{"id":2975,"date":"2010-09-13T14:30:47","date_gmt":"2010-09-13T14:30:47","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=2975"},"modified":"2010-09-13T14:30:47","modified_gmt":"2010-09-13T14:30:47","slug":"komie-og-farie-tilnefnt-fyrir-islands-hoend-a-iata-hatie","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/komie-og-farie-tilnefnt-fyrir-islands-hoend-a-iata-hatie\/","title":{"rendered":"Komi\u00f0 og fari\u00f0 tilnefnt fyrir \u00cdslands h\u00f6nd \u00e1 IATA-h\u00e1t\u00ed\u00f0"},"content":{"rendered":"<p>Stj\u00f3rn Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga hefur \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 framlag \u00cdslands til IATA leiklistarh\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar \u00ed Troms\u00f6 2011 ver\u00f0i uppsetning Leikf\u00e9lagsins Pe\u00f0sins \u00e1 Komi\u00f0 og fari\u00f0 eftir Samuel Beckett \u00ed leikstj\u00f3rn Gu\u00f0j\u00f3ns Sigvaldasonar \u00ed \u00edslenskri \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00c1rna Ibsen. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur svo valnefnd \u00e1 vegum IATA (Al\u00fej\u00f3\u00f0a \u00e1hugaleikh\u00fasr\u00e1\u00f0sins) sem sker endanlega \u00far hvort s\u00fdningin ver\u00f0ur valin til s\u00fdninga \u00ed Troms\u00f6 og mun \u00fea\u00f0 sk\u00fdrast \u00feann 15. n\u00f3vember nk. Valnefnd \u00e1 vegum Bandalagsins, skipu\u00f0 \u00feeim Gu\u00f0finnu Gunnarsd\u00f3ttur, Hrund \u00d3lafsd\u00f3ttur og Her\u00f0i Sigur\u00f0arsyni m\u00e6lti me\u00f0 Komi\u00f0 og fari\u00f0 umfram s\u00fdningu Hugleiks \u00e1 Rokki.<br \/>  <!--more-->  <br \/>Me\u00f0 \u00farskur\u00f0i s\u00fdnum sendi valnefndin eftirfarandi greinarger\u00f0:<\/p>\n<p>Valnefnd vegna leiklistarh\u00e1t\u00ed\u00f0ar IATA \u00ed Troms\u00f6 \u00e1ri\u00f0 2011 hefur komi\u00f0 saman og komist a\u00f0 sameiginlegri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u. <br \/>Tv\u00f6 leikf\u00e9l\u00f6g s\u00f3ttu um me\u00f0 leiks\u00fdningu \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0ina. Annarsvegar Leikf\u00e9lagi\u00f0 Hugleikur me\u00f0 Rokk eftir \u00c1stu G\u00edslad\u00f3ttur, J\u00fal\u00edu Hannam, Sigur\u00f0 P\u00e1lsson og \u00de\u00f3rarinn Stef\u00e1nsson og t\u00f3nlist eftir Eggert Hilmarsson. Leikstj\u00f3rar voru \u00deorgeir Tryggvason og Hulda H\u00e1konard\u00f3ttir. Hinsvegar Leikf\u00e9lagi\u00f0 Pe\u00f0i\u00f0 me\u00f0 Komi\u00f0 og fari\u00f0 eftir Samuel Beckett \u00ed leikstj\u00f3rn Gu\u00f0j\u00f3ns Sigvaldasonar.\u00a0Valnefnd gaf s\u00e9r \u00fe\u00e6r forsendur a\u00f0 mi\u00f0a vi\u00f0 val s\u00fdninga \u00e1 n\u00fdafsta\u00f0na NEATA h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00e1 Akureyri. \u00cd lj\u00f3si gagnr\u00fdni sem \u00fear kom fram vegna s\u00fdningavals og einnig hefur heyrst \u00e1\u00f0ur, kemst nefndin a\u00f0 \u00feeirri \u00a0ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 m\u00e6la me\u00f0\u00a0hvorugri s\u00fdningunni sem framlagi \u00cdslands \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0ina. \u00a0<\/p>\n<p>R\u00f6k valnefndar eru \u00feessi:<br \/>S\u00fdningin Rokk hj\u00e1 Hugleik er allt of l\u00f6ng mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00feau t\u00edmam\u00f6rk sem sett eru. Handrit hefur umtalsver\u00f0a galla og s\u00fdningin \u00ed heild er heldur langdregin. T\u00f3nlistin er afar \u00e1heyrileg og vel flutt en nefndin getur ekki me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri samvisku m\u00e6lt me\u00f0 s\u00fdningunni eing\u00f6ngu \u00e1 \u00feeim forsendum. S\u00fdningin er afar kyrrst\u00e6\u00f0, stat\u00edsk, og \u00fear sem textinn a\u00f0 auki er svo st\u00f3r \u00fe\u00e1ttur, er vands\u00e9\u00f0 a\u00f0 h\u00fan h\u00f6f\u00f0i til \u00e1horfenda sem ekki skilja \u00fea\u00f0 sem sagt er. Erfitt er a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 breyta \u00fev\u00ed nema me\u00f0 miki\u00f0 endursko\u00f0a\u00f0ri leikstj\u00f3rn auk styttingar. Sennilegt m\u00e1 telja \u00a0a\u00f0 s\u00fdningin batni vi\u00f0 styttingu og endurhugsun en nefndin telur \u00fea\u00f0 ekki \u00e1 f\u00e6ri s\u00ednu a\u00f0 meta hvernig \u00fear muni til takast enda v\u00e6ri \u00fear um hreina \u00e1giskun a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Ef a\u00f0eins v\u00e6ri um 10-20 m\u00edn\u00fatna styttingu a\u00f0 r\u00e6\u00f0a r\u00e9\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki \u00farslitum en \u00fear sem skera \u00fearf hana ni\u00f0ur um helming gegnir \u00f6\u00f0ru m\u00e1li. <\/p>\n<p>Komi\u00f0 og fari\u00f0 hj\u00e1 Pe\u00f0inu er skemmtileg og frumleg og tr\u00fa texta Samuels Becketts. H\u00fan er jafnframt sj\u00f3nr\u00e6n og vel fram sett. Hins vegar er s\u00fdningin afar stutt og spurning hvort sl\u00edk s\u00fdning eigi heima \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0 sem \u00feessari sem n\u00e6r undantekningarlaust hefur lengri s\u00fdningar \u00e1 dagskr\u00e1nni. Ef hinsvegar stj\u00f3rn B\u00cdL sem hl\u00fdtur a\u00f0 hafa s\u00ed\u00f0asta or\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feessu efni, telur a\u00f0 ne\u00f0ri t\u00edmam\u00f6rk eigi ekki a\u00f0 skipta m\u00e1li getur valnefnd \u00e1 \u00feeim forsendum m\u00e6lt me\u00f0 s\u00fdningu Pe\u00f0sins. \u00a0<\/p>\n<p>Almennt vill nefndin b\u00e6ta \u00feessu vi\u00f0 \u00ed sambandi vi\u00f0 val s\u00fdninga \u00e1 leiklistarh\u00e1t\u00ed\u00f0ir:<br \/>Br\u00e1\u00f0nau\u00f0synlegt er a\u00f0 sk\u00fdrari forsendur s\u00e9u gefnar vi\u00f0 val \u00e1 \u00edslenskum s\u00fdningum \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0 sem \u00feessa. Okkar mat er a\u00f0 s\u00fdningar sem eru svo langt yfir t\u00edmam\u00f6rkum sem Rokk er eigi almennt ekki a\u00f0 koma til \u00e1lita \u00ed sl\u00edku vali. \u00a0Valnefndir ver\u00f0a a\u00f0 geta teki\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un \u00e1 \u00feeim forsendum sem fyrir liggja en ekki a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 giska \u00e1 endanlega \u00fatkomu. <\/p>\n<p>{mos_fb_discuss:3}<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Stj\u00f3rn Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga hefur \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 framlag \u00cdslands til IATA leiklistarh\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar \u00ed Troms\u00f6 2011 ver\u00f0i uppsetning Leikf\u00e9lagsins Pe\u00f0sins \u00e1 Komi\u00f0 og fari\u00f0 eftir Samuel Beckett \u00ed leikstj\u00f3rn Gu\u00f0j\u00f3ns Sigvaldasonar \u00ed \u00edslenskri \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00c1rna Ibsen. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur svo valnefnd \u00e1 vegum IATA (Al\u00fej\u00f3\u00f0a \u00e1hugaleikh\u00fasr\u00e1\u00f0sins) sem sker endanlega \u00far hvort s\u00fdningin ver\u00f0ur valin til s\u00fdninga \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":2974,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187],"tags":[],"class_list":["post-2975","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2975","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2975"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2975\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2975"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2975"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2975"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}