{"id":2642,"date":"2010-01-22T10:13:47","date_gmt":"2010-01-22T10:13:47","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=2642"},"modified":"2010-01-22T10:13:47","modified_gmt":"2010-01-22T10:13:47","slug":"plastpokablus","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/plastpokablus\/","title":{"rendered":"Plastpokabl\u00fas"},"content":{"rendered":"<p><strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-2641\" style=\"float: left;\" alt=\"kopologo\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2010\/01\/Adildarfelog_Logo_kopologo.jpg\" width=\"90\" height=\"68\" \/>Leikf\u00e9lag K\u00f3pavogs<br \/>Umb\u00fa\u00f0alaust<br \/>Leikstj\u00f3ri: Vigd\u00eds Jakobsd\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n<p>Ekkert \u00edslenskt leikf\u00e9lag leggur eins miki\u00f0 upp \u00far vinnubr\u00f6g\u00f0um \u201eDevised theatre\u201c og Leikf\u00e9lag K\u00f3pavogs. \u00cd fr\u00e9ttatilkynningum um n\u00fdjustu s\u00fdningu f\u00e9lagsins kemur fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 beinl\u00ednis stefna a\u00f0 \u00e1rlega s\u00e9 sett \u00e1 svi\u00f0 amk ein s\u00fdning sem unnin er \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt; sk\u00f6pu\u00f0 fr\u00e1 grunni af leikh\u00f3p, leikstj\u00f3ra og hj\u00e1lparkokkum, me\u00f0 e\u00f0a \u00e1n fyrirfram gefins efnivi\u00f0ar.<\/p>\n<p><em>\u00deorgeir Tryggvason skrifar um Umb\u00fa\u00f0alaust, s\u00fdningu Leikf\u00e9lags K\u00f3pavogs sem frums\u00fdnd var 15. jan\u00faar sl.<\/em><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<p>A\u00f0 \u00feessu sinni er \u00fea\u00f0 Vigd\u00eds Jakobsd\u00f3ttir sem st\u00fdrir ellefu manna leikh\u00f3pi og ekki ver\u00f0ur anna\u00f0 s\u00e9\u00f0 en a\u00f0 byrja\u00f0 hafi veri\u00f0 me\u00f0 algerlega hreint bor\u00f0. S\u00fdningin hefur fyrir viki\u00f0 b\u00e6\u00f0i kosti og galla s\u00fdningar sem byggir alfari\u00f0 \u00e1 h\u00f3pvinnu og spuna. <\/p>\n<p>Vel skipa\u00f0ur leikh\u00f3purinn skilar s\u00ednu af algerri einl\u00e6gni og sannf\u00e6ringarkrafti. Allir r\u00e1\u00f0a e\u00f0li m\u00e1lsins samkv\u00e6mt fullkomlega vi\u00f0 verkefni sitt, \u00feetta er j\u00fa sk\u00f6punarverk leikaranna. \u00c1 hinn b\u00f3ginn bera t\u00ed\u00f0indin sem s\u00fdningin skilar\u00a0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 h\u00e9r hafi veri\u00f0 byrja\u00f0 \u00e1 n\u00fallpunkti. Fyrir viki\u00f0 f\u00e1um vi\u00f0 erkit\u00fdp\u00edskar s\u00f6gur me\u00f0 nokku\u00f0 fyrirsj\u00e1anlegum pers\u00f3num. Feimnislegt \u00e1starsamband, uppreisn gegn eigingj\u00f6rnum v\u00e6ntingum foreldra og blindgata efnishyggjunnar eru me\u00f0al \u00fer\u00e1\u00f0anna sem spunnir eru. Efnahagshruni\u00f0 hefur e\u00f0lilega teki\u00f0 sitt pl\u00e1ss \u00ed hugmyndavinnuni og m\u00f3tar grundvallarforsendur s\u00fdningarinnar, en f\u00e6r g\u00f3\u00f0u heilli ekki a\u00f0 taka hana yfir \u00ed sm\u00e1atri\u00f0um. Enda er h\u00e9r veri\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a samskipti f\u00f3lks undir st\u00e6kkunargleri, ekki samf\u00e9lagi\u00f0 \u00ed v\u00ed\u00f0mynd.<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 eru okkur ekki s\u00f6g\u00f0 nein byltingarkennd sannindi \u00e1 \u00feeim r\u00fama klukkut\u00edma sem s\u00fdningin stendur. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur eru vi\u00f0fangsefnin reifu\u00f0 og s\u00e1larl\u00edf afhj\u00fapa\u00f0 \u00e1 \u00feann n\u00e6rg\u00f6ngula h\u00e1tt sem vinnua\u00f0fer\u00f0in skilar \u00feegar vel og hei\u00f0arlega er unni\u00f0, eins og h\u00e9r.<\/p>\n<p>S\u00fdningin er vel samsett. Hlutarnir fl\u00e6\u00f0a vel hver inn \u00ed annan og leikararnir sty\u00f0ja vel vi\u00f0 atri\u00f0i hvers annars. \u00dea\u00f0 er varla vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 tilgreina einstaka leikara og frammist\u00f6\u00f0u \u00feeirra \u00ed s\u00fdningu sem hv\u00edlir jafn vel \u00ed samvinnu og stu\u00f0ningi allra. <\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem s\u00e6tir svo helst t\u00ed\u00f0indum \u00ed Umb\u00fa\u00f0alaust og skapar \u00f3neitanlega mestu leikh\u00fasgle\u00f0ina eru svi\u00f0setningarhugmyndirnar. Lj\u00f3sin sem leikararnir bera me\u00f0 s\u00e9r eru sk\u00ednandi hugmynd sem er vel notu\u00f0 en m\u00f6gulega vann\u00fdtt. Og leikmyndin er aldeilis fr\u00e1b\u00e6r.\u00a0 Merkingar\u00ferungin, falleg og \u00fe\u00e9nug. Mig langar eiginlega til a\u00f0 halda leyndu hvernig h\u00fan er til a\u00f0 skemma s\u00ed\u00f0ur \u00e1hrifin fyrir komandi \u00e1horfendum. En einnig h\u00fan hef\u00f0i jafnvel \u00feola\u00f0 fj\u00f6lbreyttari notkun sem h\u00fan kl\u00e1rlega b\u00fdr yfir. B\u00faningar eru fallegir \u00e1 sinn samr\u00e6mda \u201eleikh\u00faslega\u201c h\u00e1tt. Fyrir mig hef\u00f0i samt ekkert komi\u00f0 a\u00f0 s\u00f6k a\u00f0 \u00feeir v\u00edsu\u00f0u sk\u00fdrar \u00ed samt\u00edmann sem vi\u00f0 erum svo greinilega st\u00f6dd \u00ed.<\/p>\n<p>Umb\u00fa\u00f0alaust er s\u00fdning sem b\u00edtur ekki fast, greinir ekki dj\u00fapt e\u00f0a hristir \u00e1horfandann harkalega. En h\u00fan er v\u00f6ndu\u00f0, falleg og me\u00f0 hjarta\u00f0 \u00e1 r\u00e9ttum sta\u00f0, og \u00e1g\u00e6tis d\u00e6mi \u00feess sem vinnua\u00f0fer\u00f0in b\u00ed\u00f0ur upp \u00e1.<\/p>\n<p>\u00deorgeir Tryggvason.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leikf\u00e9lag K\u00f3pavogsUmb\u00fa\u00f0alaustLeikstj\u00f3ri: Vigd\u00eds Jakobsd\u00f3ttir Ekkert \u00edslenskt leikf\u00e9lag leggur eins miki\u00f0 upp \u00far vinnubr\u00f6g\u00f0um \u201eDevised theatre\u201c og Leikf\u00e9lag K\u00f3pavogs. \u00cd fr\u00e9ttatilkynningum um n\u00fdjustu s\u00fdningu f\u00e9lagsins kemur fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 beinl\u00ednis stefna a\u00f0 \u00e1rlega s\u00e9 sett \u00e1 svi\u00f0 amk ein s\u00fdning sem unnin er \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt; sk\u00f6pu\u00f0 fr\u00e1 grunni af leikh\u00f3p, leikstj\u00f3ra og hj\u00e1lparkokkum, me\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":2640,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-2642","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2642","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2642"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2642\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2642"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2642"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2642"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}