{"id":2433,"date":"2009-08-21T12:19:14","date_gmt":"2009-08-21T12:19:14","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=2433"},"modified":"2009-08-21T12:19:14","modified_gmt":"2009-08-21T12:19:14","slug":"leikarie-2009-10-i-borgarleikhusinu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/leikarie-2009-10-i-borgarleikhusinu\/","title":{"rendered":"Leik\u00e1ri\u00f0 2009-10 \u00ed Borgarleikh\u00fasinu"},"content":{"rendered":"<p>Leikf\u00e9lag Reykjav\u00edkur kynnti n\u00fdlega efniskr\u00e1 vetursins og eins og endra n\u00e6r er h\u00fan fj\u00f6lbreytt og margt \u00fear spennandi. \u00dear ver\u00f0a hl\u00e1turtaugar kitla\u00f0ar, bestu vinkonur allra barna flytja inn \u00ed Borgarleikh\u00fasi\u00f0, n\u00fd leikger\u00f0 um Faust ver\u00f0ur frums\u00fdnd um j\u00f3lin og vi\u00f0 bj\u00f3\u00f0um til s\u00f6ng- og leikveislu \u00feegar Gauragangur, \u00d3lafs Hauks S\u00edmonarsonar ver\u00f0ur settur \u00e1 svi\u00f0 eftir langa bi\u00f0. <br \/>  <!--more-->  <br \/>\u00c1 St\u00f3ra svi\u00f0inu ver\u00f0ur hausti\u00f0 byrja\u00f0 \u00e1 S\u00f6ngvasei\u00f0 en s\u00ed\u00f0an tekur vi\u00f0 n\u00fdtt leikrit eftir bandar\u00edska leiksk\u00e1ldi\u00f0 Tracy Letts, Fj\u00f6lskyldan \u2013 \u00e1g\u00fast \u00ed Osage-s\u00fdslu. Verki\u00f0 hefur fari\u00f0 sigurf\u00f6r um heiminn s\u00ed\u00f0astli\u00f0i\u00f0 \u00e1r og s\u00f3pa\u00f0 til s\u00edn ver\u00f0launum, hlaut m.a. Pulitzer ver\u00f0alaunin sem leikverk \u00e1rsins 2007 og sama \u00e1r Tony ver\u00f0launin og Drama Desk ver\u00f0launin sem leikverk \u00e1rsins. Hilmir Sn\u00e6r Gu\u00f0nason mun leikst\u00fdra verkinu og hefur me\u00f0 s\u00e9r sterkan h\u00f3p leikara.<\/p>\n<p>J\u00f3las\u00fdning Borgarleikh\u00fassins ver\u00f0ur st\u00f3rvirki \u00far b\u00f3kmenntaheiminum \u00ed samstarfi vi\u00f0 Vesturport, Faust, \u00ed n\u00fdrri leikger\u00f0 Vesturports sem bygg\u00f0 er \u00e1\u00a0 \u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6gunni um Doktor Faustus. G\u00edsli \u00d6rn Gar\u00f0arsson leikst\u00fdrir verkinu og me\u00f0al leikara ver\u00f0a Ingvar E. Sigur\u00f0sson, Hilmir Sn\u00e6r Gu\u00f0nason, Bj\u00f6rn Hlynur Haraldsson, V\u00edkingur Kristj\u00e1nsson, Unnur \u00d6sp Stef\u00e1nsd\u00f3ttir, J\u00f3hanna Vigd\u00eds Arnard\u00f3ttir, N\u00edna D\u00f6gg Filippusd\u00f3ttir, J\u00f3hann N\u00edels Sigur\u00f0sson, Hanna Mar\u00eda Karlsd\u00f3ttir, R\u00fanar Freyr G\u00edslason. <\/p>\n<p>Gauragangur, eitt vins\u00e6lasta leikrit \u00d3lafs Hauks S\u00edmonarsonar l\u00e9ttir \u00fej\u00f3\u00f0inni lundina \u00e1 n\u00fdju \u00e1ri og mun sj\u00e1lfur leikh\u00fasstj\u00f3rinn Magn\u00fas Geir, leikst\u00fdra verkinu. <\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-2431\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"heima_er_best\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2009\/08\/Leikhus_Leikhopar_Borgarleikhus_09_10_Heima_er_best_heima_er_best.jpg\" height=\"150\" width=\"200\" \/>Leik\u00e1rinu \u00e1 st\u00f3ra svi\u00f0inu l\u00edkur me\u00f0 st\u00f3rvirki fr\u00e1 Lith\u00e1en. R\u00f3me\u00f3 og J\u00fal\u00eda \u00ed uppsetningu eins \u00feekktasta leikstj\u00f3ra heim, Oskaras Kor\u0161unovas. S\u00fdningin kemur hinga\u00f0 \u00ed tenglum vi\u00f0 Listah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk. Af \u00feessu tilefni efnir Borgarleikh\u00fasi\u00f0 til mikillar h\u00e1t\u00ed\u00f0ar undir nafninu \u00c1st \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um og ver\u00f0ur bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 \u00ferj\u00e1r \u00f3l\u00edkar og t\u00f6frandi uppsetningar af verkinu R\u00f3me\u00f3 og J\u00fal\u00edu. Uppsetningu Kor\u0161unovas, uppsetningu Vesturport sem frums\u00fdnd var \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u00e1ri\u00f0 2002 og uppsetningu \u00deorleifs Arnar Arnarssonar sem frums\u00fdnd var \u00ed Bern \u00ed Sviss fyrr \u00e1 \u00e1rinu og hlaut miki\u00f0 lof gagnr\u00fdnenda \u00fear.<\/p>\n<p>Leiks\u00fdningar N\u00fdja svi\u00f0sins ver\u00f0a sem \u00e1\u00f0ur meira \u00f6grandi og spyrja \u00e1leitnari spurning. Fyrsta frums\u00fdning\u00a0 \u00e1rsins er \u00e1 verkinu Heima er best eftir Enda Walsh, enskt samt\u00edmaverk um fe\u00f0ga sem b\u00faa saman. \u00dear r\u00e6\u00f0ur fa\u00f0irinn l\u00f6gum og lofum og l\u00e6tur syni s\u00fdna endurskapa raunveruleikann dag eftir dag me\u00f0 farsakendum \u00fdkjum. <\/p>\n<p>N\u00fdtt \u00edslensk leikrit Rautt brennur fyrir eftir Hei\u00f0ar Sumarli\u00f0ason ungt leiksk\u00e1ld sem er a\u00f0 feta s\u00edn fyrstu skref \u00ed leikh\u00fasinu. \u00deetta er fyrsta verk Hei\u00f0ars sem sett er \u00e1 svi\u00f0 og sko\u00f0ar hann \u00ed verkinu s\u00e1larl\u00edf mannsins og\u00a0 hvernig \u00f3v\u00e6ntir atbur\u00f0ir geta kveikt \u00f3\u00feekktar kenndir \u00ed mannss\u00e1linni. <\/p>\n<p>\u00de\u00fa ert h\u00e9r sl\u00f3 \u00ed gegn \u00e1 s\u00ed\u00f0asta leik\u00e1ri enda tala\u00f0i verki\u00f0 beint vi\u00f0 \u00edslenskan samt\u00edma og t\u00f3k \u00e1 bankahruninu \u00feegar \u00fea\u00f0 ger\u00f0ist. N\u00fa koma \u00feeir Hallur Ing\u00f3lfsson, J\u00f3n P\u00e1ll Eyj\u00f3lfsson og J\u00f3n Atli J\u00f3nasson aftur \u00e1 svi\u00f0 me\u00f0 n\u00fdtt verk G\u00f3\u00f0ir \u00cdslendingar sem ver\u00f0ur ekki s\u00ed\u00f0ur beint samtal vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 sem er a\u00f0 reyna f\u00f3ta sig eftir hruni\u00f0. <\/p>\n<p>Stemmingin ver\u00f0ur a\u00f0eins l\u00e9ttari \u00e1 N\u00fdja svi\u00f0inu \u00feegar sp\u00e1n\u00fdr gamanleikur D\u00fafurnar ver\u00f0ur frums\u00fdndur \u00e1 n\u00fdju \u00e1ri. Verki\u00f0 fjallar um mann sem l\u00e6tur sig hverfa en svo birtist tv\u00edfari hans sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar og hreyfir heldur vi\u00f0 hlutunum. \u00dearna er \u00e1 fer\u00f0inni h\u00famor \u00ed anda \u00feess sem vi\u00f0 \u00feekkjum fr\u00e1 The Office \u00fe\u00e1ttunum og fr\u00e1 d\u00f6nsku f\u00e9l\u00f6gunum \u00ed Klovn. Brag\u00f0mikill gamanleikur sem sl\u00e6r n\u00fdjan t\u00f3n \u00ed \u00edslensku leikh\u00fasi.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-2432\" style=\"margin: 12px; float: right;\" alt=\"fjolskyldan\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2009\/08\/Leikhus_Leikhopar_Borgarleikhus_09_10_Fjolskyldan_fjolskyldan.jpg\" height=\"150\" width=\"200\" \/>Litla svi\u00f0i\u00f0 mun einkennast af gle\u00f0i og tr\u00fa\u00f0sl\u00e1tum \u00ed vetur. Verkin ver\u00f0a einf\u00f6ld en me\u00f0 sk\u00fdrum skilabo\u00f0um. \u00dear ver\u00f0ur b\u00f6rnum skemmt \u00feegar \u00fe\u00e6r Skoppa og Skr\u00edtla fara \u00e1 t\u00edmaflakk og m\u00e6ta me\u00f0 bakara svakara og L\u00fas\u00ed og fer\u00f0ast um t\u00edmann. Charlotta B\u00f6ving mun leikst\u00fdra gl\u00e6n\u00fdju leikriti fyrir b\u00f6rn og fullor\u00f0na \u00fear sem einl\u00e6gir tr\u00fa\u00f0ar fara \u00e1 kostum \u00ed k\u00f6nnunarlei\u00f0angri s\u00ednum \u00e1 vatni \u00ed Bl\u00e1a gullinu. Tuttugu \u00e1ra gamlar stj\u00f6rnur af \u00f6ldum lj\u00f3svakans sn\u00faa aftur \u00feegar \u00feeir Harry og Heimir\u00a0 m\u00e6ta \u00e1 svi\u00f0 \u00ed september og munu \u00feeir skemmta leikh\u00fasgestum me\u00f0 einu af s\u00ednum gl\u00e6psamlega fyndnu svakam\u00e1laleikriti. <\/p>\n<p>Dau\u00f0asyndirnar fara aftur \u00e1 svi\u00f0 \u00ed okt\u00f3ber og hita upp fyrir n\u00fdtt verk sem h\u00f3purinn mun frums\u00fdna \u00ed n\u00f3vember Jes\u00fas litli. Tr\u00fa\u00f0arnir eru ekki v\u00f6n a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 gar\u00f0inn \u00fear sem hann er l\u00e6gstur og a\u00f0 \u00feessu sinni taka \u00feau sj\u00e1lft j\u00f3lagu\u00f0spjalli og t\u00falka eftir s\u00ednu eigin tr\u00fa\u00f0anefi. <\/p>\n<p>Eil\u00edf \u00f3hamingja, sj\u00e1lfst\u00e6tt framhald af verkinu Eil\u00edf hamingja, sem frums\u00fdnt var \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u00e1ri\u00f0 2007 ver\u00f0ur sett upp eftir \u00e1ram\u00f3t.\u00a0 Leikh\u00f3purinn tekur upp \u00fer\u00e1\u00f0inn og vi\u00f0 fylgjumst me\u00f0 marka\u00f0sf\u00f3lkinu sem upplif\u00f0i sig sem toppinn \u00e1 \u201e\u00edslenska efnahagsundrinu\u201c falli\u00f0 til jar\u00f0ar og starfandi \u00ed fyrirt\u00e6kjum \u00ed eigu r\u00edkisins. \u00deetta eru s\u00e1r umskipti og \u00feau eiga erfitt me\u00f0 a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0 breytingarnar. <\/p>\n<p>Borgarleikh\u00fasi\u00f0 heldur \u00e1fram a\u00f0 styrkja h\u00f3pinn og \u00ed \u00e1r hafa n\u00fdir kraftar komi\u00f0 til starfa vi\u00f0 leikh\u00fasi\u00f0. N\u00fdir leikarar \u00e1 fastan samning eru m.a. Hilmir Sn\u00e6r Gu\u00f0nason, Ilmur Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir, J\u00f6rundur Ragnarsson, N\u00edna D\u00f6gg Filippusd\u00f3ttir, R\u00fanar Freyr G\u00edslason. N\u00fdr marka\u00f0sstj\u00f3ri t\u00f3k til starfa \u00ed vi\u00f0 leikh\u00fasi\u00f0 \u00ed sumar, L\u00e1ra A\u00f0alsteinsd\u00f3ttir og Au\u00f0ur J\u00f3nsd\u00f3ttir rith\u00f6fundur hefur starfa\u00f0 vi\u00f0 leikh\u00fasi\u00f0 \u00e1 vegum leikritunarsj\u00f3\u00f0s Leikf\u00e9lags Reykjav\u00edkur undanfari\u00f0 \u00e1r. <\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0astli\u00f0i\u00f0 leik\u00e1r var n\u00fdtt fyrirkomulag \u00e1skriftakorta kynnt og hlutu kortin hreint fr\u00e1b\u00e6rar m\u00f3tt\u00f6kur og ellefufalda\u00f0ist sala \u00e1skriftakorta milli \u00e1ra. \u00c1fram ver\u00f0ur bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 einfalt og \u00fe\u00e6gilegt \u00e1skriftarfyrirkomulag, fj\u00f3rar s\u00fdningar a\u00f0 eigin vali af allri dagskr\u00e1 vetrarins \u00e1 8.900 kr\u00f3nur. Auk \u00feess mun Borgarleikh\u00fasi\u00f0 gera \u00e1fram einstaklega vel vi\u00f0 ungt f\u00f3lk og n\u00e1msmenn og bj\u00f3\u00f0a \u00feeim \u00e1skriftarkort, fj\u00f3rar s\u00fdningar a\u00f0 eigin vali, \u00e1 4.550 kr. Snarpur s\u00fdningart\u00edmi ver\u00f0ur \u00ed Borgarleikh\u00fasinu, s\u00fdningart\u00edmabil stutt en s\u00fdningarnar s\u00fdndar \u00fe\u00e9ttar. <\/p>\n<p>{mos_fb_discuss:3}<\/p>\n<p><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leikf\u00e9lag Reykjav\u00edkur kynnti n\u00fdlega efniskr\u00e1 vetursins og eins og endra n\u00e6r er h\u00fan fj\u00f6lbreytt og margt \u00fear spennandi. \u00dear ver\u00f0a hl\u00e1turtaugar kitla\u00f0ar, bestu vinkonur allra barna flytja inn \u00ed Borgarleikh\u00fasi\u00f0, n\u00fd leikger\u00f0 um Faust ver\u00f0ur frums\u00fdnd um j\u00f3lin og vi\u00f0 bj\u00f3\u00f0um til s\u00f6ng- og leikveislu \u00feegar Gauragangur, \u00d3lafs Hauks S\u00edmonarsonar ver\u00f0ur settur \u00e1 svi\u00f0 eftir [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":2430,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187],"tags":[],"class_list":["post-2433","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2433","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2433"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2433\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2433"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2433"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2433"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}