{"id":474,"date":"2005-12-20T12:22:26","date_gmt":"2005-12-20T12:22:26","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=474"},"modified":"2020-03-02T09:47:42","modified_gmt":"2020-03-02T09:47:42","slug":"qgott-annast-hve-liumq","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/qgott-annast-hve-liumq\/","title":{"rendered":"&#8222;Gott a\u00f0 minnast \u00feess hve l\u00e1ns\u00f6m vi\u00f0 erum&#8220;"},"content":{"rendered":"<p>Fulltr\u00fai Leiklistarvefsins heldur \u00e1fram umfj\u00f6llun um \u00e1hugaleikh\u00f3pinn Fire and Ice Theatre \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli:<br \/>\n&#8222;\u00deetta verk hentar einstaklega vel \u00e1 \u00feessum t\u00edma n\u00fa \u00feegar j\u00f3lin n\u00e1lgast. \u00dea\u00f0 gerir okkur \u00f6llum gott a\u00f0 minnast \u00feess hversu l\u00e1ns\u00f6m vi\u00f0 \u00ed raun erum og \u00feetta verk hj\u00e1lpar svo sannarlega til vi\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 minnir okkur \u00e1 hversu l\u00e1ns\u00f6m vi\u00f0 erum a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 lifa \u00f6ruggu l\u00edfi h\u00e9r \u00e1 me\u00f0an a\u00f0rir eru a\u00f0 berjast \u00ed fremstu v\u00edgl\u00ednu og f\u00f3rna l\u00edfi og limum,&#8220; segir Freddie Bazen, einn fj\u00f6gurra hermanna \u00ed Varnarli\u00f0inu \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli sem \u00fe\u00e1tt taka \u00ed leiklestri \u00e1 <em>The Christmas Truce<\/em> sem flutt ver\u00f0ur \u00ed Kana\u00fatvarpinu n\u00fa \u00ed j\u00f3lavikunni.<\/p>\n<p><!--more--> Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a leikger\u00f0 eftir Aaron Shepard \u00fear sem fjalla\u00f0 er um \u00feann einstaka atbur\u00f0 \u00ed fyrri heimstyrj\u00f6ldinni \u00feegar \u00fe\u00fasundir breskra og \u00fe\u00fdskra hermanna ger\u00f0u me\u00f0 s\u00e9r nokkurs konar \u00f3formlegt vopnahl\u00e9 \u00ed um s\u00f3larhring \u00e1 j\u00f3lunum \u00e1ri\u00f0 1914 \u00e1 vesturv\u00edgst\u00f6\u00f0vunum \u00ed Frakklandi. Hermenn beggja v\u00edgst\u00f6\u00f0va h\u00f3fu fyrst a\u00f0 syngja til hvers annars hver \u00e1 s\u00ednu m\u00e1li og s\u00ed\u00f0an saman \u00ed k\u00f3r, skri\u00f0u \u00fev\u00ed n\u00e6st upp \u00far skotgr\u00f6funum og hittust \u00e1 einskismannslandinu. \u00dear skiptust \u00feeir \u00e1 gj\u00f6fum, reyktu og spj\u00f6llu\u00f0u auk \u00feess a\u00f0 keppa \u00ed f\u00f3tbolta. N\u00e6sta dag h\u00e9lt str\u00ed\u00f0i\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u00e1fram.<\/p>\n<div class=\"mosimage\" style=\"border-width: 1px; float: left;\" align=\"center\">\n<div class=\"mosimage_caption\" style=\"text-align: center;\" align=\"center\">H\u00f3purinn \u00ed uppt\u00f6kuverinu<\/div>\n<\/div>\n<p><strong>Herma\u00f0ur gerist heimavinnandi fj\u00f6lskyldufa\u00f0ir<\/strong><br \/>\n&#8222;\u00c1 \u00feessum t\u00edma \u00e1rs fer ma\u00f0ur \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1tt a\u00f0 hugsa til allra \u00feeirra sem eru a\u00f0 leggja sitt af m\u00f6rkum til \u00feess a\u00f0 gera okkar l\u00edf betra. Og <em>The Christmas Truce<\/em> er einstakt d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 sem manneskjur hafa lagt \u00e1 sig \u00ed t\u00edmans r\u00e1s til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 getum lifa\u00f0 \u00ed betri heimi,&#8220; segir Bazen, sem sj\u00e1lfur hefur \u00fej\u00f3na\u00f0 \u00ed sj\u00f3her Bandar\u00edkjanna sl. 24 \u00e1r. Hann kom hinga\u00f0 til lands \u00ed \u00e1g\u00fast sl., eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 sta\u00f0settur \u00ed Mi\u00f0-Austurl\u00f6ndum \u00ed tv\u00f6 \u00e1r, en Bazen er n\u00fdfarinn \u00e1 eftirlaun. Hann mun \u00fe\u00f3 dvelja \u00e1fram h\u00e9r \u00e1 landi um \u00f3komin \u00e1r \u00fear sem kona hans vinnur sem sk\u00f3lakennari hj\u00e1 Varnarli\u00f0inu. &#8222;\u00c9g ver\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1fram \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 me\u00f0an h\u00fan vinnur h\u00e9r, en \u00e9g mun n\u00fa gerast heimavinnandi fj\u00f6lskyldufa\u00f0ir og hugsa um b\u00f6rnin,&#8220; segir Bazen og brosir vi\u00f0 tilhugsunina. &#8222;\u00c9g g\u00e6ti varla hugsa\u00f0 m\u00e9r betri sta\u00f0 til a\u00f0 setjast a\u00f0 \u00e1. Ef okkur t\u00e6kist a\u00f0eins a\u00f0 losna vi\u00f0 hvassvi\u00f0ri\u00f0 sem h\u00e9r r\u00edkis \u00fe\u00e1 v\u00e6ri \u00feetta enn\u00fe\u00e1 betri sta\u00f0ur.&#8220;<\/p>\n<p><strong>\u00c1 \u00f6llum t\u00edmum erfitt a\u00f0 vera herma\u00f0ur <\/strong><\/p>\n<p>En Bazen er ekki einn \u00ed leiklestrinum \u00fev\u00ed me\u00f0 honum lesa \u00fer\u00edr hermenn \u00far flughernum, \u00feeir Marty Dimmett, sem veri\u00f0 hefur n\u00edu \u00e1r \u00ed hernum, Joe Bozsoki, sem \u00fej\u00f3na\u00f0 hefur sl. t\u00edu \u00e1r og Albert Dean, sem veri\u00f0 hefur \u00ed hernum sl. sex \u00e1r. Dimmett og Bozsoki komu hinga\u00f0 \u00ed okt\u00f3ber sl., en Dean hefur veri\u00f0 h\u00e9r s\u00ed\u00f0an 2004, en allir halda \u00feeir af landi brott \u00ed n\u00e6sta m\u00e1nu\u00f0i til annarra eyja \u00ed su\u00f0ri. Lei\u00f0 Dimmett og Bozsoki liggur n\u00e6st til Okinawa \u00ed Japan en Dean fer til Diego Garcia \u00ed Kyrrahafinu.<\/p>\n<p>\u00cd samt\u00f6lum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00feeir hafa fari\u00f0 v\u00ed\u00f0a um heiminn og t.a.m. hafa Dimmet og Bozsoki n\u00fdveri\u00f0 veri\u00f0 vi\u00f0 skyldust\u00f6rf \u00ed \u00cdrak og Oman. A\u00f0spur\u00f0ir segjast \u00feeir aldrei \u00e1\u00f0ur hafa starfa\u00f0 me\u00f0 leikf\u00e9lagi \u00e1 bandar\u00edskri herst\u00f6\u00f0, enda bj\u00f3\u00f0i kringumst\u00e6\u00f0ur ekki upp \u00e1 sl\u00edka starfsemi \u00e1 \u00feeim herv\u00f6llum \u00fear sem \u00feeir hafi veri\u00f0 \u00fe\u00f3 vafal\u00edti\u00f0 s\u00e9 \u00fea\u00f0, a\u00f0 s\u00f6gn \u00feeirra, \u00ed bo\u00f0i \u00e1 st\u00e6rri og r\u00f3tgr\u00f3nari v\u00f6llum \u00ed heiminum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 liggur beint vi\u00f0 a\u00f0 spyrja \u00fe\u00e1 hvort \u00feeir telji a\u00f0 \u00feeir eigi au\u00f0veldara me\u00f0 a\u00f0 setja sig \u00ed spor hermanna sem \u00feeir eru a\u00f0 leiklesa \u00fear sem eru sj\u00e1lfir hermenn. &#8222;J\u00e1, tv\u00edm\u00e6lalaust. Au\u00f0vita\u00f0 hafa a\u00f0st\u00e6\u00f0ur miki\u00f0 breyst og vi\u00f0, a\u00f0 miklu leyti, a\u00f0 vinna vi\u00f0 mun betri skilyr\u00f0i. \u00dea\u00f0 er \u00e1 \u00f6llum t\u00edmum erfitt fyrir hermenn a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 yfirgefa heimili s\u00edn og halda til framandi sta\u00f0a. \u00c9g held samt a\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0ur hafi veri\u00f0 miklu mun erfi\u00f0ari fyrr \u00e1 t\u00edmum, t.a.m. \u00ed fyrri heimstyrj\u00f6ldinni, heldur en n\u00fa. Ekki s\u00edst \u00feegar ma\u00f0ur hugsar til \u00feess a\u00f0 \u00feeir \u00feurftu a\u00f0 berjast \u00ed skotgr\u00f6fum vi\u00f0 hryllilegar og erfi\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur,&#8220; segir Albert Dean.<\/p>\n<p><strong>G\u00f3\u00f0 lei\u00f0 til a\u00f0 kynnast f\u00f3lki <\/strong><br \/>\nSpur\u00f0ir hvers vegna \u00feeir hafi vali\u00f0 a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed starfsemi Fire and Ice Theatre \u00e1 \u00feeim stutta t\u00edma sem \u00feeir dvelja h\u00e9r \u00e1 landi svarar Bozsoki a\u00f0 s\u00e9r hafi \u00fe\u00f3tt spennandi a\u00f0 prufa, auk \u00feess sem ekki hafi spillt fyrir a\u00f0 efni\u00f0 v\u00e6ri b\u00e6\u00f0i tengt herna\u00f0ars\u00f6gunni og j\u00f3lunum. &#8222;\u00dea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um a\u00f0 sl\u00e1 tv\u00e6r flugur \u00ed einu h\u00f6ggi, \u00fe.e. leggja leikh\u00f3pnum li\u00f0 \u00e1 sama t\u00edma og \u00feetta er g\u00f3\u00f0 lei\u00f0 til \u00feess a\u00f0 kynnast \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki,&#8220; b\u00e6tir Dean vi\u00f0.<\/p>\n<p>Ekki er h\u00e6gt a\u00f0 sleppa vi\u00f0m\u00e6lendunum \u00e1n \u00feess a\u00f0 forvitnast hvernig \u00cdsland hafi komi\u00f0 \u00feeim fyrir sj\u00f3nir \u00e1 \u00feeim stutta t\u00edma sem \u00feeir hafa dvali\u00f0 h\u00e9r. &#8222;\u00deetta er fr\u00e1b\u00e6r eyja,&#8220; segir Dimmett og tekur s\u00e9rstaklega fram hversu vinalegir \u00cdslendingar hafi komi\u00f0 s\u00e9r fyrir sj\u00f3nir. &#8222;Vi\u00f0 h\u00f6fum \u00fev\u00ed \u00e1tt mj\u00f6g g\u00f3\u00f0ar stundir h\u00e9r,&#8220; segir Dimmett. A\u00f0spur\u00f0ur segir hann \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 neita a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 mikill l\u00e9ttir a\u00f0 vera sendur til fri\u00f0s\u00e6ls lands eins og \u00cdslands samanbori\u00f0 vi\u00f0 \u00cdrak \u00fear sem hann var \u00ed fyrra. &#8222;En vi\u00f0 hl\u00fd\u00f0um einfaldlega kalli forseta okkar. Vi\u00f0 f\u00e1um skipanir og gerum \u00fea\u00f0 sem \u00fearf a\u00f0 gera. Og \u00e9g er afar stoltur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fej\u00f3na landi m\u00ednu \u00e1 hvar sem m\u00edn er \u00fe\u00f6rf, hvort heldur \u00fea\u00f0 er \u00e1 jafn yndislegum sta\u00f0 og \u00cdsland e\u00f0a annars sta\u00f0ar \u00ed heiminum,&#8220; segir Dimmet og Bozsoki tekur undir me\u00f0 honum. &#8222;\u00dev\u00ed er ekki a\u00f0 neita \u00fea\u00f0 felst \u00e1kve\u00f0inn l\u00e9ttir \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vera sendur til \u00cdslands samanbori\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0ra mun h\u00e6ttulegri sta\u00f0i. Vi\u00f0 g\u00e6tum veri\u00f0 \u00ed miklu verri a\u00f0st\u00e6\u00f0um annars sta\u00f0ar \u00ed heiminum,&#8220; segir Bozsoki.<\/p>\n<p>.<\/p>\n<p><em>Myndin h\u00e9r a\u00f0 ofan: Upptakan \u00e1 j\u00f3la\u00fatvarpsleikritunum f\u00f3r fram \u00ed \u00fatvarpsh\u00fasinu \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli. Fr\u00e1 h\u00e6gri m\u00e1 sj\u00e1 Marty Dimmett, Cheryl Stevens, Freddie Bazen, Albert Dean og Joe Bozsoki \u00ed uppt\u00f6kuverinu. <\/em><\/p>\n<p><strong><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/en\/?p=472\">Sj\u00e1 fyrri hluti greinarinnar.<\/a><\/strong><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fulltr\u00fai Leiklistarvefsins heldur \u00e1fram umfj\u00f6llun um \u00e1hugaleikh\u00f3pinn Fire and Ice Theatre \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli: &#8222;\u00deetta verk hentar einstaklega vel \u00e1 \u00feessum t\u00edma n\u00fa \u00feegar j\u00f3lin n\u00e1lgast. \u00dea\u00f0 gerir okkur \u00f6llum gott a\u00f0 minnast \u00feess hversu l\u00e1ns\u00f6m vi\u00f0 \u00ed raun erum og \u00feetta verk hj\u00e1lpar svo sannarlega til vi\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 minnir okkur \u00e1 hversu l\u00e1ns\u00f6m vi\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":473,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[200],"tags":[],"class_list":["post-474","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-markvert","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/474","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=474"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/474\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=474"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=474"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=474"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}