{"id":2648,"date":"2010-01-25T10:05:14","date_gmt":"2010-01-25T10:05:14","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=2648"},"modified":"2010-01-25T10:05:14","modified_gmt":"2010-01-25T10:05:14","slug":"gue-i-velinni","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/gue-i-velinni\/","title":{"rendered":"Gu\u00f0 \u00ed v\u00e9linni"},"content":{"rendered":"<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-2647\" style=\"float: left;\" alt=\"hugleikur_logo\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2010\/01\/Adildarfelog_Logo_hugleikur_logo.jpg\" width=\"90\" height=\"63\" \/><strong>Hugleikur<br \/>Hannyr\u00f0ir og hagleiksmenn<br \/>Leikstj\u00f3ri: Gu\u00f0mundur Erlingsson<\/strong><\/p>\n<p>\u00cd \u00e1g\u00e6tu h\u00fasn\u00e6\u00f0i s\u00ednu (en illa merktu) vi\u00f0 Eyjarsl\u00f3\u00f0ina \u00ed Reykjav\u00edk hefur Hugleikur n\u00fa bo\u00f0i\u00f0 til s\u00fdningar \u00e1 Hannyr\u00f0um og hagleiksm\u00f6nnum eftir Sigur\u00f0 H. P\u00e1lsson. Fyrir utan st\u00f3rar uppf\u00e6rslur einu sinni til tvisvar \u00e1 vetri er leikf\u00e9lagi\u00f0 Hugleikur fr\u00e6gt fyrir frumsamin stuttverk s\u00edn, ein\u00fe\u00e1ttunga og \u00f6rleikrit, sem hafa veri\u00f0 s\u00fdnd vi\u00f0 nokkrar vins\u00e6ldir. Mest af stuttverkunum hefur veri\u00f0 s\u00fdnt \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00faskjallaranum og Kaffileikh\u00fasinu en einnig \u00e1 Eyjarsl\u00f3\u00f0inn upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0. Einn af \u00f6\u00f0rum hafa \u00fer\u00edr hannyr\u00f0a\u00fe\u00e6ttir Sigur\u00f0ar H. P\u00e1lssonar \u00ed leikstj\u00f3rn Gu\u00f0mundar Erlingssonar or\u00f0i\u00f0 til sem li\u00f0ur \u00ed \u00feessum dagskr\u00e1m en n\u00fa er b\u00e6tt um betur: \u00de\u00e6ttirnir eru or\u00f0nir fimm auk l\u00edtilla atri\u00f0a, fari\u00f0 er fram og aftur \u00ed t\u00edma og \u00far ver\u00f0ur allra skemmtilegasta s\u00fdning.<\/p>\n<p><em>Hrund \u00d3lafsd\u00f3ttir skrifar um s\u00fdningu Hugleiks, Hannyr\u00f0ir og hagleiksmenn, sem frums\u00fdnd var 16. jan\u00faar sl.     <!--more-->  <\/em><\/p>\n<p>\u00cd stuttu m\u00e1li fjallar verki\u00f0 um nokkra sanna karlmenn sem hittast reglulega heima hj\u00e1 hver \u00f6\u00f0rum til \u00feess a\u00f0 stunda\u00a0 hannyr\u00f0ir og handverk; svo sem a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a, skera \u00fat laufabrau\u00f0, m\u00e1la p\u00e1skaegg og sauma vambir. Umr\u00e6\u00f0uefnin eru afar hversdagsleg og alvarlegum atbur\u00f0um teki\u00f0 af \u00e6\u00f0rulausri karlmennsku; \u00feeir l\u00e1ta s\u00e9r flestir f\u00e1tt um finnast \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00feeir t\u00fdni t\u00f6lunni \u00f3tt og t\u00edtt. Atri\u00f0in milli \u00fe\u00e1ttanna s\u00fdna einu kvenpers\u00f3nu verksins gera s\u00e9r d\u00e6lt vi\u00f0 f\u00e9lagana, einn af \u00f6\u00f0rum.\u00a0\u00a0\u00a0 <\/p>\n<p>Hannyr\u00f0ir og hagleiksmenn hafa \u00fdmislegt til a\u00f0 bera sem pr\u00fd\u00f0ir g\u00f3\u00f0an gamanleik. Fyst m\u00e1 telja andst\u00e6\u00f0una sem felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 karlmenn takast \u00e1 vi\u00f0 gr\u00f3fger\u00f0 e\u00f0a f\u00ednleg handverk innan hef\u00f0bundins forms saumakl\u00fabba kvenna. \u00c1horfendum er komi\u00f0 \u00e1 \u00f3vart me\u00f0 g\u00e1lgah\u00famor og or\u00f0aleikjum, \u00f3l\u00edkindal\u00e1tum og sterkri n\u00e6rveru h\u00f6fundar. Sigur\u00f0ur og Gu\u00f0mundur eru frumlegir og hugrakkir \u00feegar \u00feeir l\u00e1ta reyna \u00e1 \u00e1horfendur me\u00f0 abs\u00fard n\u00e1lgun sem minnir \u00e1 merk fram\u00farstefnuleiksk\u00e1ld. \u00dearna er s\u00e9rstaklega \u00e1tt vi\u00f0 n\u00fdja \u00fe\u00e1ttinn sem gerist n\u00e1l\u00e6gt endalokum hannyr\u00f0akl\u00fabbsins \u00feegar r\u00f6dd gu\u00f0s (Sigur\u00f0ar) heyrist \u00far steypuhr\u00e6riv\u00e9linni sem hr\u00e6rir bl\u00f3\u00f0m\u00f6rshr\u00e6runa \u00ed sl\u00e1turger\u00f0inni og s\u00edmtali\u00f0 fr\u00e1 gu\u00f0i \u00ed loka\u00fe\u00e6ttinum. Hin \u00fer\u00e1\u00f0beina v\u00edsun \u00ed leikh\u00fashugtaki\u00f0 \u201egu\u00f0 \u00ed v\u00e9linni\u201c er fyndin og vel til fundi\u00f0 a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra hugtaki\u00f0 \u00ed leikskr\u00e1nni \u00e1samt fleiri sta\u00f0reyndum \u00far s\u00fdningunni. \u00dea\u00f0 m\u00e1 reyndar spyrja hvers vegna leikskr\u00e1in var hro\u00f0virknisleg og hvers vegna birtar eru myndir af a\u00f0standendum \u00feegar ekki s\u00e9st hver er hva\u00f0.<\/p>\n<p>Pers\u00f3nurnar eru misjafnlega vel skapa\u00f0ar og leikurinn er einnig misjafn eins og gengur. Karlarnir t\u00edu eru normal og \u00f3l\u00e1nlegir \u00ed senn; \u00feeir hafa vi\u00f0 sig trag\u00ed-k\u00f3m\u00edskt yfirbrag\u00f0 taparanna \u00fe\u00f3 vir\u00f0ingarsta\u00f0an s\u00e9 mismunandi \u00ed karlah\u00f3pnum. \u00der\u00edeyki\u00f0 Stulli, Lalli og Villi sem Hjalti Stef\u00e1n Kristj\u00e1nsson, Eggert Hilmarsson og Einar \u00de\u00f3r Einarsson leika eru best m\u00f3tu\u00f0u pers\u00f3nurnar. \u00de\u00e6r hafa fengi\u00f0 a\u00f0 \u00fer\u00f3ast \u00ed nokkur \u00e1r og kemur \u00fea\u00f0 fram \u00ed marglaga t\u00falkun. V. K\u00e1ri Hei\u00f0dal leikur \u00e1g\u00e6tlega hinn h\u00f3gv\u00e6ra Halla sem er ansi ne\u00f0arlega \u00ed vir\u00f0ingarr\u00f6\u00f0inni. \u00dea\u00f0 er gaman a\u00f0 sj\u00e1 n\u00fdjustu leikara Hugleiks koma sterka inn, svo sem Svanlaugu J\u00f3hannsd\u00f3ttur og Fri\u00f0j\u00f3n Magn\u00fasson og spunkun\u00fdja Hugleikarann Flosa \u00deorgeirsson sem f\u00f3r l\u00e9ttilega me\u00f0 sitt.\u00a0\u00a0\u00a0 <\/p>\n<p>Umgj\u00f6r\u00f0 s\u00fdningarinnar er pr\u00fd\u00f0ileg og gaman a\u00f0 finna hvernig \u00e6fingah\u00fasn\u00e6\u00f0i ver\u00f0ur fyrirhafnarl\u00edti\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e6gilegu leikh\u00fasi. \u00de\u00f3 m\u00e1 spyrja hvers vegna h\u00fasg\u00f6gnum s\u00fdningarinnar er stafla\u00f0 upp til hli\u00f0anna \u00e1 leiksvi\u00f0inu og hvers vegna h\u00fasg\u00f6gnin eru svo m\u00f6rg \u00fev\u00ed skiptingarnar eru \u00f3\u00fearflega fl\u00f3knar og t\u00edmafrekar. L\u00fdsingin var vi\u00f0 h\u00e6fi og b\u00faningarnir skemmtilega l\u00fdsandi fyrir pers\u00f3nurnar. Falleg \u00e1hrifst\u00f3nlist kom \u00far einum bassag\u00edtar sem Loftur S. Loftsson og n\u00fdli\u00f0inn Flosi \u00deorgeirsson l\u00e9ku \u00e1 til skiptis. <\/p>\n<p>Hannyr\u00f0ir og hagleiksmenn er pr\u00fd\u00f0ileg skemmtun og a\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00f6g\u00f0u er r\u00e9tt a\u00f0 hnykkja \u00e1 mannvali Hugleiks sem hefur svo st\u00f3ran h\u00f3p sterkra leikara, h\u00f6funda og leikstj\u00f3ra a\u00f0 anna\u00f0 eins s\u00e9st l\u00edklega ekki \u00ed neinu \u00f6\u00f0ru leikf\u00e9lagi okkar.<br \/><em><br \/>Hrund \u00d3lafsd\u00f3ttir.<\/em><br \/><em><br \/><\/em><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>HugleikurHannyr\u00f0ir og hagleiksmennLeikstj\u00f3ri: Gu\u00f0mundur Erlingsson \u00cd \u00e1g\u00e6tu h\u00fasn\u00e6\u00f0i s\u00ednu (en illa merktu) vi\u00f0 Eyjarsl\u00f3\u00f0ina \u00ed Reykjav\u00edk hefur Hugleikur n\u00fa bo\u00f0i\u00f0 til s\u00fdningar \u00e1 Hannyr\u00f0um og hagleiksm\u00f6nnum eftir Sigur\u00f0 H. P\u00e1lsson. Fyrir utan st\u00f3rar uppf\u00e6rslur einu sinni til tvisvar \u00e1 vetri er leikf\u00e9lagi\u00f0 Hugleikur fr\u00e6gt fyrir frumsamin stuttverk s\u00edn, ein\u00fe\u00e1ttunga og \u00f6rleikrit, sem hafa veri\u00f0 s\u00fdnd [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":2620,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-2648","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2648","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2648"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2648\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2648"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2648"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2648"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}