{"id":4139,"date":"2013-03-18T13:00:46","date_gmt":"2013-03-18T13:00:46","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=4139"},"modified":"2013-03-18T13:00:46","modified_gmt":"2013-03-18T13:00:46","slug":"gaesahue-a-melum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/gaesahue-a-melum\/","title":{"rendered":"G\u00e6sah\u00fa\u00f0 \u00e1 Melum"},"content":{"rendered":"<p><strong>Leikf\u00e9lag H\u00f6rgd\u00e6la<\/strong><br \/><strong>Dj\u00e1kninn \u00e1 Myrk\u00e1<\/strong><br \/><strong>H\u00f6fundur og leikstj\u00f3ri: J\u00f3n Gunnar \u00de\u00f3r\u00f0arson<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er langt \u00ed fr\u00e1 lei\u00f0inlegt a\u00f0 dusta ryki\u00f0 af g\u00f3\u00f0um drauga- og \u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6gum okkar \u00cdslendinga, rifja \u00fe\u00e6r upp og kynna fyrir n\u00fdjum kynsl\u00f3\u00f0um. \u00c1 Melum \u00ed H\u00f6rg\u00e1rdal b\u00fd\u00f0ur Leikf\u00e9lag H\u00f6rgd\u00e6la upp \u00e1 s\u00f6guna af dj\u00e1knanum \u00e1 Myrk\u00e1, s\u00f6gu sem flestir kannast vi\u00f0 og ger\u00f0ist \u00ed H\u00f6rg\u00e1rdalnum.<\/p>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<p>H\u00f6fundur verksins, og jafnframt leikstj\u00f3ri s\u00fdningarinnar, J\u00f3n Gunnar Th., prj\u00f3nar vi\u00f0 sj\u00e1lfa \u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6guna og vi\u00f0 s\u00f6gu kemur me\u00f0al annars tr\u00f6llskessan Geira, auk \u00feess sem heyra m\u00e1 brot \u00far Gullna hli\u00f0i Dav\u00ed\u00f0s Stefn\u00e1nssonar og erindi \u00far v\u00edsum Vatnsenda R\u00f3su. Til \u00feess a\u00f0 au\u00f0velda \u00e1horfendum a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 samhengi hlutanna gr\u00edpur h\u00f6fundurinn til \u00feess r\u00e1\u00f0s a\u00f0 hafa s\u00f6gumanninn M\u00e1na og \u00ferj\u00e1r kjaftakerlingar til \u00feess a\u00f0 sk\u00fdra framvinduna.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-4117\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"djakninn_gudrun\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2013\/03\/Adildarfelog_Nordur_Umf_Horgdaela_12_13_djakninn_gudrun.jpg\" height=\"300\" width=\"200\" \/>Leikarar \u00ed s\u00fdningunni eru vel \u00e1 annan tug, margir hverjir \u00ferautreyndir leikarar \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 leiklistin s\u00e9 ekki \u00feeirra lifibrau\u00f0. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 segjast alveg eins og er a\u00f0 h\u00f3purinn st\u00f3\u00f0 sig einstaklega vel \u00ed a\u00f0 mi\u00f0la \u00feessari \u00feekktu og dularfullu \u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6gu til \u00e1horfenda. Ekki er\u00a0 anna\u00f0 h\u00e6gt en a\u00f0 minnast h\u00e9r \u00e1 \u00cddu Irene Oddsd\u00f3ttur sem f\u00f3r me\u00f0 hlutverk Gu\u00f0r\u00fanar. \u00cdda t\u00falka\u00f0i hana af mikilli einl\u00e6gni og h\u00f3gv\u00e6r\u00f0, en s\u00fdndi jafnframt \u00e1 \u00e1hrifamikinn h\u00e1tt \u00fe\u00e1 togstreitu sem b\u00e6r\u00f0ist innra me\u00f0 henni. \u00deess utan s\u00f6ng h\u00fan \u00e1reynslulaust og fallega og n\u00e1\u00f0i \u00feannig til hjarta \u00e1horfenda. Sj\u00e1lfur dj\u00e1kninn var leikinn af Bjarna Karlssyni, sem f\u00f3rst \u00fea\u00f0 pr\u00fd\u00f0isvel \u00far hendi. \u00de\u00e1 s\u00fdndi Reynir Albert \u00de\u00f3r\u00f3lfsson, \u00ed hlutverki Lofts r\u00edka, mj\u00f6g sannf\u00e6randi leik og sama m\u00e1 segja um Ragnar \u00d6rn Arnarson \u00ed hlutverki s\u00e6ringarmannsins M\u00f3ra. Leikstj\u00f3rinn f\u00f3r \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 skopgera pers\u00f3nur P\u00e9turs biskups og Sveins dj\u00e1kna, sem leiknir voru af Sigur\u00f0i Baldvin Sverrissyni og Sigur\u00f0i Elvari Vi\u00f0arssyni. \u00deeir f\u00e9lagar kitlu\u00f0u hl\u00e1turtaugar \u00e1horfenda \u00f3spart me\u00f0 d\u00f6nskuslettum og tilheyrandi. Sindri Sn\u00e6r J\u00f3hannesson l\u00e9k h\u00e1rpr\u00fa\u00f0an gamlan blindan mann og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 feikna vel. A\u00f0rir leikarar st\u00f3\u00f0u sig einnig me\u00f0 pr\u00fd\u00f0i.<\/p>\n<p>Sk\u00fali Gautason samdi t\u00f3nlist og hlj\u00f3\u00f0mynd s\u00fdningarinnar, en t\u00f3nlistin er mj\u00f6g st\u00f3r hluti hennar og lifir undir flestum atri\u00f0unum. T\u00f3nlistin er fr\u00e1b\u00e6r og alltaf vi\u00f0eigandi, undirstrikar \u00fea\u00f0 sem veri\u00f0 er a\u00f0 segja \u00ed verkinu og b\u00fdr til magna\u00f0a stemningu \u00e1 k\u00f6flum, svo magna\u00f0a a\u00f0 g\u00e6sah\u00fa\u00f0in spratt fram \u00ed nokkrum \u00e1hrifamiklum atri\u00f0um. Leikmynd og l\u00fdsing haldast vel \u00ed hendur \u00fat alla s\u00fdninguna. Svi\u00f0i\u00f0 \u00e1 Melum er ekki st\u00f3rt, en \u00fea\u00f0 var me\u00f0 \u00f3l\u00edkindum hversu mikla d\u00fdpt \u00fea\u00f0 bau\u00f0 upp \u00e1 og hvernig h\u00f6fundum t\u00f3kst a\u00f0 skapa \u00f3l\u00edka heima \u00ed litlu r\u00fdmi. L\u00fdsingin \u00e1 \u00fear sinn \u00fe\u00e1tt og var h\u00fan afbrag\u00f0sg\u00f3\u00f0 og skapa\u00f0i mikla d\u00fdpt og \u00f3l\u00edka stemningu. \u00dea\u00f0 er einna helst a\u00f0 eitthva\u00f0 s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 finna b\u00faningum \u00ed s\u00fdningunni. S\u00f6gusvi\u00f0i\u00f0 er H\u00f6rg\u00e1rdalur \u00e1ri\u00f0 1394, en h\u00e6gt er a\u00f0 draga \u00ed efa a\u00f0 h\u00e1rau\u00f0ur bl\u00fandukj\u00f3ll hafi veri\u00f0 \u00ed eigu f\u00e1t\u00e6krar vinnukonu \u00e1 \u00feeim t\u00edma. \u00de\u00e1 voru b\u00faningar Sveins dj\u00e1kna og P\u00e9turs biskups \u00e1 H\u00f3lum heldur skrautlegir og minntu helst \u00e1 kl\u00e6\u00f0i p\u00e1fans \u00ed Vat\u00edkaninu.<\/p>\n<p>Ekki er anna\u00f0 h\u00e6gt en a\u00f0 \u00f3ska Leikf\u00e9lagi H\u00f6rgd\u00e6la til hamingju me\u00f0 gl\u00e6silega s\u00fdningu sem enginn \u00e6tti a\u00f0 l\u00e1ta fram hj\u00e1 s\u00e9r fara. St\u00e6rsta hei\u00f0urinn \u00e1 \u00fe\u00f3 a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u h\u00f6fundur verksins og leikstj\u00f3ri s\u00fdningarinnar, J\u00f3n Gunnar.<\/p>\n<p style=\"text-align: right;\"><em>S\u00f3lveig El\u00edn \u00de\u00f3rhallsd\u00f3ttir,<br \/>upphaflega birt me\u00f0 \u00ed Akureyri &#8211; Vikubla\u00f0i.<br \/>Birt me\u00f0 g\u00f3\u00f0f\u00faslegu leyfi h\u00f6fundar.<br \/><\/em><\/p>\n<p style=\"text-align: right;\"><em>i<br \/><\/em><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leikf\u00e9lag H\u00f6rgd\u00e6laDj\u00e1kninn \u00e1 Myrk\u00e1H\u00f6fundur og leikstj\u00f3ri: J\u00f3n Gunnar \u00de\u00f3r\u00f0arson \u00dea\u00f0 er langt \u00ed fr\u00e1 lei\u00f0inlegt a\u00f0 dusta ryki\u00f0 af g\u00f3\u00f0um drauga- og \u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6gum okkar \u00cdslendinga, rifja \u00fe\u00e6r upp og kynna fyrir n\u00fdjum kynsl\u00f3\u00f0um. \u00c1 Melum \u00ed H\u00f6rg\u00e1rdal b\u00fd\u00f0ur Leikf\u00e9lag H\u00f6rgd\u00e6la upp \u00e1 s\u00f6guna af dj\u00e1knanum \u00e1 Myrk\u00e1, s\u00f6gu sem flestir kannast vi\u00f0 og ger\u00f0ist \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":4116,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-4139","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4139","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4139"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4139\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/4116"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4139"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4139"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4139"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}