{"id":2232,"date":"2009-03-27T09:32:33","date_gmt":"2009-03-27T09:32:33","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=2232"},"modified":"2020-03-02T09:53:32","modified_gmt":"2020-03-02T09:53:32","slug":"varp-ala-leiklistardagsins-27-mars-2009","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/varp-ala-leiklistardagsins-27-mars-2009\/","title":{"rendered":"\u00c1varp Al\u00fej\u00f3\u00f0a leiklistardagsins, 27. mars 2009"},"content":{"rendered":"<p> Leiklistarsamband \u00cdslands hefur \u00e1vallt fengi\u00f0 \u00edslenskan leikh\u00faslistamann til a\u00f0 semja s\u00e9rstakt \u00e1varp \u00ed tilefni Al\u00fej\u00f3\u00f0a leiklistardagsins. Hefur s\u00fa hef\u00f0 skapast a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 flutt af h\u00f6fundi \u00ed \u00fatvarpi \u00feann dag, sem og af st\u00f3ra svi\u00f0i \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins fyrir s\u00fdningu. \u00de\u00e1 hafa leikh\u00faslistamenn um allt land stigi\u00f0 fram fyrir tjald leikh\u00fasa sinna og flutt \u00e1varpi\u00f0 \u00edslenska \u00feetta kv\u00f6ld. \u00c1varpi\u00f0 semur a\u00f0 \u00feessu sinni Sigr\u00fan Edda Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir leikkona. <\/p>\n<p> Fr\u00e1 \u00e1rinu 1962 hefur Al\u00fej\u00f3\u00f0a leiklistardagurinn veri\u00f0 haldinn h\u00e1t\u00ed\u00f0legur um allan heim. \u00de\u00e1 hefur heimskunnur leikh\u00faslistama\u00f0ur veri\u00f0 fenginn til a\u00f0 semja \u00e1varp \u00ed tilefni dagsins af Al\u00fej\u00f3\u00f0a leiklistarstofnuninni, ITI, sem hefur a\u00f0setur \u00ed Unesco-byggingunni \u00ed Par\u00eds. A\u00f0 \u00feessu sinni er \u00fea\u00f0 brasil\u00edski leikh\u00faslistama\u00f0urinn Augusto Boal sem semur al\u00fej\u00f3\u00f0a\u00e1varpi\u00f0 \u00ed tilefni dagsins. <\/p>\n<p> &nbsp; <\/p>\n<p>  <!--more--> <\/p>\n<p> <em>\u00c1g\u00e6tu leikh\u00fasunnendur.<\/em><\/p>\n<p> Hvers vegna viljum vi\u00f0 hafa leikh\u00fas? \u00deetta fur\u00f0ulega fyrirb\u00e6ri sem \u00fe\u00f3 hefur fylgt manninum fr\u00e1 \u00f3munat\u00ed\u00f0. \u00cd dag, \u00feann 27. mars er Al\u00fej\u00f3\u00f0a leiklistardagurinn. Hann er haldinn h\u00e1t\u00ed\u00f0legur um heim allan \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 vekja athygli \u00e1 leiklistinni og mikilv\u00e6gi hennar \u00ed mannlegu samf\u00e9lagi. \u00dev\u00ed er vert a\u00f0 staldra vi\u00f0 og velta ofangreindri spurningu fyrir s\u00e9r. <\/p>\n<p> \u00dea\u00f0 fallegasta sem sagt hefur veri\u00f0 um leiklistina og h\u00e6gt er a\u00f0 taka undir af heilum hug er a\u00f0 l\u00f6ngun mannsins til a\u00f0 leika, s\u00e9 sprottin af \u00fe\u00f6rf hans til tengjast \u00fev\u00ed sem b\u00fdr innra me\u00f0 \u00f6llum m\u00f6nnum, \u00feessu innra lj\u00f3si sem vi\u00f0 b\u00faum \u00f6ll yfir og finnum svo sterkt fyrir. \u00dea\u00f0 er vegna \u00feessarar tengingar, \u00feessarar samkenndar sem vi\u00f0 getum skapa\u00f0 n\u00fdjan veruleika. Veruleika leikh\u00fassins. F\u00e1tt er eins d\u00fdrm\u00e6tt fyrir leikara og a\u00f0 finna \u00feessa tengingu og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed leiks\u00fdningu sem \u00e1 erindi vi\u00f0 \u00e1horfandann og hreyfir vi\u00f0 honum, hvort sem er \u00ed gle\u00f0i e\u00f0a sorg. Vi\u00f0 mannf\u00f3lki\u00f0 erum \u00feeli\u00f0 sem draumar spinnast \u00far, \u00feessir d\u00fdrm\u00e6tu draumar sem eru eins og gull\u00fer\u00e1\u00f0ur \u00ed \u00fev\u00ed margbrotna mynstri sem tilvist okkar m\u00f3tast af. \u00deessi \u00fer\u00e1\u00f0ur kemur fram \u00ed sk\u00e1ldskapnum, myndm\u00e1linu, t\u00f3nlistinni og hreyfingunni. Ekkert er leiklistinni \u00f3vi\u00f0komandi. H\u00fan \u00e1 a\u00f0 endurspegla tilvist okkar, sameina upplifun okkar og stu\u00f0la a\u00f0 samkennd og skilningi me\u00f0al manna.<\/p>\n<p> \u00cd vi\u00f0leitni sinni til a\u00f0 tj\u00e1 og spegla veruleikann leitar leiklistin a\u00f0 mismunandi formum. \u00deess vegna er engin ein tegund leiklistar mikilv\u00e6gari en \u00f6nnur.<\/p>\n<p> Til er gamanleikur, harmleikur, gr\u00edmuleikur, l\u00e1tbrag\u00f0sleikur,\u00a0br\u00fa\u00f0uleikur, einleikur, tr\u00fa\u00f0leikur. G\u00f6tuleikh\u00fas, kaffileikh\u00fas, p\u00f3lit\u00edskt leikh\u00fas, stofuleikh\u00fas, barnaleikh\u00fas, vasaleikh\u00fas, \u00fatileikh\u00fas, skuggaleikh\u00fas, l\u00edti\u00f0 leikh\u00fas, st\u00f3rt leikh\u00fas, \u00fatvarpsleikh\u00fas, meira a\u00f0 segja \u00f3s\u00fdnilegt leikh\u00fas. Og \u00e1horfendur hafa dregist a\u00f0 leikh\u00fasinu \u00ed gegnum aldirnar, alveg eins og \u00fei\u00f0 geri\u00f0 h\u00e9r \u00ed kv\u00f6ld. Hvers vegna? J\u00fa, vi\u00f0 viljum ver\u00f0a fyrir \u00e1hrifum. Vi\u00f0 viljum hl\u00e6ja saman, gr\u00e1ta saman, l\u00e1ta hreyfa vi\u00f0 hugsunum okkar og hugmyndum. Og \u00ed s\u00edbreytilegum heimi \u00fear sem hugmyndafr\u00e6\u00f0i og \u00e1herslur geta kollsteypst \u00e1 einni n\u00f3ttu, eins og vi\u00f0 \u00feekkjum svo vel einmitt n\u00fa, \u00e1 leikh\u00fasi\u00f0 br\u00fdnt erindi. \u00dea\u00f0 er ekki s\u00edst \u00e1 \u00feannig t\u00edmum sem vi\u00f0 h\u00f6fum \u00fe\u00f6rf fyrir leikh\u00fas og \u00fev\u00ed ber leikh\u00fasi\u00f0 mikla \u00e1byrg\u00f0. Leiklist breytir kannski ekki heiminum en vi\u00f0 getum \u00f6ll veri\u00f0 samm\u00e1la um a\u00f0 \u00ed leikh\u00fasi b\u00fai leyndur sannleikur sem hj\u00e1lpar okkur \u00ed \u00feeirri vi\u00f0leitni a\u00f0 skilja l\u00edf okkar og viljann til a\u00f0 b\u00faa til betri heim. <\/p>\n<p> <em>Sigr\u00fan Edda Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir.<\/em><\/p>\n<p> <strong><br \/> <\/strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-2231\" style=\"margin: 5px; float: right; width: 200px; height: 140px\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2009\/03\/Folk_Erlent_leikhusfolk_augusto_boal.jpg\" alt=\"augusto_boal.jpg\" title=\"augusto_boal.jpg\" width=\"200\" height=\"140\" \/><strong>Augusto Boal:<br \/> \u00c1varp \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0a leiklistardaginn 27. mars 2009<\/strong><\/p>\n<p> Allt mannlegt samf\u00e9lag er s\u00fdning og vi\u00f0 \u00e1kve\u00f0in t\u00e6kif\u00e6ri b\u00fdr \u00feetta samf\u00e9lag til s\u00fdningar. \u00dea\u00f0 er s\u00fdning \u00ed sj\u00e1lfri samf\u00e9lagsger\u00f0 sinni og b\u00fdr til s\u00fdningar eins og \u00fe\u00e1 sem \u00fe\u00fa \u00e6tlar a\u00f0 sj\u00e1 h\u00e9r \u00ed kv\u00f6ld. <\/p>\n<p> Jafnvel \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 komum ekki auga \u00e1 \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 eru mannleg samskipti bygg\u00f0 upp eins og \u00ed (leik)s\u00fdningu. R\u00fdmisnotkun, l\u00edkamstj\u00e1ning, or\u00f0aval og t\u00f3nfall, framsetning hugsana og tilfinninga \u0096 allt sem vi\u00f0 h\u00f6fumst a\u00f0 \u00e1 leiksvi\u00f0inu, gerum vi\u00f0 jafnframt \u00ed daglegu l\u00edfi: Allt er leiksvi\u00f0.<\/p>\n<p> Br\u00fa\u00f0kaup og jar\u00f0arfarir eru s\u00fdningar, en einnig hversdagslegir si\u00f0ir sem vi\u00f0 \u00feekkjum svo vel, a\u00f0 vi\u00f0 \u00e1ttum okkur ekki \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru s\u00fdningar. St\u00f3rar h\u00e1t\u00ed\u00f0arsamkomur eru s\u00fdningar og athafnir okkar vi\u00f0 morgunver\u00f0inn eru \u00fea\u00f0 einnig. A\u00f0 skiptast \u00e1 kve\u00f0jum, \u00f3framf\u00e6rin og varf\u00e6rnisleg f\u00e6\u00f0ing \u00e1starinnar, eldheitar orrustur tilfinninganna, fundir Al\u00feingis og samkomur stj\u00f3rnarerindreka, &#8211; allt eru \u00feetta s\u00fdningar. <\/p>\n<p> Eitt h\u00f6fu\u00f0hlutverk listar okkar er a\u00f0 benda \u00e1 hinar hversdagslegu s\u00fdningar \u00fear sem leikararnir eru jafnframt eigin \u00e1horfendur, \u00fear sem leiksvi\u00f0 og \u00e1horfendasalur eru eitt. \u00d6ll erum vi\u00f0 leikarar. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leika l\u00e6rum vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 \u00fea\u00f0 sem blasir vi\u00f0 okkur\u00a0hvern einasta dag\u00a0 en sj\u00e1um samt ekki \u00fear sem vi\u00f0 erum ekki v\u00f6n a\u00f0 sko\u00f0a \u00fea\u00f0.\u00a0 Allt sem vi\u00f0 \u00feekkjum svo vel ver\u00f0ur \u00f3s\u00fdnilegt\u00a0 &#8211; en a\u00f0 leika er a\u00f0 varpa lj\u00f3si \u00e1\u00a0 svi\u00f0i\u00f0 sem er okkar daglega l\u00edf. <\/p>\n<p> \u00cd september s\u00ed\u00f0ast li\u00f0num ur\u00f0um vi\u00f0 \u00f3v\u00e6nt vitni a\u00f0 leikr\u00e6nni opinberun: Vi\u00f0 sem h\u00e9ldum a\u00f0 vi\u00f0 byggjum \u00ed tryggum heimi, \u00fer\u00e1tt fyrir str\u00ed\u00f0 og \u00fej\u00f3\u00f0armor\u00f0, \u00fer\u00e1tt fyrir fj\u00f6ldamor\u00f0 og pyntingar, &#8211; \u00ed fjarl\u00e6gum l\u00f6ndum. Okkur, sem lif\u00f0um \u00ed \u00f6ryggi og vorum fullviss um a\u00f0 fj\u00e1rmunir okkar v\u00e6ru \u00ed \u00f6ruggum h\u00f6ndum\u00a0 virtra bankastofnana e\u00f0a hei\u00f0vir\u00f0ra ver\u00f0br\u00e9fami\u00f0lara, var n\u00fa sagt a\u00f0 \u00feessir eignir okkar v\u00e6ru alls ekki lengur til, v\u00e6ru s\u00fdndarveruleiki, \u00f6murlegur uppspuni einhverra vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0inga sem hvorki voru s\u00fdndarveruleiki, \u00e1rei\u00f0anlegir n\u00e9 hei\u00f0vir\u00f0ir. <\/p>\n<p> Allt var bara l\u00e9leg s\u00fdning me\u00f0 sorglegum s\u00f6gu\u00fer\u00e6\u00f0i, \u00fear sem nokkrir gr\u00e6ddu miki\u00f0 og margir t\u00f6pu\u00f0u \u00f6llu. Stj\u00f3rnm\u00e1lamenn r\u00edku landanna fundu\u00f0u fyrir luktum dyrum og komu me\u00f0 t\u00f6fralausnir. Og vi\u00f0, f\u00f3rnarl\u00f6mb \u00e1kvar\u00f0ana \u00feeirra, sitjum enn \u00e1 aftasta bekk \u00e1horfendasalarins. <\/p>\n<p> Fyrir tuttugu \u00e1rum s\u00ed\u00f0an setti \u00e9g \u0084Fedru\u0093 eftir Jean Racine \u00e1 svi\u00f0 \u00ed R\u00ed\u00f3 de Janeir\u00f3. Svi\u00f0smyndin var f\u00e1t\u00e6kleg: K\u00e1lfskinn \u00e1 g\u00f3lfi og bambus allt um kring. Fyrir hverja s\u00fdningu sag\u00f0i \u00e9g vi\u00f0 leikarana: \u0084S\u00f6gunni sem vi\u00f0 h\u00f6fum sk\u00e1lda\u00f0 fr\u00e1 degi til dags l\u00fdkur \u00feegar \u00fei\u00f0 gangi\u00f0 inn fyrir bambusvegginn, inn \u00e1 svi\u00f0i\u00f0, og \u00fe\u00e1 hefur ekkert ykkar leyfi til a\u00f0 lj\u00faga. S\u00fdningin er hinn faldi sannleikur.\u0093<\/p>\n<p> \u00deegar vi\u00f0 vir\u00f0um heiminn fyrir okkur handan vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6fum fyrir augum okkar, sj\u00e1um vi\u00f0 k\u00fagara og hina k\u00fagu\u00f0u, alls sta\u00f0ar, \u00ed \u00f6llum samf\u00e9l\u00f6gum, hj\u00e1 \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0flokkum, \u00ed \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsst\u00e9ttum og h\u00f3pum. Vi\u00f0 sj\u00e1um \u00f3r\u00e9ttl\u00e1tan og grimman heim.\u00a0 Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 b\u00faa til annan heim, vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 vitum a\u00f0 hann er hugsanlegur. \u00dea\u00f0 er undir okkur komi\u00f0 a\u00f0 byggja af eigin rammleik upp sl\u00edkan heim me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ganga \u00e1 svi\u00f0, b\u00e6\u00f0i \u00e1 svi\u00f0 leikh\u00fassins og l\u00edfsins. <\/p>\n<p> Taki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed s\u00fdningunni sem n\u00fa er a\u00f0 hefjast og \u00feegar \u00fei\u00f0 komi\u00f0 heim til ykkar leiki\u00f0 \u00fe\u00e1 me\u00f0 vinum ykkar eigin leikrit og sko\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00fei\u00f0 g\u00e1tu\u00f0 aldrei \u00e1\u00f0ur s\u00e9\u00f0: \u00dea\u00f0 sem er auglj\u00f3st. Leikh\u00fas er ekki einungis vi\u00f0bur\u00f0ur, \u00fea\u00f0 er l\u00edfsm\u00e1ti <br \/> Vi\u00f0 erum \u00f6ll leikarar. A\u00f0 vera \u00feegn er ekki einungis a\u00f0 b\u00faa \u00ed samf\u00e9lagi.\u00a0 \u00deegn er s\u00e1 sem breytir \u00fev\u00ed!<br \/> <em><br \/> \u00de\u00fd\u00f0andi Hafli\u00f0i Arngr\u00edmsson.<\/em><br \/> <em><br \/> Augusto Boal er f\u00e6ddur \u00ed Rio de Janeiro \u00ed Brasil\u00edu 1931. Hann starfar sem leiks<br \/>\ntj\u00f3ri, leiksk\u00e1ld og leikh\u00fashugsu\u00f0ur og er einn fremsti leikh\u00fasfr\u00f6mu\u00f0ur heims. Hann \u00fer\u00f3a\u00f0i leiklistara\u00f0fer\u00f0ir \u00e1 fimmta \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar sem hann nefndi \u0084Leikh\u00fas hinna k\u00fagu\u00f0u\u0093 og breiddist \u00fat um alla latnesku Amer\u00edku. S\u00ed\u00f0ar \u00fer\u00f3a\u00f0i hann \u0084\u00d3s\u00fdnilega leikh\u00fasi\u00f0\u0093 og loks \u0084L\u00f6ggjafarleikh\u00fasi\u00f0\u0093.\u00a0 Hann var tilnefndur til Fri\u00f0arver\u00f0launa N\u00f3bels 2008. <\/em><\/p>\n<p> <\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leiklistarsamband \u00cdslands hefur \u00e1vallt fengi\u00f0 \u00edslenskan leikh\u00faslistamann til a\u00f0 semja s\u00e9rstakt \u00e1varp \u00ed tilefni Al\u00fej\u00f3\u00f0a leiklistardagsins. Hefur s\u00fa hef\u00f0 skapast a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 flutt af h\u00f6fundi \u00ed \u00fatvarpi \u00feann dag, sem og af st\u00f3ra svi\u00f0i \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins fyrir s\u00fdningu. \u00de\u00e1 hafa leikh\u00faslistamenn um allt land stigi\u00f0 fram fyrir tjald leikh\u00fasa sinna og flutt \u00e1varpi\u00f0 \u00edslenska [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":2230,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[200],"tags":[],"class_list":["post-2232","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-markvert","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2232","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2232"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2232\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2232"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2232"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2232"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}