{"id":2666,"date":"2010-02-08T14:01:52","date_gmt":"2010-02-08T14:01:52","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=2666"},"modified":"2010-02-08T14:01:52","modified_gmt":"2010-02-08T14:01:52","slug":"hamingjan-vereur-ekki-hertekin","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/hamingjan-vereur-ekki-hertekin\/","title":{"rendered":"Hamingjan ver\u00f0ur ekki hertekin"},"content":{"rendered":"<p> <strong>Halaleikh\u00f3purinn<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-2657\" style=\"float: right;\" alt=\"svartfugl_teikning\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2010\/02\/Adildarfelog_Sudvestur_Halaleikhopurinn_09_10_svartfugl_teikning.jpg\" height=\"150\" width=\"200\" \/><br \/>Sj\u00f6und\u00e1 \u2013 Svartfugl Gunnars Gunnarssonar<br \/>Leikstj\u00f3ri: \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n<p>Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson er miki\u00f0 meistaraverk. Kannski felst snilldin vi\u00f0 \u00fea\u00f0 helst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta lesandann hafa sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 \u00feeim sem \u00fe\u00f3 eru l\u00edklega sekir, og jafnvel h\u00e1lfger\u00f0a and\u00fa\u00f0 \u00e1 f\u00f3rnarl\u00f6mbunum. Sagan er mj\u00f6g dramat\u00edsk en fr\u00e1s\u00f6gnin er eins og \u00cdsland \u00ed gamla daga. F\u00e1brotin og l\u00e1tlaus. S\u00f6gupers\u00f3nur eru f\u00e1t\u00e6kt sveitaf\u00f3lk. Vi\u00f0 erum kl\u00e1rlega ekki \u00ed amer\u00edskri b\u00ed\u00f3mynd \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 \u00far efninu v\u00e6ri au\u00f0veldlega h\u00e6gt a\u00f0 gera sl\u00edka.<strong><\/strong><\/p>\n<p><em>Sigr\u00ed\u00f0ur L\u00e1ra Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir skrifar um s\u00fdninguna.<\/em><strong><\/strong><\/p>\n<p \/><strong \/>  <!--more-->  <\/strong>\u00cd uppsetningunni Sj\u00f6und\u00e1 hj\u00e1 Halaleikh\u00f3pnum var s\u00fa lei\u00f0 valin a\u00f0 f\u00e1 s\u00f6guna \u00ed gegnum r\u00e9ttarh\u00f6ldin. Leikger\u00f0in er lipurlega skrifu\u00f0 af \u00deorgeiri Tryggvasyni. Alltaf \u00fearf a\u00f0 velja og hafna \u00feegar sk\u00e1lds\u00f6gur eru leikger\u00f0ar en \u00fearna heppnast vali\u00f0 \u00e1 \u00feeim textum og atri\u00f0um sem haldi\u00f0 er inni mj\u00f6g vel. \u00der\u00e1\u00f0urinn \u00ed gegnum s\u00f6guna er sk\u00fdr og \u00f6ll atri\u00f0in \u00ed s\u00fdningunni \u00fej\u00f3na s\u00f6gunni. Texti og m\u00e1lfar s\u00f6gunnar, og s\u00f6gut\u00edmans, er l\u00e1tinn halda s\u00e9r. \u00dea\u00f0 kom reyndar st\u00f6ku sinnum fyrir a\u00f0 texti \u00fev\u00e6ldist a\u00f0eins fyrir leikurum og var\u00f0 sumssta\u00f0ar a\u00f0eins \u00f3sk\u00fdr en \u00fea\u00f0 var a\u00f0eins \u00e1 st\u00f6ku sta\u00f0 og skrifast hugsanlega \u00e1 frums\u00fdningarstress. \u00dea\u00f0 eru heilmargar flottar setningar \u00ed \u00feessari sk\u00e1lds\u00f6gu og ekki er laust vi\u00f0 a\u00f0 ma\u00f0ur taki betur eftir \u00fev\u00ed \u00feegar sagan er sett fram \u00ed svo kn\u00f6ppu formi, og upph\u00e1tt, heldur en vi\u00f0 lestur hennar.<\/p>\n<p>Umgj\u00f6r\u00f0 s\u00fdningarinnar heldur vel utan um heildarmyndina. \u00dea\u00f0 gladdi mig a\u00f0 sj\u00e1 v\u00edsun \u00ed Rau\u00f0asand (sem b\u00e6rinn Sj\u00f6und\u00e1 stendur vi\u00f0) \u00ed rau\u00f0m\u00e1lu\u00f0u g\u00f3lfinu. Leiki\u00f0 er \u00ed miklu n\u00e1v\u00edgi vi\u00f0 \u00e1horfendur og leikmynd einf\u00f6ld og \u00fe\u00f3 full af snj\u00f6llum lausnum. Til d\u00e6mis \u00fev\u00e6list \u00fea\u00f0 l\u00edti\u00f0 fyrir manni a\u00f0 gjarnan er fer\u00f0ast \u00ed t\u00edma og r\u00fami \u00e1 augabrag\u00f0i, \u00feegar fr\u00e1sagnir hverfast yfir \u00ed leik.<\/p>\n<p>Leikh\u00f3purinn er vel samstilltur og hann st\u00f3\u00f0 sig allur mj\u00f6g vel. Gu\u00f0r\u00ed\u00f0ur \u00d3lafsd\u00f3ttir stal \u00fe\u00f3 senunni eftirminnilega \u00ed st\u00f3rskemmtilegri yfirheyrslu yfir pers\u00f3nunni sem h\u00fan l\u00e9k, M\u00e1lfr\u00ed\u00f0i vinnukonu. Gunnar Gunnarsson s\u00fdndi einnig gr\u00ednaktuga takta sem Gu\u00f0mundur Scheving, s\u00fdsluma\u00f0ur. \u00c1rni Salomonsson var l\u00edka skemmtilegur \u00ed hlutverki J\u00f3ns Pr\u00f3fasts. A\u00f0rir r\u00e9ttarg\u00e6slumenn voru einnig mj\u00f6g sannf\u00e6randi og heilir \u00ed hlutverkum s\u00ednum. Hj\u00f3nin tvenn \u00e1 Sj\u00f6und\u00e1 sem sagan hverf\u00f0ist um voru feykivel leikin af \u00deresti J\u00f3nssyni og H\u00f6nnu Margr\u00e9ti Kristleifsd\u00f3ttur sem l\u00e9ku Bjarna og Gu\u00f0r\u00fanu og Gunnari Frey \u00c1rnasyni og S\u00f3leyju Bj\u00f6rk Axelsd\u00f3ttur sem l\u00e9ku Steinunni og J\u00f3n. S\u00e9rstaklega var samleikur \u00derastar og S\u00f3leyjar sannf\u00e6randi. Ungu s\u00f6gumennirnir tveir, Hekla Bjarnad\u00f3ttir og Margr\u00e9ti Lilja Arnarsd\u00f3ttir eru s\u00ed\u00f0an mj\u00f6g efnilegar ungar leikkonur og sk\u00f6pu\u00f0u s\u00f6gunni umgj\u00f6r\u00f0 sem um lei\u00f0 undirstrika\u00f0i sam\u00fa\u00f0ina me\u00f0 a\u00f0st\u00e6\u00f0um Bjarna og Steinunnar.<\/p>\n<p>Lj\u00f3s og voru vel \u00fatf\u00e6r\u00f0 og afm\u00f6rku\u00f0u vel skilin \u00e1 milli t\u00edma og s\u00f6gusvi\u00f0a \u00ed verkinu og hlj\u00f3\u00f0mynd nafnanna Einars Andr\u00e9ssonar og Einars Melax var algj\u00f6r snilld. Henta\u00f0i vel, f\u00e9ll gl\u00e6silega inn \u00ed bakgrunninn \u00e1n \u00feess a\u00f0 trufla mann.<\/p>\n<p>\u00deessi s\u00fdning er kl\u00e1rlega enn ein fj\u00f6\u00f0ur \u00ed hatt leikstj\u00f3rans \u00c1g\u00fastu Sk\u00falad\u00f3ttur sem hefur geti\u00f0 s\u00e9r gott or\u00f0 vi\u00f0 uppsetningar \u201edevised\u201c s\u00fdninga og n\u00fa s\u00ed\u00f0ustu misseri, \u00f3pera. \u00deetta er \u00f6nnur s\u00fdningin sem \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 til hennar vi\u00f0 uppsetningu gamalla \u00edslenskra b\u00f3kmenntaperla og er sannarlega gle\u00f0iefni a\u00f0 \u00feessi fr\u00e1b\u00e6ri leikstj\u00f3ri skuli sinna \u00edslenskum b\u00f3kmenntaarfi og setja anna\u00f0 slagi\u00f0 upp svona \u201eg\u00e6ruskinn\u201c. \u00dea\u00f0 er kannski \u00f3sanngjarnt en manni finnst ma\u00f0ur varla \u00feurfa a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 fram a\u00f0 s\u00fdningin er fr\u00e1b\u00e6rlega unnin fr\u00e1 leikstj\u00f3rans hendi \u00feegar um \u00c1g\u00fastu Sk\u00falad\u00f3ttur er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.<\/p>\n<p>Sem sagt, fr\u00e1b\u00e6rlega unnin s\u00fdning upp \u00far \u00feessu merkilega b\u00f3kmenntaverki, allt fr\u00e1 verkefnavali til frums\u00fdningar. <\/p>\n<p>Til hamingju, Halaleikh\u00f3pur.<br \/><em><br \/>Sigr\u00ed\u00f0ur L\u00e1ra Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir.<\/em><strong><br \/><\/strong><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Halaleikh\u00f3purinnSj\u00f6und\u00e1 \u2013 Svartfugl Gunnars GunnarssonarLeikstj\u00f3ri: \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson er miki\u00f0 meistaraverk. Kannski felst snilldin vi\u00f0 \u00fea\u00f0 helst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta lesandann hafa sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 \u00feeim sem \u00fe\u00f3 eru l\u00edklega sekir, og jafnvel h\u00e1lfger\u00f0a and\u00fa\u00f0 \u00e1 f\u00f3rnarl\u00f6mbunum. Sagan er mj\u00f6g dramat\u00edsk en fr\u00e1s\u00f6gnin er eins og \u00cdsland \u00ed gamla daga. F\u00e1brotin og [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":2665,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-2666","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2666","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2666"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2666\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2666"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2666"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2666"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}