{"id":350,"date":"2005-10-03T10:33:09","date_gmt":"2005-10-03T10:33:09","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=350"},"modified":"2005-10-03T10:33:09","modified_gmt":"2005-10-03T10:33:09","slug":"vetrardagskrslensku-unnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/vetrardagskrslensku-unnar\/","title":{"rendered":"Vetrardagskr\u00e1 \u00cdslensku \u00f3perunnar"},"content":{"rendered":"<p>Kynning \u00e1 verkefnum starfs\u00e1rsins 2005-6 f\u00f3r fram \u00ed \u00cdslensku \u00f3perunni \u00ed sl. fimmtudag, en framundan er spennandi og skemmtilegt \u00e1r og &aelig;ttu allir a&eth; finna eitthva&eth; vi&eth; sitt h&aelig;fi. Me&eth;al &thorn;ess sem ver&eth;ur \u00e1 dagskr\u00e1 \u00d3perunnar \u00ed vetur eru \u00f3peran T&ouml;kin hert (The Turn of the Screw), frums\u00fdning 21.okt\u00f3ber, h\u00e1degist\u00f3nleikar \u00ed samstarfi vi&eth; MasterCard, dansverki&eth; VON \u00ed samstarfi vi&eth; PARS PRO TOTO, &Ouml;skubuska eftir Rossini, frums\u00fdning \u00ed febr\u00faar 2006, \u00d3perust\u00fad\u00ed\u00f3, Litla hryllingsb\u00fa&eth;in \u00ed samstarfi vi&eth; Leikf&eacute;lag Akureyrar og m\u00e1l&thorn;ing um \u00cdslensku \u00f3peruna.<\/p>\n<p> <font color=\"#000000\">\u00cd haust mun \u00d3peran leggja \u00e1herslu \u00e1 a&eth; bj\u00f3&eth;a ungu f\u00f3lki g\u00f3&eth; kj&ouml;r \u00e1 \u00f3perus\u00fdningar en allir 25 \u00e1ra og yngri f\u00e1 50% afsl\u00e1tt af mi&eth;um \u00ed sal \u00e1 a&eth;alverkefni \u00d3perunnar \u00e1 haustmisseri. <\/p>\n<p> <\/font> <!--more--> <font color=\"#000000\"><strong><\/p>\n<p> \u00d3perudeigla:<br \/><\/strong><\/font><font color=\"#000000\">Me&eth; \u00d3perudeiglunni mun \u00cdslenska \u00f3peran \u00ed samstarfi vi&eth; Listah\u00e1t\u00ed&eth; \u00ed Reykjav\u00edk og fleiri skapa vettvang fyrir tilraunastarf og n\u00fdsk&ouml;pun \u00e1 svi&eth;i \u00f3perulistar. Gengi&eth; er \u00fat fr\u00e1 &thorn;v\u00ed a&eth; kveikjan a&eth; n\u00fdrri \u00f3peru geti komi&eth; \u00far \u00fdmsum \u00e1ttum og a&eth; galdurinn sem &thorn;arf til a&eth; sm\u00ed&eth;a g\u00f3&eth;a \u00f3peru s&eacute; sjaldnast \u00e1 valdi einnar manneskju. Tilgangurinn me&eth; deiglunni er a&eth; la&eth;a \u00e1hugasama einstaklinga me&eth; \u00f3l\u00edka s&eacute;r&thorn;ekkingu til samstarfs um \u00e1kve&eth;i&eth; tilraunaferli sem me&eth; t\u00ed&eth; og t\u00edma kann a&eth; f&aelig;&eth;a af s&eacute;r \u00e1hugaver&eth; verk fyrir \u00f3peruh\u00fas 21. <\/font><font color=\"#000000\">aldar. Fyrsta samkoma \u00d3perudeiglunnar ver&eth;ur haldin \u00ed lok okt\u00f3ber.<\/font><strong><font color=\"#000000\">&nbsp;<\/font><\/strong> <\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><strong><font color=\"#000000\">H\u00e1degist\u00f3nleikar:<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">H\u00e1degist\u00f3nleikar \u00d3perunnar hafa hloti&eth; g\u00f3&eth;ar vi&eth;t&ouml;kur undanfarin \u00e1r og er &thorn;etta &thorn;ri&eth;ja \u00e1ri&eth; \u00ed r&ouml;&eth; sem fari&eth; ver&eth;ur af sta&eth; me&eth; h\u00e1degist\u00f3nleikar&ouml;&eth;ina. &THORN;a&eth; ver&eth;a haldnir tvennir t\u00f3nleikar \u00e1 haustmisseri og tvennir \u00e1 vormisseri. Fyrstu t\u00f3nleikarnir ver&eth;a &thorn;ann 1. n\u00f3vember og er &thorn;a&eth; Hanna D\u00f3ra Sturlud\u00f3ttir, s\u00f3pran sem st\u00edgur \u00e1 stokk, \u00e1samt Kurt Kopecky \u00e1 p\u00edan\u00f3. &THORN;ann 29. n\u00f3vember er &thorn;a&eth; Hl\u00edn P&eacute;tursd\u00f3ttir, s\u00f3pran, sem flytur ar\u00edur eftir Stravinsky, Britten og Menotti vi&eth; undirleik Kurts Kopecky. \u00c1 fyrstu h\u00e1degist\u00f3nleikum vormisseris eru &thorn;a&eth; &thorn;au Einar Gu&eth;mundsson, barit\u00f3n, og Katharina Mooslechner, s\u00f3pran, sem koma fram. &THORN;au munu flytja &bdquo;Br\u00fa&eth;kaupsdagskr\u00e1&rdquo;, en &thorn;au &aelig;tla einmitt a&eth; gifta sig \u00ed jan\u00faar. Kolbeinn Ketilsson, ten\u00f3r, sem kemur fram \u00e1 s\u00ed&eth;ustu h\u00e1degist\u00f3nleikum vetrarins flytur kans\u00f3nur \u00far su&eth;ri og nor&eth;ri &thorn;.e. s&ouml;ngl&ouml;g fr\u00e1 Noregi, Sv\u00ed&thorn;j\u00f3&eth; og \u00cdtal\u00edu. Dagsetningar \u00e1 h\u00e1degist\u00f3nleikum vormisseris ver&eth;a augl\u00fdstar s\u00ed&eth;ar.<br \/><\/font><font color=\"#000000\">Eins og \u00ed fyrra eru h\u00e1degist\u00f3nleikarnir haldnir \u00ed samvinnu vi&eth; <strong>MasterCard<\/strong>. T\u00f3nleikarnir hefjast kl. 12.15 og standa yfir \u00ed um 40 m\u00edn\u00fatur.&nbsp;<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font color=\"#000000\"><a href=\"http:\/\/www.opera.is\/category.asp?catID=229\">N\u00e1nari uppl\u00fdsingar um h\u00e1degist\u00f3nleika haustmisseris<\/a><\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><font color=\"#000000\">&nbsp;<\/font><strong><font color=\"#000000\">&bdquo;\u00d3pera lengir l\u00edfi&eth;&rdquo; \u00ed Leikh\u00faskjallaranum :<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">\u00cd vetur mun \u00d3peran leggja sitt af m&ouml;rkum til dagskr\u00e1r Leikh\u00faskjallarans og fyrsta fimmtudag \u00ed hverjum m\u00e1nu&eth;i ver&eth;ur bo&eth;i&eth; upp \u00e1 kv&ouml;ldskemmtun sem ber yfirskriftina &bdquo;\u00d3pera lengir l\u00edfi&eth;&rdquo;.&nbsp; &THORN;a&eth; er fr&aelig;&eth;slustj\u00f3ri \u00d3perunnar, Ing\u00f3lfur N\u00edels \u00c1rnason ,\u00f3peruleikstj\u00f3ri, sem heldur utan um dagskr\u00e1na fyrir \u00d3peruna, og mun hann leggja \u00e1herslu \u00e1 a&eth; blanda saman fr&aelig;&eth;ilegri umfj&ouml;llun um \u00f3perur og \u00f3perulist \u00e1samt &thorn;v\u00ed a&eth; skemmta f\u00f3lki um lei&eth;. Ing\u00f3lfur mun taka \u00fatgangspunkt \u00ed mannsr&ouml;ddinni sem hlj\u00f3&eth;f&aelig;ri og f&aelig;r hann t\u00f3nlistarmenn og \u00f3perus&ouml;ngvara til li&eth;s vi&eth; sig sem munu a&eth;sto&eth;a hann vi&eth; a&eth; sko&eth;a mannsr&ouml;ddina fr\u00e1 hinum \u00fdmsu sj\u00f3narhornum. Dagskr\u00e1in &bdquo;\u00d3pera lengir l\u00edfi&eth;&rdquo;&nbsp; hefst \u00ed Leikh\u00faskjallaranum fimmtudaginn 13. okt\u00f3ber nk., og eru allir &thorn;eir sem vilja fr&aelig;&eth;ast meira um \u00f3perur og \u00f3perulist \u00e1 skemmtilegan h\u00e1tt hvattir til a&eth; m&aelig;ta.<\/font><font color=\"#000000\">&nbsp;<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><strong><font color=\"#000000\">M\u00e1l&thorn;ing um framt\u00ed&eth; \u00cdslensku \u00f3perunnar:<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">\u00cd byrjun n\u00f3vember bo&eth;ar \u00cdslenska \u00f3peran til m\u00e1l&thorn;ings um framt\u00ed&eth; \u00cdslensku \u00f3perunnar. &THORN;a&eth; er einkum tvennt sem er hvatinn a&eth; &thorn;essu m\u00e1l&thorn;ingi: Annars <\/font><font color=\"#000000\">vegar tillaga Gunnars I. Birgirssonar b&aelig;jarstj\u00f3ra um a&eth; byggja h\u00fas fyrir \u00cdslensku \u00f3peruna \u00e1 Borgarholtinu \u00ed K\u00f3pavogi, hins vegar samkeppnisni&eth;urst&ouml;&eth;ur og \u00e1&aelig;tlanir um byggingu t\u00f3nlistar- og r\u00e1&eth;stefnumi&eth;st&ouml;&eth;var vi&eth; Austurh&ouml;fn. Hvort tveggja getur haft afgerandi \u00e1hrif \u00e1 framt\u00ed&eth; \u00cdslensku \u00f3perunnar.<\/font><strong><font color=\"#000000\">&nbsp;<\/font><\/strong><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><strong><font color=\"#000000\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-349\" width=\"183\" vspace=\"5\" hspace=\"5\" height=\"261\" border=\"0\" align=\"right\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2005\/10\/www.opera.is_img_articlepics_GunnarGudbj.JPG\" style=\"width: 183px; height: 261px;\" \/>T&ouml;kin hert \u00ed okt\u00f3ber: <br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">A&eth;alverkefni \u00d3perunnar \u00e1 haustmisseri er \u00f3peran <strong>T&ouml;kin hert <\/strong>(The Turn of the Screw) eftir breska t\u00f3nsk\u00e1ldi&eth; Benjam\u00edn Britten. Texti \u00f3perunnar er eftir Myfanwy Piper bygg&eth;ur \u00e1 samnefndri sm\u00e1s&ouml;gu Henry James sem kom \u00fat \u00e1ri&eth; 1898. \u00d3peran var frums\u00fdnd \u00ed Feneyjum \u00e1ri&eth; 1954 og hefur s\u00ed&eth;an &thorn;\u00e1 veri&eth; s\u00fdnd reglulega \u00ed &ouml;llum helstu \u00f3peruh\u00fasum \u00ed heimi, en &thorn;etta er \u00ed fyrsta skipti sem a&eth; <strong>T&ouml;kin hert<\/strong> er sett upp h&eacute;r \u00e1 landi. Leikstj\u00f3ri er Halld\u00f3r E. Laxness og hlj\u00f3msveitarstj\u00f3ri er Kurt Kopecky. Eins&ouml;ngvarar eru: Hulda Bj&ouml;rk Gar&eth;arsd\u00f3ttir, \u00d3l&ouml;f Kolbr\u00fan Har&eth;ard\u00f3ttir, Gunnar Gu&eth;bj&ouml;rnsson, Hanna D\u00f3ra Sturlud\u00f3ttir, &THORN;\u00f3runn Arna Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir og \u00cdsak R\u00edkhar&eth;sson. <strong>Frums\u00fdning 21. okt\u00f3ber.<br \/><\/strong><\/font><br \/><font color=\"#000000\"><a href=\"http:\/\/www.opera.is\/category.asp?catID=222\">N\u00e1nari uppl\u00fdsingar um T&ouml;kin hert<\/a><\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><strong><font color=\"#000000\">25 \u00e1ra og yngri : 50% afsl\u00e1ttur:<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">S\u00ed&eth;astli&eth;in vetur j\u00f3kst fj&ouml;ldi ungs f\u00f3lks \u00ed \u00e1horfendah\u00f3pnum \u00e1 s\u00fdningar \u00ed \u00cdslensku \u00f3perunni. \u00cd haust mun \u00d3peran hvetja enn fleiri ungmenni til a&eth; s&aelig;kja s\u00fdningar \u00ed \u00d3perunni og f\u00e1 allir 25 \u00e1ra og yngri 50% afsl\u00e1tt af mi&eth;aver&eth;i \u00ed sal \u00e1 a&eth;alverkefni \u00d3perunnar \u00e1 haustmisseri 2005, <strong>T&ouml;kin hert<\/strong>. <\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><strong><font color=\"#000000\">PARS PRO TOTO \u00ed samstarfi vi&eth; \u00cdslensku \u00f3peruna kynnir dansverki&eth; VON:<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">\u00cd Von renna saman draumur og veruleiki \u00ed hugl&aelig;gum l\u00edkamsmyndum, \u00e1&thorn;reifanlegri t\u00f3nlist og myndr&aelig;nu fl&aelig;&eth;i, innbl\u00e1si&eth; af or&eth;um \u00c1rna Ibsen rith&ouml;fundar. Dansarar eru fj\u00f3rir: Hannes Egilsson sem lagt hefur stund \u00e1 framhaldsn\u00e1m \u00ed dansi vi&eth; The Place \u00ed London,&nbsp; Saga Sigur&eth;ard\u00f3ttir<strong> <\/strong>sem veri&eth; hefur \u00ed framhaldsn\u00e1mi vi&eth;<strong> <\/strong>Listdansh\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Arnhem \u00ed Hollandi, Vicente Sancho sem kemur fr\u00e1 Sp\u00e1ni en hans bakland er \u00far dansandi heimi l\u00e1tbrag&eth;sins og L\u00e1ra Stef\u00e1nsd\u00f3ttir sem semur verki&eth; og tekur jafnframt &thorn;\u00e1tt \u00ed flutningi. H\u00fan hefur undanfari&eth; \u00e1r veri&eth; b\u00fasett \u00ed London og lagt &thorn;ar stund \u00e1 dansfr&aelig;&eth;i og er verki&eth; a&eth; mestu unni&eth; &thorn;ar. Enn fremur koma fram Sverrir Gu&eth;j\u00f3nsson t\u00f3nlistarma&eth;ur og Ingibj&ouml;rg Bj&ouml;rnsd\u00f3ttir dansari og danskennari. Svi&eth;smynd verksins er a&eth; mestu unnin \u00far myndb&ouml;ndum en h&ouml;nnu&eth;ur &thorn;eirra er Krist\u00edn Eva &THORN;\u00f3rhallsd\u00f3ttir. T\u00f3nlistin \u00ed verkinu er eftir Gu&eth;na Franzson en um l\u00fdsingu s&eacute;r J\u00f3hann B. P\u00e1lmason. Von er samstarfsverkefni Pars Pro Toto danskompan\u00eds og \u00cdslensku \u00f3perunnar, stutt af Leiklistarr\u00e1&eth;i \u00cdslands. Verki&eth; ver&eth;ur frums\u00fdnt \u00ed \u00d3perunni 20. n\u00f3vember n&aelig;stkomandi og s\u00ed&eth;an flutt \u00ed London \u00ed byrjun n&aelig;sta \u00e1rs.<\/p>\n<p><\/font><strong><font color=\"#000000\">\u00d3venjulegir V\u00ednart\u00f3nleikar \u00ed samstarfi vi&eth; Kammersvetina \u00cdsafold undir <\/font><\/strong><strong><font color=\"#000000\">stj\u00f3rn Dan\u00edels Bjarnasonar:<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">Flutt ver&eth;a \u00fdmis verk sem \u00fatsett voru fyrir kammerhlj\u00f3msveit af me&eth;limum Verein f&uuml;r Musikalische Privatauff&uuml;hrungen (F&eacute;lag um einkaflutning t\u00f3nverka) \u00ed V\u00ednarborg \u00e1 \u00e1runum 1918 &#8211; 1921. Stofnandi f&eacute;lagsins og a&eth;aldriffj&ouml;&eth;ur var Arnold Sch&ouml;nberg, en me&eth; honum \u00ed f&eacute;laginu st&ouml;rfu&eth;u m.a. nokkrir \u00e1hugas&ouml;mustu nemendur hans, svo sem Alban Berg og Anton Webern. Tilgangur f&eacute;lagsins var a&eth;&nbsp; br\u00faa bili&eth; milli n\u00fat\u00edmat\u00f3nlistar og \u00e1heyrenda me&eth; v&ouml;ndu&eth;um flutningi vi&eth; l\u00e1tlausar a&eth;st&aelig;&eth;ur, enda voru t\u00f3nleikar f&eacute;lagsins jafnan haldnir \u00ed heimah\u00fasum. \u00c1 &thorn;riggja \u00e1ra t\u00edmabili st\u00f3&eth; f&eacute;lagi&eth; fyrir fj&ouml;lm&ouml;rgum t\u00f3nleikum me&eth; verkum eftir \u00fdmis t\u00f3nsk\u00e1ld, m.a. Debussy, Ravel, Schriabin, Stravinsky og Zemlinsky.<br \/><\/font><strong><font color=\"#000000\">T\u00f3nleikarnir fara fram \u00ed \u00cdslensku \u00f3perunni \u00ed byrjun jan\u00faar 2006.<\/p>\n<p><\/font><\/strong><strong><font color=\"#000000\">&Ouml;skubuska \u00ed febr\u00faar:<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">A&eth;alverkefni \u00d3perunnar \u00e1 vormisseri 2006 er hin s\u00edgilda \u00f3pera <strong>&Ouml;skubuska<\/strong> (La Cenerentola) eftir Rossini, sem ver&eth;ur frums\u00fdnd \u00ed febr\u00faar. Leikstj\u00f3ri er Paul Suter og hlj\u00f3msveitarstj\u00f3ri Kurt Kopecky. Eins&ouml;ngvarar eru: Sesselja Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir, Gar&eth;ar Th\u00f3r Cortes, Berg&thorn;\u00f3r P\u00e1lsson, Dav\u00ed&eth; \u00d3lafsson, Hl\u00edn P&eacute;tursd\u00f3ttir, Anna Margr&eacute;t \u00d3skarsd\u00f3ttir og Einar Gu&eth;mundsson.<\/font><font color=\"#000000\">&nbsp;<\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><strong \/><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><strong><font color=\"#000000\">\u00d3perust\u00fad\u00ed\u00f3:<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">&THORN;ri&eth;ja \u00e1ri&eth; \u00ed r&ouml;&eth; stendur \u00cdslenska \u00f3peran fyrir \u00d3perust\u00fad\u00ed\u00f3i, &thorn;ar sem a&eth; t\u00f3nlistarsk\u00f3lanemendur \u00e1 h&ouml;fu&eth;borgarsv&aelig;&eth;inu f\u00e1 t&aelig;kif&aelig;ri til a&eth; taka &thorn;\u00e1tt \u00ed \u00f3perus\u00fdningu sem unnin er a&eth; &ouml;llu leyti eins og a&eth;rar s\u00fdningar h\u00fassins. Reynsla s\u00ed&eth;ustu tveggja \u00e1ra hefur s\u00fdnt a&eth; &thorn;a&eth; er mikill \u00e1hugi fyrir verkefninu b&aelig;&eth;i me&eth;al &thorn;\u00e1tttakenda sem og \u00e1horfenda. \u00c1 s\u00ed&eth;asta \u00e1ri s\u00e1u yfir 1.500 manns s\u00fdningu \u00d3perust\u00fad\u00ed\u00f3sins \u00e1 Ap\u00f3tekaranum eftir Haydn. \u00cd \u00e1r ver&eth;ur sett upp \u00f3perettan N\u00f3tt \u00ed Feneyjum eftir Johann Strauss. Leikstj\u00f3ri \u00d3perust\u00fad\u00ed\u00f3sins \u00ed \u00e1r er ung kona fr\u00e1 V\u00edn a&eth; nafni Uschi Horner. Hlj\u00f3msveitarstj\u00f3ri er Dan\u00edel Bjarnason, en umsj\u00f3n me&eth; \u00d3perust\u00fad\u00ed\u00f3inu hefur Kurt Kopecky t\u00f3nlistarstj\u00f3ri \u00d3perunnar. \u00cdslandsbanki kemur a&eth; kostun verkefnisins anna&eth; \u00e1ri&eth; \u00ed r&ouml;&eth; og sty&eth;ur \u00e1fram dyggilega vi&eth; baki&eth; \u00e1 \u00d3perust\u00fad\u00ed\u00f3inu.<\/font><strong><font color=\"#000000\">&nbsp;<\/font><\/strong><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><strong><font color=\"#000000\">Listah\u00e1t\u00ed&eth; \u00ed samstarfi vi&eth; \u00cdslensku \u00f3peruna \u00ed ma\u00ed 2006:<br \/><\/font><\/strong><strong><font color=\"#000000\">I Fagiolini &ndash; L&rsquo;Amfiparnaso<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">I Fagiolini er ein &thorn;ekktasta s&ouml;ngsveit Englendinga og kemur h\u00fan til landsins \u00ed vor \u00ed fyrsta skipti til a&eth; flytja okkur commedia dell&rsquo;arte verki&eth; L&rsquo;Amfiparnaso eftir \u00edtalska t\u00f3nsk\u00e1ldi&eth; Vecchi. \u00cd &thorn;essu st\u00f3rskemmtilega t\u00f3nverki hefur Vecchi tekist a&eth; l\u00edfga vi&eth; d\u00e1samlega karaktera fr\u00e1 Feneyjum 16. aldar og eins og oftast \u00ed commedia dell&rsquo;arte er plotti&eth; einfalt me&eth; \u00f3hamingjus&ouml;mu pari, r\u00e1&eth;ag\u00f3&eth;um svikahr&ouml;ppum og \u00f3sv\u00edfnu &thorn;j\u00f3nustuf\u00f3lki. Atbur&eth;ar\u00e1sin er leikin me&eth; l\u00e1tbrag&eth;i af gr\u00edmukl&aelig;ddum leikurum og t\u00f3nlistin er sungin \u00e1 \u00edtalskri m\u00e1ll\u00fdsku fr\u00e1 Toskana-h&eacute;ra&eth;i og Feneyjum. Hver sena er kynnt me&eth; stuttum og skemmtilegum inngangi sem enginn annar en breski st\u00f3rleikarinn Simon Callow flytur. <\/font><font color=\"#000000\">T\u00f3nlistarstj\u00f3ri: Robert Hollingworth. <\/p>\n<p><\/font><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><strong><font color=\"#000000\">Litla hryllingsb\u00fa&eth;in \u00ed samvinnu vi&eth; LA \u00ed vor:<br \/><\/font><\/strong><font color=\"#000000\">Litla hryllingsb\u00fa&eth;in, s&ouml;ngleikur eftir Howard Ashman og Alan Menken ver&eth;ur frums\u00fdndur hj\u00e1 Leikf&eacute;lagi Akureyrar \u00ed febr\u00faar \u00ed leikstj\u00f3rn Magn\u00fasar Geirs &THORN;\u00f3r&eth;arsonar. \u00c1 vord&ouml;gum munu svo f&eacute;lagar \u00ed LA leggja land undir f\u00f3t og ver&eth;ur s\u00fdningin sett upp \u00ed \u00cdslensku \u00f3perunni \u00ed ma\u00ed. <\/p>\n<p><strong>Allar n\u00e1nari uppl\u00fdsingar um einst&ouml;k verkefni og dagsetningar birtast \u00e1 <a href=\"http:\/\/opera.is\">vef \u00cdslensku \u00f3perunnar <\/a>jafn\u00f3&eth;um og &thorn;&aelig;r berast.<\/strong><\/font><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Kynning \u00e1 verkefnum starfs\u00e1rsins 2005-6 f\u00f3r fram \u00ed \u00cdslensku \u00f3perunni \u00ed sl. fimmtudag, en framundan er spennandi og skemmtilegt \u00e1r og &aelig;ttu allir a&eth; finna eitthva&eth; vi&eth; sitt h&aelig;fi. Me&eth;al &thorn;ess sem ver&eth;ur \u00e1 dagskr\u00e1 \u00d3perunnar \u00ed vetur eru \u00f3peran T&ouml;kin hert (The Turn of the Screw), frums\u00fdning 21.okt\u00f3ber, h\u00e1degist\u00f3nleikar \u00ed samstarfi vi&eth; MasterCard, dansverki&eth; [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":349,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187],"tags":[],"class_list":["post-350","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/350","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=350"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/350\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=350"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=350"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=350"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}