{"id":4492,"date":"2014-03-03T09:32:45","date_gmt":"2014-03-03T09:32:45","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=4492"},"modified":"2014-03-03T09:32:45","modified_gmt":"2014-03-03T09:32:45","slug":"farsi-i-freyvangi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/farsi-i-freyvangi\/","title":{"rendered":"Farsi \u00ed Freyvangi"},"content":{"rendered":"<p><strong>Freyvangsleikh\u00fasi\u00f0<\/strong><br \/><strong>\u00deorskur \u00e1 \u00feurru landi<\/strong><br \/><strong>H\u00f6fundar Karl Tiedemann og Allen Lewis Rickman<\/strong><br \/><strong>Leikstj\u00f3ri og \u00fe\u00fd\u00f0andi Dan\u00edel Freyr J\u00f3nsson<\/strong><\/p>\n<p>Freyvangsleikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdndi amer\u00edskan farsa fimmtudaginn 20. febr\u00faar og er h\u00e9r um \u00cdslandsfrums\u00fdningu a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, en leikstj\u00f3ri s\u00fdningarinnar, Dan\u00edel Freyr J\u00f3nsson, \u00fe\u00fdddi leikriti\u00f0 og sta\u00f0f\u00e6r\u00f0i a\u00f0 hluta. Og ma\u00f0ur ver\u00f0ur ekki svikinn af kv\u00f6ldskemmtun \u00ed Freyvangi n\u00fa frekar en fyrri daginn \u00fe\u00f3tt sannarlega hafi stundum veri\u00f0 r\u00e1\u00f0ist \u00ed metna\u00f0arfyllri s\u00fdningar \u00fear \u00e1 b\u00e6.<\/p>\n<p \/>  <!--more-->  <\/p>\n<p>\u201e\u00deorskur \u00e1 \u00feurru landi\u201d, en svo heitir leikriti\u00f0, gerist \u00ed b\u00fasta\u00f0 breska sendiherrans hj\u00e1 Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0unum \u00ed New York seint \u00e1 sj\u00f6tta \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar. \u201e\u00dear segir fr\u00e1 vanh\u00e6fum breskum sendiherra sem \u00fearf a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 sendifulltr\u00faa fr\u00e1 sm\u00e1r\u00edki sem Bretar eiga \u00ed fiskvei\u00f0ideilu vi\u00f0\u201d\u00a0 &#8211;\u00a0 eins og segir \u00ed leikskr\u00e1. En auk \u00feeirrar gl\u00edmu \u00fearf sendiherrann einnig a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 eigin breyskleika og einfeldningsh\u00e1tt sem dregur \u00fdmsa dilka \u00e1 eftir s\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00cd \u00fe\u00fd\u00f0ingu Dan\u00edels Freys er sm\u00e1r\u00edki\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 \u00cdsland og sendifulltr\u00fainn Hans G. Andr\u00e9sson, br\u00e1\u00f0snj\u00f6ll sta\u00f0f\u00e6rsla sem gengur algerlega upp. Og eins og farsa s\u00e6mir, sn\u00fdst h\u00e9r allt um hagr\u00e6\u00f0ingu sannleikans, jafnvel skr\u00f6k, misskilning og vandr\u00e6\u00f0agang \u201e .. og \u00edslenski sendifulltr\u00fainn tapar b\u00e6\u00f0i r\u00e6nunni og f\u00f6tunum s\u00ednum\u201d eins og segir l\u00edka \u00ed leikskr\u00e1. Sumt er nokku\u00f0 fyrirsj\u00e1anlegt \u00ed atbur\u00f0ar\u00e1sinni, en anna\u00f0 skemmtilega \u00f3v\u00e6nt og glimrandi flott, en s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0urinn ver\u00f0ur ekki rakinn h\u00e9r.<\/p>\n<p>Umgj\u00f6r\u00f0 s\u00fdningarinnar er g\u00f3\u00f0, svi\u00f0i\u00f0 r\u00famgott, l\u00fdsing \u00e1g\u00e6t og svi\u00f0smynd einf\u00f6ld og tr\u00faver\u00f0ug nema kannski innanstokksmunir sem t\u00e6plega h\u00e6fa sendiherraskrifstofu \u00fe\u00f3tt g\u00f6mul s\u00e9. B\u00faningar og \u00f6nnur leikgervi \u00ed besta lagi og heildarmynd s\u00fdningarinnar \u00e1g\u00e6t.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-4491\" style=\"margin: 12px; float: right;\" alt=\"orskur2\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2014\/03\/Adildarfelog_Nordur_Freyvangur_13_14_orskur2.jpg\" height=\"225\" width=\"150\" \/>Eitt af \u00fev\u00ed sem einkennir farsa er mikill hra\u00f0i og \u00fe\u00e9tt atbur\u00f0ar\u00e1s. Takist vel til \u00fear, er h\u00e1lfur leiksigur unninn. Og \u00fear t\u00f3kst leikurum vel til. \u00deeir h\u00e9ldu fullri fer\u00f0 og spennu s\u00fdninguna alla og au\u00f0s\u00e9\u00f0 a\u00f0 leikstj\u00f3rinn hefur ekki gefi\u00f0 neitt eftir hva\u00f0 \u00feetta var\u00f0ar og almennt st\u00f3\u00f0u leikarar sig vel.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 er ekkert spaug a\u00f0 leika gr\u00edn. Haukur Gu\u00f0j\u00f3nsson leikur hinn vanh\u00e6fa sendiherra sem situr \u00ed skj\u00f3li tengdaf\u00f6\u00f0ur s\u00edns. Haukur gerir margt vel og heldur karakter alla s\u00fdninguna, en m\u00e6tti vera svol\u00edti\u00f0 m\u00fdkri og yfirvega\u00f0ri \u00ed fumi og vandr\u00e6\u00f0agangi sendiherrans. Fr\u00fa hans leikur Anna Mar\u00eda Hj\u00e1lmarsd\u00f3ttir, ekki mj\u00f6g skemmtilegt hlutverk, en Anna leikur \u00fea\u00f0 \u00e1g\u00e6tlega. Kokk sendiherrans leikur Svanur J\u00f3hannesson af stakri pr\u00fd\u00f0i. Hannes \u00d6rn Blandon fer \u00e1 kostum sem \u00edslenski sendifulltr\u00fainn Hans G. Andr\u00e9sson. \u00dea\u00f0 er svo sem ekki n\u00fd b\u00f3la a\u00f0 Hannes \u00d6rn vinni leiksigra, hann gerir \u00fea\u00f0 n\u00e6r undantekningarlaust \u00feegar hann st\u00edgur \u00e1 svi\u00f0, ekki s\u00edst \u00feegar hlutverkin henta honum svo vel sem \u00ed \u00feetta skipti. En \u00fea\u00f0 er l\u00edka eins og \u00f6ll hlutverk henti Hannesi vel, l\u00edklega vegna \u00feess hversu mikill afbrag\u00f0s leikari hann er. \u00d6nnur hlutverk eru sm\u00e6rri \u00ed sni\u00f0um en \u00e1g\u00e6tlega af hendi leyst af \u00feeim Hj\u00e1lmari Arinbjarnarsyni, \u00der\u00e1ni Ing\u00f3lfssyni, Hafd\u00edsi \u00deorbj\u00f6rnsd\u00f3ttur og \u00dalfhildi \u00d6rn\u00f3lfsd\u00f3ttur.<\/p>\n<p>Freyvangsleikh\u00fasi\u00f0 \u00e1 s\u00ednar dj\u00fapu r\u00e6tur \u00ed eyfirskri al\u00fe\u00fd\u00f0umenningu \u00fe\u00f3tt gr\u00e6\u00f0lingarnir s\u00e9u farnir a\u00f0 spretta upp v\u00ed\u00f0ar. \u00dea\u00f0 er mikill s\u00f3mi a\u00f0 \u00fev\u00ed hversu vel sveitarf\u00e9lagi\u00f0 sty\u00f0ur vi\u00f0 \u00feetta \u00f6fluga, en \u00fe\u00f3 svo vi\u00f0kv\u00e6ma menningarstarf me\u00f0 hinni g\u00f3\u00f0u a\u00f0st\u00f6\u00f0u og umgj\u00f6r\u00f0 sem leikh\u00fasinu er b\u00fain \u00ed Freyvangi. \u00deanga\u00f0 er alltaf gaman a\u00f0 koma og \u00f3\u00fearfi a\u00f0 l\u00e1ta s\u00e9r lei\u00f0ast heima ef ma\u00f0ur \u00e1 kost \u00e1 skemmtilegri kv\u00f6ldstund me\u00f0 Freyvangsleikh\u00fasinu. Takk fyrir skemmtunina!<\/p>\n<p style=\"text-align: right;\">Stein\u00fe\u00f3r \u00der\u00e1insson.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Freyvangsleikh\u00fasi\u00f0\u00deorskur \u00e1 \u00feurru landiH\u00f6fundar Karl Tiedemann og Allen Lewis RickmanLeikstj\u00f3ri og \u00fe\u00fd\u00f0andi Dan\u00edel Freyr J\u00f3nsson Freyvangsleikh\u00fasi\u00f0 frums\u00fdndi amer\u00edskan farsa fimmtudaginn 20. febr\u00faar og er h\u00e9r um \u00cdslandsfrums\u00fdningu a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, en leikstj\u00f3ri s\u00fdningarinnar, Dan\u00edel Freyr J\u00f3nsson, \u00fe\u00fdddi leikriti\u00f0 og sta\u00f0f\u00e6r\u00f0i a\u00f0 hluta. Og ma\u00f0ur ver\u00f0ur ekki svikinn af kv\u00f6ldskemmtun \u00ed Freyvangi n\u00fa frekar en fyrri daginn [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":4461,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-4492","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4492","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4492"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4492\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/4461"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4492"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4492"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4492"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}