{"id":38551,"date":"2023-02-24T16:07:16","date_gmt":"2023-02-24T16:07:16","guid":{"rendered":"https:\/\/leiklist.is\/?p=38551"},"modified":"2023-07-10T13:37:29","modified_gmt":"2023-07-10T13:37:29","slug":"leiklistarskoli-bil-2023-info","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/leiklistarskoli-bil-2023-info\/","title":{"rendered":"Leiklistarsk\u00f3li B\u00cdL 2023"},"content":{"rendered":"<h4 style=\"text-align: center;\"><strong>STARFST\u00cdMI SK\u00d3LANS ER 17. \u2013 25. J\u00daN\u00cd 2023 A\u00d0 REYKJASK\u00d3LA \u00cd HR\u00daTAFIR\u00d0I.<\/strong><\/h4>\n<h3 style=\"text-align: center;\">&#8212; <a href=\"https:\/\/leiklist.is\/en\/leiklistarskoli-bil-2023-umsokn\/\"><strong>Smella h\u00e9r til a\u00f0 s\u00e6kja um!<\/strong><\/a><strong>\u00a0&#8212;<\/strong><\/h3>\n<hr \/>\n<h3><\/h3>\n<h3 style=\"text-align: center;\">KVE\u00d0JA FR\u00c1 SK\u00d3LANEFND<\/h3>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-38591\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/Skolafolk2023-300x63.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"126\" srcset=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/Skolafolk2023-300x63.jpg 300w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/Skolafolk2023-1024x215.jpg 1024w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/Skolafolk2023-768x161.jpg 768w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/Skolafolk2023-18x4.jpg 18w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/Skolafolk2023-1080x227.jpg 1080w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/Skolafolk2023-600x126.jpg 600w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/Skolafolk2023.jpg 1196w\" sizes=\"auto, (max-width: 600px) 100vw, 600px\" \/><\/p>\n<p><strong>K\u00e6ru leiklistarvinir!<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er okkur s\u00f6nn \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a ykkur velkomin \u00ed Reykjask\u00f3la \u00ed sumar \u00fear sem leiklistarsk\u00f3linn okkar ver\u00f0ur settur \u00ed tuttugasta og sj\u00f6tta sinn. Sk\u00f3linn bl\u00f3mstar sem aldrei fyrr og vi\u00f0 sj\u00e1um fram \u00e1 mikla sk\u00f6pun, metna\u00f0 og gle\u00f0i \u00ed sumar.<\/p>\n<p>A\u00f0 \u00feessu sinni ver\u00f0a \u00ferj\u00fa fj\u00f6lbreytt n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed bo\u00f0i. \u00c1rni P\u00e9tur Gu\u00f0j\u00f3nsson mun endurn\u00fdja kynni s\u00edn vi\u00f0 sk\u00f3lann og kenna <strong>Leiklist II<\/strong> sem er framhald af Leiklist I sem \u00d3lafur \u00c1sgeirsson kenndi \u00ed fyrra. Einnig m\u00e6tir Jenn\u00fd L\u00e1ra Arn\u00f3rsd\u00f3ttir til okkar aftur og kennir <strong>Leikstj\u00f3rn III<\/strong> sem er \u00feri\u00f0ji \u00e1fangi \u00ed framhaldsser\u00edu hennar og systur hennar V\u00f6lu Fannell \u00ed leikstj\u00f3rn sem h\u00f3fst 2021. Vi\u00f0 bj\u00f3\u00f0um svo velkominn \u00ed kennarah\u00f3pinn \u00ed fyrsta sinn, Bj\u00f6rn Inga Hilmarsson. Hann mun kenna s\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara undir heitinu <strong>Leikarinn sem s\u00f6guma\u00f0ur\/hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri (Ex Uno Pluris)<\/strong>.<br \/>\n\u00de\u00e1 bj\u00f3\u00f0um vi\u00f0 <strong>h\u00f6fundum \u00ed heims\u00f3kn<\/strong>\u00a0til a\u00f0 skerpa st\u00edlvopni\u00f0! Vi\u00f0 vonum a\u00f0 sem flestir eigi \u00feess kost a\u00f0 koma, nema og nj\u00f3ta.<\/p>\n<p>Hl\u00f6kkum til a\u00f0 sj\u00e1 ykkur \u2013 me\u00f0 bestu kve\u00f0ju, Elli, J\u00f3nhei\u00f0ur, Hrefna, D\u00fdrleif og G\u00edsli Bj\u00f6rn.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong>LEIKLIST II<\/strong><br \/>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright wp-image-4125\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2013\/03\/BIL_Skolinn_2013_arni-petur_vefur.jpg\" alt=\"arni petur_vefur\" width=\"200\" height=\"297\" \/>Kennari er \u00c1rni P\u00e9tur Gu\u00f0j\u00f3nsson<br \/>\n\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: 109.000 kr.<\/p>\n<p>Forkr\u00f6fur:\u00a0Leiklist I.<br \/>\nEf laus pl\u00e1ss eru getur sk\u00f3lanefnd hleypt inn ums\u00e6kjendum sem eru a\u00f0 hennar mati me\u00f0 n\u00e6gjanlega menntun e\u00f0a reynslu.<\/p>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0sl\u00fdsing:<\/strong><br \/>\nLeiklist II er grunnn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara, \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem s\u00f3tt hafa Leiklist I e\u00f0a eiga a\u00f0 baki samb\u00e6rilegt n\u00e1m e\u00f0a reynslu.<br \/>\n\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu ver\u00f0ur a\u00f0al\u00e1herslan \u00e1 a\u00f0 kynna sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0 leikarans vi\u00f0 a\u00f0 n\u00e1lgast hlutverk og flytja \u00fea\u00f0 fyrir framan \u00e1horfendur. N\u00fdta sk\u00f6punarg\u00e1fu hvers og eins og finna styrk og veikleika og jafnframt a\u00f0 vinna me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fear til allir ver\u00f0a s\u00e1ttir. Nemendur mega b\u00faast vi\u00f0 meiri leikstj\u00f3rn og gagnr\u00fdni \u00e1 \u00fea\u00f0 sem \u00feeir gera en \u00e1 Leiklist I me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 gera \u00fe\u00e1 a\u00f0 betri leikurum. Miki\u00f0 ver\u00f0ur unni\u00f0 me\u00f0 spuna og myndr\u00e6nar svi\u00f0setningar. H\u00e9r er ekki veri\u00f0 a\u00f0 vinna me\u00f0 \u00fatvarpsleik heldur er veri\u00f0 a\u00f0 tala um: Bl\u00f3\u00f0, svita og t\u00e1r!<br \/>\nEftir a\u00f0 skr\u00e1ning \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0 er sta\u00f0fest, f\u00e1 nemendur senda leiktexta sem unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0. Kennarinn ver\u00f0ur \u00ed sambandi vi\u00f0 nemendur til a\u00f0 koma \u00feeim af sta\u00f0 me\u00f0 undirb\u00faningsvinnu \u00e1\u00f0ur en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hefst. svo \u00fea\u00f0 n\u00fdtist sem allra best.<\/p>\n<p>\u00c1rni P\u00e9tur Gu\u00f0j\u00f3nsson\u00a0stunda\u00f0i n\u00e1m vi\u00f0 R\u00edkisleiklistarsk\u00f3lann \u00ed Kaupmannah\u00f6fn, vi\u00f0 Leiklistarsk\u00f3la \u00cdslands og er me\u00f0 leiklistarkennaragr\u00e1\u00f0u fr\u00e1 Danm\u00f6rku. Hann hefur starfa\u00f0 sem leikari og leiklistarkennari um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld, m.a. \u00ed Leiklistarsk\u00f3la \u00edslands og Listdanssk\u00f3lanum.\u00a0\u00a0Hefur starfa\u00f0i sem leikari fr\u00e1 1988 og leiki\u00f0 \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um atvinnuleikh\u00fasanna gegnum \u00e1rin. \u00c1rni er oft nefndur \u201eGu\u00f0fa\u00f0ir tilraunaleikh\u00fassins\u201c enda veri\u00f0 me\u00f0 \u00ed e\u00f0a sta\u00f0i\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed markver\u00f0asta sem komi\u00f0 hefur fram \u00fear td. Vesturport, Lab Loki, Herbergi408.is og \u00ed \u00c1hugaleikh\u00fasi atvinnumanna svo eitthva\u00f0 s\u00e9 nefnt. \u00c1 yfirstandandi leik\u00e1ri, 2022-23, er \u00c1rni P\u00e9tur me\u00f0 hlutverk \u00ed 4 mismunandi leikh\u00fasum. Borgarleikh\u00fasinu \u00ed Marat\/Sade, LA \u00ed Hamingjud\u00f6gum. Tjarnarb\u00ed\u00f3 \u00ed \u00c9g lifi enn og Shakespeare leikh\u00fasinu \u00ed Gdansk (Proximity).<br \/>\n\u00deetta er \u00ed fj\u00f3r\u00f0a sinn sem \u00c1rni P\u00e9tur kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong>LEIKSTJ\u00d3RN III \u2013 Framhald af Leikstj\u00f3rn II<\/strong><br \/>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright wp-image-37221\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-300x300.jpg\" alt=\"\" width=\"200\" height=\"200\" srcset=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-300x300.jpg 300w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-1024x1024.jpg 1024w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-150x150.jpg 150w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-768x768.jpg 768w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-12x12.jpg 12w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-1080x1080.jpg 1080w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-440x440.jpg 440w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-600x600.jpg 600w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b-100x100.jpg 100w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/jennymynd2015b.jpg 1365w\" sizes=\"auto, (max-width: 200px) 100vw, 200px\" \/>Kennari: <strong>Jenn\u00fd L\u00e1ra Arn\u00f3rsd\u00f3ttir<\/strong><br \/>\n\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: 109.000 kr.<\/p>\n<p>Forkr\u00f6fur: Leikstj\u00f3rn I og II.<br \/>\nEf laus pl\u00e1ss eru getur sk\u00f3lanefnd hleypt inn ums\u00e6kjendum sem eru a\u00f0 hennar mati me\u00f0 n\u00e6gjanlega menntun e\u00f0a reynslu.<\/p>\n<p>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er framhald af Leikstj\u00f3rn II sem Jenn\u00fd L\u00e1ra kenndi 2022. \u00deeir ganga fyrir sem s\u00f3ttu \u00fea\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a hafa s\u00f3tt \u00f6nnur samb\u00e6rileg n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed leikstj\u00f3rn.<\/p>\n<p>\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu ver\u00f0ur haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 vinna \u00fat fr\u00e1 a\u00f0fer\u00f0um fr\u00e1 fyrri n\u00e1mskei\u00f0um. \u00c1herslan n\u00e1mskei\u00f0sins er a\u00f0 \u00fej\u00e1lfa nemendur \u00ed a\u00f0 vera me\u00f0 sk\u00fdra listr\u00e6na s\u00fdn fyrir verkefni\u00f0, samvinna me\u00f0 listr\u00e6num stj\u00f3rnendum og a\u00f0 vinna me\u00f0 n\u00fd leikverk.<br \/>\n\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu munu leikstj\u00f3rar undirb\u00faa verk \u00fat fr\u00e1 sm\u00e1s\u00f6gum, \u00e6vint\u00fdrum e\u00f0a d\u00e6mis\u00f6gum og sko\u00f0a dramat\u00farg\u00edska n\u00e1lgun \u00e1 n\u00fdtt verk. Hvernig ver\u00f0ur textinn leikb\u00e6r og hva\u00f0a lausnir eru \u00ed bo\u00f0i fyrir leikstj\u00f3ra til a\u00f0 a\u00f0sto\u00f0a sig vi\u00f0 sn\u00fanar senur? \u00c6fingar ver\u00f0a ger\u00f0ar \u00e1 mismunandi \u00fatf\u00e6rslum \u00e1 lausnum.<br \/>\n\u00de\u00e1 munu leikstj\u00f3rarnir kl\u00e1ra greiningu \u00e1 \u00feessum verkum og nota \u00fea\u00f0 til a\u00f0 vinna hugmyndir fyrir umgj\u00f6r\u00f0 verksins. Leikstj\u00f3rarnir \u00feurfa a\u00f0 undirb\u00faa kynningu \u00e1 hugmyndunum og fara \u00e1 \u201cmock\u201dfund me\u00f0 listr\u00e6num stj\u00f3rnendum uppsetningarinnar. \u00dear munu \u00feeir f\u00e1 \u00e6fingu \u00ed a\u00f0 vinna a\u00f0 lausnum \u00ed samstarfi vi\u00f0 a\u00f0ra er a\u00f0 uppsetningum koma.<br \/>\n\u00cd lok n\u00e1mskei\u00f0s \u00e6tti \u00fev\u00ed a\u00f0 liggja fyrir leikb\u00e6rt handrit me\u00f0 sk\u00fdrri s\u00fdn \u00e1 listr\u00e6na stefnu uppsetningarinnar.<\/p>\n<p><strong>Kennarinn<br \/>\n<\/strong>Jenn\u00fd L\u00e1ra Arn\u00f3rsd\u00f3ttir \u00fatskrifa\u00f0ist sem leikari og leikstj\u00f3ri fr\u00e1 KADA \u00ed London \u00e1ri\u00f0 2012. Eftir \u00fatskrift vann h\u00fan sem a\u00f0sto\u00f0arleikstj\u00f3ri vi\u00f0 s\u00fdninguna Newsrevue hj\u00e1 Canal Cafe Theatre \u00e1\u00f0ur en h\u00fan flutti aftur til \u00cdslands \u00ed lok \u00e1rs 2012. Eftir heimkomu stofna\u00f0i h\u00fan leikh\u00f3pinn Artik og hefur undir honum leikst\u00fdrt s\u00fdningunum Hinn fullkomni jafningi, Elska \u2013 \u00e1stars\u00f6gur \u00deingeyinga og Skjaldmeyjar hafsins, en \u00fe\u00e6r tv\u00e6r s\u00ed\u00f0arnefndu vann h\u00fan upp \u00far vi\u00f0t\u00f6lum sem h\u00fan t\u00f3k og nota\u00f0ist svo vi\u00f0 svo kalla\u00f0a Verbatim-a\u00f0fer\u00f0 til a\u00f0 setja \u00feau saman \u00ed handrit. B\u00e6\u00f0i verkin voru sett upp \u00ed samstarfi vi\u00f0 Leikf\u00e9lag Akureyrar.<br \/>\n\u00c1ri\u00f0 2013 setti h\u00fan \u00e1 f\u00f3t Uppsprettuna sem var r\u00f6\u00f0 vi\u00f0bur\u00f0a \u00fear sem handritsh\u00f6fundar, leikarar og leikstj\u00f3rar leiddu saman hesta s\u00edna og settu upp stuttverk \u00e1 einum s\u00f3larhring. Sama \u00e1r starfa\u00f0i h\u00fan sem a\u00f0sto\u00f0arma\u00f0ur leikstj\u00f3ra vi\u00f0 uppsetningu \u00e1 Jeppa \u00e1 Fjalli hj\u00e1 Borgarleikh\u00fasinu. \u00c1ri\u00f0 2014 f\u00e9kk leikh\u00f3purinn InTime Theatre \u00ed F\u00e6reyjum hana til a\u00f0 leikst\u00fdra verkinu Einki or\u00f0 sem sett var upp \u00ed samstarfi vi\u00f0 Tj\u00f3\u00f0pallinn en einnig fer\u00f0a\u00f0ist verki\u00f0 um eyjarnar.<br \/>\n\u00c1ri\u00f0 2015 fluttist Jenn\u00fd til Akureyrar \u00fear sem h\u00fan, \u00e1samt fleirum, stofna\u00f0i leikh\u00f3pinn Umskiptinga sem hefur hloti\u00f0 miki\u00f0 lof fyrir s\u00fdningar s\u00ednar, en h\u00f3purinn hefur fengi\u00f0 tv\u00e6r tilnefningar til Gr\u00edmunnar \u2013 \u00e1ri\u00f0 2017 Sem Sproti \u00e1rsins og aftur \u00e1ri\u00f0 2019 sem Barnas\u00fdning \u00e1rsins fyrir verki\u00f0 Galdrag\u00e1ttin og \u00fej\u00f3\u00f0asagan sem gleymdist, en Jenn\u00fd var hluti af h\u00f6fundateymi verksins og f\u00f3r me\u00f0 fj\u00f6gur hlutverk. N\u00fa s\u00ed\u00f0ast setti h\u00f3purinn upp tvo einleiki undir nafninu \u00cd myrkri eru allir kettir gr\u00e1ir og leikst\u00fdr\u00f0i Jenn\u00fd b\u00e1\u00f0um verkunum. \u00de\u00e1 h\u00e9lt h\u00f3purinn \u00e1fram me\u00f0 annan einleikinn, L\u00edf, og s\u00fdndi hann \u00e1 Reykjavik Fringe Festival 2022 og hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi Akureyrar sama haust.<br \/>\n\u00de\u00e1 t\u00f3k Jenn\u00fd vi\u00f0 starfi sk\u00f3lastj\u00f3ra Leiklistarsk\u00f3la Leikf\u00e9lags Akureyrar hausti\u00f0 2022 og er \u00fear a\u00f0 byggja upp faglegt n\u00e1m fyrir b\u00f6rn og ungmenni auk \u00feess sem a\u00f0 stefnt er \u00e1 a\u00f0 byggja upp fr\u00e6\u00f0slustarf fyrir Leikf\u00e9lag Akureyar.<br \/>\nJenn\u00fd hefur \u00fear a\u00f0 auki leikst\u00fdrt verkum hj\u00e1 \u00fdmsum \u00e1hugaleikf\u00e9l\u00f6gum, n\u00fa s\u00ed\u00f0ast me\u00f0 Gauragangi hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi Eflingar \u00ed vetur, skrifa\u00f0 og s\u00e9\u00f0 um framlei\u00f0slu \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0sverkum.<br \/>\n\u00deetta er \u00ed anna\u00f0 sinn sem Jenn\u00fd L\u00e1ra kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong>S\u00c9RN\u00c1MSKEI\u00d0 FYRIR LEIKARA &#8211; Ex Uno Plures &#8211; Leikarinn sem s\u00f6guma\u00f0ur\/hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri<\/strong><br \/>\n<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright wp-image-38578\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/BI01-246x300.jpg\" alt=\"\" width=\"200\" height=\"244\" srcset=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/BI01-246x300.jpg 246w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/BI01-10x12.jpg 10w, https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/BI01.jpg 459w\" sizes=\"auto, (max-width: 200px) 100vw, 200px\" \/>Kennari:\u00a0<strong>Bj\u00f6rn Ingi Hilmarsson<\/strong><br \/>\n\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: 109.000 kr.<\/p>\n<p>Forkr\u00f6fur: Leiklist I og II e\u00f0a samb\u00e6rileg menntun og umtalsver\u00f0 leikreynsla.<br \/>\nEf laus pl\u00e1ss eru getur sk\u00f3lanefnd hleypt inn ums\u00e6kjendum sem eru a\u00f0 hennar mati me\u00f0 n\u00e6gjanlega menntun e\u00f0a reynslu.<\/p>\n<p>S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara &#8211; Leikarinn sem s\u00f6guma\u00f0ur\/hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri (Ex Uno Plures)<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feessu n\u00e1mskei\u00f0i vinnum vi\u00f0 m.a. me\u00f0 leikarann sem s\u00f6gumann\/hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri. Getum vi\u00f0 veri\u00f0 m\u00f6rg \u201chlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri\u201d \u00e1 svi\u00f0inu sem leikarar. Kannski heil hlj\u00f3msveit? Hvernig segjum vi\u00f0 s\u00f6gu me\u00f0 m\u00f6rgum karakterum? Hversu l\u00edti\u00f0 komumst vi\u00f0 af me\u00f0 \u00ed leikmynd ofl. Vi\u00f0 vinnum me\u00f0 leikarann sem b\u00fdr til allt \u201cs\u00f6gusvi\u00f0i\u00f0\/leikmyndina\u201d og \u201callar\u201d pers\u00f3nur s\u00f6gunnar me\u00f0 sinni eigin l\u00edkamlegu tj\u00e1ningu\/l\u00e1tbrag\u00f0sleik. Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 leikriti\u00f0 \u201cLofthr\u00e6ddi \u00f6rninn hann \u00d6rvar\u201d sem Bj\u00f6rn Ingi hefur hvortveggja leiki\u00f0 og leikst\u00fdrt \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu.<br \/>\nEinnig ver\u00f0ur unni\u00f0 me\u00f0 leikrit eftir Anton Chekov \u00fear sem vi\u00f0 sko\u00f0um n\u00e1lgun \u00e1 sannri tilfinningu sem er raunveruleg fyrir \u00feig \u00e1 svi\u00f0inu, \u00feegar \u00fe\u00fa sem leikari ert a\u00f0 \u00e6fa e\u00f0a s\u00fdna og veltum fyrir okkur hvernig vi\u00f0 getum hj\u00e1lpa\u00f0 me\u00f0leikurum okkar \u00e1 svi\u00f0inu.<\/p>\n<p><strong>Kennarinn<\/strong><br \/>\nBj\u00f6rn Ingi \u00fatskrifa\u00f0ist \u00far Leiklistarsk\u00f3la \u00cdslands \u00e1ri\u00f0 1990, og hefur \u00fev\u00ed starfa\u00f0 sem leikari \u00ed yfir 30 \u00e1r Hann vann sem lausr\u00e1\u00f0inn leikari \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu, fyrstu 6 \u00e1rin eftir \u00fatskrift og l\u00e9k \u00fear m.a. Lofthr\u00e6dda \u00f6rninn hann \u00d6rvar \u00ed leikstj\u00f3rn Peter Engkvist. Hann starfa\u00f0i einnig sem lausr\u00e1\u00f0inn leikari hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi Akureyrar, \u00ed Borgarleikh\u00fasinu og me\u00f0 fj\u00f6lm\u00f6rgum \u00f6\u00f0rum leikh\u00f3pum.<br \/>\n\u00c1ri\u00f0 2006 var hann fastr\u00e1\u00f0inn vi\u00f0 Borgarleikh\u00fasi\u00f0 og starfa\u00f0i \u00fear \u00ed 12 \u00e1r. Me\u00f0al verkefna hans \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u00e1 \u00feessum t\u00edma eru S\u00f6luma\u00f0ur deyr, Sporvagninn Girnd, Be\u00f0i\u00f0 eftir Godot, Kysstu mig Kata, Fjandma\u00f0ur f\u00f3lksins, Fe\u00f0ur og synir, Jesus Christ Superstar, \u00derj\u00e1r systur og Galdrakarlinn \u00ed Oz. \u00c1ri\u00f0 2010 flutti Bj\u00f6rn til Stokkh\u00f3lms og starfa\u00f0i \u00fear sem leikari \u00ed 5 \u00e1r vi\u00f0 Teater Pero sem er eitt af virtari barna og fj\u00f6lskylduleikh\u00fasum Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar og l\u00e9k \u00fear yfir 500 s\u00fdningar \u00e1 s\u00e6nsku auk \u00feess a\u00f0 starfa \u00fear \u00ed sj\u00f3nvarpi.<br \/>\n\u00c1ri\u00f0 2016 h\u00f3f Bj\u00f6rn st\u00f6rf vi\u00f0 barna-og fr\u00e6\u00f0sludeild \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins, \u00fear leikst\u00fdr\u00f0i hann 5 s\u00fdningum m.a. \u201cLofthr\u00e6ddi \u00f6rninn hann \u00d6rvar\u201d, \u201c\u00c9g get\u201d og \u201cOddur og Siggi\u201d sem b\u00e1\u00f0ar hlutu tilnefningu til Gr\u00edmuver\u00f0launa. Auk \u00feess s\u00e1 Bj\u00f6rn Ingi um verkefni\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0leik, sem er verkefni sem \u00e6tla\u00f0 er a\u00f0 auka \u00e1huga ungs f\u00f3lks \u00e1 landsbygg\u00f0inni \u00e1 leiklist. \u00c1 \u00feessum t\u00edma l\u00e9k hann einnig \u00ed fj\u00f6lm\u00f6rgum s\u00fdningum \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins m.a. Ronju r\u00e6ningjad\u00f3ttur, Sjeiksp\u00edr ver\u00f0ur \u00e1stfanginn, Kafb\u00e1tnum, ofl.<br \/>\nMe\u00f0al verkefna sem Bj\u00f6rn Ingi hefur leikst\u00fdrt eru: Ronja r\u00e6ningjad\u00f3ttir (\u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu Gr\u00e6nlandi), Fr\u00e6nka Charleys (leikf.Dalv\u00edkur), Macbeth (leikf. M.H.), Str\u00e6ti (leikf. Kvennask\u00f3lans) St\u00fadentaleikh\u00fasinu, ofl. \u00c1 s\u00ednum r\u00famlega 30 \u00e1ra ferli sem leikari hefur Bj\u00f6rn Ingi a\u00f0 auki leiki\u00f0 \u00ed fj\u00f6ldam\u00f6rgum \u00fatvarpsleikritum sj\u00f3nvarpsmyndum, og kvikmyndum.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong>H\u00f6fundur \u00ed heims\u00f3kn<\/strong><\/p>\n<p>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: 87.000 kr.<\/p>\n<p>Blundar \u00ed \u00fe\u00e9r sk\u00e1ld? Ertu a\u00f0 bur\u00f0ast me\u00f0 hugmynd? \u00c1ttu h\u00e1lfskrifa\u00f0 handrit? Vantar \u00feig lausa stund til a\u00f0 lj\u00faka leikritinu?<br \/>\nSk\u00f3linn b\u00fd\u00f0ur h\u00f6fundum a\u00f0 dvelja a\u00f0 Reykjask\u00f3la vi\u00f0 skapandi skrif eins og svo oft \u00e1\u00f0ur. Vi\u00f0 teljum a\u00f0 mj\u00f6g vel hafi tekist til og h\u00f6fundar noti\u00f0 \u00feess a\u00f0 skapa, skrifa og skemmta s\u00e9r. \u00dea\u00f0 er okkur \u00fev\u00ed s\u00f6nn \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 endurtaka \u00feetta bo\u00f0.<br \/>\nH\u00f6fundum stendur til bo\u00f0a gisting og f\u00e6\u00f0i me\u00f0 sama h\u00e6tti og nemendum sk\u00f3lans, \u00feeim ber a\u00f0 fara eftir reglum sk\u00f3lans um umgengni o.fl. og er a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u velkomi\u00f0 a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00f6llu sk\u00f3lastarfi utan hef\u00f0bundinna kennslustunda.<br \/>\nVi\u00f0 hvetjum h\u00f6funda til a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r \u00feetta t\u00e6kif\u00e6ri og lofum \u00fev\u00ed a\u00f0 hinn eini sanni sk\u00f3laandi ver\u00f0i einst\u00f6k uppspretta sk\u00f6punargle\u00f0i!<\/p>\n<p style=\"text-align: center;\"><strong>ALMENNAR UPPL\u00ddSINGAR<\/strong><\/p>\n<p><strong>Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann<\/strong> stendur yfir fr\u00e1 kl. 16.00 \u00feann 10. mars til og me\u00f0 15. apr\u00edl. Ums\u00f3knir skal fylla \u00fat \u00e1 Leiklistarvefnum, www.leiklist.is. <a href=\"https:\/\/leiklist.is\/en\/leiklistarskoli-bil-2023-umsokn\/\">Opna\u00f0 ver\u00f0ur fyrir ums\u00f3knir 10. mars. kl. 16.00<\/a>.<\/p>\n<ul>\n<li>Reglan <em><strong>Fyrstur kemur \u2013 fyrstur f\u00e6r<\/strong><\/em> gildir vi\u00f0 skr\u00e1ningar gegn grei\u00f0slu sta\u00f0festingargjalds, kr. 40.000, ef innt\u00f6kuskilyr\u00f0um er fulln\u00e6gt a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti. Ef velja \u00fearf \u00e1 milli ums\u00e6kjenda gerir sk\u00f3lanefnd \u00fea\u00f0 \u00e1 grundvelli fyrri menntunar og reynslu vi\u00f0komandi.<br \/>\nN\u00e1ist ekki \u00e1s\u00e6ttanlegur fj\u00f6ldi \u00e1 tilteki\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0 fellur \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur.<br \/>\nAldurstakmark \u00ed sk\u00f3lann er 18 \u00e1r.<br \/>\nSk\u00f3linn hefur sett s\u00e9r reglur, m.a. um umgengni, reykingar og \u00e1fengisneyslu, sem nemendur sam\u00feykkja a\u00f0 fara eftir \u00e1 starfst\u00edma sk\u00f3lans.<\/li>\n<\/ul>\n<hr \/>\n<p><strong>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 17. til 25. j\u00fan\u00ed.<\/strong> Sk\u00f3lasetning er laugardaginn 17. j\u00fan\u00ed kl. 9.00 og hefjast n\u00e1mskei\u00f0in strax \u00fear \u00e1 eftir. Nemendur eru velkomnir a\u00f0 Reykjask\u00f3la kv\u00f6ldi\u00f0 fyrir sk\u00f3lasetningu, fr\u00e1 kl. 20.00 en \u00fe\u00e1 er ekki bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 kv\u00f6ldver\u00f0. Sk\u00f3laslit eru kl. 12.00 sunnudaginn 25. j\u00fan\u00ed. Vi\u00f0urkenningarskj\u00f6l og merki sk\u00f3lans ver\u00f0a afhent vi\u00f0 sk\u00f3laslit.<\/p>\n<p><strong>A\u00f0sta\u00f0a \u00ed Reykjask\u00f3la:<\/strong><br \/>\nSvefnherbergin eru b\u00fain 2 uppb\u00fanum r\u00famum, \u00fe.e. koddi, s\u00e6ng, lak og s\u00e6ngurf\u00f6t fylgja me\u00f0, litlu bor\u00f0i og tveim st\u00f3lum. Nemendur hafi me\u00f0 s\u00e9r handkl\u00e6\u00f0i og sundf\u00f6t. Sundlaug, gufuba\u00f0 og heitir pottar eru \u00e1 sta\u00f0num.<br \/>\nInnfali\u00f0 \u00ed sk\u00f3lagjaldi er fullt f\u00e6\u00f0i, \u00fe.e. morgunmatur, h\u00e1degismatur og kv\u00f6ldmatur auk kaffiveitinga tvisvar \u00e1 dag.<br \/>\nHaldi\u00f0 er lokah\u00f3f s\u00ed\u00f0asta kv\u00f6ldi\u00f0 \u00fear sem f\u00f3lk kl\u00e6\u00f0ir sig upp \u00e1, kve\u00f0ur kennarana s\u00edna og skemmtir hvert \u00f6\u00f0ru me\u00f0 dansi og s\u00f6ng.<\/p>\n<p><em><strong>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0 er 109.000 kr. og gjald fyrir H\u00f6funda \u00ed heims\u00f3kn er 87.000 kr.<\/strong><\/em><\/p>\n<p><strong>Sta\u00f0festingargjald er kr. 40.000<\/strong> og grei\u00f0ist \u00fea\u00f0 vi\u00f0 skr\u00e1ningu. Sta\u00f0festingargjald er \u00f3endurkr\u00e6ft nema gegn framv\u00edsun l\u00e6knisvottor\u00f0s.<br \/>\nGjaldi\u00f0 skal vera a\u00f0 fullu greitt \u00ed s\u00ed\u00f0asta lagi 1. j\u00fan\u00ed 2023. Innifali\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1ttt\u00f6kugjaldi er gisting, matur, kennsla og g\u00f6gn.<\/p>\n<p>Ums\u00f3kn telst gild \u00feegar sta\u00f0festingargjald hefur veri\u00f0 greitt. Grei\u00f0a skal \u00ed s\u00ed\u00f0asta lagi \u2028 15. apr\u00edl til Bandalags \u00edsl. leikf\u00e9laga og senda tilkynningu \u00e1 netfangi\u00f0 info@leiklist.is. <em><strong>Vi\u00f0 m\u00f3tt\u00f6ku ums\u00f3knar er send krafa \u00ed banka fyrir sta\u00f0festingargjaldi. Grei\u00f0a skal kr\u00f6funa \u00ed bankanum en ekki millif\u00e6ra beint \u00e1 reikning.\u00a0<\/strong><\/em><\/p>\n<p>Me\u00f0limum a\u00f0ildarf\u00e9laga Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga er bent \u00e1 a\u00f0 f\u00e9l\u00f6gin geta s\u00f3tt um sm\u00e1 styrk til Bandalagsins ef \u00feau senda nemendur \u00ed sk\u00f3lann. \u00de\u00e1 styrkja m\u00f6rg st\u00e9ttarf\u00e9l\u00f6g t\u00f3mstundastarf f\u00e9lagsmanna og fellur Leiklistarsk\u00f3linn \u00fear undir.<\/p>\n<p><strong>Kennarar sk\u00f3lans og starfsf\u00f3lk:<\/strong><br \/>\nSk\u00f3last\u00fdra \u2014 F. Elli Hafli\u00f0ason , <a href=\"mailto:donellione@gmail.com\">donellione@gmail.com<\/a><br \/>\nSk\u00f3last\u00fdra \u2014 J\u00f3nhei\u00f0ur \u00cdsleifsd\u00f3ttir, <a href=\"mailto:jonheidur@gmail.com\">jonheidur@gmail.com<\/a><br \/>\nLeiklist II \u2014 \u00c1rni P\u00e9tur Gu\u00f0j\u00f3nsson, <a href=\"mailto:arnipetur@simnet.is\">arnipetur@simnet.is<\/a><br \/>\nLeikstj\u00f3rn II \u2014 Jenn\u00fd L\u00e1ra Arn\u00f3rsd\u00f3ttir, <a href=\"mailto:jennylaraarnors@gmail.com\">jennylaraarnors@gmail.com<\/a><br \/>\nS\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara \u2014 Bj\u00f6rn Ingi Hilmarsson, <a href=\"mailto:bjorningi@mi.is\">bjorningi@mi.is<\/a><\/p>\n<p>Hafi\u00f0 samband vi\u00f0 \u00dej\u00f3nustumi\u00f0st\u00f6\u00f0 B\u00cdL ef spurningar eru var\u00f0andi sk\u00f3lann e\u00f0a anna\u00f0 honum tengt:<\/p>\n<p>Bandalag \u00edslenskra leikf\u00e9laga, Kleppsm\u00fdrarvegi 8, 104 Reykjav\u00edk<br \/>\ns\u00edmi 551 6974, netfang <a href=\"mailto:info@leiklist.is\">info@leiklist.is<\/a>, veffang <a href=\"https:\/\/leiklist.is\/en\/\">www.leiklist.is<\/a><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>STARFST\u00cdMI SK\u00d3LANS ER 17. \u2013 25. J\u00daN\u00cd 2023 A\u00d0 REYKJASK\u00d3LA \u00cd HR\u00daTAFIR\u00d0I. &#8212; Smella h\u00e9r til a\u00f0 s\u00e6kja um!\u00a0&#8212; KVE\u00d0JA FR\u00c1 SK\u00d3LANEFND K\u00e6ru leiklistarvinir! \u00dea\u00f0 er okkur s\u00f6nn \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a ykkur velkomin \u00ed Reykjask\u00f3la \u00ed sumar \u00fear sem leiklistarsk\u00f3linn okkar ver\u00f0ur settur \u00ed tuttugasta og sj\u00f6tta sinn. Sk\u00f3linn bl\u00f3mstar sem aldrei fyrr og vi\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":38552,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[190],"tags":[],"class_list":["post-38551","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-skn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/38551","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=38551"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/38551\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/38552"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=38551"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=38551"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=38551"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}