{"id":3628,"date":"2012-02-05T21:43:03","date_gmt":"2012-02-05T21:43:03","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=3628"},"modified":"2012-02-05T21:43:03","modified_gmt":"2012-02-05T21:43:03","slug":"bibliusoegur-a-eyjarsloe","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/bibliusoegur-a-eyjarsloe\/","title":{"rendered":"Bibl\u00edus\u00f6gur \u00e1 Eyjarsl\u00f3\u00f0"},"content":{"rendered":"<p><strong><span style=\"font-weight: normal;\"><strong><span style=\"font-weight: normal;\"><strong><span style=\"font-weight: normal;\"><strong>Hugleikur<\/strong><strong>\u00a0<br \/><\/strong><\/span><\/strong><strong>S\u00e1 glata\u00f0i<\/strong><strong>\u00a0<br \/><\/strong><\/span><\/strong><strong>Leikstj\u00f3ri: \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir<\/strong><\/span><\/strong><\/p>\n<p>T\u00edu Hugleikarar og einn fi\u00f0luleikari frums\u00fdndu laugardagskv\u00f6ldi\u00f0 4. febr\u00faar \u00deann glata\u00f0a, fl\u00e9ttuverk \u00far nokkrum d\u00e6mis\u00f6gum sem haf\u00f0ar eru eftir \u201eJes\u00fa nokkrum fr\u00e1 Nasaret\u201c, eins og segir \u00ed leikskr\u00e1. Af \u00feeim bibl\u00edus\u00f6gum sem nota\u00f0ar eru \u00ed \u00edvaf \u00feessa leikverks um L\u00fakas, glata\u00f0an son f\u00f6\u00f0ur Abrahams, atvinnuleysingja og bj\u00f6rgunarmann Bab\u00fdlonsh\u00f3ru, eru Miskunnsami Samverjinn og Glata\u00f0i sonurinn veigamestar en alkunnar v\u00edngar\u00f0s-, talentu-, denara- og gr\u00e1t og gn\u00edstrans\u00f6gur N\u00fdja testamentisins eru felldar inn \u00ed myndina.<\/p>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<p>\u00d3talin er sagan um T\u00fdnda sau\u00f0inn sem einnig liggur til grundvallar s\u00fdningunni en fer nokku\u00f0 forg\u00f6r\u00f0um \u00ed \u00edraf\u00e1ri gr\u00f3tesks br\u00fa\u00f0kaups og svol\u00edti\u00f0 lei\u00f0igjarnra ruddar\u00ed\u00f0inga r\u00edka f\u00f3lksins \u00ed leikritinu. Vandvirknislegri undanfari endurheimtu \u00c6rinnar Bab\u00fdlon sem lifa\u00f0 hefur af \u00f3talm\u00f6rg \u00fatleg\u00f0ar\u00e1r L\u00fakasar glata\u00f0a a\u00f0 \u00fev\u00ed er best ver\u00f0ur s\u00e9\u00f0 fj\u00e1rhir\u00f0islaust hef\u00f0i styrkt mj\u00f6g alla formger\u00f0 \u00feessarar s\u00fdningar. M\u00e9r fannst heldur ekki sannf\u00e6randi \u00feegar L\u00fakas bana\u00f0i saklausum manni. Hann var ekki n\u00e6rri n\u00f3gu hungra\u00f0ur til \u00feess a\u00f0 fremja sl\u00edkt vo\u00f0averk \u00ed von um sa\u00f0ningu.<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur L\u00e1ra Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir er handritsh\u00f6fundur \u00deess glata\u00f0a en samkv\u00e6mt rafr\u00e6nni kynningu \u00e1 s\u00fdningunni hefur leikh\u00f3purinn lagt h\u00f6nd \u00e1 pl\u00f3g vi\u00f0 handritsger\u00f0 auk leikstj\u00f3rans, \u00c1g\u00fastu Sk\u00falad\u00f3ttur. Sigr\u00ed\u00f0ur L\u00e1ra er enginn n\u00fdli\u00f0i \u00ed leikritasm\u00ed\u00f0. H\u00fan hefur \u00e1\u00f0ur sami\u00f0 ein fimmt\u00e1n leikverk og var farin a\u00f0 stunda \u00fe\u00e1 i\u00f0ju fyrir aldam\u00f3t. Hugmyndin a\u00f0 baki \u00deeim glata\u00f0a er g\u00f3\u00f0, ef ekki ofursnj\u00f6ll, en glatast nokku\u00f0 \u00ed me\u00f0f\u00f6runum fyrir \u00fe\u00e6r sakir a\u00f0 \u00fev\u00ed er \u00e9g held a\u00f0 Hugleikarar eru afar uppteknir af \u00fev\u00ed a\u00f0 skemmta f\u00f3lki me\u00f0 tilfyndni sinni. S\u00f6ngtextar \u00deorgeirs Tryggvasonar, e\u00f0a \u00fea\u00f0 sem \u00e9g gat greint af \u00feeim, voru ekki \u00f3snyrtilega saman settir en virku\u00f0u oft fremur til uppfyllingar en a\u00f0 \u00feeim v\u00e6ri \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 undirstrika meginefni verksins. Sama m\u00e1 segja um t\u00f3nlistina. Um h\u00f6funda hennar er hvergi geti\u00f0 \u00ed g\u00f6gnum um s\u00fdninguna og \u00fea\u00f0 var erfitt a\u00f0 greina einhverja heildst\u00e6\u00f0a hugsun \u00ed vali hennar.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-3627\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"sa_glatadi3\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2012\/02\/Adildarfelog_Sudvestur_Hugleikur_11_12_Sa_glatadi_sa_glatadi3.jpg\" height=\"150\" width=\"200\" \/>S\u00f6ngur leikaranna hlj\u00f3ma\u00f0i hins vegar vel og oft undurfallega. \u00dea\u00f0 var einnig afskaplega athyglisvert a\u00f0 \u00feegar leikh\u00f3purinn var \u00ed hlutverki k\u00f3rsins l\u00e9k hann eins og vel stillt hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri \u00ed h\u00f6ndum kunn\u00e1ttumanns en leikur hvers leikara um sig \u00ed einst\u00f6kum hlutverkum var misjafnlega vandlega unninn. S\u00fdningin hefst \u00e1 fallegri og afar leikh\u00faslegri mynd \u00fear sem gr\u00edmurnar \u00e1 hnakka leikaranna sn\u00faa a\u00f0 \u00e1horfendum og s\u00ed\u00f0an upphefst sei\u00f0andi s\u00f6ngur vi\u00f0 undirleik fi\u00f0lunnar. \u00dearna lofu\u00f0u Hugleikararar gestum s\u00ednum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00e6ttu \u00ed v\u00e6ndum fallega og vel unna leiks\u00fdningu. A\u00f0 m\u00f6rgu leyti var sta\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 lofor\u00f0. Leikr\u00fdmi\u00f0 a\u00f0 Eyjarsl\u00f3\u00f0 var mj\u00f6g vel n\u00fdtt \u00feetta kv\u00f6ld, leikmynd, b\u00faningar, lj\u00f3s og leikmunir allt smekklega og bibl\u00edulega gert. M\u00e9r fannst tr\u00e9n \u00e1 svi\u00f0inu \u00ed upphafi reyndar ekki gegna neinu hlutverki og \u00fea\u00f0 var mikill l\u00e9ttir \u00feegar \u00feau t\u00f3ku a\u00f0 f\u00e6rast \u00far sta\u00f0.\t<br \/>\u00deessu var \u00f6fugt fari\u00f0 me\u00f0 fi\u00f0luleikinn. Hann b\u00e6\u00f0i skapa\u00f0i og undirstrika\u00f0i stemningu \u00ed fyrstu atri\u00f0um s\u00fdningarinnar en var\u00f0 \u00feegar \u00e1 lei\u00f0 allt of r\u00edkjandi og sm\u00e1m saman svol\u00edti\u00f0 sv\u00e6fandi. Um \u00feetta er ekki vi\u00f0 fi\u00f0luleikarann a\u00f0 sakast. B\u00e6\u00f0i \u00feaulreyndur leikstj\u00f3rinn, \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir, og a\u00f0sto\u00f0arleikstj\u00f3ri hennar og handritsh\u00f6fundur, Sigr\u00ed\u00f0ur L\u00e1ra Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir, vita a\u00f0 minna er oftast meira. G\u00f3\u00f0ar hugmyndir nj\u00f3ta s\u00edn best s\u00e9 \u00feeim ekki ota\u00f0 um of a\u00f0 \u00e1horfendum.\u00a0<\/p>\n<p>H\u00e9r hefur n\u00fa veri\u00f0 sagt nokku\u00f0 fr\u00e1 kostum s\u00fdningar Hugleiks \u00e1 \u00deeim glata\u00f0a en \u00fe\u00f3 kannski meira fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem kalla m\u00e6tti \u00e1galla. Um s\u00fdninguna hef\u00f0i m\u00e1tt skrifa allt annars konar r\u00fdni og dvelja einv\u00f6r\u00f0ungu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem pr\u00fd\u00f0ir hana en \u00fea\u00f0 er margt. Sj\u00f3nr\u00e6nt er h\u00fan \u00f3venju vel unnin s\u00e9 haft \u00ed huga a\u00f0 leikararnir og t\u00e6knili\u00f0i\u00f0 allt er a\u00f0 \u00fev\u00ed er \u00e9g best veit \u00e1hugamenn. Leikararnir syngja, leika og hreyfa sig oft eins og ensemble og sumir \u00feeirra hafa einnig sterka svi\u00f0sn\u00e1nd \u00feegar \u00feeir taka sig \u00fat \u00far h\u00f3pnum og fara \u00fe\u00e1 vel me\u00f0 hlutverk s\u00edn. B\u00faningar Krist\u00ednu R. Bermann eru ekki bara smekklegir heldur undirstrika \u00e1 l\u00e1tlausan h\u00e1tt sunnudagask\u00f3lar\u00e6tur s\u00ednar.\t<br \/>S\u00e9 \u00e1 allt liti\u00f0 er s\u00fdning Hugleiks \u00e1 \u00deeim glata\u00f0a v\u00f6ndu\u00f0 og sumar hugmyndirnar a\u00f0 baki hennar gulls \u00edgildi. Nokku\u00f0 skortir hins vegar \u00e1 a\u00f0 \u00farvinnsla \u00feeirra skili s\u00e9r til \u00feeirra hl\u00edtar sem \u00fe\u00e6r ver\u00f0skulda.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>Trausti \u00d3lafsson<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hugleikur\u00a0S\u00e1 glata\u00f0i\u00a0Leikstj\u00f3ri: \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir T\u00edu Hugleikarar og einn fi\u00f0luleikari frums\u00fdndu laugardagskv\u00f6ldi\u00f0 4. febr\u00faar \u00deann glata\u00f0a, fl\u00e9ttuverk \u00far nokkrum d\u00e6mis\u00f6gum sem haf\u00f0ar eru eftir \u201eJes\u00fa nokkrum fr\u00e1 Nasaret\u201c, eins og segir \u00ed leikskr\u00e1. Af \u00feeim bibl\u00edus\u00f6gum sem nota\u00f0ar eru \u00ed \u00edvaf \u00feessa leikverks um L\u00fakas, glata\u00f0an son f\u00f6\u00f0ur Abrahams, atvinnuleysingja og bj\u00f6rgunarmann Bab\u00fdlonsh\u00f3ru, eru Miskunnsami Samverjinn [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":3626,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-3628","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3628","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3628"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3628\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3628"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3628"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3628"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}