{"id":37380,"date":"2022-04-10T21:11:08","date_gmt":"2022-04-10T21:11:08","guid":{"rendered":"https:\/\/leiklist.is\/?p=37380"},"modified":"2022-04-20T09:55:02","modified_gmt":"2022-04-20T09:55:02","slug":"mikil-leikgledi-i-aratungu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/mikil-leikgledi-i-aratungu\/","title":{"rendered":"Mikil leikgle\u00f0i \u00ed Aratungu"},"content":{"rendered":"<h5>Leikdeild Ungmennaf\u00e9lags Biskupstungna<br \/>\nEf v\u00e6ri \u00e9g gullfiskur<br \/>\nH\u00f6fundur: \u00c1rni Ibsen<br \/>\nLeikstj\u00f3ri: \u00d3lafur Jens Sigur\u00f0sson<\/h5>\n<p>Fj\u00f6lskyldur geta veri\u00f0 fl\u00f3knar, en \u00fe\u00e6r eru sjaldnast jafn fl\u00f3knar og fj\u00f6lskylda P\u00e9turs, gullfiskab\u00fa\u00f0areiganda. P\u00e9tur \u00feessi er raunar ekki allur \u00fear sem hann er s\u00e9\u00f0ur. Hann hefur komist yfir miki\u00f0 f\u00e9 og hyggst stinga af me\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 reynist honum \u00fe\u00f3 \u00ferautin \u00feyngri a\u00f0 komast \u00fat \u00far h\u00fasi me\u00f0 allt sitt f\u00e9. Sonur hans Binni kemur \u00f3v\u00e6nt \u00ed heims\u00f3kn um mi\u00f0jan n\u00f3tt me\u00f0 d\u00f6muna \u00d6ldu upp \u00e1 arminn. Hinir synir hans, Berti og D\u00f3ri, b\u00e6tast svo \u00ed h\u00f3pinn \u00e1samt tengdad\u00e6trum. \u00deegar l\u00ed\u00f0ur \u00e1 verki\u00f0 m\u00e6tti segja a\u00f0 hver \u00fev\u00e6list fyrir \u00f6\u00f0rum eins vera bera \u00ed farsa sem \u00feessum. \u00c1 t\u00edmabili efa\u00f0ist undirritu\u00f0 um a\u00f0 h\u00e6gt yr\u00f0i a\u00f0 vinda ofan af vitleysunni en allt leysist, kannski ekki fars\u00e6llega, en \u00fea\u00f0 leysist a\u00f0 lokum. Og m\u00e1sek hj\u00e1lpar gullfiskaminni fj\u00f6lskyldu P\u00e9turs a\u00f0 gleyma allri miskl\u00ed\u00f0 \u00feannig a\u00f0 allt ver\u00f0i falli\u00f0 \u00ed lj\u00fafa l\u00f6\u00f0 n\u00e6st \u00feegar \u00feau hittast. Hvur veit!<\/p>\n<p>Svona er nokkurn veginn er innihald s\u00fdningarinnar Ef v\u00e6ri \u00e9g gullfiskur eftir \u00c1rna Ibsen sem s\u00fdnd er um \u00feessar mundir \u00ed uppsetningu leikdeildar Ungmennaf\u00e9lags Biskupstungna \u00ed Aratungu.<\/p>\n<p>Leikdeild Ungmennaf\u00e9lags Biskupstungna st\u00e1tar af sterkum h\u00f3pi leikara og eiga margir \u00feeirra st\u00f3rleik \u00ed \u00feessari uppsetningu. B\u00f6\u00f0var \u00de\u00f3r Unnarsson leikur Binna, einn af sonum P\u00e9turs. Binni er \u00e1 svi\u00f0inu n\u00e6r allan t\u00edmann og n\u00e6r B\u00f6\u00f0var a\u00f0 skila vel \u00feessum vandr\u00e6\u00f0alega karakter. Hildur Mar\u00eda Hilmarsd\u00f3ttir leikur da\u00f0urdr\u00f3sina \u00d6ldu og skilar s\u00ednu mj\u00f6g vel. \u00de\u00f3 allt sn\u00faist um P\u00e9tur og peningana hans er P\u00e9tur ekki eins miki\u00f0 \u00e1 svi\u00f0inu og \u00e6tla m\u00e6tti. \u00cd hlutverki hans er Sigurj\u00f3n S\u00e6land og leikur hann af miklu \u00f6ryggi. \u00dea\u00f0 sama m\u00e1 segja um Gu\u00f0bj\u00f6rgu vinkonu hans sem leikin er af Heklu Hr\u00f6nn P\u00e1lsd\u00f3ttur. Hressandi andbl\u00e6r fylgir innkomu Krist\u00ednar, konu Binna, sem leikin er af A\u00f0alhei\u00f0i Helgad\u00f3ttur. A\u00f0alhei\u00f0ur er fr\u00e1b\u00e6r leikkona og skilar mj\u00f6g vel hinu k\u00f3m\u00edska hlutverki Krist\u00ednar. D\u00f3ri, leikinn af Sindra Mj\u00f6lni Magn\u00fassyni, er s\u00f6mulei\u00f0is fr\u00e1b\u00e6r \u00ed s\u00ednu hlutverki. D\u00f3ri er \u00f3\u00f0am\u00e1la ungur ma\u00f0ur, d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00fdkt t\u00fdpa sem Sindri Mj\u00f6lnir t\u00falkar mj\u00f6g vel. Of langt m\u00e1l yr\u00f0i a\u00f0 telja upp alla a\u00f0ra leikara, en eins og \u00e1\u00f0ur sag\u00f0i er leikh\u00f3purinn sterkur og skilar s\u00ednu mj\u00f6g vel.<\/p>\n<p>Verki\u00f0 Ef v\u00e6ri \u00e9g gullfiskur var frums\u00fdnt \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u00e1ri\u00f0 1996. \u00cd uppsetningunni \u00ed Aratungu er miki\u00f0 lagt \u00ed leikmyndina. N\u00e6r allt verki\u00f0 gerist \u00ed stofu \u00ed h\u00fasi sem er \u00ed anda t\u00edunda \u00e1ratugarins. Leikmunir og b\u00faningar minna einnig \u00e1 \u00feann \u00e1ratug. Gamaldags sn\u00farus\u00edmi og s\u00edmsvari leika mj\u00f6g mikilv\u00e6gt og k\u00f3m\u00edskt hlutverk \u00ed s\u00fdningunni. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i \u00fev\u00ed veri\u00f0 skemmtilegt ef leikararnir hef\u00f0u veri\u00f0 me\u00f0 fars\u00edma fr\u00e1 \u00feessum t\u00edma en ekki snjalls\u00edma eins og nota\u00f0ir eru \u00ed dag. \u00c1horfendur hef\u00f0u \u00fe\u00e1 horfi\u00f0 enn betur aftur til t\u00edunda \u00e1ratugarins.<\/p>\n<p>A\u00f0 \u00feessu s\u00f6g\u00f0u m\u00e1 segja a\u00f0 allt gangi upp \u00ed s\u00fdningunni. \u00d3lafur Jens Sigur\u00f0sson n\u00e6r a\u00f0 la\u00f0a fram mikla leikgle\u00f0i hj\u00e1 h\u00f3pnum eins og hann ger\u00f0i l\u00edka \u00ed s\u00fdningunni sem hann setti upp me\u00f0 h\u00f3pnum korteri \u00ed k\u00f3v\u00edd \u00e1ri\u00f0 2020. Lj\u00f3s eru vel notu\u00f0 og s\u00fa litla t\u00f3nlist sem hlj\u00f3mar \u00ed upphafi s\u00fdningar gaf fyrirheit um lj\u00fafa stund, sem segja m\u00e1 a\u00f0 hafi leysts upp eftir \u00fev\u00ed sem lei\u00f0 \u00e1 s\u00fdninguna.<\/p>\n<p>Nokkrar s\u00fdningar eru eftir af \u00feessu br\u00e1\u00f0skemmtilega verki og hvet \u00e9g alla til a\u00f0 fara a\u00f0 sj\u00e1 hana. H\u00fan er g\u00f3\u00f0 hv\u00edld fr\u00e1 amstri hvunndagsins.<\/p>\n<p style=\"text-align: right;\"><strong>El\u00edn Gunnlaugsd\u00f3ttir<\/strong><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leikdeild Ungmennaf\u00e9lags Biskupstungna Ef v\u00e6ri \u00e9g gullfiskur H\u00f6fundur: \u00c1rni Ibsen Leikstj\u00f3ri: \u00d3lafur Jens Sigur\u00f0sson Fj\u00f6lskyldur geta veri\u00f0 fl\u00f3knar, en \u00fe\u00e6r eru sjaldnast jafn fl\u00f3knar og fj\u00f6lskylda P\u00e9turs, gullfiskab\u00fa\u00f0areiganda. P\u00e9tur \u00feessi er raunar ekki allur \u00fear sem hann er s\u00e9\u00f0ur. Hann hefur komist yfir miki\u00f0 f\u00e9 og hyggst stinga af me\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 reynist honum \u00fe\u00f3 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":37289,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186,213],"tags":[],"class_list":["post-37380","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","category-vikupostur","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/37380","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=37380"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/37380\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/37289"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=37380"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=37380"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=37380"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}