{"id":3739,"date":"2012-04-11T09:21:04","date_gmt":"2012-04-11T09:21:04","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=3739"},"modified":"2012-04-11T09:21:04","modified_gmt":"2012-04-11T09:21:04","slug":"svar-vie-brefi-helgu-frumsynt-a-nyja-svieinu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/svar-vie-brefi-helgu-frumsynt-a-nyja-svieinu\/","title":{"rendered":"Svar vi\u00f0 br\u00e9fi Helgu frums\u00fdnt \u00e1 N\u00fdja svi\u00f0inu"},"content":{"rendered":"<p \/>Hin margr\u00f3ma\u00f0a \u00e1starsaga Bergsveins Birgissonar ver\u00f0ur frums\u00fdnd \u00e1 N\u00fdja svi\u00f0i Borgarleikh\u00fassins \u00e1 f\u00f6studaginn 27. apr\u00edl n\u00e6stkomandi. H\u00e9r er \u00e1 fer\u00f0inni hr\u00edfandi saga um \u00fer\u00e1 og eftirsj\u00e1. B\u00f3kin var tilnefnd til \u00cdslensku b\u00f3kmenntaver\u00f0launanna \u00e1ri\u00f0 2010 og valin besta sk\u00e1ldsaga \u00e1rsins a\u00f0 mati b\u00f3ksala \u00fea\u00f0 sama \u00e1r. A\u00f0standendur s\u00fdningarinnar eru margir hverjir \u00feeir s\u00f6mu og svi\u00f0settu F\u00f3lki\u00f0 \u00ed Kjallaranum sem hlaut 9 tilnefningar til Gr\u00edmunnar \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri, m.a. sem leiks\u00fdning \u00e1rsins og gekk fyrir tro\u00f0fullu h\u00fasi yfir \u00e1 anna\u00f0 leik\u00e1r. H\u00f6fundur leikger\u00f0ar er \u00d3lafur Egill Egilsson og leikstj\u00f3ri er Krist\u00edn Eysteinsd\u00f3ttir.  <!--more-->  <\/p>\n<p>\u00cd bur\u00f0arhlutverkum eru \u00feau Ilmur Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir og \u00der\u00f6stur Le\u00f3 Gunnarsson. Endurmenntun H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands stendur fyrir s\u00e9rst\u00f6ku n\u00e1mskei\u00f0i um sk\u00e1lds\u00f6guna, leikverki\u00f0 og uppsetninguna \u00fear sem \u00fe\u00e1tttakendur s\u00e6kja \u00e6fingar og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed umr\u00e6\u00f0um um verki\u00f0. Umsj\u00f3n me\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0inu hafa \u00feeir Bergsveinn Birgisson og \u00d3lafur Egill Egilsson en a\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0inu koma einnig listr\u00e6nir stj\u00f3rnendur s\u00fdningarinnar og leikarar. B\u00f3ka\u00fatg\u00e1fan Bjartur endur\u00fatgefur b\u00f3kina me\u00f0 n\u00fdrri k\u00e1pu (einkennismynd leikverksins) \u00ed tengslum vi\u00f0 s\u00fdninguna. \u00deegar er uppselt \u00e1 fyrstu 23 s\u00fdningar verksins og aukas\u00fdningar komnar \u00ed s\u00f6lu fyrir \u00feetta leik\u00e1r.<\/p>\n<p>Bjarni skrifar br\u00e9f til konunnar sem honum bau\u00f0st a\u00f0 fylgja til borgarinnar for\u00f0um. Ger\u00f0i hann r\u00e9tt a\u00f0 taka j\u00f6r\u00f0ina fram yfir \u00e1stina? Hef\u00f0i hann fremur \u00e1tt a\u00f0 flytjast til Reykjav\u00edkur til a\u00f0 moka skur\u00f0 e\u00f0a reisa bragga fyrir Amer\u00edkana? Minningar \u00far sveitinni, vangaveltur um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna og ramm\u00edslenskt f\u00f3lk fl\u00e9ttast inn \u00ed safar\u00edkar fr\u00e1sagnir af \u00fev\u00ed sem hann kallar fengit\u00ed\u00f0 l\u00edfs s\u00edns. Forbo\u00f0nar \u00e1stir renna saman vi\u00f0 sagnir af reyktum l\u00edkum, l\u00e1gf\u00e6ttum hr\u00fatum og \u00fev\u00ed \u00feegar Farmallinn kom.<\/p>\n<p>Snorri Freyr Hilmarsson hannar leikmynd og b\u00faninga og Bj\u00f6rn Bergsteinn Gu\u00f0mundsson l\u00fdsingu. Frank \u00de\u00f3r Hall er h\u00f6fundur t\u00f3nlistar. Leikarar eru \u00der\u00f6stur Le\u00f3 Gunnarsson, Ilmur Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir, Sigr\u00fan Edda Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, Gunnar Hansson og Ellert A. Ingimundarson.<\/p>\n<p>Endurmenntunarn\u00e1mskei\u00f0 \u00cd tengslum vi\u00f0 uppf\u00e6rslu Borgarleikh\u00fassins \u00e1 Svari vi\u00f0 br\u00e9fi Helgu er efnt til n\u00e1mskei\u00f0s um sk\u00e1lds\u00f6guna, leikverki\u00f0 og uppsetninguna. \u00de\u00e1tttakendur s\u00e6kja eina dag\u00e6fingu \u00e1 verkinu og s\u00ed\u00f0an loka\u00e6fingu. N\u00e1mskei\u00f0inu l\u00fdkur me\u00f0 umr\u00e6\u00f0ukv\u00f6ldi \u00fear sem leikstj\u00f3ri, leikmyndar- og b\u00faningah\u00f6nnu\u00f0ur, leikarar og \u00fe\u00e1tttakendur r\u00e6\u00f0a s\u00fdninguna.\u00a0 Mi\u00f0i \u00e1 loka\u00e6fingu er innfalinn \u00ed n\u00e1mskei\u00f0sgjaldi. Skr\u00e1ningarfrestur er til 10. apr\u00edl 2012. N\u00e1nari uppl\u00fdsingar m\u00e1 finna \u00e1 <a class=\"jce_file\" href=\"\/en\/(http:\/www.endurmenntun.hi.is\/Namsframbod\/Namskeid\/Menning\/Nanarumnamskeid\/17V12)\/\">vefs\u00ed\u00f0u<\/a> Endurmenntunar H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/p>\n<p>{mos_fb_discuss:2}<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hin margr\u00f3ma\u00f0a \u00e1starsaga Bergsveins Birgissonar ver\u00f0ur frums\u00fdnd \u00e1 N\u00fdja svi\u00f0i Borgarleikh\u00fassins \u00e1 f\u00f6studaginn 27. apr\u00edl n\u00e6stkomandi. H\u00e9r er \u00e1 fer\u00f0inni hr\u00edfandi saga um \u00fer\u00e1 og eftirsj\u00e1. B\u00f3kin var tilnefnd til \u00cdslensku b\u00f3kmenntaver\u00f0launanna \u00e1ri\u00f0 2010 og valin besta sk\u00e1ldsaga \u00e1rsins a\u00f0 mati b\u00f3ksala \u00fea\u00f0 sama \u00e1r. A\u00f0standendur s\u00fdningarinnar eru margir hverjir \u00feeir s\u00f6mu og svi\u00f0settu F\u00f3lki\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":3738,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187],"tags":[],"class_list":["post-3739","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3739","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3739"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3739\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3739"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3739"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3739"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}