvort sem \u00feeir eru \u00e1 leiksvi\u00f0i e\u00f0a \u00ed \u00e1horfendasal.<\/p>\n<p class=\"p6\"><em>\u00de\u00fd\u00f0ing: Hafli\u00f0i Arngr\u00edmsson<\/em><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Al\u00fej\u00f3\u00f0legi leiklistardagurinn er \u00feann 27. mars, en hann hefur veri\u00f0 haldinn h\u00e1t\u00ed\u00f0legur s\u00ed\u00f0an 1961. \u00dea\u00f0 er Al\u00fej\u00f3\u00f0a Leiklistarstofunin ITI sem stendur fyrir verkefninu og vi\u00f0bur\u00f0um \u00fev\u00ed tengdu. \u00c1 hverju \u00e1ri hafa mikilsvirtir svi\u00f0slistamenn e\u00f0a \u00e1hrifaf\u00f3lk \u00far \u00f6\u00f0rum geirum veri\u00f0 fengnir til a\u00f0 flytja hi\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0lega \u00e1varp. \u00cd \u00e1r er \u00fea\u00f0 p\u00f3lski leikstj\u00f3rinn Krzysztof Warlikowski sem [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":5124,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[200],"tags":[],"class_list":["post-5127","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-markvert","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5127","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5127"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5127\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5127"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5127"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5127"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}