{"id":472,"date":"2005-12-20T11:55:24","date_gmt":"2005-12-20T11:55:24","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=472"},"modified":"2020-03-01T23:18:59","modified_gmt":"2020-03-01T23:18:59","slug":"gaman-allt-ganga-upp","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/gaman-allt-ganga-upp\/","title":{"rendered":"Gaman a\u00f0 sj\u00e1 allt ganga upp"},"content":{"rendered":"<p>Me\u00f0limir Varnarli\u00f0sins \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli hafa sl. aldarfj\u00f3r\u00f0ung reki\u00f0 leikh\u00f3pinn <strong>Fire and Ice Theatre<\/strong>. Fulltr\u00fai Leiklistarvefsins heims\u00f3tti leikh\u00f3pinn og f\u00e9kk a\u00f0 fylgjast me\u00f0 uppt\u00f6kum \u00e1 tveimur \u00fatvarpsleikritum tengdum j\u00f3lunum sem \u00fatvarpa\u00f0 ver\u00f0ur uppi \u00e1 velli s\u00ed\u00f0ar \u00ed vikunni.<\/p>\n<p><!--more--> Vandfundi\u00f0 er \u00fea\u00f0 b\u00e6jarf\u00e9lag h\u00e9r \u00e1 landi \u00fear sem ekki m\u00e1 finna starfandi \u00e1hugaleikf\u00e9lag sem sett hefur upp leiks\u00fdningar \u00e1rlega jafnvel s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugina, ef ekki lengur. \u00deess vegna hef\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki \u00e1tt a\u00f0 koma undirritu\u00f0um \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 komast a\u00f0 \u00fev\u00ed fyrir skemmstu a\u00f0 hj\u00e1 Varnarli\u00f0inu \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli v\u00e6ri starfandi bl\u00f3mlegur \u00e1hugaleikh\u00f3pur, Fire and Ice Theatre, enda minnir samf\u00e9lagi\u00f0 \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli um margt \u00e1 l\u00edtinn sm\u00e1b\u00e6. Eftir \u00fev\u00ed sem bla\u00f0ama\u00f0ur kemst n\u00e6st er samf\u00e9lagi\u00f0 \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli um margt \u00f3venjulegt mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0ra hervelli a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 yfirleitt b\u00faa li\u00f0smenn ekki allir inni \u00e1 herst\u00f6\u00f0inni eins og h\u00e9r er, en \u00e1 m\u00f3ti vir\u00f0ist \u00fea\u00f0 skapa heilsteyptara samf\u00e9lag \u00fear sem r\u00edkjandi er \u00fe\u00e6gileg sm\u00e1b\u00e6jarstemning me\u00f0 mikilli \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed alls kyns \u00ed\u00fer\u00f3tta- og t\u00f3mstundastarfi, sem og sk\u00f3la- og kirkjustarfi.<\/p>\n<div class=\"mosimage\" style=\"border-width: 1px; float: left;\" align=\"center\">\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-full wp-image-471\" style=\"margin-right: 6px; margin-left: 6px;\" title=\"Image\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2005\/12\/Leikhus_Leikhopar_IceandFrie_fyrri2.jpg\" alt=\"Image\" width=\"200\" height=\"146\" \/><\/p>\n<div class=\"mosimage_caption\" style=\"text-align: center;\" align=\"center\">K\u00e1t a\u00f0 loknum uppt\u00f6kum.<\/div>\n<\/div>\n<p><strong>Breg\u00f0ur fyrir \u00ed \u00edslenskum og erlendum kvikmyndum<\/strong><\/p>\n<p>A\u00f0spur\u00f0 tekur Cheryl Stevens, sem situr \u00ed stj\u00f3rn Fire and Ice Theatre og er einn helsti drifkraftur starfsins n\u00fa um stundir, undir \u00fea\u00f0 a\u00f0 ekki fari miki\u00f0 fyrir starfi leikh\u00f3psins utan vallar, enda s\u00fdningar h\u00f3psins s\u00fdndar inni \u00e1 herst\u00f6\u00f0inni og \u00fev\u00ed ekki a\u00f0gengilegar utana\u00f0komandi nema \u00ed undantekningartilvikum. \u00dea\u00f0 er helst a\u00f0 almenningur geti s\u00e9\u00f0 leikurum \u00far leikh\u00f3pnum breg\u00f0a fyrir \u00ed kvikmyndum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 mynd Baltasars Korm\u00e1ks A Little Trip to Heaven e\u00f0a Clint Eastwood-myndinni Flags of Our Fathers sem teknar voru upp h\u00e9rlendis. &#8222;Vi\u00f0 h\u00f6fum veri\u00f0 \u00ed samstarfi vi\u00f0 \u00edslensk kvikmyndafyrirt\u00e6ki, m.a. Pegasus, sem leita\u00f0 hafa til okkar \u00feegar \u00fe\u00f6rf er fyrir amer\u00edska aukaleikara e\u00f0a, eins og \u00ed tilfelli Clint Eastwood-myndarinnar, karlmanna sem l\u00edta \u00fat eins og raunverulegir hermenn,&#8220; segir Cheryl Stevens, sem sj\u00e1lf er ein \u00feeirra hundru\u00f0 borgaralegu starfsmanna Varnali\u00f0sins sem b\u00faa og starfa \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli. Stevens er barnask\u00f3lakennari og hefur veri\u00f0 b\u00fasett h\u00e9r \u00e1 landi sl. \u00ferett\u00e1n \u00e1r, en h\u00f3f fyrst a\u00f0 starfa me\u00f0 Fire and Ice Theatre fyrir r\u00e9tt r\u00famu \u00e1r.<\/p>\n<p>A\u00f0 s\u00f6gn Stevens gengur misvel a\u00f0 halda starfi leikf\u00e9lagsins \u00fati, ekki s\u00edst s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 yfirgn\u00e6fandi fj\u00f6ldi Varnarli\u00f0smanna staldrar stutt vi\u00f0 \u00ed hvert skipti. Yfirleitt dvelja Varnarli\u00f0smenn h\u00e9r \u00ed allt fr\u00e1 viku og upp \u00ed 18 m\u00e1nu\u00f0i s\u00e9u \u00feeir einir \u00e1 fer\u00f0, en \u00f3ski \u00feeir eftir \u00fev\u00ed hafa fj\u00f6lskyldu s\u00edna hj\u00e1 s\u00e9r er dvalart\u00edminn tv\u00f6 til \u00ferj\u00fa \u00e1r. Borgaralegir starfsmenn \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 kennarar geta hins vegar dvali\u00f0 h\u00e9r \u00e1rum saman, ef svo ber undir. &#8222;En \u00fea\u00f0 stendur starfinu nokku\u00f0 fyrir \u00ferifum hversu \u00f6r skipti ver\u00f0a \u00ed leikh\u00f3pnum,&#8220; segir Stevens og nefnir sem d\u00e6mi a\u00f0 meirihluti \u00feess st\u00f3ra h\u00f3ps sem \u00fe\u00e1tt t\u00f3k \u00ed uppsetningu leikh\u00f3psins \u00e1 fj\u00f6lmennum s\u00f6ngleik sl. vor, er nefnist You\u00b4re a Good Man Charlie Brown eftir Clark Gesner og byggir l\u00edkt og nafni\u00f0 gefur til kynna \u00e1 teiknimyndunum um Sm\u00e1f\u00f3lki\u00f0, s\u00e9 farinn af landi brott.<\/p>\n<p>A\u00f0spur\u00f0 um verkefnaval leikh\u00f3psins segir Cheryl Stevens \u00fea\u00f0 annars vegar taka mi\u00f0 af \u00fev\u00ed hva\u00f0a mannskapur s\u00e9 fyrir hendi sem og \u00fev\u00ed hva\u00f0 f\u00e9lagsmenn langi til a\u00f0 gera, en h\u00f3purinn hefur \u00ed t\u00edmans r\u00e1s spreytt sig \u00e1 \u00fdmsum tegundum verka, s.s. sakam\u00e1laleikritum, s\u00f6ngleikjum auk \u00feess a\u00f0 reka nokkurs konar kaffileikh\u00fas. Spur\u00f0 hvernig \u00feau fj\u00e1rmagni starf sitt segir h\u00fan \u00fea\u00f0 gert me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti, enda geti leikf\u00e9lagi\u00f0 ekki leita\u00f0 styrkja neins sta\u00f0ar. &#8222;Vi\u00f0 h\u00f6ldum k\u00f6kubasar, bj\u00f3\u00f0umst til \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 um andlitsm\u00e1lningu \u00e1 \u00fdmis konar skemmtunum auk \u00feess sem mi\u00f0asalan \u00fearf a\u00f0 standa undir st\u00f3rum hluta starfsins,&#8220; segir Cheryl Stevens.<\/p>\n<p><strong>Veitir ekki af meiri mannskap <\/strong><br \/>\n\u00deegar bla\u00f0ama\u00f0ur lag\u00f0i lei\u00f0 s\u00edna \u00e1 Keflav\u00edkurflugv\u00f6ll fyrr \u00ed m\u00e1nu\u00f0inum var leikh\u00f3purinn a\u00f0 fara \u00ed uppt\u00f6kur \u00e1 tveimur \u00fatvarpsleikritum tengdum j\u00f3lunum, annars vegar Twas the Night Before Christmas eftir Clement Clarke Moore, sem hvert einasta barn \u00ed Bandar\u00edkjunum \u00feekkir og kann n\u00e1nast utana\u00f0 enda fjallar verki\u00f0 um eftirv\u00e6ntingarfulla bi\u00f0 barns eftir j\u00f3lunum, og hins vegar The Christmas Truce eftir Aaron Shepard \u00fear sem sanns\u00f6gulegur vi\u00f0bur\u00f0ur \u00far fyrri heimstyrj\u00f6ldinni er til umfj\u00f6llunar. &#8222;\u00deetta er \u00ed fyrsta skipti\u00f0 sem vi\u00f0 pr\u00f3fum a\u00f0 leiklesa \u00ed \u00fatvarpi, en vi\u00f0 vonumst til \u00feess a\u00f0 \u00feetta veki \u00e1huga \u00e1 starfsemi leikh\u00f3psins me\u00f0al Varnarli\u00f0smanna og a\u00f0 fleiri gangi til li\u00f0s vi\u00f0 okkur,&#8220; segir Stevens og b\u00e6tir vi\u00f0: &#8222;Enda veitir okkur ekki af meiri mannskap.&#8220; A\u00f0spur\u00f0 segir h\u00fan leikh\u00f3pinn frekar l\u00edtinn, e\u00f0a \u00ed kringum tuttugu manns, en auk \u00feess s\u00e9 nokku\u00f0 st\u00f3r h\u00f3pur sem leggur h\u00f3pnum li\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a leikmynd, sauma b\u00faninga og selja mi\u00f0a. En hva\u00f0 f\u00e6r \u00feennan h\u00f3p til \u00feess a\u00f0 ey\u00f0a d\u00fdrm\u00e6tum fr\u00edt\u00edma s\u00ednum \u00ed \u00e6fingar \u00feann stutta t\u00edma sem \u00feau dvelja h\u00e9r \u00e1 land?. \u00dev\u00ed er a\u00f0 mati Cheryl Stevens og annarra \u00ed leikh\u00f3pnum au\u00f0svarar: &#8222;\u00dea\u00f0 er svo gaman a\u00f0 sj\u00e1 allt ganga upp og finna hvernig erfi\u00f0i \u00e6fingat\u00edmabilsins skilar s\u00e9r \u00e1 leiksvi\u00f0i\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Me\u00f0limir Varnarli\u00f0sins \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli hafa sl. aldarfj\u00f3r\u00f0ung reki\u00f0 leikh\u00f3pinn Fire and Ice Theatre. Fulltr\u00fai Leiklistarvefsins heims\u00f3tti leikh\u00f3pinn og f\u00e9kk a\u00f0 fylgjast me\u00f0 uppt\u00f6kum \u00e1 tveimur \u00fatvarpsleikritum tengdum j\u00f3lunum sem \u00fatvarpa\u00f0 ver\u00f0ur uppi \u00e1 velli s\u00ed\u00f0ar \u00ed vikunni.<\/p>","protected":false},"author":3,"featured_media":471,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[200],"tags":[],"class_list":["post-472","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-markvert","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/472","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=472"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/472\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=472"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=472"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=472"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}