{"id":4129,"date":"2013-03-08T10:18:00","date_gmt":"2013-03-08T10:18:00","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=4129"},"modified":"2013-03-08T10:18:00","modified_gmt":"2013-03-08T10:18:00","slug":"leiklistarskoli-bandalagsins-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/leiklistarskoli-bandalagsins-2013\/","title":{"rendered":"Leiklistarsk\u00f3li Bandalagsins 2013"},"content":{"rendered":"<p>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 8. til 16. j\u00fan\u00ed a\u00f0 H\u00fanavallask\u00f3la \u00ed Austur-H\u00fanavatnss\u00fdslu.<strong> <\/strong>Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann hefst 15. mars og stendur til til 15. apr\u00edl.<strong>\u00a0<\/strong> <\/p>\n<p>Fj\u00f6gur n\u00e1mskei\u00f0 ver\u00f0a \u00ed bo\u00f0i a\u00f0 \u00feessu sinni. \u00cd takt vi\u00f0  traustar hef\u00f0ir leggjum vi\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 byggja ofan \u00e1 g\u00f3\u00f0an grunn sem  \u00feegar hefur veri\u00f0 lag\u00f0ur auk \u00feess a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 n\u00fd og spennandi  t\u00e6kif\u00e6ri. \u00cd fyrra kynnti \u00c1rni P\u00e9tur Gu\u00f0j\u00f3nsson t\u00f6fraheim leiklistarinnar  fyrir n\u00fdli\u00f0um og hann kemur aftur \u00ed sumar me\u00f0 framhald, Leiklist II.  Reyndari leikurum bj\u00f3\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 kynnast spennandi a\u00f0fer\u00f0um \u00de\u00f3reyjar  Sig\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttur sem hefur umtalsver\u00f0a menntun og reynslu sem leikari og  leiklistarkennari. \u00de\u00e1 f\u00e1um vi\u00f0 R\u00fanar Gu\u00f0brandsson til li\u00f0s vi\u00f0 okkur og  bj\u00f3\u00f0um upp \u00e1 s\u00e9rstaklega \u00e1hugavert og krefjandi framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 fyrir  \u00feann vaxandi h\u00f3p sem hefur loki\u00f0 grunnn\u00e1mskei\u00f0um \u00ed leikstj\u00f3rn. S\u00ed\u00f0ast en  ekki s\u00edst mun Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson lei\u00f0beina upprennandi st\u00f3rsk\u00e1ldum um  leyndard\u00f3ma leikritunar.<\/p>\n<p>B\u00e6klingur sk\u00f3lans starfs\u00e1ri\u00f0 2013 er <a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2005\/06\/BIL_Skolinn_2013_leiklistarskolibil2013.pdf\">h\u00e9r \u00e1 PDF formi.<\/a><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><strong>Leiklistarsk\u00f3li Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga 2013<\/strong><\/p>\n<p><em>Kve\u00f0ja fr\u00e1 sk\u00f3lanefnd:<\/em><\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-3677\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"skolanefnd\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_skolanefnd.png\" height=\"129\" width=\"498\" srcset=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_skolanefnd.png 498w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_skolanefnd-300x78.png 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 498px) 100vw, 498px\" \/><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>K\u00e6ru leiklistarunnendur<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er okkur mikil \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a ykkur velkomin a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum \u00ed sumar \u00fear sem Leiklistarsk\u00f3li Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga ver\u00f0ur settur \u00ed sautj\u00e1nda sinn laugardaginn 8. j\u00fan\u00ed 2013.<\/p>\n<p>A\u00f0 \u00feessu sinni munu \u00f3l\u00edkir \u00fe\u00e6ttir leikh\u00fassins aldeilis bl\u00f3mstra \u00ed \u00f6llum hornum a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum \u00fev\u00ed n\u00fa ver\u00f0a fj\u00f6gur n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed bo\u00f0i. \u00cd takt vi\u00f0 traustar hef\u00f0ir leggjum vi\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 byggja ofan \u00e1 g\u00f3\u00f0an grunn sem \u00feegar hefur veri\u00f0 lag\u00f0ur auk \u00feess a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 n\u00fd og spennandi t\u00e6kif\u00e6ri. \u00cd fyrra kynnti \u00c1rni P\u00e9tur Gu\u00f0j\u00f3nsson t\u00f6fraheim leiklistarinnar fyrir n\u00fdli\u00f0um og hann kemur aftur \u00ed sumar me\u00f0 framhald, Leiklist II. Reyndari leikurum bj\u00f3\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 kynnast spennandi a\u00f0fer\u00f0um \u00de\u00f3reyjar Sig\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttur sem hefur umtalsver\u00f0a menntun og reynslu sem leikari og leiklistarkennari. \u00de\u00e1 f\u00e1um vi\u00f0 R\u00fanar Gu\u00f0brandsson til li\u00f0s vi\u00f0 okkur og bj\u00f3\u00f0um upp \u00e1 s\u00e9rstaklega \u00e1hugavert og krefjandi framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 fyrir \u00feann vaxandi h\u00f3p sem hefur loki\u00f0 grunnn\u00e1mskei\u00f0um \u00ed leikstj\u00f3rn. S\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst mun Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson lei\u00f0beina upprennandi st\u00f3rsk\u00e1ldum um leyndard\u00f3ma leikritunar.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 vonum a\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 ekki \u00fea\u00f0 happ \u00far hendi sleppa a\u00f0 kynnast \u00feessum \u00farvalskennurum og nj\u00f3ta \u00feess sem \u00feeir hafa upp \u00e1 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a.<\/p>\n<p>Hl\u00f6kkum miki\u00f0 til a\u00f0 sj\u00e1 ykkur &#8211; me\u00f0 bestu kve\u00f0ju<br \/>Hrefna, D\u00fdrleif, Gunnhildur, Herd\u00eds og Hrund.<\/p>\n<hr \/>\n<p>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 8. til 16. j\u00fan\u00ed a\u00f0 H\u00fanavallask\u00f3la \u00ed Austur-H\u00fanavatnss\u00fdslu<\/p>\n<p><strong>Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann stendur yfir fr\u00e1 15. mars til 15. apr\u00edl.<\/strong> Reglan \u201efyrstur kemur \u2013 fyrstur f\u00e6r\u201c gildir vi\u00f0 skr\u00e1ningar gegn   grei\u00f0slu sta\u00f0festingargjalds, kr. 35.000 ef innt\u00f6kuskilyr\u00f0um er fulln\u00e6gt   a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti. N\u00e1ist ekki \u00e1s\u00e6ttanlegur fj\u00f6ldi \u00e1 eitthvert n\u00e1mskei\u00f0anna   fellur \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur. Aldurstakmark \u00ed sk\u00f3lann er 18 \u00e1r. Sk\u00f3linn hefur sett   s\u00e9r reglur, m.a. um umgengni, reykingar og \u00e1fengisneyslu, sem nemendur   sam\u00feykkja a\u00f0 fara eftir \u00e1 starfst\u00edma sk\u00f3lans.<\/p>\n<p><em><strong>Ums\u00f3kn \u00e1samt ferilskr\u00e1 \u00fear sem \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 skal senda \u00e1 netfangi\u00f0   <a href=\"mailto:info@leiklist.is\">info@leiklist.is<\/a> og leggja sta\u00f0festingargjaldi\u00f0 inn \u00e1 reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239<\/strong><\/em><\/p>\n<p>B\u00e6klingur sk\u00f3lans starfs\u00e1ri\u00f0 2013 er <a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2005\/06\/BIL_Skolinn_2013_leiklistarskolibil2013.pdf\">h\u00e9r \u00e1 PDF formi.<\/a><\/p>\n<p>Sk\u00f3lasetning er laugardaginn 8. j\u00fan\u00ed kl. 9.00 og hefjast n\u00e1mskei\u00f0in  strax \u00fear \u00e1 eftir. Nemendur eru velkomnir a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum kv\u00f6ldi\u00f0 fyrir  sk\u00f3lasetningu, fr\u00e1 kl. 20.00, ekki er bo\u00f0i\u00f0 upp\u00e1 kv\u00f6ldver\u00f0. Sk\u00f3laslit  eru kl. 12.00 sunnudaginn 16. j\u00fan\u00ed. Vi\u00f0urkenningarskj\u00f6l og merki sk\u00f3lans  ver\u00f0a afhent vi\u00f0 sk\u00f3laslit.<br \/>A\u00f0sta\u00f0a a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum: Svefnherbergin  eru b\u00fain 2 r\u00famum \u00e1n r\u00famfata, sk\u00e1p, litlu bor\u00f0i og tveim st\u00f3lum. G\u00f3\u00f0um  d\u00fdnum ver\u00f0ur b\u00e6tt inn \u00e1 st\u00e6rstu herbergin og \u00feau \u00feannig ger\u00f0 \u00feriggja  manna. Nemendur hafi me\u00f0 s\u00e9r handkl\u00e6\u00f0i, s\u00e6ng og kodda \u00e1samt r\u00famf\u00f6tum,  e\u00f0a svefnpoka. Sundlaug og heitur pottur eru \u00e1 sta\u00f0num. Haldi\u00f0 ver\u00f0ur  lokah\u00f3f s\u00ed\u00f0asta kv\u00f6ldi\u00f0 \u00fear sem f\u00f3lk kl\u00e6\u00f0ir sig upp\u00e1, kve\u00f0ur kennarana  s\u00edna og skemmtir hvert \u00f6\u00f0ru me\u00f0 dansi og s\u00f6ng.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald \u00e1 \u00f6ll n\u00e1mskei\u00f0in er kr. 73.500.-. Gjaldi\u00f0 skal vera a\u00f0  fullu greitt 10 d\u00f6gum fyrir sk\u00f3lasetningu. Innifali\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1ttt\u00f6kugjaldi er  gisting, matur, kennsla og g\u00f6gn.<\/p>\n<p>Sta\u00f0festingargjald allra er kr. 35.000 kr. \u00dea\u00f0 grei\u00f0ist vi\u00f0 skr\u00e1ningu  og er \u00f3endurkr\u00e6ft nema gegn framv\u00edsun l\u00e6knisvottor\u00f0s. H\u00e6gt er a\u00f0 grei\u00f0a  me\u00f0 grei\u00f0slukorti.<\/p>\n<p>Me\u00f0limum a\u00f0ildarf\u00e9laga Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga er bent \u00e1 a\u00f0  f\u00e9l\u00f6gin geta s\u00f3tt um sm\u00e1 styrk til Bandalagsins ef \u00feau senda nemendur \u00ed  sk\u00f3lann.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0 1<\/strong><\/p>\n<p><strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-4125\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"arni petur_vefur\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2013\/03\/BIL_Skolinn_2013_arni petur_vefur.jpg\" height=\"223\" width=\"150\" \/><\/strong><\/p>\n<p><strong>Leiklist II \u2013 Grunnn\u00e1mskei\u00f0<\/strong><br \/><strong>Kennari \u00c1rni P\u00e9tur Gu\u00f0j\u00f3nsson<\/strong><\/p>\n<p> \u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 73.500 <\/p>\n<p>T\u00edmi: 8. til 16. j\u00fan\u00ed 2013<br \/>Sta\u00f0ur: H\u00fanavallask\u00f3li<br \/>Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/p>\n<p><strong>\u00c1rni P\u00e9tur Gu\u00f0j\u00f3nsson<\/strong> stunda\u00f0i n\u00e1m vi\u00f0 R\u00edkisleiklistarsk\u00f3lann \u00ed Kaupmannah\u00f6fn, vi\u00f0 Leiklistarsk\u00f3la \u00cdslands og er me\u00f0 leiklistarkennaragr\u00e1\u00f0u fr\u00e1 Danm\u00f6rku. Hann hefur starfa\u00f0 sem leikari og leiklistarkennari um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld, m.a. \u00ed Leiklistarsk\u00f3la \u00edslands og Listdanssk\u00f3lanum.\u00a0 Starfa\u00f0i sem leikari vi\u00f0 Borgarleikh\u00fasi\u00f0 1989-2002. Er oft nefndur \u201eGu\u00f0fa\u00f0ir tilraunaleikh\u00fassins&#8220; enda veri\u00f0 me\u00f0 \u00ed e\u00f0a sta\u00f0i\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed markver\u00f0asta sem komi\u00f0 hefur fram \u00fear td. Vesturport, Lab Loki, Herbergi408.is og \u00ed \u00c1hugaleikh\u00fasi atvinnumanna. Sumari\u00f0 2011 var \u00c1rni P\u00e9tur tilnefndur til Gr\u00edmunar fyrir einleikinn \u201eSvikarinn&#8220; \u00ed uppsetningu R\u00fanars Gu\u00f0brandssonar.<br \/>\u00deetta er \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn sem \u00c1rni P\u00e9tur kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p><strong>Leiklist II er grunnn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem s\u00f3tt hafa Leiklist I. \u00deegar nemendur hafa s\u00f3tt b\u00e6\u00f0i grunnn\u00e1mskei\u00f0in geta \u00feeir s\u00f3tt \u00fdmis s\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 sem sk\u00f3linn heldur reglulega.<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu ver\u00f0ur a\u00f0al\u00e1herslan \u00e1 a\u00f0 kynna sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0 leikarans vi\u00f0 a\u00f0 n\u00e1lgast hlutverk og flytja \u00fea\u00f0 fyrir framan \u00e1horfendur. N\u00fdta sk\u00f6punarg\u00e1fu hvers og eins og finna styrk og veikleika. Svo a\u00f0 vinna me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fear til allir ver\u00f0a s\u00e1ttir. Nemendur f\u00e1 meiri leikstj\u00f3rn og gagnr\u00fdni \u00e1 \u00fea\u00f0 sem \u00feeir s\u00fdna en \u00e1 Leiklist I. Markmi\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 gera \u00fe\u00e1 a\u00f0 betri leikurum. Miki\u00f0 ver\u00f0ur unni\u00f0 me\u00f0 spuna og myndr\u00e6nar svi\u00f0setningar. H\u00e9r er ekki veri\u00f0 a\u00f0 vinna me\u00f0 \u00fatvarpsleik. \u00dea\u00f0 er sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00e6 fleiri leikstj\u00f3rar sem vinna t.d. me\u00f0 \u00e1hugaleikf\u00e9l\u00f6gum eru spenntir fyrir hreyfingum, sterkum leik og dansleikh\u00fastilbrig\u00f0um. Vi\u00f0 erum sem sagt a\u00f0 tala um: Bl\u00f3\u00f0, svita og t\u00e1r.<\/p>\n<p>Eftir skr\u00e1ningu f\u00e1 nemendur senda leiktexta sem unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0. Kennarinn ver\u00f0ur s\u00ed\u00f0an \u00ed sambandi vi\u00f0 nemendur til a\u00f0 koma \u00feeim af sta\u00f0 me\u00f0 undirb\u00faningsvinnu \u00e1\u00f0ur en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hefst svo \u00fea\u00f0 n\u00fdtist sem allra best.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0 2<\/strong><\/p>\n<p><strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-4126\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"runar_vefur\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2013\/03\/BIL_Skolinn_2013_runar_vefur.jpg\" height=\"202\" width=\"150\" \/><\/strong><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><strong>Leikstj\u00f3rn \u2013 S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0, Master Class<\/strong><br \/><strong>Kennari R\u00fanar Gu\u00f0brandsson<\/strong><\/p>\n<p>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 73.500<br \/>T\u00edmi: 8. til 16. j\u00fan\u00ed 2013<br \/>Sta\u00f0ur: H\u00fanavallask\u00f3li<br \/>Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/p>\n<p><strong>R\u00fanar Gu\u00f0brandsson<\/strong> nam upphaflega leiklist \u00ed Danm\u00f6rku og starfa\u00f0i \u00fear sem leikari um \u00e1rabil, me\u00f0 \u00fdmsum leikh\u00f3pum. Frekari \u00fej\u00e1lfun hlaut hann m.a. hj\u00e1 Odin leikh\u00fasinu \u00ed Holsterbro, hj\u00e1 leikh\u00f3pi Jerzy Grotowskis \u00ed Wroclaw \u00ed P\u00f3llandi, Dario Fo \u00e1 \u00cdtal\u00edu, Jury Alschitz \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og v\u00ed\u00f0ar, og Anatoly Vasiliev \u00ed Moskvu. R\u00fanar lauk MA og MPhil gr\u00e1\u00f0um \u00ed leiklistarfr\u00e6\u00f0um og leikstj\u00f3rn fr\u00e1 De Montfort h\u00e1sk\u00f3lanum \u00ed Leicester \u00e1 Englandi og hefur loki\u00f0 fyrri hluta doktorsn\u00e1ms \u00ed fr\u00e6\u00f0unum. Hann hefur leikst\u00fdrt fj\u00f6lda leiks\u00fdninga h\u00e9rlendis og erlendis og fengist vi\u00f0 leiklistarkennslu og \u00fej\u00e1lfun leikara v\u00ed\u00f0a \u00ed Evr\u00f3pu. R\u00fanar var fyrsti pr\u00f3fessor \u00ed leikt\u00falkun vi\u00f0 Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Hann hefur reki\u00f0 leiksmi\u00f0juna Lab Loka s\u00ed\u00f0an 1992, stj\u00f3rna\u00f0 \u00fej\u00e1lfun h\u00f3psins og st\u00fdrt flestum verkefnum hans h\u00e9rlendis og erlendis. Hann hefur auk \u00feess fengist vi\u00f0 \u00fdmis konar tilraunastarfsemi \u00e1 vettvangi kvikmynda og gj\u00f6rningalistar. <br \/>\u00deetta er \u00ed fimmta sinn sem R\u00fanar kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p><strong>S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed leikstj\u00f3rn, \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem s\u00f3tt hafa Leikstj\u00f3rn I og II og s\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikstj\u00f3ra e\u00f0a s\u00f3tt samb\u00e6rileg n\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a hafa umtalsver\u00f0a reynslu af leikstj\u00f3rn.<\/strong><\/p>\n<p>N\u00e1mskei\u00f0 \u00feetta ver\u00f0ur j\u00f6fnum h\u00f6ndum fr\u00e6\u00f0ilegt og verklegt. \u00datgangspunkturinn er a\u00f0fer\u00f0 sem kennarinn hefur \u00fer\u00f3a\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r gegnum t\u00ed\u00f0ina og s\u00e6kir fyrst og fremst innbl\u00e1stur \u00ed \u00e6vistarf Konstantins Stanislavskys, b\u00e6\u00f0i hina \u201evitsmunalegu greiningu\u201c sem Stanislavsky \u00fer\u00f3a\u00f0i framan af ferli s\u00ednum og \u201ea\u00f0fer\u00f0 l\u00edkamlegra gj\u00f6r\u00f0a\u201c sem hann vann a\u00f0 er hann f\u00e9ll fr\u00e1.<br \/>Fleiri \u00e1hrifavaldar sv\u00edfa \u00fe\u00f3 yfir v\u00f6tnunum og \u00ed fyrirlestrum ver\u00f0ur fjalla\u00f0 um \u00fdmsa strauma og stefnur \u00ed leikstj\u00f3rn s\u00ed\u00f0ustu aldar. \u00der\u00edeyki\u00f0 Stanislavsky, Brecht og Grotowski ver\u00f0a \u00fear \u00ed brennidepli og me\u00f0ul \u00feeirra sko\u00f0u\u00f0 \u00ed sambandi vi\u00f0 tilganginn. A\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i, hugmyndafr\u00e6\u00f0i og fagurfr\u00e6\u00f0i \u00f3l\u00edkra leikstj\u00f3ra ver\u00f0a vegnar og metnar og bornar saman vi\u00f0 \u201ea\u00f0fer\u00f0\u201c n\u00e1mskei\u00f0sins.<br \/>Eftir a\u00f0 skr\u00e1ningu l\u00fdkur ver\u00f0a \u00f6llum \u00fe\u00e1tttakendum send tv\u00f6 verk til sko\u00f0unar. Anna\u00f0 verki\u00f0 f\u00e1 allir og ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 lagt til grundvallar \u00ed sameiginlegri vinnu og h\u00f3pkennslu. <br \/>A\u00f0 auki f\u00e6r hver \u00fe\u00e1tttakandi \u201esitt\u201c verk sem hann vinnur a\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6tt samhli\u00f0a hinu. Kennari mun einnig senda \u00fe\u00e1tttakendum verkefni til a\u00f0 \u00edhuga og leysa \u00e1\u00f0ur en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hefst, \u00feannig a\u00f0 \u00e1kve\u00f0ins undirb\u00fanings ver\u00f0ur krafist.<\/p>\n<p>Kennsla fer fram me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti; fyrirlestrar, umr\u00e6\u00f0ur, verklegar \u00e6fingar, einstaklingsverkefni, h\u00f3pverkefni, o.s.frv. Bretti\u00f0 upp ermar og sp\u00fdti\u00f0 \u00ed l\u00f3fa.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0 3<\/strong><\/p>\n<p><strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-4127\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"kalli_vefur\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2013\/03\/BIL_Skolinn_2013_kalli_vefur.jpg\" height=\"203\" width=\"150\" \/><\/strong><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><strong>Leikritun I \u2013 Grunnn\u00e1mskei\u00f0<\/strong><br \/><strong>Kennari Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson<\/strong><\/p>\n<p>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 73.500<br \/>T\u00edmi: 8. til 16. j\u00fan\u00ed 2013<br \/>Sta\u00f0ur: H\u00fanavallask\u00f3li<br \/>Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/p>\n<p><strong>Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson<\/strong> lauk n\u00e1mi vi\u00f0 Leiklistarsk\u00f3la \u00cdslands 1981 og meistaragr\u00e1\u00f0u \u00ed leikritun og handritager\u00f0 fr\u00e1 Ohio University 1994. Hann hefur starfa\u00f0 sem leikari, leikstj\u00f3ri, \u00fe\u00fd\u00f0andi og h\u00f6fundur vi\u00f0 \u00edslensk og erlend leikh\u00fas, \u00fatvarp, sj\u00f3nvarp og kvikmyndir \u00ed yfir 30 \u00e1r. Karl stofna\u00f0i Spaugstofuna \u00e1samt f\u00e9l\u00f6gum s\u00ednum \u00e1ri\u00f0 1985 og hefur s\u00ed\u00f0an skrifa\u00f0 h\u00e1tt \u00e1 fimmta hundra\u00f0 handrit a\u00f0 sj\u00f3nvarps- og \u00fatvarps\u00fe\u00e1ttum. Leikrit og s\u00f6ngleikir eftir hann hafa veri\u00f0 sett \u00e1 svi\u00f0 b\u00e6\u00f0i austan hafs og vestan. Hann hefur einnig kennt skapandi skrif og leikritun vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, Leiklistarsk\u00f3la F\u00e6reyja og Mesa State College \u00ed Colorado. \u00deetta er \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn sem Karl \u00c1g\u00fast kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er \u00e6tla\u00f0 \u00f6llum sem \u00e1huga hafa \u00e1 a\u00f0 spreyta sig vi\u00f0 leiktextasm\u00ed\u00f0, jafnt algerum byrjendum og \u00feeim sem einhverja reynslu hafa.<\/strong><\/p>\n<p>Kynntir ver\u00f0a helstu \u00fe\u00e6ttir klass\u00edskrar leikbyggingar og d\u00e6mi sko\u00f0u\u00f0. Sk\u00f6punarferli\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed brennidepli og huga\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 hvetur sk\u00f6punina og hva\u00f0 letur hana.<\/p>\n<p>\u00cd gegnum nokkrar \u00e6fingar sko\u00f0um vi\u00f0 grunneiningar leikritsins &#8211; upphaf, mi\u00f0ju og endi, kynnum okkur pers\u00f3nusk\u00f6pun, s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0 og samt\u00f6l.<\/p>\n<p>Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 stutt verk, sem \u00fe\u00f3 uppfylla \u00f6ll skilyr\u00f0i leiks\u00f6gunnar, og stefnt er a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lokaverkefni hvers nemanda ver\u00f0i tilb\u00fai\u00f0 til me\u00f0h\u00f6ndlunar leikara og leikstj\u00f3ra.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0 4 &#8211; F\u00e9ll ni\u00f0ur<br \/><\/strong><\/p>\n<p><strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-4128\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"orey_vefur1\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2013\/03\/BIL_Skolinn_2013_orey_vefur1.jpg\" height=\"142\" width=\"150\" \/><\/strong><\/p>\n<p><strong>Leiklist \u2013 S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0<\/strong><br \/><strong>Kennari \u00de\u00f3rey Sig\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n<p>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr.\u00a0 73.500<br \/>T\u00edmi: 8. til 16. j\u00fan\u00ed 2013<br \/>Sta\u00f0ur: H\u00fanavallask\u00f3li<br \/>Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/p>\n<p><strong>\u00de\u00f3rey Sig\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir<\/strong> \u00fatskrifa\u00f0ist sem leikkona fr\u00e1 Leiklistarsk\u00f3la \u00cdslands 1991 og lauk MA gr\u00e1\u00f0u \u00ed Advanced Theatre Practice fr\u00e1 The Royal Central School of Speech and Drama \u00ed London 2012. \u00c1ri\u00f0 2004 \u00fatskrifa\u00f0ist \u00de\u00f3rey me\u00f0 kennslur\u00e9ttindi \u00ed leiklist fr\u00e1 Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. \u00de\u00f3rey hefur starfa\u00f0 sem leikkona og leikstj\u00f3ri v\u00ed\u00f0a. \u00de.\u00e1.m. \u00ed Borgarleikh\u00fasinu, \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu, sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0um leikh\u00f3pum, \u00ed kvikmyndum og hj\u00e1 \u00e1hugaleikf\u00e9l\u00f6gum. S\u00ed\u00f0ast l\u00e9k \u00de\u00f3rey einleikinn\u00a0\u00d3d\u00f3 \u00e1 gjaldbuxum\u00a0sem\u00a0Gj\u00f3la setti upp \u00ed leikstj\u00f3rn \u00c1sd\u00edsar Thoroddsen og\u00a0\u00ed s\u00fdningunni mammamamma sem leikh\u00f3purinn Opi\u00f0 \u00fat setti upp \u00ed leikstj\u00f3rn Charlotte B\u00f6ving, b\u00e1\u00f0ar s\u00fdningar \u00ed samvinnu vi\u00f0 Hafnarfjar\u00f0arleikh\u00fasi\u00f0. \u00de\u00f3rey kenndi raddbeitingu vi\u00f0 Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands (leiklistardeild 2002-2004, listn\u00e1mskennsludeild 2002-2012), og hefur haldi\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0 vi\u00f0 Lei\u00f0s\u00f6gusk\u00f3la \u00cdslands, Endurmenntun H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands, og fyrir \u00fdmsa sk\u00f3la og fyrirt\u00e6ki. 2005-2011 starfa\u00f0i h\u00fan sem leiklistarkennari vi\u00f0 Austurb\u00e6jarsk\u00f3la. \u00de\u00f3rey er listr\u00e6nn stj\u00f3rnandi leikf\u00e9lagsins Flj\u00fagandi Fiskar og hluti af leikh\u00f3pnum Head of a Woman <a href=\"http:\/\/headofawoman.com.\">http:\/\/headofawoman.com.<\/a> N\u00e1nari uppl\u00fdsingar um st\u00f6rf \u00de\u00f3reyjar m\u00e1 finna \u00e1 www.thoreysigthors.com. \u00deetta er \u00ed fyrsta sinn sem \u00de\u00f3rey kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara sem s\u00f3tt hafa Leiklist I og II e\u00f0a samb\u00e6rileg n\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a hafa talsver\u00f0a reynslu af svi\u00f0sleik.<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu ver\u00f0ur lag\u00f0ur grunnur a\u00f0 skapandi radd\u00fej\u00e1lfun og \u00fea\u00f0 sko\u00f0a\u00f0 hvernig vi\u00f0 getum n\u00fdtt okkur \u00fea\u00f0 \u00ed textavinnu og pers\u00f3nusk\u00f6pun.\u00a0 Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 \u00f6ndun, l\u00edkamstengingu, karl- og kvenorku raddarinnar \u00ed \u00e6fingum vi\u00f0 p\u00edan\u00f3, b\u00e6\u00f0i \u00ed einstaklingsvinnu og \u00ed h\u00f3p. Loks er s\u00fa vinna tekin \u00e1fram og tengd inn \u00ed textavinnuna.<\/p>\n<p>Fyrri hluti dags fer \u00ed radd\u00fej\u00e1lfun og seinni hluti \u00ed texta\/senu vinnu.\u00a0 <br \/>Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 valdar senur \u00far verkum Shakespeare.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3rey byggir radd\u00fej\u00e1lfunina \u00e1 kerfi Nadine George, sj\u00e1 www.voicestudiointernational.com\u00a0 en h\u00fan hefur unni\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0 fr\u00e1 1996 og s\u00f3tt m\u00f6rg n\u00e1mskei\u00f0 hj\u00e1 henni b\u00e6\u00f0i h\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi og \u00ed London.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<hr \/>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><strong>Ums\u00f3knum skal skila \u00e1 netfangi\u00f0<\/strong> <a href=\"mailto:info@leiklist.is\">info@leiklist.is<\/a><\/p>\n<p><strong><em>\u00de\u00e1 skal leggja sta\u00f0festingargjaldi\u00f0, kr. 35.000.- inn \u00e1 334-26-5463, kt. 440169-0239 og senda eftirtaldar uppl\u00fdsingar \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti: <\/em><\/strong><br \/><strong><em>Hva\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja um, nafn ums\u00e6kjanda, kennitala, heimilisfang, p\u00f3stn\u00famer, b\u00e6jarf\u00e9lag, netfang og s\u00edman\u00famer. \u00dear sem krafist er undirb\u00faningsn\u00e1mskei\u00f0a e\u00f0a reynslu skal l\u00e1ta ferilskr\u00e1 fylgja ums\u00f3kn<\/em>.<\/strong><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-full wp-image-3681\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir.jpg\" alt=\"hunavellir\" height=\"127\" width=\"400\" srcset=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir.jpg 2256w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-600x191.jpg 600w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-300x95.jpg 300w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-1024x325.jpg 1024w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-768x244.jpg 768w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-1536x488.jpg 1536w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-2048x651.jpg 2048w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_hunavellir-1080x343.jpg 1080w\" sizes=\"auto, (max-width: 400px) 100vw, 400px\" \/><\/p>\n<p>H\u00fanavallask\u00f3li, e\u00f0a H\u00f3tel H\u00fanavellir eins og hann heitir \u00e1 sumrin, er  sta\u00f0settur \u00ed H\u00fanavatnshreppi \u00ed Austur-H\u00fanavatnss\u00fdslu. \u00deanga\u00f0 eru 239  km. fr\u00e1 Reykjav\u00edk, 118 e\u00f0a 156 km. fr\u00e1 Akureyri (eftir \u00fev\u00ed hva\u00f0a lei\u00f0 er  farin) og fjarl\u00e6g\u00f0in fr\u00e1 Bl\u00f6ndu\u00f3si er um 15 km.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-full wp-image-3682\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/03\/BIL_Skolinn_2012_kort.jpg\" alt=\"kort\" height=\"399\" width=\"500\" \/><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<hr \/>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 8. til 16. j\u00fan\u00ed a\u00f0 H\u00fanavallask\u00f3la \u00ed Austur-H\u00fanavatnss\u00fdslu. Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann hefst 15. mars og stendur til til 15. apr\u00edl.\u00a0 Fj\u00f6gur n\u00e1mskei\u00f0 ver\u00f0a \u00ed bo\u00f0i a\u00f0 \u00feessu sinni. \u00cd takt vi\u00f0 traustar hef\u00f0ir leggjum vi\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 byggja ofan \u00e1 g\u00f3\u00f0an grunn sem \u00feegar hefur veri\u00f0 lag\u00f0ur [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":2892,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[190],"tags":[],"class_list":["post-4129","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-skn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4129","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4129"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4129\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/2892"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4129"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4129"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4129"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}