{"id":4497,"date":"2014-03-07T00:00:00","date_gmt":"2014-03-07T00:00:00","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=4497"},"modified":"2014-03-07T00:00:00","modified_gmt":"2014-03-07T00:00:00","slug":"leiklistarskoli-bandalagsins-2014","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/leiklistarskoli-bandalagsins-2014\/","title":{"rendered":"Leiklistarsk\u00f3li Bandalagsins 2014"},"content":{"rendered":"<p>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 14. til 22. j\u00fan\u00ed a\u00f0 H\u00fanavallask\u00f3la \u00ed Austur-H\u00fanavatnss\u00fdslu.<strong> <\/strong>Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann hefst 15. mars og stendur til til 15. apr\u00edl.<strong> <br \/><\/strong><\/p>\n<p>\u00cd \u00e1r er \u00fea\u00f0 markmi\u00f0 okkar a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 fj\u00f6lbreytt n\u00e1mskei\u00f0 fyrir byrjendur jafnt sem og \u00fe\u00e1 sem vilja treysta enn frekar \u00feekkingu s\u00edna og reynslu. Til okkar koma \u00ferautreyndir og \u00feekktir kennarar sem hafa allir kennt hj\u00e1 okkur \u00e1\u00f0ur vi\u00f0 g\u00f3\u00f0an or\u00f0st\u00edr. \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir mun fara me\u00f0 byrjendum \u00ed \u00f6ll grunnatri\u00f0i \u00ed list leikarans \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu Leiklist I. R\u00fanar Gu\u00f0brandsson ver\u00f0ur me\u00f0 s\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir lengra komna leikara me\u00f0 svipu\u00f0u sni\u00f0i og bo\u00f0i\u00f0 hefur veri\u00f0 upp \u00e1 \u00e1\u00f0ur. R\u00fanar mun kynna mismunandi leikst\u00edla og l\u00e1ta nemendur gl\u00edma vi\u00f0 \u00f3l\u00edkar a\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 a\u00f0 greina og t\u00falka leikverk. \u00de\u00e1 mun Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson lei\u00f0a leiksk\u00e1ldin \u00e1fram \u00e1 sk\u00f6punarbrautinni \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu Leikritun II.<\/p>\n<p>B\u00e6klingur sk\u00f3lans starfs\u00e1ri\u00f0 2014 er<a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2005\/06\/Menntun_Skolinn_Skoli2014_leiklistarskolibil2014.pdf\"> h\u00e9r \u00e1 PDF formi.<\/a><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>Kve\u00f0ja fr\u00e1 sk\u00f3lanefnd<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-4493\" width=\"498\" height=\"129\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2014_skolanefnd.png\" alt=\"skolanefnd\" style=\"margin-top: 12px; margin-bottom: 12px; vertical-align: middle; float: left;\" srcset=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2014_skolanefnd.png 498w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2014_skolanefnd-300x78.png 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 498px) 100vw, 498px\" \/><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>K\u00e6ru leiklistarunnendur<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er okkur s\u00f6nn \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a ykkur velkomin a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum \u00ed sumar \u00fear sem Leiklistarsk\u00f3li Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga ver\u00f0ur settur \u00ed \u00e1tj\u00e1nda sinn \u00feann 14. j\u00fan\u00ed 2014.<\/p>\n<p>\u00cd \u00e1r er \u00fea\u00f0 markmi\u00f0 okkar a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 fj\u00f6lbreytt n\u00e1mskei\u00f0 fyrir byrjendur jafnt sem og \u00fe\u00e1 sem vilja treysta enn frekar \u00feekkingu s\u00edna og reynslu. Til okkar koma \u00ferautreyndir og \u00feekktir kennarar sem hafa allir kennt hj\u00e1 okkur \u00e1\u00f0ur vi\u00f0 g\u00f3\u00f0an or\u00f0st\u00edr. \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir mun fara me\u00f0 byrjendum \u00ed \u00f6ll grunnatri\u00f0i \u00ed list leikarans \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu Leiklist I. R\u00fanar Gu\u00f0brandsson ver\u00f0ur me\u00f0 s\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir lengra komna leikara me\u00f0 svipu\u00f0u sni\u00f0i og bo\u00f0i\u00f0 hefur veri\u00f0 upp \u00e1 \u00e1\u00f0ur. R\u00fanar mun kynna mismunandi leikst\u00edla og l\u00e1ta nemendur gl\u00edma vi\u00f0 \u00f3l\u00edkar a\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 a\u00f0 greina og t\u00falka leikverk. \u00de\u00e1 mun Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson lei\u00f0a leiksk\u00e1ldin \u00e1fram \u00e1 sk\u00f6punarbrautinni \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0inu Leikritun II.<\/p>\n<p>Vonum a\u00f0 sem flestir hafi f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 nema og nj\u00f3ta.<\/p>\n<p>Hl\u00f6kkum miki\u00f0 til a\u00f0 sj\u00e1 ykkur &#8211; me\u00f0 bestu kve\u00f0ju<br \/>Hrefna, D\u00fdrleif, Gunnhildur, Herd\u00eds og Hrund.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<hr \/>\n<p> Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann stendur yfir fr\u00e1 15. mars til 15. apr\u00edl. Reglan \u201efyrstur kemur \u2013 fyrstur f\u00e6r\u201c gildir vi\u00f0 skr\u00e1ningar gegn grei\u00f0slu sta\u00f0festingargjalds, kr. 35.000 ef innt\u00f6kuskilyr\u00f0um er fulln\u00e6gt a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti. N\u00e1ist ekki \u00e1s\u00e6ttanlegur fj\u00f6ldi \u00e1 eitthvert n\u00e1mskei\u00f0anna fellur \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur. Aldurstakmark \u00ed sk\u00f3lann er 18 \u00e1r. Sk\u00f3linn hefur sett s\u00e9r reglur, m.a. um umgengni, reykingar og \u00e1fengisneyslu, sem nemendur sam\u00feykkja a\u00f0 fara eftir \u00e1 starfst\u00edma sk\u00f3lans. <\/p>\n<p>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 14. til 22. j\u00fan\u00ed a\u00f0 H\u00fanavallask\u00f3la \u00ed Austur-H\u00fanavatnss\u00fdslu<\/p>\n<p>Sk\u00f3lasetning er laugardaginn 14. j\u00fan\u00ed kl. 9.00 og hefjast n\u00e1mskei\u00f0in strax \u00fear \u00e1 eftir. Nemendur eru velkomnir a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum kv\u00f6ldi\u00f0 fyrir sk\u00f3lasetningu, fr\u00e1 kl. 20.00, ekki er bo\u00f0i\u00f0 upp\u00e1 kv\u00f6ldver\u00f0. Sk\u00f3laslit eru kl. 12.00 sunnudaginn 22. j\u00fan\u00ed. Vi\u00f0urkenningarskj\u00f6l og merki sk\u00f3lans ver\u00f0a afhent vi\u00f0 sk\u00f3laslit.<br \/>A\u00f0sta\u00f0a a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum: Svefnherbergin eru b\u00fain 2 r\u00famum \u00e1n r\u00famfata,sk\u00e1p, litlu bor\u00f0i og tveim st\u00f3lum. G\u00f3\u00f0um d\u00fdnum ver\u00f0ur b\u00e6tt inn \u00e1 st\u00e6rstu herbergin og \u00feau \u00feannig ger\u00f0 \u00feriggja manna. Nemendur hafi me\u00f0 s\u00e9r handkl\u00e6\u00f0i, s\u00e6ng og kodda \u00e1samt r\u00famf\u00f6tum, e\u00f0a svefnpoka. Sundlaug og heitur pottur eru \u00e1 sta\u00f0num. Haldi\u00f0 ver\u00f0ur lokah\u00f3f s\u00ed\u00f0asta kv\u00f6ldi\u00f0 \u00fear sem f\u00f3lk kl\u00e6\u00f0ir sig upp\u00e1, kve\u00f0ur kennarana s\u00edna og skemmtir hvert \u00f6\u00f0ru me\u00f0 dansi og s\u00f6ng.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald \u00e1 \u00f6ll n\u00e1mskei\u00f0in er kr.78.000. Gjaldi\u00f0 skal vera a\u00f0 fullu greitt 10 d\u00f6gum fyrir sk\u00f3lasetningu. Innifali\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1ttt\u00f6kugjaldi er gisting, matur, kennsla og g\u00f6gn.<\/p>\n<p>Sta\u00f0festingargjald er kr. 35.000. \u00dea\u00f0 grei\u00f0ist vi\u00f0 skr\u00e1ningu og er \u00f3endurkr\u00e6ft nema gegn framv\u00edsun l\u00e6knisvottor\u00f0s. Grei\u00f0a skal inn \u00e1 reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239 og l\u00e1ta senda sta\u00f0festingu \u00e1 info@leiklist.is. H\u00e6gt er a\u00f0 grei\u00f0a me\u00f0 grei\u00f0slukorti s\u00edmlei\u00f0is.<\/p>\n<p>Me\u00f0limum a\u00f0ildarf\u00e9laga Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga er bent \u00e1 a\u00f0 f\u00e9l\u00f6gin geta s\u00f3tt um sm\u00e1 styrk til Bandalagsins ef \u00feau senda nemendur \u00ed sk\u00f3lann.<\/p>\n<p>Ums\u00f3knum skal skila fyrir 15. apr\u00edl \u00e1 netfangi\u00f0 <a href=\"mailto:info@leiklist.is\">info@leiklist.is<\/a> og um lei\u00f0 \u00fearf a\u00f0 leggja sta\u00f0festingargjaldi\u00f0, kr. 35.000.- inn \u00e1 334-26-5463, kt. 440169-0239. Eftirtaldar uppl\u00fdsingar \u00fearf a\u00f0 senda \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti: Hva\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja um, nafn ums\u00e6kjanda, kennitala, heimilisfang, p\u00f3stn\u00famer, b\u00e6jarf\u00e9lag, netfang og s\u00edman\u00famer. \u00dear sem krafist er undirb\u00faningsn\u00e1mskei\u00f0a e\u00f0a reynslu skal l\u00e1ta ferilskr\u00e1 fylgja ums\u00f3kn.<\/p>\n<p>Sk\u00f3lameistarar eru \u00ad\u00ad D\u00fdrleif J\u00f3nsd\u00f3ttir<a href=\"mailto:dillajons@simnet.is\"> <\/a>og Hrefna Fri\u00f0riksd\u00f3ttir.<\/p>\n<p>B\u00e6klingur sk\u00f3lans starfs\u00e1ri\u00f0 2014 er<a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2005\/06\/Menntun_Skolinn_Skoli2014_leiklistarskolibil2014.pdf\"> <\/a><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2005\/06\/Menntun_Skolinn_Skoli2014_leiklistarskolibil2014.pdf\">h\u00e9r \u00e1 PDF formi.<\/a><\/p>\n<hr \/>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-4494\" width=\"150\" height=\"190\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2014_agustavefur.jpg\" alt=\"agustavefur\" style=\"margin: 12px; float: left;\" \/><strong>N\u00e1mskei\u00f0 1<\/strong><\/p>\n<p><strong>Leiklist I \u2013 Grunnn\u00e1mskei\u00f0<\/strong><br \/><strong>Kennari \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er grunnn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara og \u00feeir ganga fyrir sem ekki hafa s\u00f3tt Leiklist I. N\u00e6sta sumar ver\u00f0ur haldi\u00f0 framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 sem byggir \u00e1 \u00feessu n\u00e1mskei\u00f0i.<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu ver\u00f0ur fari\u00f0 \u00ed grunnatri\u00f0i \u00ed list leikarans. L\u00f6g\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1hersla \u00e1 a\u00f0 leysa \u00far vi\u00f0jum frumorku, einl\u00e6gni og sk\u00f6punargle\u00f0i, samband leikarans vi\u00f0 sj\u00e1lfan sig, me\u00f0leikara og \u00e1horfendur. Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 l\u00edkamsbeitingu og texta og einnig ver\u00f0ur k\u00edkt \u00e1 mismunandi leika\u00f0fer\u00f0ir e\u00f0a leikst\u00edla eins og t.d. tr\u00fa\u00f0leik, harmleik, Bouffon og melodrama. Nemendur munu takast \u00e1 vi\u00f0 agann sem \u00fearf a\u00f0 vera til sta\u00f0ar \u00ed st\u00f3rum, st\u00edlf\u00e6r\u00f0um h\u00f3psenum en einnig ver\u00f0ur fari\u00f0 \u00ed spuna \u00ed sm\u00e6rri h\u00f3pum, tv\u00edleik og stuttum einleikjum.<\/p>\n<p>Mikilv\u00e6gi li\u00f0sheildar h\u00f3ps ver\u00f0ur r\u00edkjandi \u00fe\u00e1ttur n\u00e1mskei\u00f0sins \u00fev\u00ed \u00feegar hlustun og leikgle\u00f0i r\u00e1\u00f0a r\u00edkjum getur allt gerst!<\/p>\n<p>Mott\u00f3 n\u00e1mskei\u00f0sins: Einn fyrir alla \u2013 allir fyrir einn!!<\/p>\n<p><strong>\u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir<\/strong> stunda\u00f0i n\u00e1m \u00ed Par\u00eds og London og var um t\u00edma fastr\u00e1\u00f0in leikstj\u00f3ri hj\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu. H\u00fan hefur einnig unni\u00f0 \u00f6tullega me\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0um leikh\u00f3pum, \u00e1hugaleikf\u00e9l\u00f6gum og starfa\u00f0 hj\u00e1 \u00cdslensku \u00d3perunni. Leiks\u00fdningar undir hennar stj\u00f3rn hj\u00e1 \u00e1hugaf\u00e9l\u00f6gum hafa veri\u00f0 valdar til \u00feess a\u00f0 fara \u00e1 leiklistarh\u00e1ti\u00f0ir v\u00ed\u00f0a um heim, t.d til M\u00f3nak\u00f3, Lith\u00e1en, Su\u00f0ur K\u00f3reu, Lettlands og v\u00ed\u00f0ar.&nbsp; <br \/>S\u00fdningar hennar \u00ed atvinnuleikh\u00fasum hafa fengi\u00f0 fj\u00f6lda tilnefninga til Gr\u00edmu ver\u00f0launanna og tv\u00e6r \u00feeirra, Klaufar og k\u00f3ngsd\u00e6tur (2005) og B\u00f3lu Hj\u00e1lmar (2009) hlutu Gr\u00edmuna sem barnas\u00fdning \u00e1rsins.&nbsp; <br \/>\u00c1g\u00fasta hefur haldi\u00f0 fj\u00f6lm\u00f6rg n\u00e1mskei\u00f0, t.d. \u00ed F\u00e6reyjum og hj\u00e1 Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<br \/>\u00deetta er \u00ed \u00e1ttunda sinn sem \u00c1g\u00fasta kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<hr \/>\n<p> <img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-4495\" width=\"150\" height=\"202\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2014_runar_vefur.jpg\" alt=\"runar_vefur\" style=\"margin: 12px; float: left;\" \/><strong>N\u00e1mskei\u00f0 2<\/strong> <\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><strong>Leiklist \u2013 S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0<\/strong><br \/><strong>Kennari R\u00fanar Gu\u00f0brandsson<\/strong><\/p>\n<p><strong>S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed leiklist, \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem s\u00f3tt hafa Leiklist I og II og e\u00f0a samb\u00e6rileg grunnn\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a hafa umtalsver\u00f0a reynslu af svi\u00f0sleik.<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu ver\u00f0a kynntir mismunandi leikst\u00edlar og \u00f3l\u00edkar a\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 a\u00f0 greina og t\u00falka leikverk. N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 hluta til fr\u00e6\u00f0ilegt, en einkum \u00fe\u00f3 verklegt. \u00de\u00e1tttakendum ver\u00f0a sendar stuttar senur til a\u00f0 kynna s\u00e9r (og helst a\u00f0 l\u00e6ra utana\u00f0) \u00e1\u00f0ur en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hefst. Hver dagur hefst s\u00ed\u00f0an \u00e1 fyrirlestri, fyrirspurnum og umr\u00e6\u00f0um um tiltekinn leikst\u00edl, \u00fev\u00ed n\u00e6st ver\u00f0ur vorksjoppa\u00f0 \u00ed nokkra stund, \u00fear sem allur h\u00f3purinn vinnur saman me\u00f0 \u00e6fingar og hugmyndir tengdar vi\u00f0komandi leikst\u00edl.<\/p>\n<p>Seinni partinn vinnur f\u00f3lk \u00ed sm\u00e6rri h\u00f3pum og p\u00f6rum me\u00f0 \u00e1\u00f0urnefndar senur og spreytir sig \u00e1 a\u00f0 beita \u00feeim hugmyndum sem kynntar hafa veri\u00f0. \u00cd lok dagsins ver\u00f0ur svo afraksturinn sko\u00f0a\u00f0ur og r\u00e6ddur. S\u00ed\u00f0ustu dagana vinnur svo hver h\u00f3pur (p\u00f6r) eina senu \u00ed einum tilteknum st\u00edl og flytur hana a\u00f0 lokum fyrir \u00e1horfendur.<\/p>\n<p>\u00deeir leikst\u00edlar sem unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0: Commedia dellarte. Kerfi Stanislavskys (Stanislavskys system) og amer\u00edska met\u00f3\u00f0an (The American method, t.d. hugmyndir Lee Strassberg, Stellu Adler, Sanford Meisner). Leikst\u00edll Bertolds Brecht (Ep\u00edska leikh\u00fasi\u00f0). F\u00e1t\u00e6ka leikh\u00fasi\u00f0, (Jerzy Grotowski). Dansleikh\u00fas. &#8230; og hugsanlega eitthva\u00f0 fleira. Auk leikatri\u00f0anna munu \u00fe\u00e1tttakendur f\u00e1 lesefni til fr\u00f3\u00f0leiks og er \u00e6skilegt a\u00f0 \u00fe\u00e1tttakendur s\u00e9u l\u00e6sir \u00e1 enska tungu.<\/p>\n<p><strong>R\u00fanar Gu\u00f0brandsson<\/strong> nam upphaflega leiklist \u00ed Danm\u00f6rku og starfa\u00f0i \u00fear sem leikari um \u00e1rabil, me\u00f0 \u00fdmsum leikh\u00f3pum. Frekari \u00fej\u00e1lfun hlaut hann m.a. hj\u00e1 Odin leikh\u00fasinu \u00ed Holsterbro, hj\u00e1 leikh\u00f3pi Jerzy Grotowskis \u00ed Wroclaw \u00ed P\u00f3llandi, Dario Fo \u00e1 \u00cdtal\u00edu, Jury Alschitz \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og v\u00ed\u00f0ar, og Anatoly Vasiliev \u00ed Moskvu. R\u00fanar lauk MA og MPhil gr\u00e1\u00f0um \u00ed leiklistarfr\u00e6\u00f0um og leikstj\u00f3rn fr\u00e1 De Montfort h\u00e1sk\u00f3lanum \u00ed Leicester \u00e1 Englandi og hefur loki\u00f0 fyrri hluta doktorsn\u00e1ms \u00ed fr\u00e6\u00f0unum. Hann hefur leikst\u00fdrt fj\u00f6lda leiks\u00fdninga h\u00e9rlendis og erlendis og fengist vi\u00f0 leiklistarkennslu og \u00fej\u00e1lfun leikara v\u00ed\u00f0a \u00ed Evr\u00f3pu. R\u00fanar var fyrsti pr\u00f3fessor \u00ed leikt\u00falkun vi\u00f0 Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Hann hefur reki\u00f0 leiksmi\u00f0juna Lab Loka s\u00ed\u00f0an 1992, stj\u00f3rna\u00f0 \u00fej\u00e1lfun h\u00f3psins og st\u00fdrt flestum verkefnum hans h\u00e9rlendis og erlendis. Hann hefur auk \u00feess fengist vi\u00f0 \u00fdmis konar tilraunastarfsemi \u00e1 vettvangi kvikmynda og gj\u00f6rningalistar. <br \/>\u00deetta er \u00ed sj\u00f6tta sinn sem R\u00fanar kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<hr \/>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-4496\" width=\"150\" height=\"203\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/Menntun_Skolinn_Skoli2014_kalli_vefur.jpg\" alt=\"kalli_vefur\" style=\"margin: 12px; float: left;\" \/><strong>N\u00e1mskei\u00f0 3<\/strong><\/p>\n<p><strong>Leikritun II \u2013 Grunnn\u00e1mskei\u00f0<\/strong><br \/><strong>Kennari Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson<\/strong><\/p>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem hafa s\u00f3tt Leikritun I e\u00f0a samb\u00e6rilegt n\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a hafa umtalsver\u00f0a reynslu af ritun og vinnslu leiktexta. Einkum eru \u00feeir sem eru me\u00f0 verk \u00ed sm\u00ed\u00f0um, hvort sem \u00fea\u00f0 er komi\u00f0 langt \u00e1 veg e\u00f0a skammt, hvattir til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed n\u00e1mskei\u00f0inu og n\u00fdta s\u00e9r j\u00e1kv\u00e6tt, skapandi og sty\u00f0jandi andr\u00famsloft.<\/strong><\/p>\n<p>Rifja\u00f0ar ver\u00f0a upp helstu grunnreglur leikritsins, en jafnframt fari\u00f0 alln\u00e1i\u00f0 \u00ed undirb\u00faningsvinnu h\u00f6fundarins, byggingarefni s\u00f6gunnar og uppbyggingu lengri verka. Burts\u00e9\u00f0 fr\u00e1 lengd verkanna sem h\u00f6fundar ver\u00f0a me\u00f0 \u00ed sm\u00ed\u00f0um munum vi\u00f0 a\u00f0 endingu velja hluta hvers verks fyrir sig til fullvinnslu \u00ed samvinnu vi\u00f0 leikara og leikstj\u00f3ra.<\/p>\n<p><strong>Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson<\/strong> lauk n\u00e1mi vi\u00f0 Leiklistarsk\u00f3la \u00cdslands 1981 og meistaragr\u00e1\u00f0u \u00ed leikritun og handritager\u00f0 fr\u00e1 Ohio University 1994. Hann hefur starfa\u00f0 sem leikari, leikstj\u00f3ri, \u00fe\u00fd\u00f0andi og h\u00f6fundur vi\u00f0 \u00edslensk og erlend leikh\u00fas, \u00fatvarp, sj\u00f3nvarp og kvikmyndir \u00ed yfir 30 \u00e1r. Karl stofna\u00f0i Spaugstofuna \u00e1samt f\u00e9l\u00f6gum s\u00ednum \u00e1ri\u00f0 1985 og hefur s\u00ed\u00f0an skrifa\u00f0 h\u00e1tt \u00e1 fimmta hundra\u00f0 handrit a\u00f0 sj\u00f3nvarps- og \u00fatvarps\u00fe\u00e1ttum. Leikrit og s\u00f6ngleikir eftir hann hafa veri\u00f0 sett \u00e1 svi\u00f0 b\u00e6\u00f0i austan hafs og vestan. Hann hefur einnig kennt skapandi skrif og leikritun vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, Leiklistarsk\u00f3la F\u00e6reyja og Mesa State College \u00ed Colorado. \u00deetta er \u00ed fj\u00f3r\u00f0a sinn sem Karl \u00c1g\u00fast kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<hr \/>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p style=\"text-align: center;\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-full wp-image-3681\" width=\"400\" height=\"127\" alt=\"hunavellir\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir.jpg\" srcset=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir.jpg 2256w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-600x191.jpg 600w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-300x95.jpg 300w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-1024x325.jpg 1024w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-768x244.jpg 768w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-1536x488.jpg 1536w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-2048x651.jpg 2048w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-1080x343.jpg 1080w\" sizes=\"auto, (max-width: 400px) 100vw, 400px\" \/><\/p>\n<p style=\"text-align: center;\">H\u00fanavallask\u00f3li, e\u00f0a H\u00f3tel H\u00fanavellir eins og hann heitir \u00e1 sumrin, er   sta\u00f0settur \u00ed H\u00fanavatnshreppi \u00ed Austur-H\u00fanavatnss\u00fdslu. \u00deanga\u00f0 eru 239   km. fr\u00e1 Reykjav\u00edk, 118 e\u00f0a 156 km. fr\u00e1 Akureyri (eftir \u00fev\u00ed hva\u00f0a lei\u00f0 er   farin) og fjarl\u00e6g\u00f0in fr\u00e1 Bl\u00f6ndu\u00f3si er um 15 km.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-full wp-image-3682\" width=\"500\" height=\"399\" alt=\"kort\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_kort.jpg\" style=\"display: block; margin-left: auto; margin-right: auto;\" \/><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 14. til 22. j\u00fan\u00ed a\u00f0 H\u00fanavallask\u00f3la \u00ed Austur-H\u00fanavatnss\u00fdslu. Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann hefst 15. mars og stendur til til 15. apr\u00edl. \u00cd \u00e1r er \u00fea\u00f0 markmi\u00f0 okkar a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 fj\u00f6lbreytt n\u00e1mskei\u00f0 fyrir byrjendur jafnt sem og \u00fe\u00e1 sem vilja treysta enn frekar \u00feekkingu s\u00edna og reynslu. Til [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":12,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[190],"tags":[],"class_list":["post-4497","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-skn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4497","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4497"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4497\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4497"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4497"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4497"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}